Morgunblaðið - 27.04.2007, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 15
„VEXTI, vaxtavexti og vexti líka á
það,“ söng Trölli í gamla daga en
veruleg aukning vaxtatekna er áber-
andi í uppgjöri Kaupþings banka
fyrir fyrsta fjórðung ársins. Alls juk-
ust vaxtatekjur bankans um 55% á
milli ára og námu þær að þessu sinni
ríflega 16 milljörðum króna en jafn-
framt jukust þóknanatekjur um 43%
á milli ára.
Þrátt fyrir þetta hefur afkoma
ekki aukist mikið á milli ára þar sem
gjöld jukust töluvert auk þess sem
fyrirtækið greiddi hærri tekjuskatt
nú en í fyrra. Hagnaður fyrirtæk-
isins eftir skatta er 20,3 milljarðar
króna en var í fyrra 18,8 milljarðar.
Eignir bankans nema nú 4.198
milljörðum króna og hafa þær vaxið
um 3,5% á milli ára en eigið fé er 324
milljarðar króna og hefur það dreg-
ist saman á milli ára. Arðsemi eigin
fjár á ársgrundvelli er þó 27,6% sam-
kvæmt tilkynningu bankans til kaup-
hallar. Eiginfjárhlutfall er 13,8% ef
notuð er CAD-aðferðin en svokallað
Tier 1-eiginfjárhlutfall er 9,9%.
Síðustu ár hefur rekstur bankans
einkennst af miklum ytri vexti og
hefur það endurspeglast í uppgjör-
um þar sem allar afkomu- og eigna-
tölur hafa hækkað verulega á milli
ára. Þessi vöxtur hefur nú mettast
en það má þó ekki túlka sem svo að
vikið hafi verið frá vaxtastefnunni.
Stundum þarf að melta bitana.
sverrirth@mbl.is
Uppgjör
Kaupþing banki hf.
Vaxta- og þókn-
anatekjur hækka
FJÁRMÁLAGEIRINN hefur tekið
miklum stakkaskiptum á Íslandi á
undraskömmum tíma. Árangur
starfsmanna og forystumanna
hefur verið með ólíkindum og
varpað glæsilegum bjarma yfir
sviðið. Fjármálageirinn er orðinn
ein helsta undirstaða velsældar
og framfara á Íslandi.
Þetta sagði Jón Sigurðsson við-
skiptaráðherra í ræðu á aðalfundi
Samtaka fjármálafyrirtækja sem
haldinn var í gær.
Bjarni Ármannsson, formaður
Samtaka fjármálafyrirtækja,
sagði að segja mætti að Alþingi
hefði af framsýni skapað á síðasta
áratug umhverfi til þess að
byggja upp alþjóðlega starfsemi
sem nýttimenntun til framfara.
Hins vegar hefði tiltölulega lítil
þróun orðið í starfsskilyrðum á
því kjörtímabili sem nú sé að
ljúka.
„Kannski er það ekki nema von
þegar á Alþingi heyrast þau við-
horf að ein atvinnugrein sem vill
svo til að veitir um sex þúsund
manns vinnu, borgar hæstu skatt-
ana, greiðir hvað bestu launin og
býður upp á mesta starfsöryggið
ætti ef til vill að koma sér úr
landi. Svona málflutningur felur í
sér skýr og sérlega neikvæð
skilaboð, ekki síst til starfsfólks-
ins sem starfar í greininni, og
hefur auðvitað ekkert til slíkra
orða unnið. [-] Ég fullyrði að það
er ekki vilji íslensku þjóðarinnar
að fjármálafyrirtækin flytji höf-
uðstöðvar sínar úr landi, “ sagði
Bjarni.
Morgunblaðið/Golli
Mikið breyst Bjarni Ármannsson, formaður Samtaka fjármálafyrirtækja og forstjóri Glitnis.
Orðinn undirstaða velferðar
ÍSLENSK fyrirtæki hafa á und-
anförnum árum æ ofan í æ slegið
afkomumet og er fyrsti fjórðungur
þessa árs þar engin undantekning.
Afkoma Exista á fyrsta fjórðungi
ársins var besta afkoma íslensks
fyrirtækis á einum einstökum
fjórðungi frá upphafi. 641 milljón
evra, sem jafngildir 57,4 milljörð-
um króna, var afraksturinn og er
það aukning um nær 500% frá
sama tímabili í fyrra þegar bankinn
hagnaðist um 107 milljónir evra.
Ævintýraleg aukning sem þó á
mestar rætur í finnskum þjóðsög-
um og ævintýrum. Dýrgripurinn
Sampo er í Kalevala þekkt fyrir að
veita handhafa sínum gæfu og í ís-
lenskri fjármálasögu verður trygg-
ingafyrirtækið Sampo þekkt fyrir
að hafa aflað handhafa sínum vel.
Hlutdeildartekjur Exista voru á
fjórðungnum 457 milljónir evra,
71% af hagnaði fyrirtækisis og 68%
af heildartekjum félagsins sem alls
námu 668 milljónum evra, 58,4
milljörðum króna. Í þessum lið
vegur Sampo langþyngst en undir
þann lið fellur einnig Kaupþing.
Fjárfestingastarfsemin var Ex-
ista mun arðbærari en rekstar-
starfsemi á fjórðungnum og er
Sampo þar í lykilhlutverki en
rekstrarstarfsemi skilaði sér þó
einnig vel í uppgjöri. Hagnaður af
rekstarstarfsemi nam alls 174
milljónum evra, ríflega 15,2 millj-
örðum króna, og athygli vekur að
vátryggingastarfsemi skilaði hagn-
aði en slík starfsemi hefur reynst
félögum erfið á undanförnum ár-
um.
Sterk eiginfjárstaða
Eignir Exista nema um 6,8 millj-
örðum evra, um 592 milljörðum
króna, en þar af er eigið fé ríflega
2,6 milljarðar evra og er hlutfall
eigin fjár því um 39% sem er mjög
gott. Arðsemi eigin fjár á árs-
grundvelli er 112,8%.
Afkoman var töluvert yfir vænt-
ingum en eins og greint var frá í
Viðskiptablaði Morgunblaðsins í
gær bjóst Greining Glitnis við um
54,6 milljarða hagnaði en gengi
hlutabréfa Extista hækkaði um
0,32% í OMX-kauphöllinni í gær.
Ævintýralegur
afkomubati
Uppgjör
Exista hf.
sverrirth@mbl.is
AFKOMA Bakkavarar Group eftir
skatta jókst um 64% á fyrsta fjórð-
ungi ársins miðað við sama tímabil í
fyrra. Hagnaður tímabilsins var 9,6
milljónir punda, sem jafngildir um
1,2 milljörðum króna.
Sala tímabilsins var hærri en á
nokkrum fjórðungi síðasta árs og
nam ríflega 349 milljónum punda og
jókst framlegð um 23% á milli ára.
Eignir Bakkavarar Group nema
um 1,3 milljörðum punda sem jafn-
gildir um 170 milljörðum króna og
hafa þær aukist lítillega síðan um
áramót en eiginfjárhlutfall er 18,6%
og hefur einnig aukist lítillega síðan
um áramót. Arðsemi eigin fjár á
fjórðungnum er 16,2% á ársgrund-
velli en var á síðasta ári 18,1%.
Uppgjörið birtist eftir lokun
kauphallarinnar og því er ekki
hægt að meta út frá viðbrögðum
markaðarins hvort markaðsaðilar
telji það gott eða slæmt. Í tilkynn-
ingu til kauphallar er haft eftir
Ágústi Guðmundssyni, forstjóra
Bakkavarar, að fyrsti fjórðungur
lofi góðu. „Sala í Bretlandi er áfram
góð og við höldum áfram að styrkja
stöðu okkar á meginlandi Evrópu,
m.a. með brautryðjendastarfi í
vöruþróun. Við höfum metnaðarfull
áform um framtíðarvöxt og munum
leggja áherslu á þróun félagsins á
nýjum mörkuðum.“ Hann segir
tækifærin jafnframt mikil en búist
er við að markaður með vörur fyr-
irtækisins muni vaxa um 20% í V-
Evrópu á næstu árum og um 30% í
Kína.
Góð aukning hjá
Bakkavör
Uppgjör
Bakkavör Group hf.
sverrirth@mbl.is
REKSTUR bandaríska bílafram-
leiðandans Ford virðist vera á réttri
leið eftir margra ára erfiðleika. Enn
skilar reksturinn þó ekki hagnaði en
tap af rekstrinum hefur dróst mikið
saman á fyrsta ársfjórðungi miðað
við sama tímabil í fyrra.
Alan Mulally hinn tiltölulega ný-
ráðni forstjóri Ford hefur ráðist í
umfangsmiklar aðgerðir með það í
huga að bæta afkomu félagsins og
virðast þær nú vera að skila sér. Á
fyrsta fjórðungi skilaði Ford 282
milljón dala tapi en á sama tímabili í
fyrra var 1,4 milljarða dala tap af
rekstrinu.
Þrátt fyrir þetta er búist við frek-
ari niðurskurðum og uppsögnum.
Reuters
Ford að rétta
úr kútnum