Morgunblaðið - 17.06.2007, Síða 70
70 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Kalvin & Hobbes
ERTU Á
LEIÐINNI Í
VINNUNA
PABBI
ÉG GERI ÞETTA BARA SVO
HANN LÆRI AÐ META
HELGARNAR
ÚFF!
GANGI ÞÉR VEL AÐ PÚLA.
ÉG OG MAMMA VERÐUM
HÉR OG EYÐUM
PENINGUNUM
MIKIÐ FINNST MÉR
GAMAN AÐ VERA Í
SUMARFRÍI. ÞÁ GETUR
MAÐUR GERT HVAÐ SEM
MAÐUR VILL
Kalvin & Hobbes
MIKIÐ
ER HEITT
JÁ! EN ÉG Á ERFIÐAST MEÐ
AÐ ÞOLA RAKANN
JÁ!ER ÞÉR ILLA
VIÐ RAKA?
ÞÁ ÆTTIR ÞÚ AÐ
STÖKKVA ÚT NÚNA!
Kalvin & Hobbes
HVAÐ ER
Í MATINN?
LAX! LAX!
OJ BARA!
ÞAÐ
VÆRI
SIGUR
EF ÞÚ
HELDUR SVONA
ÁFRAM ÞÁ
FESTIST ÞESSI
SVIPUR Á ÞÉR
Litli Svalur
© DUPUIS
dagbók|velvakandi
Íslendingar eiga vinninginn
Á DÖGUNUM voru tveir blaða-
menn frá stórblaði í Bandaríkjunum
hér í heimsókn. Þeim blöskraði svo
matarverðið á veitingastöðum hér að
þeir fengu sér snæðing fyrir rest á
Hamborgarabúllunni. En hvernig er
að reka ferðaþjónustu hér á landi við
þessi skilyrði? Á vef Seðlabankans
er yfirlit yfir eyðslu ferðamanna sem
koma hingað (fargjöld og uppihald).
Á síðasta ári var þessi upphæð rúm-
ir 46 milljarðar og hafði aukist um
10% á ári á síðastliðnum 10 árum. Ef
verðlagshækkanir á tímabilinu eru
teknar með í dæmið er raunvöxtur
teknanna rúm 7% á ári að meðaltali,
sem er ekkert til að hrópa húrra fyr-
ir. En Íslendingar geta flúið okrið. Á
síðasta ári samkvæmt upplýsingum
Seðlabankans eyddu þeir rúmum 72
milljörðum í utanlandsferðir eða um
26 milljörðum hærri upphæð en er-
lendir ferðalangar eyða hér.
Sigurður.
Tilmæli til Ríkissjónvarpsins
ÉG VIL beina þeim tilmælum til
Ríkissjónvarpsins að taka nú til sýn-
ingar fyrir okkur, sem heima sitjum,
eitthvað af þessum frábæru leik-
ritum sem hafa verið flutt í leikhús-
unum. Við eigum svo mikið af frá-
bærum leikurum og leikverkum sem
gaman væri að horfa á í stað þess að
sjá endalausar endurtekningar af
amerískum framhaldsþáttum. Það
eiga ekki allir heimangengt að fara í
leikhús og auk þess er gaman að sjá
svipbreytingar leikaranna í návígi.
Enn fremur vil ég benda Ríkis-
sjónvarpinu á að þegar við fáum
greiðsluseðil fyrir afnotagjaldinu,
sem við borgum alltaf fyrirfram, er-
um við alltaf titluð „Skuldari“. Við
skuldum ekki það sem við erum að
borga fyrirfram, við erum greið-
endur.
Guðrún Jacobsen.
Birta er týnd
BEAGLE-tíkin
Birta hvarf
laugardags-
kvöldið 9. júní á
Geldinganesi í
Grafarvogi.
Hún er með
brúna ól og er
vel merkt. Þeir
sem hafa orðið
vitni að ferðum hennar eru vinsam-
lega beðnir að hafa samband við
Siggu í síma 6997813. Hennar er
mjög sárt saknað.
Hjól í óskilum
BLEIKT lítið tvíhjól með hjálpar-
dekkjum var skilið eftir í Hvassaleiti
fyrir nokkrum dögum. Upplýsingar í
síma 568-7238.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
SUMIR nýta sér sumarið til að mennta sig. Þetta duglega námsfólk kíkti út
í sólina milli kennslustunda í Háskóla Íslands.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Mennt er máttur
FRÉTTIR
„HIMBAR eru
mikið á faralds-
fæti með naut-
gripahjarðir að
leita uppi vatn
og beitilönd og
vatnsbólin
munu auka lífs-
gæðin og gera
hirðingjunum
fært að hafa
lengur fasta
búsetu en nú
er,“ segir Stef-
án Jón Haf-
stein verk-
efnastjóri
Þróunarsam-
vinnustofnunar
Íslands. Stjórn
ÞSSÍ hefur
samþykkt að
ráðast í að bora
fyrir 33 nýjum
vatnsbólum í
heimkynnum Himba í norðvest-
urhluta Namibíu.
Stefán Jón segir að í héraðinu sé
byggð strjál og hún einkennist af
dreifðum þyrpingum húsa þar sem
sækja verði vatn um langan veg.
Ennfremur sé margs konar þjón-
usta af skornum skammti.
ÞSSÍ er í samvinnu við ráðuneyti
landbúnaðar- og vatnsmála í Nami-
bíu um þetta verkefni. Ráðuneytið
sér um að bjóða út verkið og gera
forkönnun. Það skilar fullbúnum
brunnum í hendur heimamanna,
sem tóku þátt í staðarvali. Stefán
Jón segir að heimamenn á hverjum
stað fái þjálfun í viðhaldi brunna og
tilsögn í því að reka fram-
kvæmdanefnd fyrir hvert vatnsból.
Vatnsbólin verða því í eign og
umsjá heimamanna í framtíðinni og
viðhald á þeirra ábyrgð.
Ætlunin er að verkefninu ljúki á
árinu 2010. Að sögn Stefáns Jóns
verður samtímis leitast við að efla
leikskólastarfið og bjóða upp á full-
orðinsfræðslu, en eftir því hefur
verið leitað.
Vatn Þessar Himbastúlkur njóta væntanlega góðs af
vatnsbólunum sem byggð verða fyrir íslenskt fé.
Vatnsból fyrir
hirðingja í Namibíu