Morgunblaðið - 22.07.2007, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.07.2007, Blaðsíða 31
ferðafélag íslands MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2007 31 Sunnudaginn 8. júlí 2007 vígði Ferðafélag Akureyrar nýtt skálavarðarhús við Dreka- gil. Fjölmenni var við vígsluna og blíðskap- arveður á fjöllum. Aðstaða Ferðafélags Ak- ureyrar í Drekagili er nú öll til fyrirmyndar en félagið vígði sl. sumar nýjan skála á svæðinu. Hilmar Antonsson, formaður FA, sagði nokkur orð við vígsluna, Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands, flutti kveðju frá FÍ og Halldór Blöndal þakk- aði FA fyrir mikið og gott starf áður en hann klippti á borða og opnaði húsið með formlegum hætti. Nýja skálavarðarhúsið hefur fengið nafnið Fjólubúð. Skálavarðarhús við Drekagil Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á byggingu skálavarða- húss í Landmannalaugum. Húsið er 105 fm að stærð og mun hýsa skála- verði Ferðafélagsins og landvörð yf- ir sumartímann en standa ferða- mönnum opið yfir vetrartímann. Bygging hússins er liður í bættum aðbúnaði Ferðafélagsins í Land- mannalaugum. ,,Það eru tugir þúsunda ferða- manna sem heimsækja Land- mannalaugar á hverju sumri. Kröf- ur og þarfir ferðamanna hafa breyst mikið á undanförnum árum og nú vilja menn meiri þjónustu og gæði. Þessum óskum viljum við mæta og erum að auka þjónustuna í stærstu skálum félagsins,“ segir Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélags Ís- lands. Skálavarðahúsið verið tekið í notkun í byrjun júlí en vígt með pompi og prakt um miðjan júlí. Ólafur Örn segir að markmið FÍ sé meðal annars að stuðla að fræðslu og uppbyggingu á ferðamannasvæð- um. Þar fari saman bæði nátt- úruvernd og bætt aðstaða. ,,Það er óhjákvæmilegt að byggja upp að- stöðu í Landmannalaugum til að taka á móti slíkum mannfjölda og ágangi á svæðið jafnvel þó svo að það kalli á manngert umhverfi að hluta. Það er þó aðeins á takmörk- uðu svæði en umfram það fær nátt- úran að njóta sín eins óspillt og hægt er. Stikun gönguleiða og upp- lýsingagjöf er liður í okkar starfi.“ Skálar FÍ og deilda er 37 talsins um allt land. Margir þeirra voru byggðir á upphafsárum FÍ og því komnir til ára sinna. Mikið við- haldsstarf er unnið í skálum á hverju ári. Margir þekkja skálas- temmingu af eigin raun þar sem ferðamenn úr öllum áttum með ólík- an bakgrunn lifa saman og sofa í svefnpokaplássi í flatsængum. ,,Þetta eru sannkallaðir fjallaskálar hjá okkur. Þó svo að við séum að bæta aðstöðuna þá viljum við halda í skálastemminguna; þessa fjalla- rómantík eins og margir kalla hana þannig að við aðhyllumst ekki hót- elrekstur á hálendinu en viljum að byggingar og rekstur falli að land- inu með hógværum hætti,“ segir Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélags Íslands. Fjallarómantík í hávegum höfð Fagna Skálaverðir og starfsmenn fagna nýjum skála, þ.á. m. Guðmundur S. Guðmundsson, Örn Helgason og Gústaf Hermannsson hjá Viðarhúsi ehf. , Ólafur Örn Haraldsson og Örn Þórðarson. Bætt aðstaða og þjónusta í nýju skálavarðahúsi í Landmannalaugum Eftir Guðrúnu París Gunnarsdóttur g.gunnarsdottir@gmail.com Flestallir vita hvar Hvítá og Brúará liggja á landakortinu, en færri hafa þó siglt niður árnar og skoðað fagurt land- svæðið sem umlykur þær. Ferðafélag Ís- lands skipulagði í júlí rólega siglingu á gúmmíbátum niður neðsta hluta Brúarár og Hvítá að Öndverðarnesi. Ætlunin var að sigla rólega um 30 km leið og hafa við- komu í Sólheimum í Grímsnesi og enda loks ferðina með grillveislu í Þrastaskógi. Eftirvæntingin var mikil hjá ferðafólk- inu, hátt á fimmta tug manns á öllum aldri. Við upphaf ferðarinnar vorum við blessuð í bak og fyrir af Sigurði Sigurðarsyni Skál- holtsbiskupi, því þetta var hættuför þótt árnar virtust bæði lygnar og meinlausar. Árnar hafa bæði gefið og tekið svo lengi sem elstu menn muna. Þær hafa verið líf- æðar sveitanna en um leið hafa ófá manns- lífin glatast þar. Þennan sunnudag í júlí skein sólin skært og sveitakyrrðin var ynd- isleg, það eina sem angraði var mýið í logninu, annars vorum við klár í gúmmí- bátana. Tuðrurnar voru settar út neðan við brúna yfir Brúará og brátt færði straum- urinn okkur rólega niður ána. Á þessari leið eru hvorki fossar né flúðir en þess í stað skoðuðum við landið á siglingu um fal- leg og sögufræg héruð í miðju Árnesþingi. Þetta var óneitanlega skemmtileg tilbreyt- ing frá bílferð með tilheyrandi æsingi og hraða. Sjálfsagt hafa einhverjir bílstjórar horft til okkar öfundaraugum þar sem við sigldum áfram innan um álftamömmur með ungana sína og annað lífríki. Þegar líða tók á ferðina kom aftur í ljós hvað áin getur verið erfið, en fljótlega mætti okkur svo sterkur mótvindur að við komumst nær ekkert áfram. Við rerum af lífs og sálar kröftum og siluðumst loks inn að bænum Hömrum. Þar komum við að landi og gengum í rútuna sem flutti okkur að Sólheimum. Þar beið okkar heimalöguð súpa og við fengum afar hlýjar móttökur. Ferðalok með stæl Íslensk náttúra kallar á sveigjanleika og ferðaplön geta alltaf breyst snögglega eins og sannaðist í ferðinni. Eftir fjögurra tíma nokkuð ævintýralega siglingu höfð- um við komist hluta leiðarinnar sem til stóð að fara og menn höfðu reynt nokkuð á sig. Sjálfsagt verða hinir 22 farnir ein- hvern annan dag í meðvindi en þegar hér var komið sögu ákváðum við að enda ferð- ina með stæl – og þá auðvitað með grill- veislu í Þrastalundi. Sunnudagssigling Málshátturinn Árinni kennir illur ræðari. Allir blessaðir um borð Róleg og örugg sigling niður Brúará með blessun biskupsins í Skálholti í farteskinu. Sigling og landskoðun með Ferðafélagi Íslands Höfundur er viðskiptafræðingur Skálaverðir FÍ í Langadal, þau Broddi og Kristín, hafa átt annasama daga í sumar. Á milli þess að þjónusta svæðið, vísa ferða- mönnum leið, snyrta og þrífa hafa þau skipst á að bjarga jeppum og rútum af öllum stærð- um úr Krossá. Fyrir skömmu bjargaði Broddi manni úr Markárfljóti og sýndi þar mikið snarræði og á sama tíma dró Kristín rútu úr Krossá. ,,Þetta er voða gaman og í ýmsu að snú- ast,“ segir Kristín að loknum löngum degi. ,,Hér er oft ekki kvöldmatur fyrr en undir miðnætti en þetta er engu að síður mjög lif- andi og gefandi starf.“ Nú hafa þau hjúin fengið sér gæludýr í Mörkina og eru það tveir yrðlingar sem þau geyma í lokaðri kerru. ,,Þetta er mjög vinsælt og ferðamenn hafa gaman af þessu. Við ætlum síðar að sleppa þeim lausum hérna á svæðinu og þeir verða þá vonandi hálfgerðir heimalningar hérna. Síðan er bara næst að fá sér tvær hænur hingað í Langadal,“ sagði Broddi Hilmarsson, skálavörður FÍ í Langadal. Gæludýr Broddi og Krístin skálaverðir í Langadal eru komin með litla yrðlinga. Yrðlingar í Langadal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.