Morgunblaðið - 17.06.2007, Blaðsíða 84

Morgunblaðið - 17.06.2007, Blaðsíða 84
SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 168. DAGUR ÁRSINS 2007 Heitast 18°C | Kaldast 10°C  Fremur hæg SA- læg eða breytileg átt. Yfirleitt þurrt og rof- ar til, einkum fyrir norðan og austan. » 8 ÞETTA HELST» Hættir í borgarstjórn  Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, hefur ákveðið að hætta í borgarstjórn eftir þrettán ára setu. Hún segist þeirrar skoðunar að það fari ekki saman að sitja í borgarstjórn og á Alþingi, en Steinunn Valdís var kjörin á þing fyrir Samfylkinguna í vor. »Forsíða Viðbrögð formanna  Formenn nemendafélaga HA, HR, HB og HÍ hafa ólíkar skoðanir á úttekt Ríkisendurskoðunar á skól- unum. Einn vonar að úttektin auki jákvæða og málefnalega umræðu um mikilvægi háskólanna í landinu. Annar telur ljóst að skýrslan sé ekki gerð fyrir nemendur og sé líklegri til að rugla ungt fólk sem er að velja sér námsleið. Aðrir formenn segja ýmislegt í úttektinni koma sér á óvart. »6 Niðurstaðan vonbrigði  Sú niðurstaða úrskurðarnefndar að ekki sé unnt að stöðva fram- kvæmdir við Varmá til bráðabirgða er Varmársamtökunum mikil von- brigði. Þau bíða þess nú að nefndin taki efnislega afstöðu til kæru sam- takanna, en óttast að í millitíðinni verði unnar óafturkræfar skemmdir á svæðinu. Samtökin telja bæj- arstjórn Mosfellsbæjar hafa gengið á bak orða sinna um að haft yrði samráð við íbúa við gerð deiliskipu- lags fyrir svæðið. »2 Útskrift Háskóla Íslands  Kristín Ingólfsdóttir, rektor Há- skóla Íslands, gerði sterka stöðu skólans að umtalsefni í útskrift- arræðu sinni í gær. Alls voru útskrif- aðir 1056 kandídatar og hafa þeir aldrei verið fleiri. »2 SKOÐANIR» Staksteinar: Nýr og betri maður Forystugreinar: Merkilegt framtak Reykjavíkurbréf Ljósvaki: Hlaðvarpið – podcast UMRÆÐAN» Áhætta á ögurstund Er flotastýring nauðsynleg? Bæn 17. júní Einkastríð Ingibjargar FÓLK» Oprah valdamest. »79 Jónas Sen segir frá tónleikaferðalagi Bjarkar, en hann ferðast með henni sem hljóðfæra- leikari. »76 TÓNLIST» Lífræn tón- list Bjarkar FÓLK» Angelina gæti hugsað sér að eiga 14 börn. » 83 VEFSÍÐUR» Veröld mennskra farfugla skoðuð. » 78 Út er komin ný ljóðabók eftir Árna Ibsen, ljóð- og leik- skáld. Lesandanum er boðið í heims- reisu. » 81 Með einnota myndavél BÓKMENNTIR» reykjavíkreykjavík 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 VEÐUR» » VEÐUR mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Tveggja ára gamalt barn fékk … 2. Styr staðið um hárgreiðslustól … 3. Tóku fram úr sjúkrabíl í … 4. Fjórir landsliðsmenn enska … HIÐ árlega Sjóvár-Kvennahlaup ÍSÍ var haldið í átjánda sinn í gær. Talið er að um 16–18 þúsund konur hafi tekið þátt en hlaupið var um allt land og á nokkrum stöðum erlendis. Þrjár vegalengd- ir voru í boði í hlaupinu, tveir, fimm og tíu kílómetrar, sem kon- urnar fóru á sínum hraða, hvort sem um var að ræða göngu, skokk eða hlaup. Fjölmennustu hlaupin voru í Garðabæ og Mosfellsbæ. Yfirskrift hlaupsins í ár var „Hreyfing er hjartans mál“ og var hlaupið til styrktar Hjartavernd. Ungir jafnt sem aldnir tóku þátt í hlaupinu og fékk yngsta kynslóðin að renna með í barnavögnum sem var stýrt af styrkri hendi mæðranna. Á myndinni hér að ofan má sjá nokkra spræka þátttakendur í hlaupinu í Mosfellsbæ. Eins og sjá má var besti vinur mannsins vel- kominn í gönguna en engum sög- um fer af því hvort hann skokkaði eða hljóp. Konur hlupu vítt og breitt um landið í gær Morgunblaðið/Árni Torfason Gríðargóð þátttaka í Kvennahlaupinu ENGLENDINGURINN Daniel Tammet kem- ur til Íslands í næstu viku og heldur erindi í Há- skólanum í Reykjavík um einstæða reynslu sína. Daniel Tammet er svonefndur „savant“, sem þýðir að hann býr yfir afburðagáfu. Hann á til dæmis Evrópumetið í því að endursegja auka- stafi tölunnar pí eftir minni en Daniel er jafn- framt einstakur vegna þess að einn savanta í heiminum hefur hann brotist út úr heimi ein- hverfunnar, lifir eðlilegu lífi og getur tjáð sig um reynslu sína. Hann hefur því gefið vís- indamönnum einstakt tækifæri til að kynna sér hugarheim einhverfra. Sérgáfa Tammets felst meðal annars í svonefndri samskynjun sem felst í því að hann sér tölur og orð sem liti og form. Daniel kom hingað til lands fyrir tæpum þremur árum er honum var sett fyrir það verk- efni af breskum sjónvarpsmönnum að læra ís- lensku á einni viku. Hann hefur haldið kunnáttu sinni í íslensku við með hjálp kennara síns. Hann hefur sérstaka sýn á íslenskuna. Honum finnst íslensk tunga meðal annars einstök fyrir það hve gegnsæ hún sé. Á fyrirlestrinum í HR mun Ólafur Stef- ánsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í hand- knattleik, halda inngangserindi um möguleika á að vinna með myndræna hugsun í námi og kennslu. Ólafur hefur lengi haft áhuga á mynd- rænni hugsun út frá sjónarhóli heimspekinnar og sálfræðinnar. Hann segir komu Daniels Tammets til landsins vera sannkallaðan hval- reka. | 34 Daniel Tammet braust út úr einangrun einhverfu til að lifa „eðlilegu“ lífi Íslensk tunga ein- stök vegna gagnsæis Afburðagáfur Daniel Tammet á Evrópumet í að þylja upp aukastafi pí. Hann kemur hingað til lands til að halda fyrirlestur og flytur Ólafur Stef- ánsson handknattleiksmaður inngangserindi. HLJÓMSVEITIN múm er iðin við spilamennskuna, og einkum erlend- is, en hún spilaði til að mynda nýver- ið á tónlistarhátíðinni Primavera Sound í Barcelona. Í viðtali sem Ragnheiður Eiríksdóttir tekur við Örvar Þóreyjarson Smárason múm- liða kemur meðal annars fram að sveitin hyggist gefa út nýja plötu í haust. „Við erum búin að vera heillengi að vinna að henni,“ segir Örvar. Hann kveður nýju plötuna opnari og segir hljómsveitina hafa gefið sér meiri tíma í upptökur en áður. Platan er tilbúin og fullunnin. „Nú bíðum við bara eftir september þeg- ar hún kemur út,“ segir Örvar. „Plötufyrirtækið okkar vill hafa plöt- urnar tilbúnar sex mánuðum áður en þær koma út. Það er bara einhver standard. Þangað til tökum við bara eina og eina tónleika hér og þar.“ | 74 Ný plata frá múm í haust múm Hljómsveitin kom fram á Primavera Sound-hátíðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.