Morgunblaðið - 17.06.2007, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 17.06.2007, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 57 Fasteignasala Lögmanna Suðurlandi Austurvegi 3 - 800 Selfossi sími 480 2900 - www.log.is Löggiltir fasteignasalar: Ólafur Björnsson hrl. Sigurður Sigurjónsson hrl. og Christiane L. Bahner hdl. Hótel Höfðabrekka ásamt jörðinni Höfðabrekku í Mýrdal er ein af glæsilegustu og best búnu ferða- þjónustubýlum á landinu. Í næsta nágrenni eru einstakar náttúruperlur s.s. Reynisfjara og Reynis- drangar, Mýrdalsjökull og Þakgil. Jörðin er um 4.700 ha. Húsakostur er góður og telur m.a. fimm gisti- hús með 62 tveggja manna herbergi, stórt veitingahús, veitingasali, starfsmannahús, þvottahús, bað- hús, þrjú stór íbúðarhús auk hesthúss, verkstæðis og annarra útihúsa. Borhola gefur af sér 14 sek- úndulítra af 39°C sjálfrennandi heitu vatni. Veiði í Kerlingardalsá. Vikurnámur. Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu Lögmanna Suðurlandi. Hótel Höfðabrekka Rangárstígur 3, Rangárþing ytra Um er að ræða 42,2 fm sumarhús sem stendur á 1.900 fm eignarlóð á bökkum Ytri-Rangár. Stutt er á Hellu og er bústað- urinn göngufæri frá Hellu. Verð 9,9 m Fallegt útsýni er frá bústaðnum m.a. niður með ánni og yfir að Gaddstaðaflötum. Húsið er byggt árið 1990 úr timbri. Eignin telur forstofu með skáp, baðherbergi með sturtuklefa, þrjú svefnherbergi stofu og eldhús. Suður-Götur og Norður-Götur, Mýrdalshreppi Um er að ræða jarðirnar Suður- og Norður- Götur í Mýrdalshreppi sem eru staðsettar í skjólríkri kvos með mikla möguleika til úti- vistar, sem og fallegum gönguleiðum inn eftir Hvammsgili. Bærinn nýtur kvöldsólar- innar. Stærð jarðanna er um 330 ha. Land- ið liggur að Hvammsá. Á jörðunum er m.a. 120 fm íbúðarhús, 124 fm skemma, fjós og sambyggð hlaða og nokkur fjárhús. 357 fm einbýlishús á Arnarnesi á glæsilegri 1.681 fm sjávarlóð á móti suðvestri. Eignin skiptist í forstofu, gesta- snyrtingu, hol, samliggjandi stofur með gólfsíðum glugg- um, 4-5 herbergi auk fataherbergis, rúmgott eldhús, búr og þvottaherbergi inn af eldhúsi og tvö stór baðherbergi. Útgangur á verönd til suðvesturs úr holi og hjónaher- bergi. Tvöfaldur 57 fm innb. bílskúr. Gríðarlega góð staðsetning á kyrrlátum stað með frábæru útsýni út á sjóinn, að jökli og víðar. Verð: tilboð. Mávanes - Garðabæ Einbýlishús á sjávarlóð ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali FASTEIGNA- MARKAÐURINN Íbúðalánasjóðir og opinber af- skipti af íbúðalánamarkaði Íbúðalánasjóður er ekki eini sjóðurinn í heiminum sem lánar til fjármögnunar íbúðarhúsnæðis með stuðningi eða atbeina stjórnvalda. Í þessu sambandi nægir að nefna Fannie Mae og Freddie Mac í Bandaríkjunum og SBAB í Svíþjóð. Öflun íbúðarhúsnæðis á bestu mögulegum kjörum, óháð efnahag og búsetu, er einfaldlega mikilvægt mál, sem stjórnvöld láta sig varða víðar en hér á landi. Þannig má við- halda samkeppni á íbúðalánamark- aði og forðast markaðsbresti. Ábyrgð og hæfni innlendra fjölmiðla Flestir innlendir fjölmiðlar hafa tekið ábendingum Alþjóða gjald- eyrissjóðsins sem heilögum sann- leika og ekki reynt að kryfja þær til mergjar. Vekur það spurningar um hæfni íslenskra fjölmiðla til að fjalla fagmannlega um mál af þessu tagi. Í ljósi sögunnar er ljóst að þeir hafa farið offari í garð Íbúða- lánasjóðs og slegið upp fyr- irsögnum og greinum sem hafa verið fjarri öllum raunveruleika. Má þar sem dæmi nefna forsíð- ugrein í Morgunblaðinu í desember 2004 þar sem fullyrt var að Íbúða- lánasjóður gæti komist í þrot. Einnig má gagnrýna fjölmiðla fyrir að leita ekki eftir skoðunum eða viðbrögðum frá Íbúðalánasjóði. Talað er um sjóðinn en ekki við for- svarsmenn hans þegar veigamikil mál hefur borið á góma. Því hafa rangfærslur um sjóðinn verið al- gengar í fjölmiðlum. Trúverðugleiki Samtaka atvinnulífsins Í júlí 2005 birtist grein á heima- síðu Samtaka atvinnulífsins þar sem sagt var að Íbúðalánasjóður hefði tapað 15 milljörðum króna og næmi það meira en öllu eigin fé sjóðsins. Þegar samtökin réðust svo ný- verið aftur á Íbúðalánasjóð, með sambærilegum rökum og Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn beitir fyrir sig, vakna óneitanlega grunsemdir um að samtökin séu að sinna hags- munagæslu í stað þess að taka þátt í málefnalegri umræðu. Niðurstöður Alþjóða gjaldeyr- issjóðsins eru ekki í nokkru sam- ræmi við staðreyndir sem hér hafa verið raktar. Þær byggjast, að mínu mati, á misskilningi og van- kunnáttu um þennan málaflokk hér á landi. Íbúðalánasjóður getur ekki borið ábyrgð á auknum útlánum bank- anna til heimilanna. Þessi útlán bankastofnana hafa nær þrefaldast og aukist um 500 milljarða króna síðastliðin þrjú ár. Þar af tengjast yfir 400 milljarðar fasteignakaupum. Eru þá ótalin gjaldeyrislán bankanna. Á sama tíma hafa útlán Íbúðalánasjóðs dregist saman um nærri því fimmt- ung. Krafa um að Íbúðalánasjóður lækki umsvifalaust hámarkslán sín og veðhlutföll er undarleg enda hafa útlán sjóðsins verið hófleg og langt undir hámörkum. Það sýnir ábyrgð Íbúðalánasjóðs og skapar ekki þenslu nema síður sé. Óskiljanlegt er að kenna Íbúða- lánasjóði um of háa skamm- tímavexti og lítt virka peninga- málastefnu. Íbúðakaup eru venjulega fjármögnuð með lánum á langtímavöxtum sem eru heldur lægri en skammtímavextir. Halli vaxtaferilsins byggist á væntingum markaðarins og speglar efnahags- ástandið í hverju landi. Íbúðalána- sjóður hefur hins vegar ekkert með það að gera. Menn geta haft ýmsar skoðanir á hvernig þessum málum verður best fyrir komið. Staðreyndum um Íbúðalánasjóð verður hins vegar ekki breytt. Rangfærslur og afbak- anir verða ekki notaðar til að rök- styðja að þensla og árangurslítil peningamálastefna sé Íbúðalána- sjóði að kenna.“ Nafnvaxtaferill m.v. 4,1% verðbólguálag á ávöxtunarkröfu íbúðabréfa 0,00% 2,00% 4,00% 6,00% 8,00% 10,00% 12,00% 14,00% 16,00% 0,00 5,00 10,00 15,00 20,00 25,00 30,00 35,00 40,00 Ár V ex ti r Myndin sýnir vaxtaferil í íslenskum krónum þar sem skammtímavextir eru um 6% hærri en langtímavextir. Íbúðalán hér á landi eru yfirleitt til langs tíma. Þróun skulda heimilanna Þróun skulda heimilanna 0 250 500 750 1000 1.6.2004 31.12.2005 31.3.2007 U p p h æ ð ( m a. IS K ) Bankar og sparisjóðir Íbúðalánasjóður Heildarskuldir heimila Skuldir heimila (ma. ISK) 1.6.2004 31.12.2005 31.3.2007 Br. frá 1.6.2004 Bankar og sparisjóðir 192,6 544,4 745,6 287% Íbúðalánasjóður 410 317 339,1 -17% Heildarskuldir heimila 602,6 861,4 1084,7 80% Myndin og taflan sýna þróun skulda heimilanna síðust þrjú ár. Útlán bankastofnana til heimila hafa nærri þrefaldast á sama tíma og útlán Íbúðalánasjóðs til heimila hafa dregist saman um tæplega fimmtung á tímabilinu. Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.