Morgunblaðið - 17.06.2007, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 53
Sími 575 8500 - Fax 575 8505
Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík
Pálmi Almarsson og Sverrir Kristjánsson, lögg. fasteignasalar
VESTURGATA - AUKAÍBÚÐ
Fallegt og mikið endurnýjað 150,5
fm einbýlishús við Vesturgötuna í
Reykjavík. Húsið er kjallari, hæð og
ris og er stúdíóíbúð með sérinn-
gangi í kjallara. Aðalíbúðin skiptist í
rúmgott eldhús með nýlegri innrétt-
ingu, tvær parketlagðar stofur, þrjú
rúmgóð svefnherbergi og baðher-
bergi með baðkeri og glugga. Raf-
og vatnslagnir eru nýlegar. Þetta er
eitt af sætustu húsunum í bænum. Sérbílastæði. Verð 39,5 millj.
BIRKITEIGUR - MOSF.
160,90 fm efri sérhæð með glæsi-
legu útsýni í tvíbýlishúsi ásamt inn-
byggðum 46,80 fm bílskúr eða
samtals 207,70 fm. Íbúðin skiptist
m.a. í stofu, borðstofu, fjögur svefn-
herbergi, flísalagt baðherbergi, eld-
hús, þvottaherbergi o.fl. Úr stofu er
fallegt útsýni til norðurs, að Esjunni
og Helgafelli. Hæðin er öll parket-
lögð utan bað- og þvottaherbergis sem er flísalagt. Verð 49,0 millj.
LEIFSGATA
Falleg nýuppgerð 2ja herb. 55,1 fm.
íbúð á 1.h. við Leifsgötuna í Reykja-
vík. Íbúðin skiptist í parketlagt
svefnherb., bjarta parketlagða
stofu, eldhús með fallegri nýrri inn-
réttingu og tækjum og baðherbergi
með flísum á gólfi og veggjum
ásamt baðkari. Þetta er falleg eign
á vinsælum stað. V. 16,9 m.
KLEPPSVEGUR
Falleg 4ra herb. 106 fm. endaíbúð á
3.h. (efstu) í bakhúsi við Kleppsveg-
inn í Reykjavík. Íbúðin skiptist í 3
rúmgóð herbergi, eldhús með flís-
um á gólfi og fallegri innréttingu,
flísalagt baðherbergi með baðkeri
og glugga og rúmgóða parketlagða
stofu með útsýni. Í kjallara er sér-
geymsla ásamt sameiginlegu
þvottaherbergi. Verð 23,5 millj.
ÖGURHVARF - KÓPAVOGI
Vorum að fá til sölu eða leigu ca.
790 m² vel hannað atvinnuhúsnæði
í góðu verslunar- og þjónustuhverfi
(Bónus og Húsasmiðjan). Húsnæðið
er á tveimur hæðum og auðvelt er
að skipta því í smærri einingar.
Húsið verður tilbúið til afhendingar í
ágúst 2007 fullbúið að utan ein-
angrað og klætt með álklæðningu. Að innan skilast húsið með rafmagns-
töflu með vinnuljósalýsingu og hitalögn komin inn fyrir vegg. Lóðin er
4.697 m² og skilast malbikuð og tyrfð, á henni er annað sams konar hús
sem gæti selst með ef um semst. Teikningar á skrifstofu. Nánari uppl.
veitir Örn á skrifstofu Fasteignamiðlunar eða í síma 575 8509 og 696 7070.
ÞARFTU AÐ SELJA?
HÖFUM KAUPENDUR Á SKRÁ
Erum með kaupendur að einb-, par- eða raðhúsi í hlíða- og höfð-
ahverfi Mosfellsbæjar. Verð allt að kr. 45,0 millj.
Nánari uppl. gefur Þór.
Erum með fjársterkan kaupanda að einbýlishúsi, helst með aukaí-
búð. Verð 60-80 millj. Nánari uppl. gefur Sverrir.
Aðili sem ég er með og er að leita að stórri fasteign með einum
leigutaka sem þarf að vera nokkuð traustur t.d. ríki, borg eða
öflugt fyrirtæki Verð +500 millj. Nánari uppl. gefur Pálmi.
Aðili sem vantar 200 m² + í miðbænum, helst með byggingarrétti.
Nánari uppl. gefur Pálmi.
Ung kona á uppleið er að leita að 2ja til 3ja herbergja íbúð á Reykja-
víkursvæðinu. Verð allt að kr. 17,5 millj.
Nánari uppl. gefur Þór.
Erum að leita að einbýli-, rað- eða parhúsi á svæði 101, 105, 107
eða 200. Hámarksverð kr. 45,0 millj. Nánari uppl. gefur Þór.
Erum með kaupanda að sérhæð 125-150 fm á Seltjarnarnesi,
helst bílskúr en ekki skilyrði. Nánari uppl. gefur Brynjar.
ÞETTA ER SÝNISHORN ÚR KAUPENDASKRÁ OKKAR.
Bjarkarás 27A – Garðabæ - íbúð 0203
Opið hús í dag sunnudag frá kl. 16-17
Glæsileg ný útsýnisíbúð á efri hæð í nýju glæsilegu húsi ásamt stæði í bílskýli. Íbúðin er 150 fm ásamt
bílskýli. Glæsilegar innréttingar, granít borðplötur. Glæsilega flísalagt baðherbergi. Einstakt útsýni.
2 stór svefnherbergi. Svalir. Íbúðin er til afhendingar við kaupsamning fullfrágengin án gólfefna en flísar
eru þó á anddyri, baðherbergi og þvottahúsgólfi.
Opið hús verður í dag sunnudag frá kl. 16-17.
Kjartan tekur á móti áhugasömum.
Einnig er möguleiki að skoða hjá eiganda
glæsilega neðri hæð í húsi nr. 19 á sama stað
sem er til afhendingar á sambærilegan hátt.
Óskað er eftir tilboðum.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
SL. fimmtudag birtist í Morg-
unblaðinu tilvísun í yfirlýsingar
stjórna tveggja hagsmunaaðila í
sjávarútvegi, þ.e. sambandsstjórn-
ar Farmanna- og fiskimanna-
sambands Íslands (FFSÍ) og
stjórnar Landssambands smábáta-
eigenda (LS), þar sem lýst er efa-
semdum um mat Haf-
rannsóknastofnunar-
innar á ástandi þorsk-
stofnsins og tillögum
stofnunarinnar um
niðurskurð afla í 130
þúsund tonn á næsta
fiskveiðiári. Það er
bagalegt að slík nið-
urstaða skuli liggja
fyrir af hálfu LS eftir
fund fulltrúa Haf-
rannsóknastofnunar-
innar með stjórn
samtakanna í síðustu
viku. Því miður var ekki óskað eft-
ir fundi með stofnuninni áður en
sambandsstjórn FFSÍ fjallaði um
málið.
Í áliti FFSÍ koma fram áhyggj-
ur um framkvæmd veiðanna ef
farið yrði að tillögu um aflamark
þorsks og að heimildir til ýsuveiða
verði 95 þúsund tonn eins og
stofnunin hefur lagt til. Í sjálfu
sér er eðlilegt að skipstjórn-
armenn velti þessu fyrir sér og
mikilvægt að þeir komi að málum
þegar og ef tillögum Hafrann-
sóknastofnunarinnar verður hrint
í framkvæmd. Enginn ágreiningur
er um þetta atriði í sjálfu sér, þó
mögulegt sé að grípa þurfi til hlið-
arráðstafana til að ná markmiðum
um uppbyggingu þorskstofnsins.
LS telur að mikil fiskgengd og
góð aflabrögð undanfarin misseri
séu til marks um sterka stöðu
þorskstofnsins, en það sé í and-
stöðu við mat Hafrannsóknastofn-
unarinnar. Á fundi með stjórn LS
kom fram að enginn ágreiningur
er um það milli sérfræðinga stofn-
unarinnar og smábátasjómanna að
vel hefur fiskast víða um land
undanfarin ár. Það helgast af því
að hinir meðalstóru þorsk-
árgangar 1997-2000 hafa verið
uppistaða í aflanum eins og spár
Hafrannsóknastofnunarinnar
gerðu ráð fyrir. Annað sem fram
kom á fundi með LS var að sjó-
menn þar voru sammála um að
undanfarið hefði vantað stóra fisk-
inn í aflann, þann fisk sem rann-
sóknir hafa sýnt að sé langmik-
ilvægastur m.t.t. árangurs
hrygningar. Athuganir sýna að 10
ára og eldri fiskur er nú aðeins
um 5% af þyngd hrygningarstofns
þorsks, en var nálægt 20% fyrir
um 20 árum þegar nýliðun var
betri. Tillögur um
samdrátt veiða eru
ekki síst fram komnar
til að stuðla að því að
hlutfall stórfisks verði
hærra.
Af hálfu hvorra
tveggja samtakanna
rís hins vegar ágrein-
ingur þegar kemur að
stofnmælingu botn-
fiska, togararalli, sem
gegnir mikilvægu
hlutverki við ákvörð-
un árgangastærðar
fisks sem ekki er
kominn í veiðistofn og veiðar á
næstu árum munu byggjast á. Til-
lögur Hafrannsóknastofnunar-
innar byggja á því að uppvaxandi
árgangar séu lélegir eða afar lé-
legir samkvæmt þessum mæl-
ingum. Til að snúa þessari þróun
við og auka líkur á góðri nýliðun
þurfa annars vegar umhverfisskil-
yrði að vera hagstæð. Hins vegar
þarf að koma upp sterkari hrygn-
ingarstofni með meiri aldurs-
breidd. Því miður er það ekki á
valdi okkar mannanna að breyta
umhverfisskilyrðum okkur í hag,
en aldursbreiddina og stækkun
hrygningarstofns getum við haft
áhrif á með skynsamlegri veiði-
stjórnun. Í því sambandi skal
áréttað að hrygningarstofn með
góðri aldursbreidd er talinn betur
í stakk búinn að takast á við
breytileg umhverfisskilyrði.
Það er hvorki svo að félagar í
LS eða FFSÍ geti út frá eigin
reynslu af veiðum metið árganga-
stærðir uppvaxandi árganga, lyk-
ilþætti í spá um þróun þorstofns,
enda slíkur smáfiskur ekki undir
eðlilegum kringumstæðum í afla
þeirra. Stjórnir samtakanna kjósa
engu að síður að gagnrýna að-
ferðafræði togararalls sem oft hef-
ur verið útskýrð í ræðu og riti. Þó
sú aðferð sé ýmissi óvissu háð og
engan veginn gallalaus, þá hefur
það sýnt sig af 20 ára reynslu að
spá megi með miklu öryggi fjölda
fiska í árgangi á næsta ári ef fyrir
liggur mæling úr togararalli sama
ár. Jafnframt hefur það sýnt sig
að árgangastærð ákvörðuð í tog-
araralli er í góðu samræmi við
aldursgreindan afla þegar viðkom-
andi árgangur hefur skilað sér að
fullu í veiðinni. Þeir uppvaxandi
árgangar sem ákvarðaðir hafa ver-
ið nú með togararalli mælast lé-
legir eða frekar lélegir. Þeir eru
því án vafa mun minni en þeir
meðalsterku eldri árgangar sem
verið hafa að gefa góð aflabrögð
nú síðustu misserin. Það er því
ávísun á minnkandi stofn næstu
ár, ef ekkert verður að gert.
Mikilvægt er að gera sér grein
fyrir þeirri óvissu sem við er að
glíma við ákvörðun á stærð og af-
rakstri fiskistofna, enda hafa sér-
fræðingar Hafrannsóknastofn-
unarinnar lagt á þetta þunga
áherslu í greinargerðum sínum og
tillögum. Í því sambandi ber að
hafa í huga að ef spá Hafrann-
sóknastofnunarinnar er of bjart-
sýn, sem tilhneiging hefur verið til
á s.l. árum, þá er í raun hægt að
tala um nokkrar hrunlíkur í
þorskstofninum, ef ekki er farið að
tillögum stofnunarinnar. Ef staðan
er hins vegar betri en spáð er og
farið verður að tillögum, getum
við átt von á hægfara bata á allra
næstu árum og nokkrum líkum á
auknum afrakstri til langs tíma
litið.
Það er umhugsunarefni ef hags-
munaaðilar í sjávarútvegi taka
ekki ráðleggingar fiskifræðinga al-
varlega við þessar aðstæður, nú
þegar öll gögn benda til að horfur
í þorskveiðum séu slæmar og
muni verða svo ef ekki verður á
tekið. Á ögurstund er ekki skyn-
samlegt að taka slíka áhættu.
Áhætta á ögurstund
Jóhann Sigurjónsson um mat
Hafrannsóknastofnunarinnar á
ástandi þorskstofnsins
» Það er umhugsunar-efni ef hagsmuna-
aðilar í sjávarútvegi
taka ekki ráðleggingar
fiskifræðinga alvarlega
við þessar aðstæður...
Jóhann Sigurjónsson
Höfundur er forstjóri Hafrann-
sóknastofnunarinnar.