Morgunblaðið - 17.06.2007, Síða 39
ins. Í rauninni sé það hins vegar
skelfilegt. „Tim hefur séð meiri
hrylling en hægt er að gera sér í
hugarlund. Stundum skil ég ekki
að hann fái það afborið. Stað-
reyndin er samt sú að einhver
verður að gera það sem hann ger-
ir og ég dáist að honum fyrir það.
Þess vegna styð ég hann í gegnum
þykkt og þunnt.“
Whitehouse bendir á að margir
stríðsfréttamenn verði fyrir sál-
rænu áfalli. Hún telur ekki nóg
gert til að undirbúa þá og aðstoða
þegar þeir fást við erfið verkefni.
Auk þess segir hún að sums stað-
ar séu aðstæður nú þannig að eng-
ir fréttamenn hætti sér þangað
lengur.
„Tim hefur flutt fréttir frá öll-
um hættulegustu stöðum í heimi.
Fyrir nokkru varð hann vitni að
sprengingu á markaði í Írak, sem
er nú orðið daglegt brauð. Ég hef
aldrei vitað hann í jafn miklu upp-
námi. Hann ætlar ekki aftur þang-
að og það sama á við um sam-
starfsmenn hans. Fréttir frá Írak
berast nú aðeins frá fréttamönn-
um sem hætta sér ekki út fyrir
græna svæðið og þekkja ekki
raunverulegar aðstæður.“
Þegar öllu er á botninn hvolft
segist Whitehouse vera stolt af
sér og fjölskyldunni sinni. „Við
höfum lagt okkar af mörkum til
þess að auka skilning á milli
heimshluta. Börnin hafa sterka
réttlætiskennd og meiri þekkingu
en jafnaldrar þeirra. Hvað sem
hverjum finnst er ekki hægt að
halda öðru fram en að við höfum
búið þau vel undir lífið,“ segir
hún.
Bók Whitehouse má nálgast á
www.reportagepress.co.uk. Hún
kostar £8,99 og hluti af ágóð-
anum rennur í Rory Peck sjóðinn
fyrir aðstandendur fréttamanna
sem slasast við störf.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 39
Að loknu köldu og vindasömu vori
birtist sumarið eins og himnasend-
ing. Það minnti mig á fæðingu heil-
brigðs barns þegar þungi meðgöng-
unnar er að baki og sársaukafullar
hríðir gleymdar með öllu. Löng og
hlý maíkvöld með höfugri birkiang-
an og endalausri birtu virtust bera
svolítinn keim af eilífðinni þrátt fyrir
þá undarlegu þversögn að íslenskra
sumarið er bæði stutt og svipult. En
er það ekki einmitt skýringin á því
að við njótum þessara örfáu daga
hér á norðurhjaranum með þakklæti
og lotningu á svipaðan hátt og við
fögnum fullburða barni sem kórónu
sköpunarverksins?
Eftir að umheimurinn fór að opn-
ast okkur Íslendingum verða stöð-
ugt fleiri kvartsárir um veðráttuna
og þykjast hafa fæðst á skökkum
stað á jarðarkringlunni. Undir þann
grátkór tek ég ekki. Þótt ég fagni
hlýjum dögum leiðist mér stöðug
longmolla og hressilegir vindar
blása mér kappi í kinn. Fræðimenn
nútímans gefa víst lítið fyrir þá
kenningu Montesque greifa frá 18.
öld að norrænt loftslag efli og styrki
helstu dyggðir mannsins. Samt
finnst mér það varla vera tilviljun að
jöfnuður og almenn velferð er al-
mennt meiri hér norður frá en í suð-
rænum gósenlöndum. Og í stað þess
að kljást við barnadauða og amast
við offjölgun mannkyns getum við
haft í heiðri hið fallega orðtak að
blessun fylgi barni hverju.
Á sama hátt eigum við að hafa
hjartarými fyrir þá sem hingað
koma langt að til að hefja nýtt líf. Því
fylgir hlý gola úr suðri og austri og
það auðgar litróf okkar og menningu
sem hefur verið býsna einsleit á
stundum. Fátt finnst mér indælla en
að sjá og heyra þeldökk börn sem
tala lýtalausa íslensku og falla eðli-
lega að samfélaginu okkar. Þótt
maður eigi þar sjálfur engan hlut að
máli, þá gætir þakklætis yfir því að
hér sé hægt að bjóða þeim betri skil-
yrði til vaxtar og þroska en þar sem
rætur þeirra liggja.
Vitaskuld ættum við öll að eiga
sama rétt til lífsins gæða og ham-
ingju enda hvert og eitt af sömu rót.
Nú hafa vísindamenn jafnvel dustað
rykið af honum Adam gamla úr
Paradís og boða að við séum öll það-
an komin. Samkvæmt almennum
skilningi telst Ísland með eyðisanda
sína og skammdegismyrkur varla
spegilmynd þeirrar paradísar. Samt
stenst fátt samjöfnuð við landið okk-
ar á kyrru sumarkvöldi þegar iðja-
græn birkiangan fyllir vitin og öll
mannanna verk blikna fyrir ójarð-
neskri birtu. Þá er sem bjarmi fyrir
eilífðinni.
Gleðilega þjóðhátíð.
Himnasendingar
HUGSAÐ UPPHÁTT
Eftir Guðrúnu Egilson
Fréttir
í tölvupósti
Sumaropnun: Opið virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 11-15.
Frábært úrval af undirfötum
Aubade - Lejaby - Lepel - Pastunette
Playtex - Wonderbra
Síðumúla 3, sími 553 7355
Frábært úrval af sundfötum
Bikinísett - Tankinísett - Sundbolir
Verð frá 6.400-8.200.
Skálastærðir 32-38 A/B, C/D, DD/E, F/FF
Buxur - boxer st. 38-44
Linnetsstíg 2, Hafnarfirði, sími 551 0424
Seyma
Seyma
Sumarútsalan
hafin