Morgunblaðið - 27.04.2007, Side 8

Morgunblaðið - 27.04.2007, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nafn Margrét Sverrisdóttir. Starf Starfandi borgarfulltrúi. Fjölskylduhagir Gift og á tvo ung- linga, 17 og 19 ára. Kjördæmi Reykjavík Norður, 1. sæti fyrir Íslandshreyfinguna. Helstu áhugamál? Íslenskt mál, stjórnmál, náttúra, úti- vist, fluguveiði, handfæraveiðar og skotveiði. Skotveiðin snýst þó eig- inlega mest um fjallgöngur! Hvers vegna pólitík? Mér finnst pólitíkin vera lífið sjálft og hef alla tíð verið upptekin af póli- tík. Ef við viljum hafa áhrif á hvern- ig samfélagið þróast verðum við að taka þátt í pólitík. Svo hef ég líka mjög gaman af fólki. Er Alþingi áhugaverður vinnustaður? Já, ég hef aðeins komið þar við og mér hefur fundist þar vera sam- ansafn af skemmtilegu og góðu fólki úr öllum flokkum. Svo er þetta auð- vitað vettvangurinn þar sem hægt er að hafa áhrif á þróun samfélagsins og hvert það stefnir og þarna finnur maður hugsjónum sínum farveg. Það er ekki nóg að tauta ofan í barminn á sér. Fyrsta mál sem þú vilt koma á dagskrá? Ég vil bæta hagstjórnina samhliða því að bæta kjör þeirra sem minnst mega sín. Ég myndi vilja breyta áherslum í hagstjórn þannig að það væri trappað niður til að slá á þenslu en jafnframt lögð veruleg áhersla á nýsköpun, að efla frumkvæði og hugvit og hjálpa smærri fyr- irtækjum að festa rætur. Þarf breytingar? Já, það er nauðsynlegt að skipta um ríkisstjórn. Það er forgangsmálið og mun hafa í för með sér sterkar hug- myndir og ný viðhorf. Nýir frambjóðendur | Margrét Sverrisdóttir Pólitík er lífið sjálft Morgunblaðið/G.Rúnar Breytingar núna Margrét segir nauðsyn að skipta um ríkisstjórn. Nafn Róbert Marshall. Starf Blaðamaður. Fjölskylduhagir Sambúð með Brynhildi Ólafsdóttur og samanlagt eigum við fimm börn og einn kött. Kjördæmi Suður, 3. sæti fyrir Sam- fylkinguna. Áhugamál Tónlist, útivist og stang- veiði. Hvers vegna pólitík? Það var kominn sá tímapunktur í mínu lífi að skipta um starfsferil, gera eitthvað sem mér þætti spenn- andi og á vettvangi þar sem mér þætti ég geta gert gagn. Ég hef brennandi áhuga á þjóðfélags- málum og vil sjá framfarir og jafn- vægi – jafnvægi milli höfðuborgar og landsbyggðar og framfarir í at- vinnumálum. Ég vil jöfnuð og rétt- látt samfélag, þess vegna pólitík. Er Alþingi áhugaverður vinnustaður? Ég hef verið öðru hvoru þar sem blaða- og fréttamaður og held að það geti verið mjög skemmtilegur vinnustaður. Þar er hægt að koma miklu til leiðar og ég sé fyrir mér að ég gæti verið í áratug eða tvo þar áður en ég fæ mér trillu og starfa á héraðsfréttablaði úti á landi. Fyrsta mál sem þú vilt koma á dagskrá? GSM-samband á þjóðveg eitt á Ís- landi! (Róbert var á leið frá Höfn í Hornafirði til Reykjavíkur þegar blaðamaður hringdi og sambandið slitnaði rétt áður en þessi spurning var borin upp.) Í alvöru talað þá væri það að ráðast í úrbætur á sam- göngum til Vestmannaeyja. Þarf breytingar? Já. Ríkisstjórnin er hugmyndas- nauð og sinnulaus. Nýir frambjóðendur | Róbert Marshall Hugmyda- snauð ríkisstjórn Samgöngubætur Róbert Marshall vill bættar samgöngur til Eyja. SIV Friðleifsdóttir heilbrigð- isráðherra og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, hafa und- irritað samstarfssamning um Rannsóknarstofnun um lyfjamál við Háskóla Íslands. Kristín sagði að Rannsóknarstofnunin hefði fulla faglega burði til að stórefla rann- sóknir á lyfjanotkun Íslendinga. Samkvæmt samningnum verður 20 milljónum varið til stofnunar- innar á næstu þremur árum. Rannsóknastofnun um lyfjamál (RUL) er ætlað að verða víðtækur vettvangur um rannsóknir á sviði lyfjamála og verður sérstök áhersla lögð á rannsóknir sem lúta að skynsamlegri ákvarðanatöku um lyfjanotkun, lyfjafaraldsfræði og lyfjahagfræði. Á stofnunin bæði að styrkja og standa að rann- sóknum á þessu sviði í eigin nafni og afla samkeppnisstyrkja til rann- sókna. Þá á hún að sinna þjónustu- verkefnum í lyfjamálum fyrir sam- starfsaðila og aðra aðila og símenntun á sviði lyfjamála. Verði óháð stofnun Kristín Ingólfsdóttir, sem var prófessor í lyfjafræði áður en hún varð rektor, sagðist vera afar ánægð með samninginn enda hefði hún lengi haft áhuga á þessum málum. Kristín sagði afar mik- ilvægt að stofnunin væri óháð því þannig gæti hún sinnt rannsóknum á lyfjamálum frá ýmsum sjón- arhornum án þess að vera háð hagsmunum lyfjaframleiðanda, lyfjasala eða annarra. Samskonar fyrirkomulag, þ.e. að óháðri há- skólastofnun væri falið að rann- saka lyfjamál, væri þekkt víða um heim. Hún þakkaði Siv Friðleifs- dóttur heilbrigðisráðherra sér- staklega fyrir þann áhuga og stuðning sem hún hefði sýnt verk- efninu. Að rannsóknarstofnuninni standa auk Háskólans og heilbrigð- isráðuneytisins, Landlæknisemb- ættið, Landspítalinn, Lyfjastofnun og Lyfjafræðingafélag Íslands. Morgunblaðið/Kristinn Handsala Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra fylgist með þegar Siv Friðleifsdóttir heilbrigð- isráðherra og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, handsala samning um Rannsóknarstofnun í lyfjafræði. Stefnt að stórauknum rannsóknum á lyfjanotkun HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri, Hans Alfreð Krist- jánsson, í þriggja ára fangelsi fyrir alvarlega líkamsárás með því að stinga fyrrverandi unnustu sína með hnífi í bakið. Maðurinn var jafnframt dæmdur til að greiða kon- unni hálfa milljón króna í skaðabæt- ur og til að greiða rúmar tvær millj- ónir króna í sakarkostnað. Hann var hins vegar sýknaður af ákæru fyrir manndrápstilraun. Lögreglan á Húsavík var kölluð að húsi í bænum í nóvember á síð- asta ári en kona hafði hringt og sagst hafa verið stungin í bakið. Þegar lögregla kom á staðinn var eldur laus í stofu hússins. Lögreglu- maður fann konuna meðvitundar- lausa inni í íbúðinni en þegar þeir höfðu komið henni út og stumruðu yfir henni stóð Hans Alfreð yfir þeim með hníf í hendi. Lögreglu- mennirnir yfirbuguðu hann. Í niðurstöðu dómsins segir, að ekki séu aðrir til frásagnar um árás- ina á konuna en hún og Hans Al- freð. Fram hafi komið að þau voru bæði mjög drukkin og sé frásögn þeirra af atburðinum mjög óljós og ruglingsleg. Að virtum framburði þeirra og með vísan til annarra gagna, svo sem áverka þess er kon- an hlaut en reyndist ekki hættu- legur, þyki varhugavert að telja sannað að maðurinn hafi á verkn- aðarstund haft ásetning til að bana konunni eða hlotið að vera ljóst að bani kynni að hljótast af atlögunni. Konan hlaut talsverð brunasár vegna eldsins og var Hans Alfreð ákærður fyrir brot gegn líkama og lífi með því að kalla ekki eftir aðstoð eða reyna að koma konunni út úr húsinu, en sýknaður af þeirri ákæru. Málið dæmdu héraðsdómararnir Freyr Ófeigsson, Hjörtur O. Aðal- steinsson og Ásgeir Pétur Ásgeirs- son. Verjandi var Róbert Árni Hreiðarsson hdl. og sækjandi Sig- ríður Elsa Kjartansdóttir, saksókn- ari hjá ríkissaksóknara. 3 ára fangelsi fyrir að stinga konu í bak MAGNÚSI Oddssyni, ferðamálastjóra Íslands, var í gær heiðraður af Ferðamálaráði Evrópu (ETC) fyrir úrvalsþjón- ustu við ráðið í yfir fimmtán ár, en aðalfundur ráðsins var haldinn á Nordica hóteli í gær. Er þetta í annað sinn í 59 ára sögu ráðsins sem aðalfundurinn er haldinn hér á landi, en 30 ár eru liðin frá fyrri fundinum. „Ísland hefur mikinn hag af þátttöku í Ferðamálaráði Evr- ópu,“ segir Magnús í samtali við Morgunblaðið. „Hér störfum við á jafnréttisgrundvelli með miklu stærri þjóðum og erum jafn sýnileg og stóru löndin þegar kemur að markaðssetningu utan Evrópu.“ Samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, ávarpaði fundinn og þá var gengið formlega frá inngöngu fyrrverandi sovétlýð- veldisins Georgíu í ráðið og eru aðildarríki þess þá orðin 38 talsins. ETC heiðraði Magnús Oddsson Ferðamálaráð Evrópu heiðraði Magnús Oddssoná aðlafundi samtakanna sem haldinn var hér á landi. ENGAN sakaði þegar sex tonna trilla strandaði við Fagranes í Skagafirði laust eftir miðnætti í fyrrinótt. Báturinn og búnaður um borð skemmdust hins vegar tölu- vert. Lögreglan á Sauðárkróki náði fljótlega sambandi við sjómanninn í gegnum gsm-síma. Veður var skap- legt en nokkur undiralda. Nokkur göt komu á bátinn og flæddi sjór inn í hann. Björgunarskipið Sigurvin frá Siglufirði var sent á staðinn og dró hann trilluna til Sauðárkróks. Trilla strandaði KRINGLUNNI S U M A R V Ö R U R N A R E R U K O M N A R FÍKNIEFNAHUNDURINN Bea, sem er í eign lögreglunnar á Sel- fossi, vann fyrir beininu sínu í vik- unni þar sem hún var við þjálfun í Fjarðabyggð ásamt þjálfurum sín- um, Jóhönnu Eyvinsdóttur og Steinari Gunnarssyni, yfirþjálfara ríkislögreglustjóraembættisins. Lögreglumenn á Eskifirði stöðv- uðu við almennt eftirlit bíl og lék grunur á að fíkniefni væru í bílnum. Ökumaður og bifreið voru færð á lögreglustöð og hundateymið var kallað til aðstoðar. Við leit í bílnum var Bea notuð og fann hún fljótt um 29 grömm af hassi. Í framhaldinu var gerð húsleit á heimili hins grunaða en honum var sleppt að loknum yfirheyrslum. Vann fyrir kaupinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.