Morgunblaðið - 27.04.2007, Side 9

Morgunblaðið - 27.04.2007, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 9 FRÉTTIR Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is TIL þess að breyta svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins þannig að fyr- irhuguð byggð á Glaðheimasvæðinu rúmist innan þess þarf að skipa sér- staka nefnd, samvinnunefnd um svæðisskipulag. Samkvæmt upplýs- ingum frá Skipulagsstofnun má reikna með að það taki um sex mán- uði frá því nefndin er skipuð þar til hægt er að staðfesta breytinguna. Deilur innan nefndarinnar og fleiri atriði geta hins vegar valdið því að skipulagsgerðin dragist á langinn. Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu telur umhverfis- ráðuneytið að breytingin sem Kópa- vogsbær vill láta gera á svæðisskipu- lagi höfuðborgarsvæðisins þannig að hægt verði að byggja 150.000 m² af atvinnuhúsnæði á Glaðheimasvæð- inu sé veruleg en ekki óveruleg líkt og bærinn heldur fram. Þessi ákvörðun þýðir að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu verða að koma á fót samvinnunefnd um gerð svæð- isskipulag og gilda sömu reglur um störf hennar og væri nefndin að búa til alveg nýtt skipulag. Langur ferill Breytingaferillinn er nokkuð lang- ur og flókinn. Fyrst þurfa sveitar- félögin sex á höfuðborgarsvæðinu að skipa tvo fulltrúa hvert og umhverf- isráðherra þarf síðan að samþykkja starfsreglur nefndarinnar. Áður en breytingatillagan er tekin til form- legrar afgreiðslu í nefndinni þarf að kynna hana á almennum fundum eða á annan áberandi hátt. Komist nefndin að niðurstöðu um breytinga- tillögu þarf að auglýsa tillöguna og veita tækifæri til athugasemda og tekur sá ferill að lágmarki 8 vikur. Nefndin þarf síðan að taka afstöðu til athugasemda sem berast meðan og að fenginni niðurstöðu í nefndinni er tillagan send til viðeigandi sveita- stjórna. Tillagan telst samþykkt af þeirra hálfu ef þau mótmæla henni ekki innan sex vikna. Er tillagan þá send til Skipulagsstofnunar sem ger- ir tillögu til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu. Gangi allt að óskum tekur þetta ferli að lágmarki sex mánuði, skv. upplýsingum frá Skipulagsstofnun en komi upp ósætti í nefndinni eða formgallar leynast í tillögunni getur ferlið tekið mun lengri tíma. Kópavogsbær óskaði eftir því í fyrradag að skipulagsráð höfuðborg- arsvæðisins yrði kallað saman en það ráð er samráðsvettvangur sveitarfé- laganna en hefur ekki lagalega heim- ild til að gera tillögu að breytingu á svæðisskipulaginu. Breyting á skipulagi tekur sex mánuði eða meira         !" #$%&&&'(% # !" #)%&&'(% *)!" +#%&&&'(%  !", %&&&'(% #)!" #)%&&'(% +#+!" -%&&&'(% #+!" #+%&&&'(% #*!" # %&&&'(%  . !'"( '"  '" ""/ 0  ' .12341            LÖGREGLUSTJÓRINN á Seyðis- firði sendi frá sér tilkynningu í gær um að „áróðursstríðið“ væri hafið og vísaði til þess að „einn af hinum svo- kölluðu mótmælendum Kárahnjúka- virkjunar“ hefði komið til landsins með ferjunni Norrænu í vikunni og haft uppi ásakanir í garð lögreglu í fjölmiðlum. Hann hvatti landsmenn til að taka fréttum af samskiptum lögreglu og mótmælenda með gagn- rýnum huga. Ásakaði lögreglumann Í tilkynningu Lárusar Bjarnason- ar lögreglustjóra segir að lögreglan hafi birt umræddum manni dóm Héraðsdóms Austurlands sem dæmdir hann í 60 daga fangelsi skil- orðsbundið vegna frelsissviptingar skrifstofufólks á Reyðarfirði í fyrra og óhlýðni við fyrirmæli lögregl- unnar. Maðurinn hafi síðan ásakað lög- reglumann í sjónvarpsviðtali um að hafa meðan á tollafgreiðslu bifreiðar hans stóð hótað sér að koma fíkni- efnum eða „einhverju“ eins og mót- mælandinn hefði orðað það, fyrir í bifreiðinni til að geta vísað honum úr landi. Þetta væri vart svaravert eða í frásögur færandi ef ekki væri fyrir það að maðurinn og félagar hans hefðu undanfarin tvö ár komist upp með að ásaka lögregluna á Íslandi, sem samkvæmt skoðanakönnunum nyti mikils trausts almennings m.a. fyrir heiðarleika, um margs konar ávirðingar í starfi, segir í tilkynn- ingu lögreglustjórans. Engar kærur hefðu komið fram vegna þessara meintu ávirðinga en fjölmiðlar hefðu tekið þessum yfir- lýsingum eins og nýju neti og birt þær jafnóðum nær gagnrýnislaust. „Lögreglan hefur leitast við að svara þessu jafnóðum en hefur ekki fengið eins mikinn tíma í fjölmiðlum og mótmælendur og hlutleysis í frétta- flutningi hefur að mati lögreglunnar ekki verið gætt, sem skyldi. Það er þekkt aðferðafræði mót- mælenda að ata mótherja sína auri til að reyna að bæta eigin málstað og koma á þá höggi,“ sagði lögreglu- stjórinn. Mótmælabúðir boðaðar Lögreglan hafi ekki afskipti af mótmælendum að fyrra bragði og þarf til að koma háttsemi af þeirra hálfu sem varðar við lög eins og dómar í málum þeirra fyrir héraðs- dómum Reykjavíkur og Austurlands sanna. Fram kemur í tilkynningunni að boðuð hefur verið uppsetning mót- mælendabúða frá og með 6. júlí nk. Segir „áróðursstríðið“ hafið EF ÞÚ FINNUR EKKI RÉTTA ÁKLÆÐIÐ EKKI KENNA OKKUR UM Fáðu frían vörulista í verslun okkar InnX/BoConcept®Íslandi, Faxafeni 8, 108 Reykjavík. Sími 577 1170 www.boconcept.is Hvar fást húsgögn sem sameina notagildi og frábæra hönnun? Jú, hjá BoConcept® þar sem við leggjum metnað okkar í að ná fram því besta í öllum framleiðsluvörum okkar - allt frá heildarhönnun til minnstu smáatriða. Þú munt einnig sjá að verðið er jafn úthugsað og húsgögnin og aukahlutirnir. Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 15% afsláttur af öllum yfirhöfnum Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 NÝ SENDING STAKIR JAKKAR str. 36-56 Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862 Stærðir 40-52 Vor - Sumar 07 kynningardagar 26. apríl-5. maí          Þú þværð hárið, þurrkar, berð froðuna í, greiðir og hárið nær sínum eðlilega lit á ný, þykknar og fær frískari blæ. Grecian 2000 hárfroðan fæst hjá: Lyfju Lágmúla, Lyfju Smáralind, Árbæjar Apóteki, Lyfjavali, Apótekinu Mjódd, Hársnyrtistofunni Hár - Hjallahrauni 13 Hfj., Rakarastofu Gríms, Rakarastofu Ágústar og Garðars, Rakarastofunni Klapparstíg, Rakarastofu Ragnars - Akureyri, Torfa Geirmunds, Hverfisgötu 117 og Hagkaupum. Árni Scheving slf. - Heildverslun, sími 897 7030 Helgartilboð í Flash 20% afsláttur af kjólum við buxur Stærðir 36-46 Laugavegi 54 sími 552 5201

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.