Morgunblaðið - 27.04.2007, Síða 33

Morgunblaðið - 27.04.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 33 „AFNÁM launaleyndar engin töfralausn“ var fyrirsögn fréttaskýringar á forsíðu Morgunblaðsins á þriðjudaginn. Viðmælendur blaðamanns segja þetta að vísu aldrei. Annar þeirra segir að breytingartillaga Guðrún- arnefndar Erlendsdóttur um að afnema skyldu til launa- leyndar gangi varla nógu langt. Hinn segir langt í frá að slíkt afnám jafni launamuninn. Það sé þó „skref, vilja- yfirlýsing um að menn séu að skoða alla hluti sem hugs- anlega geta viðhaldið launamuninum“. Þessi viðmælandi var Margrét Kristmannsdóttir, forystumaður kvenna í at- vinnulífi og frambjóðandi á S-listanum í Reykjavík suður. Raunar hefur enginn haldið því fram að afnám launa- leyndar sé töfralausn. Það sem flestir aðrir en SA og Sjálf- stæðisflokkurinn hafa þó orðið sammála um á síðari árum er þetta: Samn- ingsbundin launaleynd er hluti af því kerfi sem skapar launamun kynjanna – misrétti gagnvart helmingi landsmanna – ranglæti sem í tíð núverandi ríkisstjórnar hefur í tölum minnkað um 0,3% á tólf árum, úr 16 í 15,7% svo einungis sé tiltekinn svokallaður óskýrður launamunur. Af þessum sökum er sjálfsagt að verja launafólk með lögum gegn því að verða að gangast undir leynd um laun sín. Um þetta er að ræða í frumvarpsdrögum Guðrún- arnefndarinnar, og er komið þangað úr lagafrumvarpi sem Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir flutti upphaflega. Þessu voru sammála forstjórarnir Bjarni Ármannsson og Þórólfur Árnason á landsfundi Samfylkingarinnar. Í fréttaskýringunni er rætt við góðan fræðimann, Lilju Mósesdóttur. Hún bendir á þá leið gegn launaleyndinni að trúnaðarmenn á vinnustöðum hafi aðgang að launaupplýsingum og geti á þann hátt borið saman laun starfsmanna. Um þetta er lagabókstafur í Finnlandi og Svíþjóð. Þessi skip- an er að mínu viti kjörin. Það er hinsvegar misskilningur í fréttaskýring- unni að önnur tillagan útiloki hina. Það færi einmitt dável saman, að af- nema skyldu til launaleyndar og að gefa trúnaðarmönnum færi á samanburði launa samkvæmt ákveðnum reglum. Tillögur ASÍ Í jafnréttistillögu stjórnarandstæðinga á þinginu í vetur var gert ráð fyrir slíkri skipan meðfram leyndarafnámi og rætt um sérstaka jafnréttisfull- trúa í stærri fyrirtækjum. Og í störfum Guðrúnarnefndar kom beinlínis fram tillaga um slíkt hlutverk trúnaðarmanna, frá Alþýðusambandi Ís- lands. ASÍ var reyndar ekki að tala um Finnland og Svíþjóð heldur benti á fyrirmynd í samkomulagi sínu frá 2004 við SA um kjör erlendra starfs- manna. Þar er kveðið á um að trúnaðarmenn geti skoðað launaupplýs- ingar, eða fulltrúar stéttarfélagsins ef enginn er trúnaðarmaðurinn. Í til- lögum ASÍ sagði að þessi lausn gengi varla með lögboði einu saman heldur yrðu slíkar reglur að byggjast á samkomulagi milli samtaka atvinnurek- enda og launafólks, rétt einsog í tilviki erlendu starfsmannanna. Laga- ákvæði eitt saman væri gagnslítið. Þegar við í Guðrúnarnefndinni leituðum álits á þessu hjá SA var svarið einfalt: Nei. Það svar er ástæðan fyrir því að þetta er ekki lagt til í frum- varpsdrögum nefndarinnar en látið sitja við ákvæðið um afnám samnings- bundinnar launaleyndar og verulegan rétt Jafnréttisstofu til upplýs- ingaöflunar. Þessi ákvæði þóttu varaformanni Sjálfstæðisflokksins, Þorgerði K. Gunnarsdóttur, samt „of róttæk“. Þessvegna þorði Magnús Stefánsson Framsóknarráðherra ekki að leggja frumvarpsdrögin fram á þinginu í vor þótt fulltrúi flokksins í nefndinni lýsti stuðningi við þau. Það er SA og Sjálfstæðisflokknum að kenna að þessi skref skuli ekki hafa verið stigin. Þau verða hinsvegar stigin eftir kosningar ef Samfylkingunni og öðru jafn- réttisfólki tekst að fella ríkisstjórnina. Skylda til launaleyndar þáttur í misréttinu Eftir Mörð Árnason Höfundur er frambjóðandi fyrir Samfylkinguna í Reykjavík. SIGURÐUR Kári Kristjánsson skrifar grein hér í blaðið sl. mánu- dag og lýsir þar sérkennilegri könn- un Capacent Gallup á viðhorfi fólks til skattamála sem rothöggi á meinta „skattastefnu“ vinstri flokkanna. Klappstýrur kosn- ingabaráttu Sjálf- stæðisflokksins á rit- stjórn Morgunblaðsins höfðu í forystugrein á laugardag og í Reykjavíkurbréfi á sunnudag einnig dregið víðtækar ályktanir af þessari könnun, án nokkurra skynsamlegra forsendna. Könnun Capacent segir nefnilega nokkurn veginn ekki neitt. Hún sýndi að 74% þjóðarinnar töldu tekjuskatt of háan. Það segir í sjálfu sér ekkert – ætli okkur finnist ekki öllum óþarfi að borga meira en við nauðsynlega þurfum í skatt. Á hinn bóginn vill mikill meiri hluti þjóð- arinnar betri velferðarþjónustu. Faglega boðleg skoðanakönnun hefði því spurt annarrar spurningar í kjölfarið, sem er sú hvort afstaða fólks væri önnur ef ljóst væri að lægri skattur hefði í för með sér lak- ari velferðarþjónustu. Helsta afrek Sjálfstæðisflokksins í velferðarmálum undanfarin kjör- tímabil felst í víðtækri biðlist- avæðingu velferðarþjónustunnar. Bið eftir hjartaþræðingu er hálft ár, lengri eftir heyrnartækjum og lið- skiptaaðgerðum, eitt og hálft ár eftir plássi á BUGL. Engu að síður er helsta markmið heittrúarmanna í Sjálfstæðisflokknum að bæta enn í þegar loforð um skattalækkanir eru annars vegar. Staðreynd málsins er sú að bætt staða ríkissjóðs undanfarin ár stafar fyrst og fremst af auknum skatt- tekjum vegna ofþenslunnar, en ekki af hagræðingaraðgerðum eða að- haldi í ríkisútgjöldum. Skattalækk- anir undanfarinna ára hafa ýtt undir verðbólgu og grafið undan tekjuöfl- unarkerfi ríkissjóðs. Þess vegna er spáð halla á ríkissjóði strax á næsta ári – beint í kjölfar mesta upp- gripaskeiðs Íslandssögunnar. Sú staðreynd er óbrotgjarn minnisvarði um efnahagsklúður Sjálfstæð- isflokksins. Frjálshyggjumódel Sjálfstæð- isflokksins er einfalt: Endalaus of- þensla og eignasala til að fjármagna skattalækkanir. Þessi efnahags- stefna hefur verið reynd áður – í tíð Reagans og Thatcher. Árangurs- leysi hennar hefur verið staðfest með eftirminnilegum hætti í stjórn- artíð Clintons og Blairs. Það kom í hlut jafnaðarmanna að endurreisa velferðarkerfið í Bretlandi eftir að ofsatrúarmenn skattalækkana höfðu unnið á því óbætanlegan skaða. Spurningin er hversu lengi íslenskir kjósendur ætla að láta innlenda trú- bræður þeirra leika lausum hala. Frjálshyggjuliðið stígur fram Eftir Árna Pál Árnason Höfundur er lögfræðingur og skipar 4. sætið á lista Sam- fylkingarinnar í Suðvesturkjör- dæmi. KOSNINGARNAR 12. maí nk. verða merkustu kosningar í sögu lýðveldisins. Þetta kjörtímabil hafa hver ólögin af öðrum verið sam- þykkt á Alþingi. Vafi leikur á hvort Ísland er „lýðveldi“ í raun. Fyrst skal nefna Eftirlaunalögin al- ræmdu sem afgreidd voru á met- hraða; frumvarpið birt 10.12., orðin lög 15.12. 2003. ALLT var gert til að keyra þessi ólög í gegnum þing- ið. Þar fengu ráðherrar, þingmenn og svokallaðir „æðstu menn rík- isins“ stófelldar hækkanir, eft- irlaunaprósenta hækkuð úr 70% í 80% en venjulegt fólk hefur ca 55– 65%. Eftirlaunaaldur fór niður í 55 ár. Hjá öðrum er hann 67 ár. Ein samfelld hneisa. Samþykkt þessara laga er einn mesti álitshnekkir sem Alþingi hefur sætt í augum Íslend- inga og er þó af nógu að taka. Ekki var í stefnumálum fyrir kosningar að hækka ætti laun alþingismanna. Þessi ólög verða afnumin um leið og ábyrg stjórn nær völdum hér á landi. Brýnna er að hækka laun lág- launafólksins. Síðan komu hrásoðin fjölmiðlalög sem þvingað var í gegnum þingið AÐ VILJA þáv. for- sætisráðherra. Gífurleg óánægja alls þorra landsmanna skipti engu. Svo fór að forseti synjaði þeim stað- festingar. Þáv. forsætisráðherra gat EKKI hugsað sér „lýðræðislega atkvæðagreiðslu“, öðru nafni ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU svo að frumvarpið var frekar dreg- ið til baka. Svona lagað ætti að sýna þjóðinni hversu gerræðisleg núver- andi stjórnvöld eru. Alþýða manna má ENGU ráða, EKKERT hafa um mál að segja. Er það lýðræði? Flokkarnir á Alþingi Íslendinga eru samspyrtari en við höldum. Hvers vegna annars samþykktu þeir samhljóma enn ein ólögin í snatri í des. 2006? „Lög um stjórn- málaflokka“, algert nýmæli og for- dæmislaus. Þar var lögfest að „eng- in ný stjórnmálasamtök“ fengju eyri í kosningastyrk. Rökin fyrir lagasetningunni: "Til að auka traust á stjórnmálastarfsemi og efla lýðræðið“, eru alger þvæla og rökleysa. Á mannamáli þýðir þetta að flokkarnir á þingi vilja enga samkeppni. Þeir eru í spilling- arklíku allra flokka. Vitað að var að „eldri borgarar og öryrkjar“ ætluðu að stofna sam- tök, jafn uppgefnir og þessir aðilar eru orðnir á svikum stjórnvalda, en núv. stjórnvöld skerða svo svívirði- lega lífskjör þessa þjóðfélagshóps að líkja mætti við ofsóknir. Endurreisn lýðræðis byggist á að við þorum að velja flokk eftir stefnumálum en kjósa EKKI alltaf sama flokk þótt stefna hans sé gegn okkar hagsmunum. Við verðum að sjá að SÉRSTAKLEGA Sjálfstæð- isflokkurinn hefur yfirgefið upp- runaleg gildi sín. Forysta hans styður ekki lýðræði, heldur flokks- ræði.Flokkurinn hefur gleymt „ein- staklingnum“ – er orðinn flokkur hinna ríku; einu skattalækkanirnr eru til fyrirtækja og ofurtekjufólks. Sjálfstfl. þarf að finna uppruna sinn. Jón „forseti“ leit upp til landa sinna á þjóðfundinum 1851. Hann trúði á mannúð, samheldni og rétt- sýni þeirra. Hefði hann ella barist fyrir "lausn undan oki Dana"? Norðurlöndin eru velferðarríki, sem hlúa að eldra fólki, öryrkjum og búsetumálum þeirra. Hvað er meiri falleinkunn á stjórnina en að margir úr þessum hópi hafa flúið Ísland og sest að á Norðurlönd- unum? Kjósið „X-E“.indra@isl.is „X-E“ Hvernig þjóðfélag viljum við? Lýðræði og velferð? Eftir Arndísi H. Björnsdóttur Höfundur er formaður Baráttu- samtaka eldri borgara og öryrkja. SAMFYLKINGIN er stofnuð með ákveðin mark- mið í huga. Hún er stofnuð til að breyta áherslum í þjóðfélagi okkar; hliðra opinberri umræðu þannig að í hverju máli verði spurt að því hvernig hags- munir fjöldans verða best tryggðir gegn sérhags- munum. – Innan þeirrar lýð- ræðislegu breiðfylkingar sem Samfylkingin er er rými fyrir hvern þann einstakling sem setur hagsmuni almennings í fyrirrúm. Í kosningunum í vor geta kjósendur valið um:  Ríkisstjórnarflokka sem nú lofa að bæta um betur fyrir allt það sem þeir hafa vanrækt í hálfan annan áratug.  Vinstri græn sem eru ýmist hlynnt eða mótfallin umhverfisspjöllum, allt eftir því hver á í hlut, auk þess að vera flokkur sem lítur á útlönd sem ógn en ekki tækifæri.  Smáflokka sem eru til þess eins fallnir að láta at- kvæði þeim greidd falla dauð og stuðla þannig að áframhaldandi setu ríkisstjórnarinnar. Gagnvart þessari flóru stendur Samfylkingin undir styrkri forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem hefur náð lengst kvenna inn á það svið þar sem hið raun- verulega pólitíska vald býr í íslensku samfélagi. Fyrir þann árangur, hefur hún mátt þola persónu- legan áróður gegn sér, sem er af allt öðrum toga en sá sem karlmenn í sömu stöðu verða fyrir. Af þeim sökum læðist óneitanlega að manni sá grunur að of margir í þjóðfélagi okkar telji að konur eigi ekki er- indi þegar til hinna raunverulegu valda komi. Þá bresti þolinmæðina gagnvart konu og meðvitað og ómeðvitað sé Ingibjörg Sólrún í opinberri umræðu látin gjalda þeirrar velgengi sem hún hefur átt að fagna á stjórnmálaferli sínum, vegna þess að hún er kona. Á kjördag er rétt að hafa í huga að:  Í áratugi voru íslenskir jafnaðarmenn þjakaðir af sundurlyndi og létu öðrum stjórnmálaöflum eftir að ráða för íslensks samfélags.  Með stofnun Samfylkingarinnar var lagður grunnur að breiðu og frjálslyndu stjórnmálaafli sem hefur alla burði til að verða meginflokkur íslenskra stjórnmála næstu áratugi þar sem sameinast undir einu merki félagshyggja, jöfnuður og náttúruvernd auk skynsamlegrar og hógværrar auðlinda- og skattastefnu.  Samfylkingin er eini flokkurinn sem gengur markvisst mót ögrandi verkefnum framtíðarinnar hvort sem þau er að finna hér á landi eða erlendis. Með opnum hug og fordómaleysi gagnvart erlendu samstarfi, býðst þeirri kynslóð Íslendinga sem nú er vaxa upp að færa sér í nyt þau bestu tækifæri sem ungu fólki bjóðast. Aðeins í alþjóðlegu samstarfi nýtist kraftur þjóðarinnar til fulls í þeim brýnu verkefnum sem bíða uppvaxandi kynslóðar. Kosningar eru alvörumál Eftir Bolla Héðinsson Höfundur er hagfræðingur. AF HVERJU auka VG fylgið mið- að við kannanir? Skýringar eru nokkrar en ein sennileg, að meðal fólks er vitundarvakning um þá óstjórn og ógöngur sem þjóðlíf okk- ar er komið í. Óstjórn og ásetn- ingur núverandi stjórnarflokka er að byggja upp í landinu tvær þjóðir, þ.e. hóp manna sem þykjast eiga allan afrakstur úr þjóðarbúinu til eigin nota og síðan almenning sem þrælar við að skapa fjármuni þjóðarinnar. Stórum hluta manna er haldið á launum sem ekki duga til framfærslu. Það er í þessum hópi sem vakning er að hefjast og þangað sækja VG fylgi meðal ann- ars. Fylgið byggist á nýrri hugmynd ungra einstaklinga sem skynja þá staðreynd að hægri öflin eru að fara illa með þá. Þessir einstaklingar sjá, meðvitað og ómeðvitað, að verið er að leiða þá áfram í samfélagsform sem aldrei getur gengið til lengdar, þ.e. form misréttis og ójafnaðar sem valdið hefur flestöllum vandræðum í samskiptum manna og þjóða hingað til. Augljóst er að form kapítalista og kommúnista í samskiptum fólks er löngu úrelt. Kapítalistar sem nú sjá fyrir minnkandi fylgi berjast sem aldrei fyrr fyrir því að halda gömlu kerfi einstaklingshyggju gangandi á kostnað félagshyggju. Merkilegt ef við ætlum öll að lifa saman á landinu. Kommúnistar eru raunar löngu dauðir en þeir féllu í þá gryfju að setja einræði og kapítalista í allar stjórnunarstöður og héldu við mis- réttinu sem aldrei fyrr. Hin nýja bylgja leitast við að finna samfélags- form sem hentar fjöldanum og vinna gegn samskiptaformi sem er bæði gamalt og úrelt fyrir löngu. Hvers vegna er launamálum þannig farið að einstaklingur getur eytt tvö hundruð milljónum í afmælið sitt á meðan annar á ekki fyrir bíómiða? Þetta hefur alltaf verið svona segja margir en á þetta alltaf að vera svona? Það er hin nýja hugsun. Þetta á ekki að vera svona. Hvers vegna fá örfáir leyfi til þess að selja aðgang að fiskimiðunum okkar í eig- in þágu? Af því leiðir hrun í sjáv- arbyggðum um allt land. Af hverju voru bankar landsins næsta gefnir einstaklingum? Af hverju sækja sjálfstæðismenn svona stíft að skapa tvær þjóðir í landinu m.a. með því að einkavæða Landsvirkjun, skóla, sjúkrahús, mögulega olíuvinnslu, vatnsréttindi, vegakerfið og hvað- eina sem hingað til hefur verið sam- eign landsmanna? Það á meira að segja að græða á mennta- og heil- brigðiskerfinu með nýjum silkihúf- um. Ef fer sem horfir getur þjóðlífið litið út eitthvað á þessa leið eftir nokkur ár: Stétt auðmanna ræður öllum rekstri landsins og hirðir af- rakstur landsins eins og hann leggur sig. Auðmenn hafa eignast öll verð- mæt landsvæði Íslands, ár, vötn, flestallar fasteignir landsmanna og hvaðeina sem hægt er að græða á. En þetta virðist draumsýn sjálf- stæðismanna, að hverfa til fornra búskaparhátta kerfisins. Menn uppi og þrælar niðri. Þessi samansafnaði auður gengur svo í arf og þá koma varnaðarorð Þorgeirs Ljósvetn- ingagoða í hug sem eru eitthvað á þessa leið: „Þótt konungur þessi sé góður er ekki víst að niðjar hans verði það.“ Hvernig fara svo auð- menn, hin ríka stétt framtíðarinnar, með það vald sem Sjálfstæðisflokk- urinn er að færa þeim í dag? Það er spurning hvort vakning unga fólks- ins og félagshyggja fái hér rönd við reist. Vinstri grænir Eftir Hjálmar Jónsson Höfundur er rafeindavirki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.