Morgunblaðið - 27.04.2007, Síða 51

Morgunblaðið - 27.04.2007, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 51 FRUMSÝNING» EINNIG FRUMSÝNDAR» INLAND Empire er fyrsta kvikmynd bandaríska leikstjórans David Lynch í rúmlega fimm ár, eða síðan hann gerði hina mögnuðu Mulholland Drive árið 2001. Lynch hefur aldrei bundið bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir og er einn af áhugaverðustu leikstjórum samtímans. Myndir hans eru afar óvenjulegar og sem dæmi má nefna að margir klóruðu sér í höfðinu yfir áðurnefndri Mulholland Drive, og sömuleiðis hinni drungalegu Lost Highway sem hann gerði árið 1997. Lynch heldur sig á sömu slóðum í Inland Empire, en myndin þykir bæði óhugnanleg og undarleg. Hún fjallar um leikkonu sem býr sig undir hlutverk í nýrri kvikmynd. Hún kemst hins vegar að því að handritið er byggt á gamalli pólskri kvikmynd sem aldrei var kláruð þar sem aðalleikararnir voru myrtir. Smátt og smátt virðist hún átta sig á því að bölvun hvílir yfir myndinni, og hún hættir að gera greinarmun á raunveruleika og ímyndun. Með aðalhlutverkið fer Laura Dern, en hún lék einmitt annað aðalhlutverkið í Wild at Heart árið 1990 sem Lynch leikstýrði og Sigurjón Sig- hvatsson framleiddi. Gagnrýnendur hafa farið lofsamlegum orðum um frammistöðu Dern, og meðal annars sagði í dómi TV Guide að ólíklegt væri að önnur leikkona toppaði hana á næstunni. Með önnur helstu hlutverk fara Jeremy Irons, William H. Macy, Harry Dean Stanton og Diane Ladd. Ekkert hlé Í tilefni af frumsýningu myndarinnar hefur sér- stöku David Lynch-horni verið komið upp í Að- alvideoleigunni við Klapparstíg. Þar má finna hverja einustu mynd sem David Lynch hefur leik- stýrt, auk fleira góðgætis. Þá verður tilboð á DVD-myndum og bókum tengdum leikstjóranum í versluninni Nexus. Inland Empire er eingöngu sýnd í Regnbog- anum á vegum Græna ljóssins og er því ekkert hlé gert á myndinni. Félögum í Bíóklúbbi Græna ljóssins verður boðið á Inland Empire alla frum- sýningarhelgina. Þeir sem eru skráðir meðlimir fá í dag sendan tölvupóst með kóða sem gildir á midi.is og gerir þeim kleift að verða sér úti um tvo boðsmiða. Kóðinn gildir á hvaða sýningu sem er föstudag, laugardag og sunnudag, en takmarkað magn boðsmiða verður í boði á hverja sýningu. Skráning í Bíóklúbbinn fer fram á www.graena- ljosid.is/nyskraning. Sálarstríð Laura Dern í hlutverki leikkonunnar Nikki Grace sem áttar sig á því að ekki er allt með felldu varðandi hennar nýjasta hlutverk. Sturlað stórveldi David Lynch Erlendir dómar: Metacritic.com: 72/100 Variety: 50/100 The New York Times: 90/100 Imdb.com: 78/100 Pathfinder  „Um 500 árum áður en Kristófer Kólumbus kom til Ameríku geis- aði mikið stríð milli frumbyggja og víkinga. Ung- ur víkingur er al- inn upp af frum- byggjum, og hann þarf að lokum að berjast gegn sínum eigin. Þess má geta að víkingarnir tala íslensku.“ Erlendir dómar: Variety: 40/100 The New York Times: 20/100 Imdb.com: 49/100 Next  „Nicolas Cage leikur mann sem sér nokkrar mín- útur fram í tím- ann. Hann lætur lítið fyrir sér fara og er leiður á afskiptum yf- irvalda. Þegar hryðjuverkamenn hóta að varpa kjarnorkusprengju á Los Angeles reyna yfirvöld að fá hann til að- stoðar.“ Erlendir dómar: Engir dómar eru komnir þar sem Next er heimsfrumsýnd á Íslandi. Blades of Glory  „Will Ferrel og John Heder leika menn sem keppa í listdansi á skautum. Þeir missa stjórn á skapi sínu á Ól- ympíuleikunum og fá ævilangt keppnisbann. Þegar öll von virðist úti reyna þeir að skrá sig til leiks sem fyrsta karlkyns skautaparið.“ Erlendir dómar: Variety: 80/100 The New York Times: 70/100 Imdb.com: 67/100 Sími - 551 9000 Pathfinder kl. 8 og 10.15 B.i. 16 ára Inland Empier kl. 6 og 9 The Hills Have Eyes 2 kl. 8 og 10 B.i. 18 ára Perfect Stranger kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára Úti er Ævintýri m/ísl. tali kl. 6 TMNT kl. 6 B.i. 7 ára Science of Sleep kl. 6 B.i. 7 ára * Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu 450 KR. Í BÍÓ * ÍSLEN SKT TAL -bara lúxus Sími 553 2075 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 8 og 10:30 B.i. 16 ára M A R K W A H L B E R G Í GÆR VAR ÞAÐ HEIÐURINN Í DAG ER ÞAÐ RÉTTLÆTIÐ MÖGNUÐ SPENNUMYND MEÐ MARK WAHLBERG FRÁ LEIK- STJÓRA "TRAINING DAY" kl. 8 og 10:20 B.i. 16 ára V.I.J. Blaðið eeee LIB Topp5.is Sýnd kl. 4 Ísl. talSýnd kl. 6B.i. 7 ára STURLAÐ STÓRVELDI FRUMSÝNING NÝJASTA ÞREKVIRKIÐ FRÁ MEISTARA DAVID LYNCH. eeee „Líflegur og hugvitssam- legur spennutryllir“ SV, MBL eee „Fyrsti sumar- smellurinn í ár“ MMJ, Kvikmyndir.com M A R K W A H L B E R G eeee SV, MBL eee MMJ, Kvikmyndir.com LA SCIENCE DES REVES eeee - H.J., Mbl eee - Ólafur H.Torfason eeee - K.H.H., Fbl SÓLIN ER AÐ DEYJA. ER HÆGT AÐ BJARGA HENNI? D.Ö.J. Kvikmyndir.com eee H.J. MBL eeee V.J.V. Topp5.is eee Ó.H.T. Rás2 ÍSLEN SKT TAL Sýnd kl. 4 og 6 www.laugarasbio.is eee LIB Topp5.is SPRENG- HLÆGILEG MYND FRÁ BEN STILLER Fór beint á toppin í USA SJALDAN EÐA ALDREI HAFA TVEIR KARLMENN DANSAÐ JAFNVEL SAMAN! eee LIB Topp5.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.