Morgunblaðið - 27.04.2007, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 13
FRÉTTIR
HJÁLPARSTARF kirkjunnar hefur
fengið 6,5 milljóna króna styrk frá
utanríkisráðuneytinu til að veita
flóttamönnum í Norður-Úganda
neyðaraðstoð. ACT / Alþjóðaneyð-
arhjálp kirkna sem Hjálparstarf
kirkjunnar er aðili að hyggst veita
aðstoð í fimm héruðum landsins;
veita skjól, bæta fæðuöryggi, sinna
grunnheilsugæslu, útvega aðgang
að vatni og auka þar með hreinlæti
og veita áfallahjálp. Allt að 90%
íbúa Norður-Úganda búa enn í
flóttamannabúðum.
Allt að 90% íbúa Norður-Úganda
búa enn í flóttamannabúðum, 20 ár-
um eftir að uppreisn LRA hófst.
Það eru um 1,8 milljónir manna.
Flóttamenn dreifast á um 200
flóttamannabúðir þar sem hvorki
er hægt að veita lágmarks aðstoð
né tryggja öryggi. Í búðunum vant-
ar nægilegan aðgang að hreinu
vatni, matur er af skornum
skammti, aðgangur að menntun er í
lágmarki, heilsufar lélegt með tíð-
um farsóttum og fullorðnir og börn
líða vegna sálrænna áfalla. Áætlað
er að á hverri viku deyi um 1.000
manns vegna ofbeldis eða sjúkdóma
sem geisa í búðunum.
Styrkur til
hjálparstarfs
í Úganda
Reuters
SIV Friðleifsdóttir heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra hefur
undirritað reglugerð sem felur í sér
að Tryggingastofnun ríkisins er
heimilt að taka aukinn þátt í kostn-
aði við tannlækningar fatlaðra og
langveikra barna sem njóta umönn-
unargreiðslna og vegna tannlækn-
ismeðferða þroskaheftra sem eru
18 ára og eldri.
Samkvæmt nýju reglugerðinni er
Tryggingastofnun heimilað að
greiða 100% í stað 90% kostnaðar,
samkvæmt gjaldskrá ráðherra, við
nauðsynlega almenna tannlæknis-
meðferð barna sem falla undir
ákvæði reglugerðar um fjárhags-
lega aðstoð við framfærendur fatl-
aðra og langveikra barna. Þá er
einnig heimilt samkvæmt reglu-
gerðinni að hækka greiðslur vegna
nauðsynlegrar almennrar tann-
læknismeðferðar andlega þroska-
heftra einstaklinga, sem eru 18 ára
eða eldri, úr 90% í 100%.
TR tekur aukinn
þátt í kostnaði
BÚIÐ er að setja
upp hleðslubox í
öllum sundlaug-
um á höfuðborg-
arsvæðinu. Þau
eru staðsett á að-
gengilegum stöð-
um, þannig að
þægilegt á að
vera fyrir alla að
nýta sér þá þjónustu að geta hlaðið
símann eða annan búnað á meðan
farið er í sund. Notkunin fyrstu
tvær vikurnar sýnir að þetta er
þjónusta sem viðskiptavinir kunna
vel að meta, segir í fréttatilkynn-
ingu. Hægt er að greiða í hleðslu-
boxin bæði með smámynt en einnig
með því að senda SMS-skilaboð í
númerið 1900. Búið er að setja upp
50 ný hleðslubox á öllu höfuð-
borgarsvæðinu, en hægt er að sjá
staðsetningu þeirra á heimasíðunni
www.chargebox.is
Hleðslubox við
sundlaugarnar
BREYTINGAR á umferðarlögum
sem varða meðal annars hert viður-
lög við umferðarlagabrotum og
breytingar á reglugerð um gerð og
búnað ökutækja sem flytja hreyfi-
hamlaða tóku gildi í gær, undir lok
umferðaröryggisviku.
Breytingin á umferðarlögunum
frá árinu 1987 felur meðal annars í
sér hertar sektaraðgerðir vegna um-
ferðarlagabrota. Þannig segir í nýrri
grein laganna að ,,þegar ekið er
meira en tvöfalt hraðar en heimilt er
skal svipting ökuréttar ákvörðuð eigi
skemur en þrjá mánuði. Þá er í lög-
unum nýtt ákvæði sem segir að lög-
regla skuli banna byrjanda sem hef-
ur bráðabirgðaökuskírteini að aka
hafi hann fengið fjóra eða fleiri
punkta samkvæmt punktakerfi
vegna umferðarlagabrota. Þessu
banni má þó aðeins beita einu sinni á
gildistíma bráðabirgðaökuskírteinis.
Akstursbannið gildir þar til byrjand-
inn hefur sótt námskeið og tekið
ökupróf að nýju.
Gera má ökutæki upptækt
Annað nýmæli laganna er að þeg-
ar um stórfelldan eða ítrekaðan ölv-
unarakstur, hraðakstur eða akstur
án ökuréttinda er að ræða má gera
ökutæki upptækt sem notað var við
brotið nema það sé í eigu annars
manns sem ekki er við brotið riðinn.
Við sömu aðstæður má gera upptækt
ökutæki þess sem hefur framið til-
greind brot enda þótt það ökutæki
hafi ekki verið notað þegar brot var
framið, segir í frétt frá samgöngu-
ráðuneytinu.
Í reglugerðinni um gerð og búnað
ökutækja eru ný ákvæði um notkun
öryggisbelta til verndar hreyfihöml-
uðum farþegum sem ferðast með
ökutækjum. Bifreið sem notuð er til
að flytja hreyfihamlaða skal að
minnsta kosti búin þriggja festu ör-
yggisbeltum og öðrum búnaði sem
hæfir. Það sama á við um ökutæki
sem notað er til flutnings á hreyfi-
hömluðum í hjólastólum. Er búnað-
inum lýst nánar í reglugerðinni og
þar er einnig að finna nýjar skil-
greiningar á flokkun ökutækja. Ný
reglugerð um öryggis- og verndar-
búnað í ökutækjum hefur tekið gildi.
Nýmæli er að skylt er bílstjóra, leið-
sögumanni eða fararstjóra að til-
kynna farþegum hópbifreiða um
notkun öryggisbelta meðan ekið er.
Þessa tilkynningaskyldu má einnig
uppfylla með hljóð- eða myndbands-
upptöku. Einnig skal leitast við að
kynna farþegum skólabíla mikilvægi
þess að nota öryggisbúnað. Sérstök
ákvæði eru um notkun öryggis- og
varnarbúnaðar fyrir börn í ökutækj-
um og hvaða kröfur búnaðurinn skuli
uppfylla. Þess skal gæta að búnaður-
inn hæfi börnum miðað við þyngd og
stærð.
Harðari viðurlög við umferðarlagabrotum
Nýr, fallegri og miklu betri Opel.
0 kr. í útborgun*
28.412* kr. á mánuði fyrir beinskiptan Opel Astra 1.6 ( Verð: 1.890.000 kr. )
31.836* kr. á mánuði fyrir sjálfskiptan Opel Astra 1.8 ( Verð: 2.120.000 kr. )
Nýi Opel Astra er fallegasti bíllinn á götunni. Stórglæsileg hönnun
helst í hendur við kraftmikla vél og magnaða aksturseiginleika.
Drekkhlaðinn aukabúnaði sem gerir aksturinn ennþá ánægjulegri.
Astra var mest seldi bíll Evrópu árið 2006 og það er ljóst að þeir
ætla ekki að gefa neitt eftir árið 2007.
ESP skriðvörn, útvarpsfjarstýring í stýri, samlitur og loftkæling. 7 hátalarar, spilar mp3,
hiti í sætum, aksturstölva og margt, margt fleira.
Hlaðinn aukabúnaði
Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 12:00–16:00Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is
* Miðað við 100% bílasamning og greiðslur í 84 mánuði. Aukahlutir á mynd; álfelgur og þokuljós
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA