Morgunblaðið - 17.06.2007, Síða 71

Morgunblaðið - 17.06.2007, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 71 Aðili að Gagnlegur fróðleikur og fleiri fyrirtæki, sjá: www.kontakt.is H a u ku r 2 6 7 4 Jens Ingólfsson rekstrarfræðingur, jens@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Ragnar Marteinsson fyrirtækjaráðgjafi, ragnar@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hdl. lögg. fasteignasali, sigurdur@kontakt.is Eva Gunnarsdóttir skrifstofustjóri, eva@kontakt.is Við erum ráðgjafar í fyrirtækjaviðskiptum og aðstoðum bæði seljendur og kaupendur meðalstórra fyrirtækja við alla þætti slíkra viðskipta: • Leit að heppilegum fyrirtækjum eða kaupendum • Verðmat fyrirtækja. • Viðræðu- og samningaferli. • Fjármögnun. • Gerð kaupsamninga og tengdra samninga. Við höfum engin fyrirtæki til sölu en við vitum af fjölda fyrirtækja sem geta verið fáanleg fyrir rétta kaupendur. Við vitum líka af mörgum aðilum sem eru að leita að góðum fyrirtækjum í flestum greinum atvinnurekstrar. Eftirfarandi fyrirtæki eru ekki til sölu, en við teljum þau fáanleg: Tengsl okkar við viðskiptavini eru trúnaðarmál. Upplýs- ingar um fyrirtæki eru ekki gefnar upp í síma. Vinsam- lega hringið og pantið tíma, síminn er 414 1200, en einnig er hægt að nota tölvupóst: jens@kontakt.is eða brynhildur@kontakt.is TENGING VIÐ TÆKIFÆRIN Suðurlandsbraut 4, 7. hæð. • Sími: 414 1200 www.kontakt.is • Netfang: kontakt@kontakt.is • Stór heildverslun með leikföng og gjafavörur. • Framkvæmdastjóri/meðeigandi óskast að góðu bílaþjónustufyritæki í miklum vexti. • Rótgróin húsgagnaverslun í góðum rekstri. EBITDA 30 m. kr. • Þekkt lítil bílaleiga. • Meðeigandi/framkvæmdastjóri óskast að jarðverktakafyrirtæki á Austurlandi. Mjög góð verkefnastaða. • Rótgróið bakarí í Reykjavík. Góð velta og EBITDA. • Deild úr heildverslun með gjafavörur. Ársvelta 60 m. kr. • Heildverslun með smávörur. Góð framlegð. EBITDA 20 m. kr. • Þekkt skyndibitakeðja. Ársvelta 130 m. kr. • Sérverslun með þekktar gjafavörur. Ársvelta 40 m. kr. • Vélsmiðja. Ársvelta 200 m. kr. • Lítil, þekkt barnaverslun með umboð fyrir umhverfisvænar vörur. • Rótgróið lítið byggingafyrirtæki með fasta viðskiptavini. Fjórir fastráðnir starfsmenn. Góð verkefnastaða. • Rótgróin húsgagna- og gjafavöruverslun. EBITDA 14 m. kr. • Stórir byggingaverktakar í einu Eystrasaltslandanna. Ársvelta 3.800 m. kr. • Innflutningsfyrirtæki með sumarvörur. Ársvelta 300 m. kr. • Deild úr heildverslun með þekktar garðvörur. • Lítil húsgagnaverslun í Kaupmannahöfn. • Lítið þjónustufyrirtæki á ferðamarkaði. • Heildverslun/sérverslun með fatnað. Ársvelta 100 m. kr. • Rótgróin umboðs- og heildverslun á Austurlandi. Ársvelta 100 m. kr. • Heildverslun með gjafavörur. Ársvelta 50 m. kr. • Þekkt sérverslun með herrafatnað. ÁSKRIFTASÍMI 569 1100 FRÉTTIR „STARFSEMI Mæðrahúsanna hef- ur reynst áhrifamikil leið til að vinna gegn mæðra- og ungbarna- dauða sem er hár í Níkaragva,“ segir Gerður Gestsdóttir ráðgjafi félagslegra verkefna Þróunarsam- vinnustofnunar í Níkaragva en á dögunum var fyrsta Mæðrahúsið, sem byggt er fyrir íslenskt fé, formlega tekið í notkun í bænum Camoapa. Fjögur önnur Mæðrahús sem byggð eru á vegum ÞSSÍ verða opnuð á næstunni og bætast í hóp þeirra 52 sem fyrir eru í land- inu. Gerður segir að fyrir ári hafi bæjaryfirvöld í Camoapa átt fund ásamt fulltrúum Rauða krossins og heilbrigðisráðuneytis um möguleika þess að setja á laggirnar Mæðra- hús í bænum. „Mæðrahúsin eru fyrir ófrískar konur í áhættumeð- göngu sem koma úr strjálbýli þannig að þær geti verið nálægt heilbrigðisþjónustu vikurnar fyrir og eftir fæðingu,“ segir Gerður. „Þörfin í Camoapa var augljós en það voru engir peningar til að gera neitt. Fulltrúi ráðuneytisins hét stuðningi og nokkrum mánuðum síðar var skrifað undir samning milli Íslands og ráðuneytisins um byggingu fimm Mæðrahúsa. Nú hefur það fyrsta verið formlega tekið í notkun.“ Frelsandi engill Efnt var til hátíðahalda í tilefni af formlegri opnun Mæðrahússins. „Í setningarræðunni lýsti Don Guatalupe formaður Rauða kross- ins í Camopapa og framkvæmda- stjóri Mæðrahússins fulltrúa ráðu- neytisins sem „frelsandi engli“ þegar hún kom „með peningana frá Íslandi“. En sannleikurinn er sá að líklega hefði lítið gerst ef hann hefði sjálfur ekki verið svona dug- legur að minna á Camoapa og ýta á eftir málinu. Viðtökur samfélagsins hafa líka verið framúrskarandi því þótt húsið hafi verið formlega opn- að núna hefur það tekið við konum frá því í desember. Á þessu ári hef- ur 41 kona fengið þar skjól og eng- in engin kona hefur látist í Cam- oapa í tengslum við meðgöngu eða fæðingu. Að sögn Gerðar hafa 43 konur í Níkaragva látist á þessu ári í tengslum við meðgöngu og fæðingu og um 90 börn orðið munaðarlaus af þeim sökum. Gerður telur líklegt að dauðsföllum sem þessum fjölgi á næstu mánuðum því rigningartím- inn sé hafinn með tilheyrandi erf- iðleikum í samgöngum og því verði erfiðara fyrir konur að fá aðstoð heilbrigðisstarfsfólks við fæðingu. „Af þessum ástæðum er svo mik- ilvægt að koma upp Mæðrahúsum sem víðast,“ segir Gerður. „Kon- urnar geta þá í rólegheitum flutt sig þangað undir lok meðgöngunn- ar og fengið þá þjónustu sem þær þurfa. Þar gegna eldhugar eins og Don Guatalupe miklu hlutverki við að greina þörfina í samfélagi sínu og gefast ekki upp fyrr en þeirri þörf er mætt. Við hér á skrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar Íslands erum stolt af því að hafa fengið að taka þátt í þessari uppbyggingu, en vinnan hjá þeim í Camoapa er rétt að byrja,“ segir Gerður Gestsdóttir. Fyrsta Mæðrahúsið tekið í notkun í Níkaragva Dans Skemmtiatriði voru flutt við opnun hússins, m.a. sýndir þjóðdansar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.