Morgunblaðið - 17.06.2007, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 17.06.2007, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 51 www.storhus.is sími: 534-2000 Stutt í allar áttir - Hluti af mikilli sögu VILTU EIGNAST HÓTELÍBÚÐ Í HJARTA KAUPMANNAHAFNAR? Amager Boulevard A m ag e rb ro g ad e Chr. Havns Torv Fyrstir koma fyrstir fá - hafið samband strax! Með hótelíbúðum -„Business Apartments“ í hjarta Kaupmannahafn- ar getur þú eignast þitt annað heimili í einni af stórborgum heims- ins - fyrrverandi höfuðborg Íslands! Stutt er til allra helstu staða í Kaupmannahöfn - má þar nefna Tívolí, Ráðhússtorgið, Strikið og Óperuna - allt í göngufæri. Hótelíbúðirnar eru fullbúnar með sérhönnuðum innréttingum og húsgögnum ásamt öðrum hús- búnaði. Þannig að hægt er að bjóða, viðskiptavinum, félögum og vinum í góðan kvöldverð og öllum líður eins og heima hjá sér. Með kaupum á hótelíbúð eignast þú vinalegan og góðan stað þar sem þér líður vel og getur haft það huggulegt eins og þér hentar. Kostirnir eru ótvíræðir hvort sem um vinnuferð eða skemmtiferð er að ræða. Stutt er í bæinn - í staðinn fyrir langa ferð í úthverfi. Mót- taka er á hótelinu þar sem hægt er að hittast. Einnig er hægt að fá sér morgunmat á veitingastaðnum eða kaffibolla úti í sérhönnuðum fallegum garði. - Skráðu þig á kynningu 20. júní n.k. kl. 18:00 á storhus@storhus.is. Kynning verður haldin á Grand Hotel, miðvikudaginn 20. júní 2007, kl. 18:00. Vinsamlegast skráið ykkur með símtali eða á netfangið storhus@storhus.is. FASTEIGNASALA FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Hringbraut - glæsileg íbúð Björt og afar falleg 96 fm hæð í þessu fallega húsi í miðbænum. Samliggjandi stofa og borðstofa, eldhús uppgert í upprunalegum anda, 2 rúmgóð herbergi og bað- herbergi. Mikil lofthæð er í íbúðinni og stórir bogadregnir gluggar fylla íbúðina birtu. Hús nýviðgert að utan. Allir gluggar og gler er nýtt, hljóðvistargler að götu. Eign sem vert er að skoða. Verð 36,9 millj. Laufásvegur - neðri sérhæð Glæsileg 108 fm neðri sérhæð í fallegu steinhúsi í Þingholtunum. Hæð- in er mikið endurnýjuð m.a. gólfefni, innrétting og tæki í eldhúsi, baðherb. og gestasnyrting, raflagnir o.fl. 2 herb. auk fataherb. og sam- liggjandi stofur með fallegum útbyggðum bogadregnum gluggum. Ræktuð lóð. Hús teiknað af Guðjóni Samúelssyni og er friðað að ein- hverju leyti á ytra byrði. Verð 45,0 millj. Strandvegur - Sjálandi - Garðabæ Glæsileg útsýnisíbúð á efstu hæð auk bílskúrs Glæsileg 123 fm íbúð þ.a. 10,5 fm geymsla á efstu hæð (gengið upp tvær hæðir) í nýju og glæsilegu litlu fjölbýli auk 23 fm bílskúrs. Vand- aðar innréttingar frá Brúnás og vönduð eldhústæki. Parket á gólfum, en baðherb. er flísalagt í gólf og veggi. Suðaustursvalir. Lofthæð er allt að 4 m. Óhindrað sjávarútsýni. Laus fljótlega. Verð 52,9 millj. Barðaströnd - Seltjarnarnesi Mjög fallegt 221 fm tvílyft raðhús með innbyggðum bílskúr með glæsilegu útsýni. Eignin skiptist m.a. í eldhús með nýlegri innrétt- ingu, stofu, borðstofu, 3-4 svefn- herbergi og flísalagt baðherbergi. Stórar um 35 fm svalir út af holi á efri hæð með glæsilegu útsýni til Esjunnar, Snæfellsness og víðar. Suðursvalir út af stofu. Gróinn garður með hellulagðri verönd. Verð 75,0 millj. Vogaland Glæsilegt 339 fm einbýlishús á tveimur hæðum með 30 fm innb. bílskúr. Eignin skiptist m.a. í stórar samliggjandi stofur, rúmgóðan sól- skála, eldhús með búri/vinnuherb. inn af, 4 svefnherbergi, 1 herb. inn af stofu, fataherbergi, sjónvarps- herb. og 2 baðherbergi auk gesta- w.c. Svalir út af hjónaherb. í austur. K-gler í gluggum. Falleg ræktuð lóð með mikilli hellulögn og heitum potti. Hitalagnir í aðkomu að bílskúr og húsi. Í SJÓNVARPSFRÉTTUM RÚV 12. júní var verið að tala um Íraks- stríðið. Stjórnarandstaðan hafði verið með fyrirspurnir á þingi um hvernig þau mál stæðu, hvort stuðn- ingur hefði verið afturkallaður, hvernig þetta væri með harminn. Í lok fréttarinnar var talað við Ingibjörgu utanríkisráðherra og þá kom í ljós að hún virtist hafa gengið á fund sendiherra Bandaríkjanna og sagt henni frá þessum harmi. Ég ætla bara að vona að sendiherr- ann hafi ekki sprungið úr hlátri. Sendiherr- ann gæti líka hafa spurt: Hvaða stríð? Svo flaggaði Ingi- björg því framaní vél- arnar að þetta væri í fyrsta sinn sem íslensk stjórnvöld hörmuðu stríðið. Ég hugsaði: Bíddu, er eitt- hvað í sambandi við þetta stríð og stuðning okkar sem vert er að monta sig af. Svo er látið með harm- inn einsog stórkostlegt framfara- skref. Lengra verður ekki komist. Okkur finnst þetta ferlega leið- inlegt. En það sem var einsog blaut tuska framaní mig voru lokaorðin þegar hún kvartaði undan því að stjórnarandstaðan skildi ekki hvað hún væri búin að gera mikið í mál- inu, gott ef ekki uppá eigin spýtur, og eftir að hafa rakið ferðir sínar til sendiherrans og harmatölurnar klykkti hún út með að segja: En stjórnarandstaðan virðist ekki geta skilið þetta. Einsog þetta væri einkastríð Ingibjargar við stjórnarandstöðuna. Ingibjörg var svo sannarlega ekki að tala við mig þarna í sjónvarpinu. Samt vissi hún að ég lá heima í stofu að horfa á fréttirnar. Rétt einsog svo ótal margir. Nei hún var að ríf- ast við stjórnarandstöðuna um stríð þarsem saklaust fólk lætur lífið á hverjum degi og við Ís- lendingar berum að hluta til ábyrgð á. Ég er búin að vera að bíða eftir hvað þessi rík- isstjórn myndi gera í málinu. Ég beið þol- inmóð meðan þau voru á Þingvöllum og ég vonaði, já ég bara von- aði að stuðningur okk- ar við þetta stríð yrði afturkallaður. Mér var eiginlega sama um allt annað. Hvað get ég sagt um stríð. Mér hefur þótt þetta ómæl- anlega sárt, ég hef líka verið af- skaplega reið. Ég hef verið van- máttug, mig hefur langað að flytja frá Íslandi, ég hef séð saklaust fólk deyja í sjónvarpinu, blóðið fljóta, ringulreiðina, óttann, og þetta er svo lítill heimur að vinkona mömmu dó í loftárás ásamt börnum sínum. Það eru fjögur ár síðan og þau eru enn að deyja. Ég hef líka óttast um börn mín, tengdabörn og barnabörn þegar þau fljúga til eða frá Íslandi. Og finnist einhverjum það drama bendi ég á það sem gerðist í Englandi og á Spáni. Og nota bene: Spánverjar sögðu sig úr stríðinu. Þeir litu ekki á þetta sem sögulega staðreynd svo notuð séu orð Geirs og Ingibjargar. Þessvegna hljóma þessi orð Ingi- bjargar: „Stjórnarandstaðan virðist ekki geta skilið þetta“ einsog úr fíla- beinsturni. Ég spyr: Er heimurinn Alþingi. Er Ingibjörg Þingvellir. Hún hefði átt að segja: „Þær fjöl- mörgu íslensku mæður sem hafa fundið til með fórnarlömbum Íraks- stríðsins og óttast um eigin börn virðast bara ekki geta skilið þetta.“ Ég hef nefnilega ekki skilið þetta. Og ég skil ekki að flokkur sem gefur sig út fyrir að vera jafnaðarmanna- flokkur láti það fari svona í taug- arnar á sér að einhver hafi áhuga á stríðinu hans. Og ég skil ekki heldur að þessi sami flokkur skuli ekki af- segja stuðning með öllu. Ef ekki er hægt að afsegja stuðn- inginn, get ég þá fengið að vita það? Og afhverju er það ekki hægt? Því ég vil benda á að ef það er ekki hægt þá er þessi harmur tvö- föld skilaboð. Ef ég harma eitthvað liggur beinast við að koma sér út úr því. Tvöföld skilaboð eru hættuleg en það þarf vart að taka fram. Stuðningur fyrri ríkisstjórnar við Íraksstríðið var glæpur en þessi harmur er um það bil að verða hlægilegur. Nú er bara að vona að þau springi ekki úr harminum Þingvallaparið. Einkastríð Ingibjargar Elísabet Kristín Jökuls- dóttir skrifar um ummæli utanríkisráðherra varðandi Íraksstríðið » Það er einsog þettasé einkastríð Ingi- bjargar við stjórnarand- stöðuna. Elísabet Jökulsdóttir Höfundur er rithöfundur. Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.