Morgunblaðið - 27.04.2007, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
66. FISKIÞING verður haldið á
Grand Hótel Reykjavík við Sigtún í
dag föstudaginn 27. apríl. Það hefst
kl. 13.00 og því verður slitið kl. 17.
Fiskiþing er opið málþing um mál-
efni er varða sjávarútveginn miklu.
Þema þingsins er „Sjávarútvegur og
menntun“.
„Markmið með því umfjöllunar-
efni er í fyrsta lagi að fjalla um hvaða
þarfir fyrir menntun eru fyrir hendi í
greininni. Í öðru lagi viljum við
varpa ljósi á það sem boðið er upp á
varðandi menntun fyrir sjávarútveg-
inn innan og utan skólakerfisins. Í
síðasta lagi viljum við fá álit þeirra,
sem starfa innan greinarinnar, á því
hvernig til tekst að mæta þeim þörf-
um, sem eru fyrir hendi. Þá höfum
við freistast til þess að fjalla um ný-
lega könnun, sem Samtök atvinnu-
lífsins stóðu fyrir, sem leiddi í ljós að
ungmennin okkar, sem taka munu
við af okkur, hafa – svo vægt sé að
orði komist – afar lítinn áhuga á að
starfa í greininni. Það hlýtur að
valda áhyggjum og kalla á viðbrögð
greinarinnar.
Til þess að ræða þessi mál höfum
við fengið valinkunna einstaklinga,
sem þekkja vel til hver á sínu sviði,“
segir í frétt frá Fiskifélagi Íslands.
Fiskiþing
haldið í dag
NOKKUR hundruð lifandi let-
urhumrar frá Íslandi, sem fluttir
voru á sjávarútvegssýninguna Euro-
pean Seafood Exposition í Brussel í
Belgíu, hafa vakið mikla athygli sýn-
ingargesta. Humrarnir, sem voru
veiddir á Hornarfjarðardjúpi, voru
fluttir fyrst á humarhótelið, sem er
rekið á vegum Matís og Frum-
kvöðlaseturs Austurlands. Þar voru
þeir kældir niður áður en þeir voru
fluttir út með Icelandair Cargo til
Brussel. Humrarnir voru svo fluttir
á bás fyrirtækisins OOJEE á sýning-
unni. Humranir þykja vænir að
stærð en þeir eru um 100 grömm að
þyngd að meðaltali. Veiðar og flutn-
ingur á lifandi humri frá Hornafirði
er hluti af tilraunaverkefni Matís,
Frumkvöðlaseturs Austurlands og
Skinneyjar Þinganess. Það er styrkt
af AVS-rannsóknasjóðnum.
Sýningar Guðmundur Gunnarsson, Matís, Ari Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Frumkvöðlaseturs Austurlands, og Karl Jóhannesson,
OOJEE, með lifandi íslenskan humar á sýningunni í Brussel.
Íslenzkur humar í Brussel
EINAR K. Guðfinnsson sjávarútvegs-
ráðherra hefur ákveðið að afnema frá
næstu fiskveiðiáramótum svo kallað
útflutningsálag.
Í álaginu felst að botnfiskafli sem
fluttur er óunninn á erlendan markað
og sem hefur ekki endanlega verið
vigtaður hér á landi fyrir útflutning er
reiknaður með 10% álagi til aflamarks.
Afnám álagsins er ákveðið í
tengslum við samning Íslands við Evr-
ópusambandið um bættan markaðsað-
gang fyrir tilteknar sjávarafurðir á
markaði sambandsins. Jafnframt skip-
ar ráðherra þriggja manna nefnd sem
skila á tillögum um hvernig fiskkaup-
endum hérlendis verður best tryggður
möguleiki á að bjóða í þennan fisk áður
en hann er fluttur út.
Í nefndinni sitja: Einar Oddur
Kristjánsson alþingismaður, formaður
hennar, Stefán Friðriksson aðstoðar-
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinn-
ar í Vestmannaeyjum og Kjartan Guð-
mundsson fiskverkandi í
Reykjanesbæ. Nefndinni er ætlað að
skila tillögum sínum áður en útflutn-
ingsálagið verður afnumið um fisk-
veiðiáramótin.
Með afnámi álagsins vænkast hagur
þeirra, sem flytja óunnin fisk á markað
erlendis. Séu til dæmis flutt utan 100
tonn nú, dragast 110 tonn af kvóta við
komandi, en eftir breytinguna verður
enginn frádráttur. Vegna þessa kann
breytingin að vera hvatning til aukins
útflutnings. Innlendir fiskverkendur
hafa haft horn í síðu þessa útflutnings
og vilja fá að eiga möguleika á því að
bjóða í þann afla, sem fyrirhugað er að
flytja óunnin utan.
Útflutningsálag
verður afnumið
Í HNOTSKURN
»Með afnámi álagsins vænkasthagur þeirra, sem flytja
óunnin fisk á markað erlendis.
»Skila á tillögum um hvernigfiskkaupendum hérlendis
verður best tryggður möguleiki
á að bjóða í þennan fisk áður en
hann er fluttur út.
Afnámið í
tengslum við
samning við ESB
ÚR VERINU
-./5
-./
0)
$-)
1 -
0
0
-./
(/
. )
1-"
1-"
0
0
)#1#
2
324
. )
//
1-
1-.
0
0
5*
) ) )
" .0"
1-
1-)
0
0
-./6'
-./&"
" " /
.)
$ -
1 -
0
0
MILESTONE hefur ráðist í eina
stærstu yfirtöku sem íslenskt félag
hefur staðið fyrir með því að kaupa
ráðandi hlut í sænska fjármálafyr-
irtækinu Invik & Co. AB, jafnframt
því að gera öðrum hluthöfum yf-
irtökutilboð. Stjórn Invik & Co.
mælir með yfirtökutilboðinu en
heildarvirði viðskiptanna eru um 70
milljarðar íslenskra króna að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Hluti kaupverðsins er fjármagnað-
ur af fjárfestingabönkunum Bear
Stearns og Morgan Stanley en þeir
hafa einnig veitt Milestone ráðgjöf
við kaupin og fyrirhugaða yfirtöku.
Milestone hefur tryggt sér um
63% atkvæða í Invik & Co. með
kaupum á 26% hlut í félaginu og
hefur stjórn félagsins mælt einróma
með því við hluthafa að þeir gangi
að yfirtökutilboði Milestone. Í fram-
haldi af því er ætlunin að taka In-
vik& Co. af markaði en félagið er
skráð í Kauphöllinni í Stokkhólmi
(OMX). Kaupin eru háð samþykki
eftirlitsaðila í Lúxemborg, Svíþjóð
og á Íslandi.
Áhersla á nýja markaði
Í samtali við Morgunblaðið sagð-
ist Karl Wernersson, stjórnarfor-
maður vera að nýta sér þá reynslu
og þekkingu á norrænum fjármála-
markaði sem hann öðlaðist með
stjórnarsetu í Glitni og að ástæða
kaupanna væri einfaldlega að ná
fram sóknartækifærum og einbeita
sér að nýjum mörkuðum þar sem
vaxtarmöguleikar hérlendis eru
takmarkaðir. Með kaupum á Invik
& Co. er því rúmlega helmingur
eigna félagsins erlendis.
Invik & Co. er með víðtæka
starfsemi á sænskum trygginga- og
fjármála auk þess að vera með sér-
hæfða bankastarfsemi í Lúxem-
borg.
Að sögn Karls eru kaupin liður í
því að styrkja stöðu félagsins á
:norrænum fjármálamarkaði með
áherslu á tryggingastarfsemi og
sérhæfða fjármálaþjónustu auk
þess sem mikil tækifæri liggi í í
samþættingu og samvinnu þessara
eininga og horfir hann þar sérstak-
lega til Sjóvár og Askar Capital.
Það sé ekki fyrirhugað að skipta
Invik upp heldur verði lögð áhersla
á samstarf milli systurfélaganna.
Spurður um mögulegar manna-
breytingar segir Karl að rætt hafi
verið við yfirmenn Invik og stærstu
dótturfélaga og þeir séu hæfilega
bjartsýnir á að njóta starfskrafta
þeirra áfram. .
Eftir kaupin verða heildareignir
Milestone um 341 milljarður króna
og starfsmenn innan samstæðunnar
verða um 900 talsins. Eignarhalds-
félagið Milestone er nú alfarið í
eigu í eigu bræðranna Karls og
Steingríms Wernerssona en Ingunn
systir þeirra hefur selt þeim alla
hluti sína og stofnað eigið fjárfest-
ingafyrirtæki, Inn fjárfestingu ehf.
Milestone gerir yf-
irtökutilboð í Invik
Milestone hefur keypt ráðandi hlut og gert yfirtökutilboð upp
á 70 milljarða í sænska fjármálafyrirtækið Invik & Co.
Í HNOTSKURN
»Milestone hefur keypt ráð-andi hlut í Invik & Co. sem
er sænskt fjármálafyrirtækiog
gert öðrum hluthöfum yf-
irtökutilboð.
»Heildarvirði yfirtökunnarum 70 milljarðar og er hún
fjármögnuð að hluta af Morg-
an Stanley og Bear Stearns
» Invik & Co. er skráð íKauphöllinni í Stokkhólmi
(OMX). Milestone hyggst taka
það af markaði.
Höfuðborgin Höfuðstöðvar Invik eru í Stokkhólmi.
Eftir Sigrúnu Rósu Björnsdóttur
sigrunrosa@mbl.is
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALA OMX-kauphall-
arinnar lækkaði um 1,11% í gær og er
hún nú 7.717 stig. Heildarvelta dags-
ins var tæplega 15,8 milljarðar króna
og en þar af var velta með hlutabréf
fyrir um 11 milljarða.
Mest viðskipti voru með bréf Ex-
ista, alls fyrir um 4,2 milljarða en bréf
í Kaupþingi skiptu um hendur fyrir um
2,1 milljarða.
Mest hækkun varð á bréfum fær-
eyska olíuleitarfyrirtækisins Atlantic
Petroleum en þau hækkuðu um
2,84% og mest lækkun varð á bréfum
Nýherja hf. Lækkuðu þau um 3,41%.
Lækkun í kauphöllinni
● INGVAR Helgason ehf. hefur keypt
fyrirtækið ALP ehf. sem rekur bílaleig-
urnar AVIS og Budget á Íslandi. Stofn-
að verður sérstakt eignarhaldsfélag
um þessa fjárfestingu. Í tilkynningu
kemur fram að kaupverð sé trún-
aðarmál en ráðgjafi seljanda var fyr-
irtækjaráðgjöf Glitnis. Kaupin eru
gerð með fyrirvara um áreið-
anleikakönnun og samþykki AVIS/
Budget, eiganda vörumerkja AVIS og
Budget, sem ALP er umboðsaðili fyrir.
ALP hefur verið í eigu fjárfesta undir
forystu Hjálmars Péturssonar und-
anfarin þrjú ár en hann er jafnframt
framkvæmdastjóri þess. Á þessum
tíma hefur mikill vöxtur verið í starf-
semi bílaleignanna en samanlagður
bílafloti er nú tæplega 1.200 bílar.
Ingvar Helgason
kaupir ALP
● ICEBANK, sem áður hét Spari-
sjóðabankinn, hefur gengið frá samn-
ingum um stærsta sambankalán sem
bankinn hefur tekið. Andvirði lánsins
er 217 milljónir evra, um 19 milljarðar
króna, og er það rúmlega tvöfalt hærri
upphæð en upphaflega var óskað eft-
ir. Ástæðan er sú að eftirspurn eftir
þátttöku í láninu var gífurlega mikil
enda standa alls 34 evrópskir bankar
að láninu.
Samningurinn var undirritaður í
Berchtesgaden í Þýskalandi en lánið
er leitt af fjórum bönkum: BayernLB
og HSH Nordbank frá Þýskalandi, For-
tis frá Belgíu og Raiffeisen Zentral-
bank frá Austurríki.
Lánsfénu á samkvæmt frétta-
tilkynningu að ráðstafa til frekari vaxt-
ar bankans.
Icebank tekur stórt lán
HAGNAÐUR Straums-Burðaráss
fjárfestingarbanka eftir skatta nam
69,16 milljónum evra, jafngildi 6,1
milljarðs króna,
á fyrsta fjórð-
ungi ársins. Á
sama tímabili í
fyrra nam hagn-
aður bankans
276 milljónum
evra, ríflega 24 milljörðum króna, og
er því um verulegan samdrátt að
ræða. Þess ber þó að geta að á fyrsta
fjórðungi 2006 seldi bankinn stóran
hlut í Íslandsbanka, sem þá hét, og
hafði sú sala mikil áhrif á afkomuna.
Annað sem áberandi er í uppgjör-
inu að arðstekjur meira en tvöfaldast
á milli ára, eru 17,1 milljón nú en
voru 7,9 milljónir í fyrra.
Líkt og á við um aðra íslenska
banka hefur hægt á vexti Straums-
Burðaráss en bankinn hefur þó opn-
að skrifstofur erlendis að undan-
förnu sem meðal annars endurspegl-
ast í því að rekstrarkostnaður hefur
hækkað þó nokkuð á milli ára.
Heildareignir hafa vaxið um tæp
20% frá áramótum og eigið fé um 3%
en arðsemi eigin fjár á fjórðungnum
var 19,9% á ársgrundvelli. Eiginfjár-
hlutfall var 32,8% en var 37,6% um
áramótin og hið svokallaða Tier 1-
eiginfjárhlutfall var 30,3% nú en
35,2% um áramótin. Þess má geta að
slíkt hlutfall er eingöngu reiknað
þegar bankar eru annars vegar.
Gengi bréfa Straums-Burðaráss
lækkaði um 2,45% í OMX kauphöll-
inni í gær sem bendir til þess að upp-
gjörið hafi verið undir væntingum
markaðsaðila og hið sama má lesa í
Morgunkorni Glitnis í gær. Þar er
bankinn jafnframt gagnrýndur fyrir
slaka upplýsingagjöf og sagt að fjár-
festar eigi bágt með að mynda sér
rétta hugmynd um gengi bankans.
Undir
vænting-
um
Uppgjör
Straumur-Burðarás fjárfesting-
arbanki hf.
sverrirth@mbl.is