Morgunblaðið - 22.07.2007, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Kalvin & Hobbes
STANGAVEIÐI ER SVO
LEIÐINLEG ÍÞRÓTT
VIÐ ERUM BÚNIR AÐ
SITJA HÉR Í 20 MÍNUTUR OG
ÞAÐ HEFUR EKKERT GERST
Kalvin & Hobbes
FÆRÐU
ÞIG! ÞÚ ERT
Á MÍNUM
HELMING!
KOMDU
MEÐ TEPPIÐ!
KALVIN, FARÐU
AÐ SOFA!
ÞÚ
HEYRÐIR
HVAÐ HANN
SAGÐI.
FÆRÐU ÞIG!
ÞÚ
TÓKST
KODDANN
MINN.
ÞESSI ER
HARÐARI
EN MINN
Kalvin & Hobbes
EFTIR AÐEINS EINN SOPA
AF TÖFRADRYKKNUM ÞÁ
VERÐUR KALVIN
ÓSÉÐUR LÆÐIST
HANN Á BROTT KALVIN! ÞEGAR MAÐUR ÞARF ÁDRENGNUM AÐ HALDA ÞÁ ER
HANN HVERGI AÐ SJÁÓSÝNILEGUR
Litli Svalur
© DUPUIS
dagbók|velvakandi
Lengi má misskilja
MIG langar aðeins að svara henni
Ólafíu Ragnarsdóttur frá 16. júlí,
þar sem hún misskilur boðskap
minn.
Ég er ekki að meina að konur eigi
að gefa allt frá sér, menn, börn og
menntun, þó svo að ég segi að það sé
nú betra að vera hallur undir karl-
peninginn á sem flestum sviðum, að
þeirra mati. En sjáðu nú launabar-
áttuna hjá konum. Hún hefur skilað
litlum árangri, þannig að konur
verða að fara að breyta um aðferðir.
Þ.e.a.s. að vera í sambandi við rétta
fólkið, með réttu menntunina. Gam-
an verður að sjá hvað flokkunum
tveimur verður ágengt í þessum efn-
um.
Mér hefur aldrei líkað við rauðan
lit en alltaf bláan, en nú verður
breyting á.
Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir.
Illskiljanleg viðskipti
UM daginn fór ég með fartölvuna
mína til Opinna kerfa og bað þá að
stækka vinnsluminnið og „strauja“
síðan tölvuna alveg niður í grunn-
stillingar. Ég sæki tölvuna nokkrum
dögum seinna og kvitta þar fyrir
yfirhalningu á stýrikerfi og upp-
færslu „rekla“. Þegar heim er komið
og tölvan ræst kemur í ljós að hún
hefur bara alls ekki verið straujuð
og vinnsluminnið var það sama og
áður. Ég hringi þá í tölvusérfræðing
fjölskyldunnar og hann upplýsir mig
um að einu viðgerðirnar séu að nýj-
ustu uppfærslur stýrikerfisins hafi
verið sóttar á Netið. Þetta reyndist
vera þessi yfirhalning og uppfærsla
sem ég hélt (vegna lélegs tölvuorða-
forða) að væri það sem beðið var um.
Má ég nú biðja fólk að flýta sér
hægt í tölvumálum og athuga hvort
örugglega hafi verið gert það sem þú
baðst um en ekki eitthvað allt annað,
því þeir hjá Opnum kerfum rukkuðu
mig um 10.000 krónur fyrir heim-
sóknina.
Siggi.
Hvar er kristalssápan?
MÉR til mikilla vonbrigða hafa búð-
ir hér fyrir norðan hætt að selja
kristalssápu. Sápa sú er hnausþykk
og fékkst í hálfs lítra baukum.
Þessi sápa er allra meina bót; hún
nær lýsi úr barnafötum, er ómiss-
andi fyrir gólfrenninga og læknar
jafnvel skurði á fingrunum.
Kona.
Daníel er týndur
DANÍEL hvarf
frá heimili sínu í
Brattholti 6c í
Mosfellsbæ fyrir
rúmri viku. Ef
einhver hefur
orðið hans var er
sá hinn sami vin-
samlegast beðinn
að hafa samband í
síma 566-7323 ðea 690-9038.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
DRENGURINN lék sér á hjóli sínu á Ingólfstorgi. Hjólið skapaði skemmti-
lega andstæðu við gráma torgsins í rigningunni. Búist er við nokkuð þung-
búnum himni í vikunni, vætu öðru hverju en mildu veðri.
Morgunblaðið/Sverrir
Að leik í regni
FRÉTTIR
Í BYRJUN árs 2007 tók gildi nýr
samningur um samstarf Íslands,
Grænlands og Færeyja í ferðamál-
um. Meðal annars er hægt að sækja
um styrki til ýmissa verkefna og hef-
ur nú verið auglýst eftir styrkum-
sóknum í annað sinn á þessu ári.
Skilafrestur er til 20. ágúst næstkom-
andi.
Hið nýja samstarf nefnist North
Atlantic Tourist Association, skamm-
stafað NATA. Tók það við hlutverki
Vestnorræna ferðamálaráðsins, svo
og tvíhliða ferðamálasamningunum
SAMIK og FITUR, sem verið hafa í
gildi frá 1995 við Grænland og Fær-
eyjar.
Allir geta sótt um
Allir sem áhuga hafa á að efla sam-
starf í ferðamálum milli Grænlands,
Íslands og Færeyja geta sótt um
styrk til fjármögnunar verkefna, hug-
mynda, vöruþróunar, ferða eða ann-
arra sambærilegra verkefna. Um-
sóknirnar þurfa að lágmarki að fela í
sér þátttöku aðila frá a.m.k. tveimur
af löndunum þremur, þ.e. Grænlands,
Íslands og Færeyja. Hægt er að
sækja um styrk vegna heildarkostn-
aðar verkefna, einstakra verkþátta
eða ferðakostnaðar. Allar umsóknir
verða að berast á þar til gerðum
eyðublöðum og skal ítarleg verkefn-
islýsing og fjárhagsáætlun fylgja.
Umsóknir skulu fyllast út á dönsku
eða ensku og sendast til:
NATA
co/Ferðamálastofa
Lækjargata 3,
101 Reykjavík
Skilafrestur umsókna er til 20.
ágúst 2007.
Hægt að sækja um
norræna styrki
Samstarf við Grænland og Færeyjar
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050