Morgunblaðið - 27.04.2007, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
MÁLÞING meistaranema í al-
mennri bókmenntafræði við
Háskóla Íslands verður haldið í
dag kl. 13.30 til 17, í stofu 101 í
Odda. Flutt verða fjölbreytt
erindi út frá BA-, MA- og öðr-
um rannsóknarverkefnum
nemenda.
Sex nemendur verða með
fyrirlestra um verkefni sín. Má
þar nefna að Svanhvít Lilja
Ingólfsdóttir flytur fyrirlestur-
inn „Kynjahlutverk sólar og mána“, Helgi Sigur-
björnsson ræðir Brotahöfuð Þórarins Eldjárns og
Guðrún Dröfn Whitehead flytur fyrirlesturinn
„Hirðfífl hans hátignar“.
Málþing
Meistaranemar
ræða verkefni sín
Þórarinn Eldjárn
rithöfundur
SÖNGVINIR, kór eldri borg-
ara í Kópavogi og Garðakórinn
úr Garðabæ, halda sameig-
inlega tónleika í Digra-
neskirkju á morgun kl. 17.
Á efnisskrá kóranna eru ís-
lensk og erlend lög en kórarnir
munu syngja hvor í sínu lagi og
í lokin saman.
Hjá báðum kórunum hefur
verið framsækið starf á liðnum
vetri og áhugi mikill meðal kór-
meðlima. Stjórnandi Garðakórsins er Jóhann
Baldvinsson og stjórnandi Söngvina er Kjartan
Sigurjónsson. Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Tónleikar
Syngja saman í
Digraneskirkju
Hluti af kórnum
Söngvinir
ÞÓRA Björk Þórðardóttir
heldur burtfarartónleika í
djasssöng frá Tónlistarskóla
FÍH, í hátíðarsal skólans kl.
17 á morgun. Þóra hefur
numið söng hjá Kristjönu
Stefánsdóttur og Sigurði
Flosasyni og tónsmíðar í
kennaradeild skólans hjá
Hilmari Jenssyni.
Hátíðarsalur skólans er að
Rauðagerði 27 í Reykjavík. Á
efnisskrá eru eingöngu lög eftir Þóru en hún
leikur einnig á gítar í nokkrum þeirra. Þóra
stefnir að því að gefa út plötu með lögum sínum
á þessu ári.
Tónleikar
Burtfarartónleikar
í djasssöng
Þóra Björk
Þórðardóttir
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
LISTASAFN Reykjanesbæjar opn-
ar í dag kl. 18 sýningu á verkum Haf-
steins Austmanns. Hafsteinn er einn
af reyndustu og þekktustu listmál-
urum landsins, með yfir hálfrar aldar
sýningarferil að baki.
30 verk eru á sýningunni, unnin
með olíu-, akrýl og vatnslitum, þau
elstu frá 1986. Hafsteinn segir flest
verkin ný, nokkrar vatnslitamyndir
séu til sýnis sem aðeins hafi sést í
bók, Lithvörfum, sem Aðalsteinn
Ingólfsson skrifaði um Hafstein og
list hans í tilefni af sjötugsafmæli
málarans fyrir þremur árum.
Hafsteinn segir þetta því enga yf-
irlitssýningu. „Þessar síðustu mynd-
ir mínar eru svolítið öðruvísi. Ég er
ekki eins geirnegldur geómetristi og
ég var,“ segir Hafsteinn og hlær.
„Ég er aðeins að losa um þetta vit-
andi vits og viljandi. Ef maður er far-
inn að endurtaka sig getur maður
annaðhvort hætt eða reynt að finna
eitthvað annað í sér en það sem mað-
ur hefur gert.“
Enn gaman að mála
Hafsteinn segist vinna eins og
hann nenni þessa dagana. „Ég byrja
svona eftir hádegi. Ég er farinn að
vinna dálítið frameftir eins og ég
gerði þegar ég var strákur, þegar ég
var yngri var ég svo helvíti dugleg-
ur,“ segir Hafsteinn. Hann hafi enn
gaman af því að mála, annars væri
hann ekki að því. Hafsteinn segir erf-
itt að útskýra hvað leynist í málverk-
unum. „Ég býst ekki við því að menn
fái svipaða tilfinningu fyrir verk-
unum og þegar ég er að vinna þau.“
Hvað varðar nýju verkin segir
Hafsteinn að finna megi svarthvít
verk, hann eigi það til að mála í
svarthvítu og gráu þegar hann sé
orðinn „of sætur í litunum“, þ.e. þeg-
ar honum þyki verkin orðin of lit-
sterk. „Þetta er dálítið í gráu, mikið
af þessum stærri myndum,“ segir
Hafsteinn um sýninguna í Reykja-
nesbæ.
„Ég er lengur að mála núorðið,
kannski er ég gagnrýnni á sjálfan
mig, ég veit ekki hvað það er. Manni
gengur misjafnlega, það koma tíma-
bil sem maður hjakkar og hjakkar og
ekkert gengur. Svo losnar um þetta
og þá fer þetta að ganga,“ segir Haf-
steinn um starf listmálarans og
reynslu sína af því.
Hafsteinn var við nám í Academi
de la Grande Chaumier í París frá
1954 til 1955. Hann segir að þá hafi
miðja myndlistarinnar verið þar og
gaman að vera til. Hann sé enn undir
áhrifum franskrar málaralistar, sem
sjá megi á litaspjaldinu.
Hafsteinn Austmann sýnir ný og eldri verk í Listasafni Reykjanesbæjar
„Ekki geirnegld-
ur geómetristi“
Í HNOTSKURN
» Hafsteinn Austmann fæddistá Ljótsstöðum í Vopnafirði
19. júlí 1934.
» Hafsteinn sýndi með sýning-arhópnum Realitiés Nouvel-
les í París vorið 1955, fyrir til-
stilli Nínu Tryggvadóttur sem þá
var orðin þekkt í borginni.
» Hann kynntist geómetrískriafstraktlist í París og tileink-
aði sér hana. Hafsteinn hélt sína
fyrstu einkasýningu í Lista-
mannaskálanum árið 1956.
HAFSTEINN Austmann hefur haldið fjölmargar einka- og samsýningar á
löngum listamannsferli, en hann spannar nú rúma hálfa öld. Hann segist
ekki alltaf skilja hvað ungir listamenn séu að fara en sjálfur hafi hann verið
kallaður klessumálari þegar hann hóf listamannsferilinn.
Iðinn við kolann
HÆTT hefur verið við að sýna
listaverkið Theatre of the World,
eða Leikhús heimsins, í listasafninu
Vancouver Art Gallery í borginni
Vancouver í Kanada vegna mót-
mæla dýraverndarsinna.
Verkið er, eða var, stórt búr með
lifandi dýrum í og neyddist höf-
undur þess, Huang Yong Ping, til
að fjarlægja dýrin vegna ásakana
um illa meðferð á þeim.
Dýraverndarsamtökin SPCA
skipuðu Huang og safninu að skilja
dýrin að, en í Leikhúsi heimsins
voru ýmsar skepnur látnar búa
saman, m.a. eðlur, sporðdrekar og
tarantúlur.
Forstöðumaður safnsins, Kat-
hleen Bartels, segir tilgang verks-
ins hafa verið að hvetja fólk til að
íhuga hreyfiöfl nútímasamfélags,
hjá hverjum valdið liggi.
Talsmaður SPCA, Lorie Chortyk,
segir það dýrunum óeðlilegt að
vera hrúgað saman í eitt búr þar
sem þau komi frá ólíkum svæðum í
heiminum, ólíkri náttúru, og eigi
því ekki að vera nærri hvert öðru.
Carol Gigliotti, prófessor við
lista- og hönnunarskólann Emily
Carr Institute of Art and Design í
Vancouver, segir tilviljun hluta af
verkinu þar sem dýrin geti drepið
hvert annað hvenær sem er. Dauð-
inn sé hluti af lífinu.
Dýr tekin úr
umdeildri
innsetningu
Eðlur, sporðdrekar og
tarantúlur í sambúð
GERSEMAR geta oft leynst í rusli.
Þetta sannaðist í fyrradag þegar
málverk, ljósmyndir, dagbækur og
fleira úr ruslatunnu enska mál-
arans Francis Bacon var keypt fyr-
ir 965.490 pund á uppboði í Surrey
á Englandi.
Ruslið hirti rafvirkinn Mac Ro-
bertson úr gámi við vinnustofu Ba-
cons fyrir tæpum 30 árum. Hann
bað Bacon um að leyfa sér að eiga
ruslið og varð málarinn við því.
Uppboðshúsið Ewbank Fine Art
Auctioneers and Valuers, sem seldi
ruslið, gerði ráð fyrir því að hálf
milljón punda fengist fyrir það, en
alls voru 45 gripir seldir. Meðal
þeirra var skissa af vini Bacon, list-
málaranum Lucien Freud. Hún var
slegin fyrir 400.000 pund.
Svarthvít ljósmynd sem Bacon
tók af einu málverka sinna, sem gul
málning hafði slest á, var seld á tí-
földu matsverði, 3.600 pund. Bacon
málaði síðar slettuna á verkið.
Ruslið hefur nú fengið hinn
virðulega titil „Robertson-safnið“.
Milljón pund
greidd fyrir rusl
♦♦♦