Morgunblaðið - 27.04.2007, Síða 25
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 25
Rúnar Kristjánsson á Skaga-strönd orti í janúar 2006 brag
til heiðurs þulnum Pétri Péturs-
syni, sem nú er fallinn frá. Pétur
hafði þá tekið „góða lotu í því að
verja íslenskuna“.
Pétur þulur þekktur er,
þó ei fyrir mildi.
Hann með stílsins vopni ver
valin þjóðargildi.
Gengur hann á hólm við allt
hyski er vill þau brjóta.
Ritar þá af snerpu snjallt,
snuprar marga þrjóta.
Fróður hann um fyrri tíð,
fræðir menn og konur.
Enda í gegnum önn og stríð
Íslands góður sonur.
Talar hann um tíma þá,
tápi fyllta og sanna,
þegar yfir landi lá
ljómi kynslóðanna.
Þegar sérhver þjóðleg dáð
þökkuð var og metin.
Þegar fyrir sæmd var sáð
sem var ekki étin.
Pétur þulur þannig er
þjóðhollur í öllu.
Heyrir oft við eyru sér
óm frá hættubjöllu.
Sérhver Mammons þrungin þjóð
þroskans vegi tapar;
eitrar þannig eigið blóð,
óhamingju skapar.
Pétur þulur varast vill
vítin þung af slíku.
Sér þar merkin magna ill
marga spillta klíku.
Sér hann menn á miskaslóð
meir en lítið hagnast.
Tæma fólksins sigursjóð
svo að bölið magnast.
Vill hann reyna að verjast því,
vekja menn af doða.
Röskan braginn rækta á ný,
réttar menntir boða.
Farið er þó flest sem var,
fátt sem lofar griðum.
Yfirgangur enskunnar
ógnar menntasviðum.
Samt er Pétur þulur þrátt
þrumusnjall í orðum.
Tungu sinnar töframátt
tjáir vel sem forðum.
Megi hann enn um marga stund
málsins gildi verja.
Þroska í öllu þjóðlegt pund,
þar á hyski berja.
Bið ég þess af hjarta hér,
heitt með tjáning ríka;
að íslenskan hún eigi sér
ávallt liðsmenn slíka.
VÍSNAHORNIÐ
Vörður ís-
lenskunnar
pebl@mbl.is
hafðar á sundstöðum.
Víkverja finnst til
dæmis engan veginn við-
eigandi þegar hann sér
fullorðna menn nota hár-
þurrkuna til að þurrka
annað líkamshár en höf-
uðhárið; stinga þurrk-
unni jafnvel ofan í nær-
buxurnar.
Nú tekur Víkverji eftir
því að það færist í vöxt að
fólk þurrki sér ekki á
þurrksvæðinu, sem er
framan við sturtuklefana
í öllum sundlaugum
Reykjavíkurborgar, held-
ur vaði rennandi blautt
beint inn í búningsklefa og skilji eftir
polla á gólfinu, þar sem aðrir laug-
argestir eru að reyna að komast í
sokkana sæmilega þurrir á fótunum.
Einu sinni var þetta vandamál að-
allega bundið við útlendinga, sem
skildu ekki hvernig sundlaugar virka
á Íslandi, en Víkverja sýnist æ al-
gengara að Íslendingar viti ekkert
hvernig á að haga sér í sundi.
Í reglum um umgengni á sund-
stöðum, sem hanga uppi í laugunum,
stendur ekkert um að fólk eigi að
þurrka sér áður en það fer til bún-
ingsklefa. Kannski af því að það hefur
þótt svo sjálfsagt mál og almenn
skynsemi. En ef hún dugir ekki til,
verður þá ekki að segja fólki hvernig
það á að haga sér?
Víkverji tók eftir því,sér til allmikillar
furðu, að íþrótta-
áhugamenn og íþrótta-
fréttamenn kölluðu úr-
slitaviðureign KR og
Njarðvíkur um Ís-
landsmeistaratitilinn í
körfubolta „einvígi“.
Það virðist vera komið í
tízku að tala um einvígi
þegar sömu liðin spila
nokkra leiki í röð.
En nú liggur það
beinlínis í orðsins hljóð-
an að einvígi getur ekki
farið fram í hóp-
íþróttum. Einvígi er
þegar tveir einstaklingar takast á,
báðir einir síns liðs, óstuddir af öðr-
um. Það er hægt að tala um einvígi í
skylmingum, skák, jafnvel tennis eða
borðtennis, en í hópíþróttum á það
bara alls ekki við. Ef menn vilja taka
líkingar úr hernaði, er meira viðeig-
andi að tala um orrustu, rimmu eða
eitthvað þvíumlíkt.
x x x
Víkverji fer reglulega í sund. Þótthann eigi sér ekki fasta pott-
félaga, geri ekki mullersæfingar á
laugarbakkanum og sé sama hvaða
skáp hann notar, er hann dálítið
vanafastur sundlaugargestur og
finnst mikilvægt að eðlilegar kurt-
eisis- og umgengnisreglur séu í heiðri
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg
Japanski leikfangaframleið-
andinn Tomy hefur sent frá sér
allsérstætt leikfang – striga-
skó, sem lítur við fyrstu sýn út
fyrir að vera hefðbundinn, ef
nokkuð smágerður, Nike
strigaskór, sem síðan breytist í
vélmenni. Vélmenninn nefnast,
Convoy – sá rauði og Megatron
– sá svarti. Um er að ræða sam-
starfverkefni Tomy og íþrótta-
vöruframleiðandans Nike, en
skóvélmenninn fóru í sölu í
verslunum í Japan í gær og
kostar stykkið um 1.400 kr..
Úr striga-
skó í vél-
menni
Reuters
www.leikhusid.is sími 551 1200
Þjóðleikhúsið fyrir alla!
LEG
MJALLHVÍT
Heillandi brúðuleiksýning!
Allra síðasta sýning 13. maí kl. 20.00!
SITJI GUÐS ENGLAR
Sýning fyrir alla aldurshópa!
HÁLSFESTI HELENU
„Yndislega geggjaður og "morbid" húmor“.
Lísa Páls, Rás 2
„Tónlistin sem Flís sá um var æðisleg...
ég hlakka sjúklega til að komast yfir diskinn“.
Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is
„Leg er skemmti-legasta leikrit sem ég hef séð“.
Margrét Hugrún Gústavsdóttir, Fréttablaðið
„Leg er eiginlega skylduáhorf... drepfyndin og góð sýning“.
Ingimar B, Blaðið
Kristrún Heiða, Fréttablaðið
Í SKÓLA TÍMANS
HJÓNABANDSGLÆPIR
Sigurður Skúlason og Margrét Helga
Jóhannsdóttir leika valin atriði úr
nokkrum verkum í tilefni 40 ára
leikafmælis. Aðeins þrjár sýningar!
Tíu uppseldar sýningar!
Aukasýningar í maí komnar í sölu
„Leikararnir stóðu sig fantavel...“
„...áhrifarík upplifun og fróðleg innsýn í heim
sem okkur Vesturlandabúum er að mestu hulinn...“
Blaðið, Ingimar Björn Davíðsson
„Það hefur tekist vel að vinna úr efniviðnum hér
og verkið er heillandi...“
„Þessi sýning situr í mér.“
Víðsjá, Rás 1, Þorgerður Sigurðardóttir
„Leikurinn er því þörf áminning um svívirðu
sem allir vita af.“
Fréttablaðið, Páll Baldvin Baldvinsson
Sýning sunnudag kl. 15.00.
Allra síðasta sýning!
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur