Morgunblaðið - 27.04.2007, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 11
FRÉTTIR
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
BYGGINGARFÉLAGIÐ
Eykt hf. kynnti í gær skipu-
lag Höfðatorgs í Reykjavík
en þar stendur til að reisa
blöndu af 7–9 hæða húsum
og þremur turnum. Hæsti
turninn verður 19 hæðir og
alls 70 metrar á hæð.
Fjárfestingin nemur alls
30 milljörðum króna og þar
til framkvæmdum lýkur árið
2010 munu að jafnaði 200–
300 manns vinna að verkefn-
inu. Á kynningarfundi í gær
sagði Gunnar Valur Gísla-
son, forstjóri Eyktar, að
með uppbyggingu Höfða-
torgs yrði miðborgin stækk-
uð verulega til austurs og
torgið myndi tengja saman
miðborgina og Borgartún.
Við skipulag hverfisins hefði
verið lögð mikil áhersla á að
torgið væri umgjörð um
samfélag og mannlíf. Um
60% af reitnum er opið
svæði.
Allt verslunarhúsnæði við
torgið verður leigt út en
íbúðirnar, um 200 talsins,
verða seldar. Að sögn Pálma
Kristmundssonar hjá PK
Arkitektum, aðalhönnuðar
Höfðatorgs, er gert ráð fyrir
um 600 íbúum við torgið en
að alls muni um 2.000 manns
starfa þar og búa. Þar verði
smærri veitingahús og versl-
anir og einnig kom fram að
hugsanlega yrði kvikmynda-
hús í einu húsanna. „Við er-
um að skapa mannlíf fremur
en að reisa eingöngu bygg-
ingar,“ sagði Pálmi.
Töluverðar athugasemdir
bárust við deiliskipulag-
stillöguna þegar hún var til
meðferðar hjá borginni en
Pálmi sagði í gær að tekið
hefði verið tillit til þeirra
m.a. með því að minnka
byggingarmagn um ríflega
12.000 m² og lækka hús við
Skúlatún úr 14 hæðum í 9.
Þá hefði mikil áhersla verið
lögð á að koma í veg fyrir
skuggavarp frá húsunum yf-
ir í nálæg íbúðarhverfi og í
þeim tilgangi hefði verið
ákveðið að reisa hæsta turn-
inn á horni Borgartúns og
Skúlatúns. Þá hefði sér-
staklega verið gætt að því að
mynda skjól á torginu og
m.a. farið með líkan af
hverfinu í vindgöng í þeim
tilgangi að sjá hvað þyrfti að
gera til að koma í veg fyrir
að vindhviður kæmust inn á
torgið.
Höfðatorg á að stækka miðborgina
Blanda af 7–9 hæða húsum og þremur turnum Sá hæsti verður 19 hæðir og 70 metrar á hæð
Mynd/PK Arkitektar
Hátt og opið Hæsti turninn verður 19 hæðir og 70 metrar að hæð. Um 60% byggingareitsins
fara undir opin svæði og við hönnunina var lögð áhersla á að skapa miðbæjarstemningu.
Sést víða að Skrifstofuturninn verður þriðja hæsta hús lands-
ins og áberandi kennileiti í borgarlandslaginu.
Í HNOTSKURN
» Á Höfðatorgi rís blanda af 7 og 9 hæða húsum og12, 16 og 19 hæða turnum.
» 2⁄3 hlutar fara undir skrifstofur og verslanir og 1⁄3undir íbúðir.
» Gert er ráð fyrir 200 íbúðum og um 600 íbúum.» Deiliskipulag að Höfðatorgi hefur verið samþykktog verður byrjað á framkvæmdum við hæsta turn-
inn innan tíðar.
» Framkvæmdirnar kosta alls um 30 milljarða.» Alls verður flatarmál bygginga um 75.000 m² ofanjarðar og undir torginu verður bílakjallari á tveim-
ur hæðum.
» 19 hæða turninn verður 70 metrar á hæð og þriðjahæsta hús landsins.
» Í Kópavogi er verið að reisa turn við Smáratorgsem verður 77,9 metrar þegar lyftuhús er talið með
og verður hæsta hús landsins.
» Hallgrímskirkjuturn er 74,5 metra hár.» Eitt hús er þegar risið við Höfðatorg, Borgartún10–12. Reykjavíkurborg hefur leigt mestallt húsið.
Morgunblaðið/Kristinn
Pétur Guðmundsson, stjórnarformaður Eyktar, Pálmi Krist-
mundsson, Rupali Steinmeyer frá þýska fyrirtækinu MetaDe-
sign sem tók þátt í hönnuninni og Gunnar V. Gíslason.
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
BYGGING svonefndra turna eða
háhýsa sem eru umtalsvert hærri
en þær byggingar sem fyrir eru í
Reykjavík og nágrannasveit-
arfélögum eru borgarmyndinni
alls ekki til framdráttar, að sögn
Péturs H. Ármannssonar arki-
tekts.
Pétur sagði að í öllum borgum
væri einhver regla í gildi um það
hvað teldist venjuleg hæð byggð-
ar og hvað færi upp fyrir hana.
„Í gömlum evrópskum borgum
voru húsin yfirleitt jafnhá og svo
voru það bara kirkjuturnar, turn-
spírur og hallir sem gnæfðu upp
fyrir þessa mynd og það voru yf-
irleitt glæsilegustu og veglegustu
hús borgarinnar, sem mestur list-
rænn metnaður var lagður í.
Þannig hefur það verið í Reykja-
vík líka merkilegt nokk og þá er
ég að tala um svæðið næst mið-
borginni, því að þær byggingar
sem gnæfa upp úr borgarmynd-
inni eru Hallgrímskirkja, Landa-
kotskirkja, Sjómannaskólinn og
Perlan og þetta eru allt saman
byggingar sem eru formaðar og
þaulhugsaðar til þess að vera
prýði í borgarmyndinni,“ sagði
Pétur.
Hann sagði að seinna á sjötta
áratugnum hefðu verið byggð
fyrstu íbúðarháhýsin í Reykjavík
og þau hefðu markvisst verið
staðsett upp á hæðum við Aust-
urbrún og Sólheima til þess að
mynda þyrpingu. Sama teikn-
ingin hefði verið notuð, þannig að
þau mynduðu ákveðna heild og
gengu upp í landslaginu og hann
teldi ekki að þau hefðu beinlínis
verið til óprýði í borgarmyndinni,
enda þyrftu háhýsi ekki að vera
það. Hins vegar þyrfti að velja
staðsetningu þeirra afar vel og
ígrunda eins og gert hefði verið í
ofangreindum dæmum. Þetta yrði
að gera því sjónræn áhrif þessara
bygginga væru svo gríðarleg og
því þyrfti að gera miklu meiri
hönnunar- og byggingarlistalegar
kröfur til þeirra heldur en venju-
legra húsa.
Pétur sagði að þessa hefði ekki
verið gætt við byggingu háhýs-
isins við Grand hótel við Sigtún.
Þar væri um skipulagsslys að
ræða. „Það er bæði afleitlega
staðsett í skipulagi á allt of
þröngri lóð og alveg ofan í íbúð-
arhverfi, situr illa í götumyndum
og síðan er bara arkitektúrinn á
húsinu alveg skelfilegur,“ sagði
Pétur ennfremur.
Hann sagðist ekki getað tjáð
sig um fyrirhuguð háhýsi við
Höfðatún, þar sem hann hefði
ekki sett sig inn í þær tillögur
sem þar væru á ferðinni.
Aðspurður hvað réð þessari
þróun að byggja hátt, sagði Pétur
að þar réði hagnaður för og ekk-
ert annað. Menn byggðu ekki
svona hús af hugsjónaástæðum.
Það væri hlutverk borgar- og
bæjaryfirvalda að tryggja að það
væri vandað til verka og að þess-
ar byggingar væru í samræmi við
umhverfið ef þær væru leyfðar.
Skipulagsvaldið væri þar. „Ég
held að svona byggingar fari ekki
í umhverfismat, þó að þær ættu
nú kannski að gera það,“ sagði
Pétur að lokum.
Sjónræn áhrif
eru gríðarleg
Turnarnir tveir Tölvugerð mynd sem sýnir turnana tvo sem rísa eiga í Kópavogsdal. Annar þeirra verður hæsta
hús landsins, litlu hærri en Hallgrímskirkjuturn og sá lægri verður fullbúinn að tveimur árum liðnum.
Morgunblaðið/Sverrir
Grand hotel Turninn við Grand hótel við Sigtún er 65 metra hár.