Morgunblaðið - 17.06.2007, Qupperneq 74
Til allrar hamingju er
tónlist Bjarkar lífræn.
Hún er í stöðugri þróun og
má flytja á ýmsa vegu … 76
»
reykjavíkreykjavík
E
itt það skemmtilegasta sem ég sá á
nýafstaðinni tónlistarhátíð,
Primavera Sound í Barcelona,
var íslenska hljómsveitin múm.
múm er ein af þeim sveitum sem
hafa skapað sér mikla sérstöðu meðal íslenskra
hljómsveita og spilar reyndar mun oftar á er-
lendri grund en á Íslandi. Í síðasta skiptið sem
ég náði að sjá múm á tónleikum tóku þau nokk-
ur lög í Laugardalshöll í upphafi ársins 2006 og
þar áður sá ég þau einmitt á tónleikum í útlönd-
um. Eftir vel heppnaða tónleika á myspace-
sviðinu snemma kvölds, þar sem múm flutti tvö
lög af óútkominni plötu, var greinilegur spenn-
ingur í fólki að fá að sjá heila tónleika með nýju
efni. Ég króaði Örvar Þóreyjarson Smárason af
og tók við hann örstutt spjall um nýju plötuna
og framhaldið.
Heillengi að vinna að plötu
Hvað eruð þið búin að vera lengi að vinna að
næstu plötu, þeirri sem kemur út í haust?
„Við erum búin að vera heillengi að vinna að
henni. Held að við höfum aldrei tekið okkur eins
mikinn tíma. Við byrjuðum eiginlega strax að
vinna að nýju plötunni eftir að Summer make
good kom út, en elsta lagið á henni er frá því áð-
ur en fyrsta platan okkar kom út.“
Hver er munurinn á síðustu plötu og svo
þeirri næstu?
„Þessi er bara miklu opnari. Við gáfum okkur
meiri tíma í þetta, vorum þolinmóðari og leyfð-
um okkur meira. Svo fórum við á marga mis-
munandi staði til að taka hana upp.“
Er ekki rétt munað hjá mér að síðasta plata
hafi öll verið tekin upp í vitum?
„Jú, við tókum mest upp í Garðskagavita. En
síðan förum við líka alltaf eitthvað upp í sum-
arbústaði og tökum upp þar og svoleiðis.“
Tekið upp í skólum
En það er semsagt ekkert svona þema á nýju
plötunni, eins og vitarnir síðast?
„Nei, nei, og það var heldur ekkert þema á
síðustu plötu þannig lagað, það hittist bara
þannig á. Það er bara gott að vinna þar sem ekki
er mikið af fólki. En núna gerist það á þessari
plötu að það er eiginlega svona skóla-þema á
henni. Við fórum í tvo skóla til þess að taka hana
upp. Við fengum lánaðan gamlan barnaskóla á
eyju í Finnlandi og tókum upp allar tromm-
urnar og sönginn þar. Síðan fengum við lánaðan
tónlistarskólann á Ísafirði, og þar tókum við eig-
inlega mest af plötunni upp. Þar fór platan eig-
inlega að verða að plötu.“
Heldurðu að það hafi áhrif á plötur hvar þær
eru teknar upp? Nú var verið að leika sér aðeins
með fugla- og sjávarhljóð á „vitaplötunni“. Er
þá leikgleði og prakkarastrik skólabarna komið
inn á nýju plötuna?
„Ef ég ætti að hugsa um þetta þá myndi ég
svara þér neitandi með það að þetta hefði ein-
hver áhrif. En einhvern veginn hefur þetta samt
haft áhrif. Nýja platan hljómar miklu meira eins
og krakkar í skóla að syngja, eða eitthvað þann-
ig.“
Þrjár söngkonur
Eru lögin á nýju plötunni þá hraðari en á
þeirri síðustu?
„Já, þau eru sum hraðari en önnur eru enn
hægari. Litrófið er bara orðið miklu meira en
áður. Bæði eru lögin samin yfir lengra tímabil
og einnig koma fleiri en áður að því að semja.“
KRAKKAR Í
SKÓLA AÐ SYNGJA
Ljósmynd/Ingvi M. Árnason
Fjölskipað Hljómsveitina múm er orðin sjö manna sveit eins og sjá mátti í Barcelona þar sem sveitin spilaði á tónlistarhátíðinni Primavera Sound á dögunum.
HLJÓMSVEITIN MÚM SPILAR SJALDAN HÉR Á LANDI, EN ER
ÞEIM MUN DUGLEGRI AÐ SPILA ERLENDIS. RAGNHEIÐUR
EIRÍKSDÓTTIR SÁ SVEITINA SPILA Á TÓNLISTARHÁTÍÐ Í
BARCELONA OG HITTI EINN SVEITARMANNA AÐ MÁLI.