Morgunblaðið - 27.04.2007, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 47
Prikið
DJ Andri 21–00, De La Rósa 00–05
Players
Von
NASA
Rokk gegn biðlistum
Domo
Steven Markus Bernstein
Hressó
Dúettinn Pub-lic/DJ Maggi
Barinn
TaTaTa/DJ Kvikindið
Grand Rokk
Changer
Loftkastalinn
Reisum Rósenberg
Sunnudagur
<til sælu>
Loftkastalinn
Reisum Rósenberg
Seltjarnarneskirkja
Kór MR kl. 20
Norræna húsið
15:15 tónleikar Caput
Föstudagur
<til fjár>
Café Oliver
PS Daði 21–00, DJ JBK & DJ
Steinar 00–04
Prikið
Frankó og Friskó 21–00, Gulli í
Ósóma 00–05
Players
Greifarnir
NASA
Sálin hans Jóns míns
Hressó
Hljómsveitin Touch/DJ Maggi
Barinn
DJ Bjössi
Hafnarhúsið
Nouvelle Vague
Laugardagur
<til lukku>
Café Oliver
DJ Vala 21–00, PS Daði 00–04
Vegamót
DJ JBK
ÞETTA HELST UM HELGINA »
Morgunblaðið/Kristinn
Sálin Verður á NASA í kvöld.
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
HLJÓMSVEITIN fjölmenna Hjaltalín hefur í
nógu að snúast í kvöld, því ekki er bara að sveitin
leikur á NASA í tónleikaröðinni „Plokkað um land-
ið“ með Lay Low, Pétri Ben og Ólöfu Arnalds,
heldur stendur hún líka að tónleikum á Grand
Rokk með Diktu.
Hjaltalín er hátt í þriggja ára gömul, stofnuð
haustið 2006 og þótt mannabreytingar hafi orðið
snemma á æviferli hennar hefur sami kjarni verið í
henni frá upphafi og nánast engin breyting á lið-
skipan í rúmt ár. Þannig skipa sveitina í dag níu
manns; Hjörtur Ingvi Jóhannsson hljómborðs- og
harmonikkuleikari, Viktor Orri Árnason fiðluleik-
ari, Guðmundur Óskar Guðmundsson bassaleikari,
Högni Egilsson söngvari og gítarleikari, Axel Har-
aldsson trommuleikari, Sigríður Thorlacius söng-
kona og slagverksleikari, Grímur Helgason klarin-
ettuleikari, Þorbjörg Daphne Hall sellóleikari og
Rebekka Bryndís Björnsdóttir fagottleikari.
Breiðskífa með haustinu
Guðmundur Óskar segir að á tónleikunum á
NASA verði eðlilega ekki mörg Hjaltalínslög í boði
enda ekki nema tuttugu mínútur til afnota, en svig-
rúm fyrir meira á Grand Rokk. „Fyrir flestum eru
lögin eflaust öll ný af nálinni, en þeir sem fylgst
hafa með okkur á síðustu mánuðum fá að heyra eitt
glænýtt lag á NASA,“ segir hann, en sveitin er sem
stendur að hljóðrita nýja breiðskífu sem koma á út
með haustinu. Hann segir að upptökur hafi gengið
vel en tekið meiri tíma en ætlað var í upphafi, ann-
ars vegar vegna þess að þótt fljótlegt hafi verið að
taka grunna þá taki það drjúgan tíma að bæta við
hljóðfærum, fiðlu, fagotti, sellói og klarínettum, og
svo hins vegar vegna þess að allir hafi svosem í
nógu að snúast öðru en hljómsveitarstússi.
Lýsa eftir útgefanda
Upptökur hafa farið fram út um allt, eins og
Guðmundur Óskar orðar það, „en þeir voru svo
vinsamlegir við okkur strákarnir í Slowblow að
þeir leyfðu okkur að nota nýja stúdíóið sitt, en við
höfum líka tekið upp í Hljóðrita meðal annars,"
segir hann og bætir við að ekki sé gott að segja
hvenær platan komi út, líklegast í haust og vonandi
fyrir Airwaves. Hvað útgáfuna sjálfa varðar segir
hann ekkert liggja fyrir um það hvort sveitin gefur
út sjálf eða fær einhvern til þess. „Ef einhvern
langar til að gera okkur gott tilboð, þá er það vel-
komið,“ segir hann en bætir við að þau séu ekki að
bíða eftir neinu slíku, þau geti eins gefið skífuna út
sjálf.
Dikta enn vinsæl í Katar
Varðandi tónleikana á Grand Rokk má geta þess
að Dikta, sem hefur ekki spilað hér á landi síðan á
þrettándanum, hyggst frumflytja glæný lög í
kvöld, en sveitin er að undirbúa nýja breiðskífu. Sú
síðasta, Hunting For Happiness, kom út í Bret-
landi fyrir skemmstu og lagið Breaking The Wa-
ves er í fjórða sæti á katarska rokksmáskífulist-
anum.
Öld stórsveitanna runnin upp
Kjarni Hjaltalín er hátt í þriggja ára gömul og þó mannabreytingar hafi orðið snemma á æviferli
hennar hefur sami kjarni verið í henni frá upphafi
Níu manna hljómsveitin
Hjaltalín leikur á tvenn-
um tónleikum í kvöld
TÖLUM SAMAN
Kosningarnar snúast um þitt val. Við viljum heyra þín sjónarmið og kynna okkar
áherslur. Fáðu frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í heimsókn á þinn vinnustað.
Hafðu samband í síma 515 1777 eða á xd@xd.is
Einnig er hægt að senda inn spurningu til Geirs og Þorgerðar á www.xd.is
Nýir tímar - á traustum grunni
INDVERSKUR dómstóll gaf í gær
út handtökuskipun á hendur banda-
ríska leikaranum Richard Gere fyr-
ir að kyssa indversku leikkonuna
Shilpa Shetty ítrekað uppi á sviði á
samkomu þar sem verið var að
hvetja til aðgerða til að koma í veg
fyrir útbreiðslu alnæmis.
Samkoman fór fram 15. apríl og
vakti framkoma Gere mikla athygli
og andúð og jafnvel mótmæli á Ind-
landi, aðallega af hálfu herskárra
hópa Hindúa, sem töldu Gere hafa
með þessu ráðist á indverska menn-
ingu og niðurlægt Shetty.
Í handtökuskipuninni, sem dóm-
stóll í Jaipur gaf út í gær, segir að
Gere hafi gerst sekur um ósiðlega
framkomu á almannafæri. Mun lög-
maður í borginni hafa lagt fram
kæru á hendur leikaranum.
Reuters
Kossaglaður Richard Gere knúsar
Shilpa Shetty.
Handtekinn
fyrir kossa