Morgunblaðið - 17.06.2007, Síða 32
tengsl | Feðgarnir Björn Ingi Hilmarsson og Arnmundur Ernst Björnsson
Arnmundur Ernst „Við pabbi fórum
mjög oft saman til Dalvíkur og
þessar ferðir standa upp úr í æsku-
minningunum.
Mamma og pabbi skildu þegar ég
var um fjögurra ára. Ég man ekk-
ert eftir skilnaðinum en allt í einu
varð hann var pabbinn sem ég fór
til eina viku í mánuði og við gerðum
alltaf eitthvað skemmtilegt saman.
Hann hélt mörg afmæli fyrir mig.
Hann var alltaf ráðagóður og við
gerðum marga skemmtilega hluti
saman.
Ég var vægast sagt stoltur af
honum þegar ég var yngri og er
enn. Hann var alltaf svo fyndinn
þegar vinir mínir komu í heimsókn
og alltaf svo hress. Ég tek eftir því
núna að ég er farinn að segja sömu
brandara og hann og ég held við
verðum alltaf líkari og líkari. Hann
var alltaf mjög strangur á mataræði
og það að ég stundaði einhverjar
íþróttir.
Þegar pabbi var í hlutverki
Rocky Horror í samnefndum söng-
leik byrjaði hann að lyfta og fræð-
ast um mataræði en týpan sem
hann lék er mjög mössuð.
Pabbi er lærður bakari. Hann er
mjög mikill sælkeri og kann að elda
mjög góðan mat og gerir fiskrétti
reglulega. Svo er hefð fyrir því að
við gerum ákveðið sjávarréttapasta
saman þegar ég er hjá honum.
Hann gerði líka alltaf pitsur handa
mér þegar ég var lítill. Hann kann
að meta gott kaffi og gott vín. Hann
kann virkilega að meta það góða
sem lífið hefur upp á að bjóða.
Hann hefur alltaf sýnt það og
sannað að hann kunni að leika. Mér
hefur alltaf fundist hann góður á
sviði. Þó að leikritið sé ekki gott
hefur hann alltaf lagt sitt af mörk-
um. Leikhúsið var mín barnapía. Ég
fór oft upp í hljóðmannastúkuna til
að horfa. Enginn hefur væntanlega
séð leikritið Sex í sveit oftar en ég.
Mamma og pabbi sýktu mig af þess-
um leikaravírusi. Maður hefur svo-
lítið alist upp með þeim í leikhúsinu
og á varla afturkvæmt.
Leikarar hafa oft vissar týpur
sem þeir eru bestir í og það á eftir
að koma í ljós hvaðan ég sæki mín-
ar týpur, hvort ég sæki þær frá
þeim. Mér finnst við pabbi mjög lík-
ir og margir segja að við séum alltaf
að líkjast meira og meira. Pabbi er
góður í að leika heimska gæjann
sem er alltaf að láta koma sér á
óvart. Svo hefur hann staðið sig frá-
bærlega í alvarlegri rullum. Líka
var hann að sanna það um daginn í
Gretti að hann gæti sungið. Hann
er mjög góður í að koma manni til
að hlæja.
Pabbi er búinn að finna sér alveg
yndislega konu, loksins! Hún heitir
Hlín Helga en þau kynntust í kring-
um skipulagningu V-dagsins. Hún
er núna ófrísk, en þau eiga von á
sér í ágúst. Ég er dálítið feginn.
Hann vantaði nýjan krakka, ég er
ekki lengur fjögurra ára og brand-
ararnir virka ekki lengur alveg eins
vel! Ég er að vonast eftir litlum
Adda jr.
Ég er mjög stoltur af pabba mín-
um að taka þátt í V-deginum og
styð hann í þessu. Kannski tekur
maður þessa baráttu upp? Það segir
ýmislegt að hann var eini karlmað-
urinn á alþjóðlegum V-dagsfundi,
sem haldinn var í Brussel um dag-
inn.
Pabbi býr yfir miklu frumkvæði
og er mjög duglegur. Fyrir nokkr-
um árum keypti hann íbúð við
Freyjugötu og gerði hana upp sjálf-
ur. Hann bjó til húsgögn, var frum-
legur og hannaði þetta allt mikið
sjálfur. Hann hefur verið að spá í
feng shui-fræðum en konan hans er
menntaður jógakennari. Hann hef-
ur alltaf verið mjög virkur og tilbú-
inn að gera eitthvað nýtt.
Pabbi hefur alltaf verið unglegur.
Ég montaði mig af því þegar ég var
í grunnskóla að eiga fertugan pabba
með „six pack“. Hann hefur alltaf
verið mjög strangur á reykingar og
unglingadrykkju og fór stundum yf-
ir strikið. Hann vaktaði mig fullvel
því ég hef ekkert verið að prófa
þetta. Einu sinni ásakaði hann mig
um að vera byrjaður að reykja því
ég var búinn að vera með kvef í
viku! En ég held hann hafi bara
viljað að ég lenti ekki í sömu gryfju
og hann. Hann reykti og byrjaði
snemma að smakka áfengi.
Núna erum við komnir á það stig
sem er nauðsynlegt að börn og for-
eldrar nái. Ég er ekki lengur bara
sonur hans sem er að læra af hon-
um heldur getum við talað meira
saman sem jafningjar. Við höfum
átt ofboðslega góða samleið. Ég
held að okkar komandi framtíð sé
bara skemmtileg og björt og að það
verði áfram gott samband á milli
okkar.
Það er bara eitt, hann er alltaf að
spyrja hvort það sé ekki einhver
tengdadóttir væntanleg, það er full-
mikil pressa á manni þar!“
Björn Ingi Hilmarsson er fæddur árið 1962 á Dalvík þar sem hann er uppalinn. Hann útskrifaðist sem bakari árið
1983 og vann sem slíkur í þrjú ár í heimabænum áður en hann ákvað að fara í leiklistarnám. Hann lauk námi frá
Leiklistarskóla Íslands 1990 og lék hjá Leikfélagi Akureyrar veturinn eftir útskrift. Fyrsta hlutverk Björns Inga
hjá Leikfélagi Reykjavíkur var í Dúfnaveislunni eftir Halldór Laxness haustið 1991 en síðan hefur hann leikið í yf-
ir 20 sýningum Leikfélagsins. Kona hans heitir Hlín Helga Guðlaugsdóttir og er hönnunarnemi við Listaháskóla
Íslands. Þau eiga von á sínu fyrsta barni í ágúst.
Fyndinn sælkeri
32 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Fermingarstrákur Björn Ingi
ljóshærður og sakleysislegur
við fermingu.
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur | ingarun@mbl.is
Feðgar Gott sam-
band er á milli
Arnmundar Ernst
og Björns Inga og
voru þeir tilbúnir
til þess að ræða
hvor annan í við-
tali og hafa ým-
islegt skemmti-
legt að segja.
Öflugasta dísilvél í heimi í flokki lúxusjeppa
V8 4,2 TDI • 326 hestöfl • 760 Nm tog • Hröðun 0-100 km/klst. 6,4 sek.