Morgunblaðið - 17.06.2007, Síða 77

Morgunblaðið - 17.06.2007, Síða 77
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 77 www.uu.is Ferðaskrifstofa Leyfishafi Ferðamálastofu Innifalið: Flug, flugvallarskattar, íslensk fararstjórn og gisting. Verð miðast við að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald 2.500 kr. fyrir hvern farþega. LAS CAMELIAS BARBACAN SOL Verðdæmi: 48.253,- - á mann m.v. 2 með 2 börn í viku. Verð á mann m.v. 2 fullorðna 59.950. Brotttför 8. janúar. Verðdæmi: 59.900,- - á mann m.v. 2 með 2 börn í viku. Verð á mann m.v. 2 fullorðna 68.415. Brotttför 8. janúar. Á Kanaríeyjum er loftslagið sérlega þægilegt allt árið um kring og því er ekki nema skiljanlegt að sífellt fleiri Íslendingar streymi þangað ár eftir ár. Sólstrendur eyjanna, sem flestar eru hvítar, eru sívinsæll staður til að slaka á, landslag eyjanna er stórbrotið og menningin fjölbreytt og aldagömul. Á kvöldin kviknar næturlíf þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Kanaríeyjar eru ávísun á frábært sólarfrí. ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000 ~ FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS Einn vinsælasti gististaður íslenskra ferðalanga til margra ára. Íbúðagisting eins og hún gerist best á Kanaríeyjum með mjög góðri aðstöðu og þjónustu. Rúmgóðar og vel útbúnar íbúðir með ýmist einu eða tveimur svefnherbergjum. Þægilegt og mjög vel staðsett íbúðahótel á Ensku ströndinni. Íbúðirnar eru huggulegar og voru allar endurnýjaðar á síðasta ári. Garður með ágætri sólbaðsaðstöðu og sundlaug. Á hótelinu er gestamóttaka opin allan sólarhringinn. Í NÝJU sýningarrými á annarri hæð í Start Art listamannahúsi sýnir Helgi Þorgils Friðjónsson tíu málverk sem saman mynda rað- listaverkið Selur og sýna selsbúk með mannshöfuð sem liggur á steini og speglast í heild sinni í sjónum. Myndefnið vísar til norrænna og keltneskra þjóðsagna um seli sem geta haft hamskipti og tekið á sig líkamsform manna og á tímasetn- ingin vel við því að á Jónsmessu- nótt ganga þessir selir á land og eru sagðar fjölmargar þjóðsögur um seli sem festast í mannslíki þegar einhverjir óskammhleypnir finna feld þeirra og fela þá. Frásögnin er þá þegar til staðar í myndefninu sjálfu á meðan lista- maðurinn tekst á við þrautir mál- verksins, s.s. liti, form og rými. Helgi endurtekur samskonar myndefni tíu sinnum og teygir það umhverfis rýmið, lokar það af, líkt og tíðkast með raðlistaverk (serial art) og við þekkjum m.a. hjá lista- mönnum á borð við Andy Warhol og Ceciliu Edefalk. Hver mynd er máluð á tvo samsetta myndfleti sem hafa blæbrigðamun í bláu. Hluti af spegilmynd selsins snertir neðri myndflötinn en hittir þó sjaldnast á sama blett. Að því leyt- inu virkar þetta eins og áskorun sem listmálarinn hefur lagt fyrir sig, þ.e. að mála form, endurtaka það í spegilmynd og endurtaka síð- an hvort tveggja í tígang sem verður þó aldrei nákvæmlega eins sökum þess að aðferðin er ekki vélræn. Helgi er nefnilega lista- maður sem jafnan snýr baki við fullkomnun, eða sér sköpunina í ófullkomleikanum. Öll frávik eða lítilsháttar munur á hlutföllum á milli mynda verða þar af leiðandi áberandi og sjarmerandi þáttur í heildarmyndinni. Endurtekning selsins Morgunblaðið/Ásdís Selur Í norrænum og keltneskum þjóðsögum er getið um seli sem hafa hamskipti og taka á sig lík- amsform manna. MYNDLIST Selur Opið virka daga frá 10-17 og laugardaga frá 13-16. Sýningu lýkur 28. júní. Að- gangur ókeypis. Helgi Þorgils Friðjónsson Jón B. K. Ransu Jessica Alba, stjarnan úr The Fan- tastic Four; Rise of the Silver Sur- fer, segist ekki búast við ástarsam- bandi þó svo að hún hafi sofið hjá einhverjum. Hún er mikil áhuga- manneskja um kynlíf og skyndi- kynni. Í viðtali við America’s Cosmo- politian segir hún: „Ég vil bara kynnast því hvernig það er að vera með mismunandi fólki. Stúlka er ekki drusla þó svo hún njóti hold- legs samneytis.“ Og hún bætir við: „Ég er svona stúlka sem lít á rekkjunautinn á morgnana og hugsa: „Þarftu virkilega að vera hérna ennþá?“ Ég þarf ekki að kúra og knúsast; ég veit hvað er í gangi og ég reyni ekki að gera meira úr málum en efni standa til.“ Reuters Ekki drusla Jessica Alba hefur ánægju af því að prófa sem flest Jessica Alba vill einnar næt- ur gaman Samkvæmt læknisráði hefur rokk- arinn Courtney Love dregið úr nikó- tín-neyslu sinni – nú reykir hún að- eins 20 sígarettur á dag. „Þetta er sannkallað helvíti!“ skrifar stúlkan á vefsíðu sinni. „Nú reyki ég einn pakka á dag í stað tveggja, en það er algjör pína og í hvert skipti sem fíknin gerir vart við sig fer fram lítil orusta.“ Courtney ætlar að reyna að kom- ast niður í hálfan pakka á dag. Síðan hyggst hún smám saman hætta al- veg að reykja. Þá hefur söngkonan einnig verið í líkamsræktarátaki; hún borðar hollan mat og stundar yoga. Já, batnandi mönnum er best að lifa. REUTERS Heilsubolti Courtney Love hefur svo sannarlega breytt um líferni. Courtney Love í stríð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.