Morgunblaðið - 17.06.2007, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 17.06.2007, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 67 Byggingakrani. Nýr sjálfreisanlegur byggingakrani. Uppl. í síma 899 7012. Sumarhús Mótorhjól Ural Sportsman 750 árg. 2005, ek. 170 km. Hliðarvagn með drifi. Bakkgír. Uppl. í síma 892 8380. Triumph Tiger 955cc árg. 2006, ek. 1.000 km. Aukahlutir: Gelsæti, hituð handföng, miðju- standari. Nýtt hjól. Upplýsingar í síma 892 8380 og 552 3555. Vélhjól YAMAHA WARRIOR 1700CC. Árg. 2005. Einn af aflmestu hippun- um og með frábæra aksturseigin- leika. Litur: burgundi rautt með flott- um „flames”. Aukahlutir. Kom á götuna í júní 2005, ekið 6.300 km. Einn eig-andi. Verð 1.550 þús. Uppl. í síma 660 0747. Sumarhús - orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is . Rotþrær - heildarlausnir. Framleiðum rotþrær frá 2.300 - 25.000 L. Sérboruð siturrör og tengistykki. Öll fráveiturör í grunninn og að rotþró. Einangrunarplast í grunninn og takkamottur fyrir gólfhitann. Faglegar leiðbeiningar reyndra manna, ókeypis. Verslið beint við framleiðandann, þar er verð hagstætt. Borgarplast, Seltjarnarnesi, sími 561 2211, Borgarplast, Mosfellsbæ, sími 437 1370. Heimasíða : www.borgarplast.is Ýmislegt Nýkomnir í miklu úrvali léttir, sætir og sumarlegir dömuskór. Verð 2.985 og 3.985. Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. Ath. verslunin er lokuð á laugardögum í sumar. Mjög flottur í BCD skálum á kr. 2.350, buxur í stíl kr. 1.250. Fínt snið í BCD skálum á kr. 2.350, buxur í stíl á kr. 1.250. Mjúkur og vænn í CDEF skálum á kr. 2.350, buxur í stíl á kr. 1.250. Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is. Lokað á laugardögum í sumar. Glæsilegir lampar. Tiffany lampar á frábæru verði. Skoðið á www.liba.is. Póstsendum um allt land. Orlando, Flórída. Umsjón og leiga. Floridahus.is kynnir heildar- lausn fyrir húseigendur. Einfalt og þægilegt. Kynnið ykkur kostina, Gunnar, gunnar@floridahus.is eða 698 7343. Húsbílar Þessi húsbíll árg. 1993 er til sölu. Ekinn 100.000 km og er með öllum venjulegum þægindum. Upplýsingar í síma 895 1170. VW LT 40 húsbíll til sölu. Árg. 1989. Full innréttaður. Heitt og kalt vatn, gasmiðstöð, ísskápur, WC, CD, fortjald o.fl. Verð: Tilboð. Sjón er sögu ríkari. Mjög góður bíll. Sími 840 6646 & 565 7661. Kerrur 11 teg. af kerrum til á lager. Topdrive.is. Mikið úrval af vönduðum kerrum á frábæru verði, skoðið úrvalið á topdrive.is. Sími 422 7722, opið í dag. Verið vel- komin. Kerra á mynd kostar kr. 49.669 - ósamsett. Fjallaland - glæsilegar lóðir! Mjög fallegar lóðir til sölu í Fjalla- landi við Leirubakka, aðeins 100 km frá Reykjavík á malbikuðum vegi. Kjarri vaxið hraun. Ytri-Rangá rennur um svæðið. Landsfræg náttúrufegurð og veðursæld. Mikið útsýni til Heklu, Búrfells og Eyjafjallajökuls. Tvímæla- laust eitt athyglisverðasta sumar- húsasvæði landsins. Nánari upplýsingar á fjallaland.is og í síma 893 5046. Vélar & tæki Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Smáauglýsingar sími 569 1100 FRÉTTIR 17. júní í Reykjavík HEFÐBUNDIN morgundagskrá verður á Austurvelli en síðdegis verða skrúð- göngur og barna- og fjölskylduskemmt- anir á sviðum. Leiktæki og íþróttasýn- ingar verða í Tjarnargörðunum og ýmsar sýningar og götuuppákomur verða víðs- vegar um miðbæinn. Um kvöldið verða tónleikar og dansleikir. Dagskráin hefst kl. 9.55 með sam- hljómi kirkjuklukkna í Reykjavík. Í kirkjugarðinum við Suðurgötu leggur forseti borgarstjórnar, Hanna Birna Kristjánsdóttir, blómsveig frá Reykvík- ingum á leiði Jóns Sigurðssonar kl. 10. Skátar standa heiðursvörð. Hátíðin verður sett kl. 10.40 á Aust- urvelli. Björn Ingi Hrafnsson, formaður þjóðhátíðarnefndar, flytur ávarp. Þá leggur forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, blómsveig frá íslensku þjóð- inni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar á Austurvelli. Síðan flytur forsætisráð- herra, Geir H. Haarde, ávarp. Þá er ávarp fjallkonunnar á dagskrá. Karlakór Reykjavíkur syngur, stjórnandi er Friðrik S. Kristinsson og Lúðrasveitin Svanur leikur, stjórnandi er Rúnar Óskarsson. Áslaug Skúladóttir kynnir og Rík- isútvarpið sendir dagskrána út í útvarpi og sjónvarpi. Skipulagt hátíðarsvæði er Kvosin, þ.á m. Austurvöllur, Kirkjustræti, Templ- arasund, Ingólfstorg, Arnarhóll, Tjarn- argarður og Reykjavíkurhöfn. Umferð bifreiða er takmörkuð um þessi svæði og torgsala er óheimil án leyfis. Tíma- sett dagskrá hátíðahaldanna er birt á www.17juni.is. 17. júní í Kópavogi DAGSKRÁ þjóðhátíðardagsins í Kópavogi hefst á tónum brassbanda frá Skólahljómsveit Kópavogs sem aka um bæinn og óska Kópavogsbúum gleði- legrar hátíðar. Hið árlega 17. júní-hlaup fyrir börn á aldrinum 6-11 ára verður við Kópavogs- völlinn og hefst það kl. 10. Að hlaupi loknu er gengið frá Kópavogsvellinum í Digraneskirkjuna. Þar verður fjölskyldu- samvera undir stjórn safnaðarprest- anna, Stoppleikhúsið sýnir atriði úr Óskunum tíu, afhent verða verðlaun fyr- ir 17. júní-hlaupið og Skólakór Kárs- ness syngur. Skrúðgangan fer kl. 13.30 frá Menntaskólanum í Kópavogi og lýkur henni á Rútstúni en þar tekur við hátíð- ar- og skemmtidagskrá sem Felix Bergs- son stýrir. Gunnar Ingi Birgisson, bæj- arstjóri Kópavogs, flytur ávarp, fjallkonan fer með ljóð og nýstúdent flyt- ur hugleiðingar unga fólksins á þjóðhá- tíðardegi. Skólahljómsveit Kópavogs leikur. Úrsúla og vinkona hennar úr Stundinni okkar koma í heimsókn, Dav- íð Ólafsson og Valgerður Guðnadóttir syngja, Skoppa og Skrítla bregða á leik, Jógvan úr X-factor tekur lagið, atriði úr söngleiknum Abbabbabb og söngtríóið Hundur í óskilum slær á létta strengi. Dagskránni lýkur með síðdegistón- leikum þar sem hljómsveitin BT og Jónsi spila. Auk dagskrár á stóra sviðinu er ým- islegt annað til skemmtunar eins og vin- áttuleikur HK og Breiðabliks í 6. flokki karla á Vallargerðisvelli, leiktæki frá Sprelli, leikhóparnir Kær-leikur og Götu- leikhúsið með sýningu á litla sviðinu, andlitsmálun, sápukúluveröld og sölu- skálar frá íþróttafélögum. Hátíðarkaffi er kl. 15 í félagsmiðstöðinni Gjábakka. Þar verður söngdagskrá í flutningi Dav- íðs Ólafssonar og Valgerðar Guðnadótt- ur og tónlistarhópar frá Skapandi sum- arstörfum spila. Útitónleikar verða á Rútstúni kl. 20- 23. Þar mun Óli Palli sjá um að kynna og stýra tónlistarveislu. Hljómsveitirnar sem koma fram eru Tómas R. og Kúbu- bandið, Á móti sól og Magni, Dr. Spock og Svitabandið auk ungra tónlistar- manna úr Kópavogi. Dagskrá hátíða- haldanna er birt á www.kopavogur.is. 17. júní á Seltjarnarnesi Dagskrá hátíðahalda á Seltjarn- arnesi hefst á því að safnast verður saman við dælustöð á Lindarbraut og lagt af stað í skrúðgöngu kl. 13 undir stjórn Lúðrasveitar Seltjarnarness. Dagskrá á Eiðistorgi hefst kl. 13.45. Formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Seltjarnarness, Lárus B. Lárusson, set- ur hátíðina. Þá er ávarp fjallkonu, Pál- ínar Magnúsdóttur. Selkórinn syngur. Síðan verða eftirfarandi skemmtiatriði: Obbosí – Kristjana Skúladóttir leikkona. Atriði frá Sumarballettskóla Unnar og Riinu. Trúðar stíga á stokk. Óvæntir gestir. Bryndís Ásmundsdóttir leikkona syngur. Kynnir verður Hilmar Guð- jónsson. Að lokinni dagskrá á Eiðistorgi verður kaffisala í Félagsheimili Seltjarn- arness kl. 15-16. Hljómsveitin The Three Senioritas spilar á meðan kaffi- samsæti stendur. Hoppkastalar og leiktæki verða á bílaplaninu fyrir framan Eiðistorg. Dagskrá hátíðahaldanna er birt á www.seltjarnarnes.is/vidburdir. 17. júní í Garðabæ 17. júní-dagskrá í Garðabæ hefst kl. 10. Kanó- og kajaksiglingar á Vífils- staðavatni. Andvari/Topphestar Kjóa- völlum, opið hús – allir mega fara á hestbak. Golfkennsla við æfingasvæði GKG. Sund í íþróttahúsinu Mýrinni, börn verða að vera í fylgd með fullorðnum (dótasund). Víðavangshlaup á Stjörnu- velli v/Ásgarð. Mæting kl. 10 við Stjörnuheimilið, engin skráning. Verð- laun fyrir þrjú efstu sætin. Mömmu- og pabbahlaup. Ókeypis veiði allan daginn í Vífilsstaðavatni. Síðdegisdagskráin hefst með hátíð- arstund í Vídalínskirkju kl. 13. Stúd- entar úr FG taka þátt í henni. Starfs- styrkur til bæjarlistamanns Garðabæjar 2007 verður afhentur. Skrúðganga leggur af stað kl. 14 frá Vídalínskirkju að hátíðarsvæði við Garðaskóla. Fána- borg er í umsjón Skátafélagsins Vífils. Dagskrá á hátíðarsvæði er eftirfar- andi: Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar spilar. Fánahylling. Setn- ing. Ávarp forseta bæjarstjórnar. Ávarp fjallkonu. Úrsúla og Lena úr Stundinni okkar. Söngatriði úr Garðaskóla. Töfra- maðurinn Lalli Potter. Fimleikasýning frá fimleikadeild Stjörnunnar verður á útisvæðinu. Loftleiktæki. Kassaklifur. Trampólín. Stultur. Sykurpúðaeldun. Andlitsmálun. Hundasýning – íþrótta- deild HRFÍ. Sölutjöld, blöðrur og kandíf- loss. Kaffiborð Kvenfélags Garðabæjar verður í Garðalundi kl. 15–17. Forsala hefst kl. 13. Útitónleikar með hljóm- sveitinni Á móti sól og Jógvan í X-factor kl. 16-17. Athugið að bílastæði við Flataskóla og hluti af bílastæðum við Ásgarð verða lokuð og gestum er bent á að leggja bif- reiðum sínum t.d. á bílastæðum við Garðatorg. 17. júní á Álftanesi Fjölbreytt dagskrá verður á þjóðhátíð- ardaginn á Álftanesi sem hefst í íþrótta- miðstöðinni kl. 9 þar sem skátar draga fána Álftaness að húni. Má m.a. nefna fótboltasprell, brúðubíl, uppblásin leik- tæki, félagar úr hestamannafélaginu Sóta teyma undir börnum, 17. júní-mót Golfklúbbs Álftaness, vígslu á „Skatep- ark“ auk hefðbundinna dagskrárliða. Helgistund í Bessastaðakirkju verður kl. 13.30 í umsjón Grétu Konráðsdóttur djákna. Skrúðganga fer eftir messuna frá Bessastöðum inn í Kvenfélagsgarð. Lúðrasveitin Svanur leikur. Skátar bera fána og stjórna göngunni. Setning fer fram kl. 14.30 í Kvenfélagsgarði. (Ef veður verður óhagstætt verður dag- skráin flutt inn í íþróttasal.) Ásgrímur Helgi Einarsson, formaður íþrótta- og tómstundanefndar. Fjallkonan flytur ávarp. Hátíðarávarp flytur Júlíus K. Björnsson. Tveir Álftnesingar verða heiðraðir fyrir sérstakt framlag sitt til þjóðarinnar á sviði menningar og lista og bæjarlistamaður sveitarfélagsins 2007 verður útnefndur. Hljómsveitirnar Acid og C-mon flytja nokkur lög. Íris Hólm Jónsdóttir úr X- factor frumflytur lagið Fly away. Lag eftir Halldór Guðjónsson og texti eftir Rann- veigu Iðunni Ásgeirsdóttur. Mikel Her- rero Idigoras frá Spáni sýnir hæfni sína með Diabolo. Magni Ásgeirsson mætir á svæðið og heldur uppi fjörinu. Kynnar eru Heiðar Snær Jónasson og Linda Björk Bjarnadóttir. Andlitsmálarar bjóða upp á andlitsmálun gegn vægu gjaldi allan daginn. Athugið að ágóðinn af andlitsmálun rennur óskiptur til líkn- armála, og margt fleira. Kaffihlaðborð Kvenfélagsins verður í samkomusal Íþróttamiðstöðvar kl. 14.30-17.30. Haukur Heiðar leikur á flygil í hátíð- arsalnum. Rúta fer frá Íþróttamiðstöðinni að Bessastöðum kl. 13.15. Dagskrá há- tíðahaldanna er birt á www.alftanes.is. 17. júní í Hafnarfirði Fjölbreytt dagskrá verður á 17. júní í Hafnarfirði. Leiktæki verða á Víð- istaðatúni, skrúðganga frá Hellisgerði, fjölskylduskemmtun á Víðistaðatúni og um kvöldið verður skemmtun á Thorspl- ani. Kl. 13.45 verður helgistund í Hellis- gerði sem séra Þórhallur Heimisson sér um. Lúðrasveit Hafnarfjarðar, stjórn- andi Þorleikur Jóhannesson, Karlakór- inn Þrestir, stjórnandi Jón Kristinn Cor- tez. Lagt af stað í skrúðgöngu að lokinni helgistund frá Hellisgötu, að Víð- istaðatúni þar sem fjölskylduskemmtun hefst. Setning: Margrét Gauja Magn- úsdóttir, formaður þjóðhátíðarnefndar. Ávarp bæjarstjóra: Lúðvík Geirsson. Ávarp fjallkonu. Karlakórinn Þrestir syngur, stjórnandi Jón Kristinn Cortez. Karíus og Baktus, Abbababb, Skoppa og Skrýtla. Kynnir hátíðahaldanna verður Jó- hannes Jóhannesson. Fjallkonan í ár verður Beata Anna Janczak. Nýstúdent: Stefán Breiðfjörð. Guðrún Gunnarsdóttir og Friðrik Óm- ar ásamt Valgeiri Skagfjörð munu heim- sækja sjúkrastofnanir bæjarins og halda tónleika. Rétt er að benda gestum hátíðarhald- anna á að hundahald er bannað á hátíð- arsvæðunum. Dagskrá hátíðahaldanna er birt á www.hafnarfjordur.is. Dagskrá hátíðarhalda þjóðhátíðardaginn 17. júní á höfuðborgarsvæðinu Morgunblaðið/Eggert
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.