Morgunblaðið - 17.06.2007, Síða 10

Morgunblaðið - 17.06.2007, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR Trausti Guðmundsson jarðfræðingur var umsjónarkennari minn þennan vetur og kallaði mig á teppið. Hann kvaðst aldrei hafa séð annað eins hrap á einu ári og gerði mér ljóst að ég yrði að taka mig á. Ég gerði það og eftir þetta gekk námið ágætlega.“ Reiknaði út laun kennara Eftir stúdentspróf tók Steinunn sér ársleyfi frá námi og vann sem fulltrúi á launaskrifstofu fjármála- ráðuneytisins. „Það var mikill og skemmtilegur skóli en ég vann við að reikna út og meta laun grunnskóla- kennara. Það er kannski svolítið kald- hæðnislegt eftir á í ljósi þess að með- an ég var borgarstjóri sá ég um samskiptin við launaþegahreyfinguna og sat í launanefnd sveitarfélaga,“ segir Steinunn brosandi. Úr fjármálaráðuneytinu lá leið Steinunnar í sagnfræði í Háskóla Ís- lands. Þar hóf hún líka afskipti af stjórnmálum. „Ég gekk til liðs við Röskvu og sat í stúdentaráði frá 1990-92. Vorið 1991 unnum við fræk- inn sigur í kosningum til stúdenta- ráðs og ég varð fyrsti formaður ráðs- ins úr röðum Röskvu. Það ár setti ég námið í salt enda er formennska í stúdentaráði fullt starf. Ég lauk svo BA-prófi í sagnfræði árið 1992.“ Steinunn var óflokksbundin þegar hún gekk til liðs við Röskvu eins og ýmsir fleiri. Þar var þó líka flokks- bundið fólk og segir Steinunn fram- sóknarmenn hafa verið hvað mest Foreldrar hennar voru Óskar Valde- marsson húsasmíðameistari frá Göngustöðum í Svarfaðardal og Að- alheiður Þorsteinsdóttir húsmóðir, ættuð af Snæfellsnesi. Þau eru bæði látin. Móður sína missti Steinunn þegar hún var að verða þrettán ára en faðir hennar andaðist árið 1998. Steinunn á einn bróður, Pétur Þor- stein, sem er þremur árum yngri. Hann starfar hjá Glitni. Steinunn óx úr grasi í Laugarnes- inu og fór „hefðbundna leið“ eins og hún segir, fyrst í Laugarnesskóla, síðan Laugalækjarskóla og loks Menntaskólann við Sund. „Ég var í síðasta bekknum sem sá frægi kenn- ari Skeggi Ásbjarnarson kenndi í Laugarnesskóla. Skeggi var kennari af gamla skólanum og lagði m.a. mikla áherslu á leiklist og framkomu. Kennarar móta mann alltaf með ein- hverjum hætti og ég bý ennþá að þeim grunni sem Skeggi lagði á þess- um tíma.“ Námið lá vel fyrir Steinunni. „Ætli megi ekki segja að ég hafi verið af- burðanemandi í grunnskóla og þegar ég útskrifaðist úr Laugalækjarskóla var ég hæst í bekknum. Það breyttist þegar ég fór yfir í MS. Þá varð ég allt í einu voðalega upptekin af því að njóta þess að vera í menntó en lagði minni áherslu á sjálft námið. Ég fór úr því að útskrifast sem dúx með yfir 9 í meðaleinkunn niður í rétt rúmlega 5 fyrsta veturinn í MS. Ég rétt skreið sem sagt gegnum fyrsta bekk. Ari Í minningunni skein sólin lát- laust allan maímánuð 1994,“ segir Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir dreymin á svip. „Það var stórkostleg tilfinning fyrir okkur sem stóðum að Reykja- víkurlistanum að vinna borgina af sjálfstæðismönnum. Stemningin og baráttugleðin í hópnum var einstök og borgarbúar fylktu sér að baki okk- ur. Þeir horfðu fram á breytta tíma.“ Lærimey Skeggja Ég er ekkert að bera þetta með sólina undir veðurfræðinga enda væri það hvort sem er ekki líklegt til að breyta neinu um upplifun Steinunnar Valdísar. Sigur R-listans var sögu- legur. Sólin er enn hátt á lofti þegar ég tek hús á henni þennan morgun, þrettán árum síðar. Það fer vel á því enda stendur til að loka hringnum. Steinunn Valdís hefur ákveðið að segja sig úr borgarstjórn og einbeita sér að hinu nýja starfi sínu á Alþingi Íslendinga, þar sem hún situr fyrir Samfylkinguna. Steinunn Valdís Óskarsdóttir fæddist 7. apríl 1965 í Reykjavík. áberandi á þessum tíma. Nefnir hún þar Guðjón Ólaf Jónsson og fleiri. Ástæðan fyrir því að hún valdi Röskvu er einföld. „Það voru bara tveir kostir í boði, hinn var Vaka, og ég er engin hægrimanneskja. Ég vissi alltaf að ég átti heima á vinstri vængnum.“ Steinunn segir mikla stemningu hafa ríkt hjá Röskvu á þessum tíma. „Þarna var margt hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk að stíga sín fyrstu skref í pólitík. Má þar nefna Pétur bróður minn, Skúla Helgason, Krist- rúnu Heimisdóttur og Kolfinnu Bald- vinsdóttur. Allt hefur þetta fólk látið að sér kveða með einum eða öðrum hætti síðan. Eftir sigurinn í kosning- unum 1991 birtist mynd af þessum hópi og fleira fólki á forsíðu Þjóðvilj- ans undir fyrirsögninni „vinstri snú hjá stúdentum“. Það var mjög skemmtilegt.“ Fyrirmynd að R-listanum Steinunn notar orðið „samfylking- arfólk“ til að lýsa þessum hópi en það orð fékk síðar, eins og menn þekkja, fast land undir fætur. „Þetta fólk hafði allt mikinn áhuga á samstarfi og samvinnu á vinstri væng stjórnmál- anna og það eina sem komst að var að sameina félagshyggjuöflin í landinu. Enda held ég að mér sé óhætt að segja að Röskva hafi að ýmsu leyti verið fyrirmyndarmódel að Reykja- víkurlistanum.“ Meðan hún starfaði í Röskvu vildi Steinunn ekki starfa Morgunblaðið/RAX Tímamót „Það er auðvitað svolítið undarleg tilfinning að vera farin að vinna með Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn. Ég get ekki neitað því. Ég nálgast þetta samstarf hins vegar með opnum huga.“ ÞAR SEM ER VILJI, ÞAR ER VEGUR Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir, borgar- fulltrúi Samfylking- arinnar og fyrrverandi borgarstjóri, hverfur senn úr borgarstjórn eftir þrettán ára setu. Af því tilefni ræðir hún m.a. um uppruna sinn, stúdentapólitík, ris og fall Reykjavíkurlistans, samstarf félagshyggju- aflanna, starf borg- arstjóra, efasemdir kvenna, galla prófkjöra og hið nýbakaða hjóna- band Samfylking- arinnar og gamla erkifjandans, Sjálf- stæðisflokksins. Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is 
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.