Morgunblaðið - 17.06.2007, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Erlent | Hillary Clinton er vinsælasta forsetaefni demókrata, en samkvæmt nýjum könnunum myndu þrír
frambjóðendur repúblikana bera af henni sigurorð í kosningum. Knattspyrna | David Beckham átti erfitt upp-
dráttar í Real Madrid en hefur risið eins og fönix úr öskunni með glæstri frammistöðu á lokasprettinum með liðinu. Trúarbrögð | Sköp-
unarsafnið á að höfða til stórs hóps bókstafstrúaðra kristinna Bandaríkjamanna sem hafna þróunarkenningunni.
VIKUSPEGILL»
» Stjórn okkar taldi sig hafarétt til að gera innrás, það
var afstaða okkar þá en núna er-
um við að aðstoða írösku stjórn-
ina við að lifa af við mjög erfiðar
aðstæður árið 2007.
Nicholas Burns , aðstoðarutanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, á fundi með ís-
lenskum frétttamönnum.
»Engum hefur tekist að sann-færa mig um það ennþá að
hvalveiðar í atvinnuskyni borgi
sig.
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverf-
isráðherra í viðtali við Morgunblaðið um
liðna helgi.
»Fyrir mér eru hvalveiðarnareinfaldlega hluti af auðlinda-
nýtingu okkar.
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs-
ráðherra inntur eftir viðbrögðum við um-
mælum umhverfisráðherra. Einar K. Guð-
finnsson segir að eflaust verði fjallað um
hvalveiðar á vettvangi ríkisstjórnarinnar
þegar það reynist tímabært og umhverf-
isráðherra kveður skoðanamuninn engu
breyta um stjórnarsamstarfið.
» Það skýrist enn frekar meðhverjum deginum að við bú-
um við ríkisstjórn hins ófull-
gerða stjórnarsáttmála.
Kristinn H. Gunnarsson , þingmaður
Frjálslynda flokksins, í þingræðu um rík-
isstjórn Samfylkingar og Sjálfstæð-
isflokks.
»Vinstrimenn geta aldrei orð-ið miðjumenn því þeir hugsa
fyrst og fremst um að eyða en
minna um að afla og hægrimenn
hafa alltaf dregið lappirnar í
sambandi við jöfnuð. Þannig að
miðjan er okkar.
Valgerður Sverrisdóttir í ávarpi eftir að
hafa verið kjörin varaformaður Fram-
sóknarflokksins.
»Möguleikarnir eru næstumþví ótakmarkaðir, það verður
hægt að gera við næstum hvað
sem er.
Sigurður Brynjólfsson , forseti verk-
fræðideildar Háskóla Íslands, á fundi um
notkun stofnfrumna í vefjaverkfræði og
frumumeðferð.
Ummæli vikunnar
AP
Sögusagnir Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Barcelona, var í vikunni
orðaður við enska knattspyrnustórveldið Manchester United. Sjálfur sagði
Eiður „endalausar sögur í gangi“ og enginn hjá Barcelona hefði sagt neitt
um að hann væri eða yrði settur á sölulista spænska liðsins.
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
H
ILLARY Rodham
Clinton, öldungadeild-
arþingmaður og fyrr-
um forsetafrú, heldur,
samkvæmt skoðana-
könnunum, forskotinu, sem hún hefur
náð á aðra þá er sækjast eftir því að
verða frambjóðandi Demókrata-
flokksins í forsetakosningunum á
næsta ári. Sérstaka athygli vekur á
hinn bóginn ný könnun, sem leiðir í
ljós að Hillary Clinton myndi standa
höllum fæti gagnvart þremur helstu
frambjóðendum repúblikana færu
kosningar fram nú.
Könnun þessi, sem unnin var fyrir
dagblaðið Los Angeles Times og Blo-
omberg-fréttaþjónustuna, var að
sönnu smá í sniðum; þátt tóku 1.183
Bandaríkjamenn á kosningaaldri um
landið allt. Könnunin, sem var fram-
kvæmd 7.-10. þessa mánaðar, telst á
hinn bóginn öldungis marktæk og
niðurstaðan er að mestu í samræmi
við þá sem gerð var í aprílmánuði.
Í Bandaríkjunum líkt og víðar eru
skoðanakannanir afar mótandi í
stjórnmálalífinu og frambjóðendur
haga baráttu sinni mjög í samræmi
við niðurstöður þeirra. Afgerandi nið-
urstaða hvað varðar möguleika
Hillary Clinton á að sigra helstu
frambjóðendur Repúblikanaflokksins
er að mati innvígðra líkleg til að valda
nokkrum áhyggjum í herbúðum for-
setafrúarinnar fyrrverandi. Sigurlík-
ur Demókrataflokksins í forsetakosn-
ingunum á næsta ári eru augljóslega
góðar; lítt farsæll forseti mun þá
hverfa úr embætti.
Sigurlíkur Obama mælast betri
Fylgi Hillary Clinton í röðum kjós-
enda Demókrataflokksins mælist nú
33%. Næstur kemur sem fyrr Barak
Obama, öldungadeildarþingmaður
frá Illinois, með 22% fylgi. Al Gore,
varaforseti í átta ára forsetatíð Bills
Clintons, mælist með 15% stuðning
þó svo hann hafi ekki gefið kost á sér.
Fylgi við John Edwards, fyrrum öld-
ungadeildarþingmann, sýnist fara
minnkandi.
Þótt Hillary Clinton njóti nokkurra
yfirburða í röðum þeirra sem hyggj-
ast kjósa frambjóðanda Demókrata-
flokksins á næsta ári leiðir könnun
The Los Angeles Times/Bloomberg í
ljós að sigurlíkur hins 46 ára gamla
Baraks Obama teljast mun betri í for-
setakosningunum. Frú Clinton
myndi, samkvæmt könnun þessari,
tapa fyrir Rudy Giuliani, fyrrum
borgarstjóra New York, með tíu pró-
sentustiga mun væri hann forseta-
frambjóðandi Repúblikanaflokksins
og færu kosningar fram nú. Hillary
Clinton myndi einnig tapa fyrir John
McCain öldungadeildarþingmanni
með fjögurra prósentustiga mun.
Hún myndi ekki heldur ná að leggja
Mitt Romney, fyrrum ríkisstjóra
Massachusetts, að velli. Staðan gagn-
vart Romney er í raun með ólíkindum
og telst verulegt áfall fyrir framboðið.
Romney telst ekki til þekktari fram-
bjóðenda á landsvísu og aldrei áður
hefur könnun leitt í ljós að frú Clinton
myndi ekki megna að sigra hann í for-
setakosningunum. Og geta ber þess
að fylgi við Romney í röðum repúblik-
ana mælist aðeins um 12%.
Þessir þrír standa efstir þeirra sem
ákveðið hafa að sækjast eftir útnefn-
ingu Repúblikanaflokksins. Mest
mælist fylgið við Giuliani, 27% í röð-
um kjósenda repúblikana, en óvissa
ríkir í röðum repúblikana vegna
mögulegs framboðs Freds Thomp-
sons, fyrrum öldungadeildarþing-
manns og leikara. Fylgi við Thomp-
son eykst stöðugt og mælist nú 21%
þó svo hann hafi ekki formlega gefið
kost á sér.
Barak Obama myndi á hinn bóginn,
ef marka má könnun The Los Angel-
es Times/Bloomberg, sigra alla helstu
frambjóðendur repúblikana nokkuð
örugglega. Hann hefur t.a.m. 12%
forskot á John McCain. Skoðana-
kannanir vestra hafa að sönnu áður
skilað niðurstöðu í þessu veru en aldr-
ei svo skýrri sem nú. Sterk staða
Obama gagnvart frambjóðendum
repúblikana er líkleg til að valda
nokkrum titringi í röðum stuðnings-
manna Hillary Clinton. Kannanir
þessar má auðveldlega túlka á þann
veg að demókratar kunni að kasta frá
sér öruggum sigri tilnefni þeir for-
setafrúna fyrrverandi. Fyrir Hillary
Clinton er hættan því sú, að þeir sem
ákveðnir eru í að styðja demókrata og
telja breytingar nauðsynlegar vestra
ákveði að ganga til liðs við Obama.
Menntakonur síður hrifnar
Fylgisgrunnur Hillary Clinton er
einnig um margt athyglisverður.
Stuðningur við hana í röðum kvenna
er mikill og skýrir raunar forskot það
sem hún hefur á Obama samkvæmt
nýrri könnun dagblaðsins The Was-
hinton Post og ABC-sjónvarpsstöðv-
arinnar. Konur með litla menntun og
litlar tekjur eru líklegastar til að
styðja Hillary Clinton. Konur með
hærri tekjur, sem lokið hafa fjögurra
ára framhaldsnámi (e. „College“), eru
á hinn bóginn líklegri til að styðja
Obama. Mikill munur kom einnig
fram í afstöðu kvenna til frambjóð-
enda er spurt var hver þeirra væri
heiðarlegastur og traustsins verður. Í
röðum tekjulægri og lítt menntaðra
kvenna, þeirra sem lokið hafa „High-
School“, reyndust 42% þátttakenda
þeirrar hyggju að þar ræddi um frú
Clinton. Um 16% töldu þessa lýsingu
best eiga við um Obama. Konur, sem
lokið höfðu fjögurra ára framhalds-
námi, reyndust hafa allt aðra sýn til
frambjóðendanna; aðeins 19% þeirra
töldu Hillary Clinton heiðarlegasta
frambjóðandann en helmingur þátt-
takenda taldi Obama verðskulda þá
umsögn. Í könnun, sem sömu fjöl-
miðlar gerðu í aprílmánuði, kváðu
43% óháðra kvenkyns kjósenda fyrir
liggja að þeir myndu aldrei styðja
Hillary Clinton yrði hún forsetafram-
bjóðandi Demókrataflokksins.
Viðtekin er sú speki stjórnmála-
fólks að skoðanakönnunum beri að
taka með korni salts – einkum þegar
illa gengur. Og víst er að þau varn-
aðarorð eiga við um kannanir þær
sem hér hefur verið fjallað stuttlega
um; enn er óralangt til kosninganna
vestra, baráttan er á upphafsstigi og
halda ber því til skila að fylgiskann-
anir á landsvísu geta beinlínis verið
villandi þar eð kjörmannaatkvæði
ráða úrslitum. Staða Hillary Clinton í
röðum demókrata telst afar sterk.
Hald sumra innvígðra er að stuðning-
ur kvenna muni nægja til að tryggja
henni sigur í forkosningum demó-
krata, en sú hugsun gerist áleitin að
erfitt kunni að reynast fyrir hana að
breikka fylgisgrunninn hljóti hún út-
nefningu flokksins.
Kannanir leiða einnig í ljós að kjós-
endur hafa skýra sýn til hennar sem
vissulega kann að koma sér vel en
getur einnig reynst afdrifaríkt í þeim
tilfellum, sem afstaðan er afar nei-
kvæð. Mælingar sýna að mikill fjöldi
kjósenda hefur einmitt þá afstöðu til
Hillary Clinton. Kjósendum þeirrar
hyggju er erfitt að snúa líkt og komið
hefur í ljós um frú Clinton og stuðn-
ing hennar við innrásina í Írak. Á hinn
bóginn blasir við að meiri háttar um-
skipti þurfa að eiga sér stað í röðum
demókrata eigi Obama að takast að
skjótast fram úr starfssystur sinni frá
New York.
Tryggir kvennafylgið sigurinn?
Hillary Clinton hefur í krafti kvennafylgis náð traustu forskoti á aðra forsetaframbjóðendur demó-
krata en ef marka má kannanir stendur hún höllum fæti gagnvart frambjóðendum repúblikana
Reuters
Sóknarhugur Hillary Clinton í hópi stuðningskvenna á kosningafundi í Washington. Lengst til hægri á myndinni
er Geraldine Ferraro sem ein kvenna í Bandaríkjunum hefur verið varaforsetaefni í kosningum. Þeim áfanga náði
Ferraro árið 1984 en hún og Walter Mondale náðu ekki að ógna veldi repúblíkanans Ronalds Reagan.
Í HNOTSKURN
»Ný ævisaga Hillary Clin-ton eftir verðlaunablaða-
manninn Carl Bernstein kom
út í byrjun mánaðarins.
»Bókin hefur hlotið góðadóma m.a. í breska vikurit-
inu The Economist.
» Í bókinni lýsir Bernsteinforsetafrúnni fyrrverandi
á þann veg að þar fari greind
og kraftmikil kona, sem búi
yfir miklum innri styrk og
góðri kímnigáfu.
»Bernstein segir á hinnbóginn að sem opinber
persóna sé Hillary Clinton
„rækilega undirbúið og sál-
arlaust“ fyrirbrigði, sem leit-
ist við að ná til sem flestra.
»Telur Bernstein opinberaframgöngu frúarinnar
mótast um of af hentistefnu;
ekki fari saman sannfæring,
orð og athafnir.
ERLENT»
» Fyrir Hillary Clint-on er hættan því
sú, að þeir sem ákveðnir
eru í að styðja demó-
krata og telja breyt-
ingar nauðsynlegar
gangi til liðs við Obama