Morgunblaðið - 27.04.2007, Qupperneq 44
44 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
JÓN, ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ HAFA
SAMVISKUBIT YFIR ÞVÍ AÐ HAFA SKILIÐ
ÞÁ EFTIR EINA HEIMA Í EITT KVÖLD
ÉG RÆÐ
EKKI VIÐ
ÞAÐ
ÉG GET EKKI ANNAÐ EN
HUGSAÐ UM ÞAÐ HVAÐ ÞEIR VORU
SORGMÆTIR ÞEGAR ÉG FÓR
GRETTIR, ÉG ER SVO
MIKILL AUMINGI
ÉG VERÐ
EINN ALLA
ÆVI. ÞAÐ
ÞOLIR MIG
ENGINN...
...EINN!
ÞEGAR ÉG ER MEÐ
TVEIMUR ÖÐRUM LÍÐUR MÉR
ALLTAF EINS OG ÞAU SÉU AÐ
TALA ILLA UM MIG...
ÞEGAR ÉG ER MEÐ ÞREMUR
ÖÐRUM LÍÐUR MÉR EINS OG
ÞAU ÞURFI EKKI Á MÉR AÐ
HALDA. ÉG VERÐ ALLTAF...
AF
HVERJU
FALDI
MARS-
BÚINN
SIG?
KANNSKI ER
HONUM ILLA VIÐ
JARÐARBÚA
AF HVERJU ÆTTI HONUM
AÐ VERA ILLA VIÐ MIG?
MANNFÓLKIÐ
ER FRÁBÆRT
HEYRÐU, MARSBÚI!
KOMDU BARA ÚT! VIÐ ERUM
EKKERT SLÆMIR! VIÐ
FÓRUM BARA FRÁ JÖRÐINNI
VEGNA ÞESS AÐ FULLORÐNA
FÓLKIÐ VAR BÚIÐ AÐ
MENGA.. ÉG MEINA.. Ö...
HELDUR
ÞÚ AÐ HANN
HAFI HEYRT
UM OKKUR
ÁÐUR EN VIÐ
KOMUM?
MUNDIR
ÞÚ BJÓÐA
HUNDI INN
TIL ÞÍN SEM
MÍGUR Á
TEPPIÐ?
MAÐUR BER
HÖFÐINU VIÐ
STEININN Í ÖLL
ÞESSI ÁR...
OG HVAÐ
FÆR MAÐUR
FYRIR?
MJÖG
SLÆMAN
HÖFUÐVERK?
DRÍFÐU ÞIG OFAN Í
KASSANN! VIÐ ÞURFUM
AÐ VERA KOMNIR
Á NORÐURPÓLINN
Á MORGUN!
GRÍMUR, ÞÚ GETUR EKKI
BARA FARIÐ OFAN Í KASSA
OG BÚIST VIÐ ÞVÍ AÐ VERA
KOMINN Á NORÐURPÓLINN
DAGINN EFTIR!
VILTU
VEÐJA?
ER ÞETTA SVEITIN?
„LED LOFTBELGUR“?
JÁ, VIÐ SPILUM
BARA LÖG EFTIR
LED ZEPPELIN
ÉG HEF MEST
SPILAÐ PÖNK,
EN ÉG HEF
ALLTAF
HLUSTAÐ Á
LED ZEPPELIN
ÞÚ ÆTTIR
AÐ KOMA Í
PRUFURNAR
HJÁ OKKUR
HVAÐ
VANTAR?
GÍTAR EÐA
BASSA?
ROBERT
PLANT OG
JOHN PAUL
JONES
SÆLL,
MISSTI ÉG AF
EINHVERJU?
KÓNGULÓARMAÐURINN
VAR HÉRNA RÉTT ÁÐAN! HVAR
VARST ÞÚ ÞEGAR MIG VANTAÐI
LJÓSMYNDARA
ÉG FANN AÐ MIG
LANGAR EKKI Í FAST
STARF EFTIR ALLT SAMAN
ÞAÐ REYNA ALLIR AÐ
BREGÐA FYRIR MIG FÆTI
dagbók|velvakandi
Við hin
ÉG las í grein eftir Pétur Pétursson
í Morgunblaðinu 24. apríl þar sem
hann fjallar um samkynhneigð.
Hann segir m.a. að nefnd á vegum
forsætisráðherra hafi beint þeirri
áskorun til þjóðkirkjunnar að hún
endurskoði afstöðu sína til vígslu
para af sama kyni í kirkju. Ég skil að
mörgu leyti baráttu samkyn-
hneigðra og ég vil óska þeim alls
góðs. En vegna trúar minnar get ég
ekki verið sátt við að ætlast sé til af
kirkjunni að hún horfi fram hjá því
sem í Biblíunni stendur. Forsætis-
ráðherra og kirkjan þurfa nefnilega
að hugsa um okkur hin líka. Trúarlíf
okkar á sér oft djúpar rætur og mað-
ur getur ekki bara fleygt því frá sér
þótt maður vilji virða mannréttindi
fólks. Ég vona að kirkjan mín fái að
standa áfram á þeim fasta grunni
sem ég hef þekkt hana að alla mína
ævi. Það munu eflaust margir segja
sig úr þjóðkirkjunni ef vígsla sam-
kynhneigðra verður leyfð. Ég mun
eflaust hugsa mig líka um. Sumir
finna sér kannski annan trúarsöfnuð
eða verða utan þeirra. Sumir munu
jafnvel standa að því að reisa aðra
kirkju. En ég vona að til slíks komi
aldrei um daga mína.
Sigrún Reynisdóttir.
Fyrir hvað stendur
Framsóknarflokkurinn?
FYRIR hvað stendur Framsóknar-
flokkurinn eiginlega? Eyðileggingu
náttúrunnar ásamt hinum stjórnar-
flokknum. Það kemur spánskt fyrir
sjónir, myndi einhver segja. Gamli
bændaflokkurinn sokkinn „ofan í
öræfin“. Já, maður hefði nú haldið
það eða hvað? Að flokkur sem fær
fylgi sitt mestmegnis frá sveitum
landsins, skuli vera svo gjörsamlega
kominn úr tengslum við náttúruna.
En þeir (þessir stjórnarherrar) eru
að ganga af henni dauðri. Sjá þeir
ekki fjallasýnina; eru þeir algjör
steinsteypubörn? Hvað er eiginlega
að þeim? Ekki nema von að fylgið
hrynji af Framsóknarflokknum, iðn-
aðarráðuneyti og umhverfisráðu-
neytið er í þeirra höndum. Sumir
vitna í Einar Benediktsson sem var
háfleygur (manískur myndum við
segja í dag) og stórhuga, en sá mað-
ur orti best á íslenska tungu. Hann
var víst kominn langt með það að
selja norðurljósin. Já, maður finnur
peningalyktina af þeim.
Þóra Ingimarsdóttir,
Hringbraut 99.
Frábær grein
GREININ „Vítaverð vanræksla“
sem birtist í Morgunblaðinu, 26. apr-
íl, er frábær. Hún bendir til þess að
við lifum í siðmenntuðu þjóðfélagi
sem líður það ekki að illa sé komið
fram við þá sem minnst mega sín
sbr. erlenda verkamenn, meðal ann-
ars á Kárahnjúkum.
Herdís Tryggvadóttir.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
KARVEL notaði eyðu í stundatöflunni í Fjölbrautaskólanum við Ármúla og
skellti sér á Ingólfstorg í góða veðrinu.
Morgunblaðið/Ásdís
Hjólabrettakúnst
FRÉTTIR
RAFMAGN í fortíð, nútíð og
framtíð er þema afmælismálþings
RARIK ohf. sem fram fer í Saln-
um í Kópavogi föstudaginn 27.
apríl. Málþingið hefst kl. 14 að
loknum aðalfundi RARIK ohf. og
er öllum opið. Efnt er til mál-
þingsins nú til þess að fagna af-
mælinu, minnast sögu RARIK og
horfa til framtíðar með nýju
rekstrarformi.
Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra opnar málþingið með
ávarpi og má segja að þar kveðji
iðnaðarráðuneytið RARIK form-
lega og láti í hendurnar á fjár-
málaráðuneytinu.
Breytt viðhorf til nýtingar auð-
linda og eignarréttar er umfjöll-
unarefni erindi Þorsteins Páls-
sonar, ritstjóra Fréttablaðsins, í
erindi sínu.
Saga rafmagns er samofin
framfarasögu þjóðarinnar og
mun Sveinn Þórðarson sagnfræð-
ingur horfa til fortíðar og skoða
sögu rafmagns á Íslandi í 100 ár.
Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri
Grýtubakkahrepps, fjallar um
þegar rafmagn kom á æskuheim-
ili hennar, Lómatjörn.
Steinunn Huld Atladóttir,
gæða- og umhverfisstjóri RARIK,
spyr hvort línurnar séu í lagi.
Hún mun fara yfir þá stefnu RA-
RIK að fækka rafmagnsstaurum í
landinu og færa rafmagn í jarð-
strengi, auk þess að ræða um-
hverfisstefnu RARIK í heild sinni.
Málþing á
60 ára
afmæli Rarik
SÉRFRÆÐINGAR í málefnum
háþrýstings á Norðurlöndum
koma saman á ráðstefnu um há-
þrýsting á Íslandi í dag og á
morgun, 27. og 28. apríl. Ráð-
stefnan er haldin á vegum Nov-
artis og fer fram á Hótel Nor-
dica.
Á ráðstefnunni verða helstu
málefni tengd meðhöndlun á há-
þrýstingi rædd, þær hindranir
sem standa í vegi fyrir árangurs-
ríkri meðferð á háþrýstingi,
ásamt nýjungum í meðferð og
framtíðarsýn. Fyrirlesarar og
fundarstjórar á ráðstefnunni eru
sérfræðingar í meðhöndlun há-
þrýstings sem hafa allir tekið
þátt í og stjórnað rannsóknum á
meðferð vegna hjarta- og æða-
sjúkdóma.
Gert er ráð fyrir um 400
hjarta-, nýrna-, innkirtla- og
efnaskiptasérfræðingum og heim-
ilislæknum á ráðstefnuna frá öll-
um Norðurlöndunum.
Sérfræðingar
ræða
háþrýsting