Morgunblaðið - 22.07.2007, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 22.07.2007, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2007 45 Sigurður Reynir Pétursson hæstaréttarlögmaður er nú látinn eftir giftusamt og farsælt ævistarf. Auk þess að gegna eins og kunnugt er mikilvægum störfum fyrir STEF og FÍH þá var hann lögmaður Fé- lags íslenskra leikara um tveggja áratuga skeið. Á þeim tíma vann hann mjög náið með stjórn félags- ins, sem á þessum tíma var lengst af skipuð þeim Brynjólfi Jóhannes- syni, Klemenz Jónssyni og Bessa Bjarnasyni, auk mín. Á þessum tíma sem hann vann með okkur var allt samstarf við hann með mjög per- sónulegum hætti og gerðist hann fljótt félagi og vinur okkar allra. Þó einkennilegt megi virðast þá gerði hann allar þær fjölmörgu samninga- viðræður og þá fundi sem við áttum um samninga og önnur málefni fé- lagsins einkar skemmtilega og þægilega þannig að við hlökkuðum ævinlega til, þegar til stóð að funda með honum. Hann hafði mikla og skemmtilega en um leið persónu- lega kímnigáfu, sem kom öllum í Sigurður Reynir Pétursson ✝ Sigurður ReynirPétursson fædd- ist í Stykkishólmi 19. janúar 1921. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð 30. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru Jó- hanna Jensdóttir kennari og Pétur Óskar Lárusson verslunarmaður á Hellisandi. Útför Sigurðar Reynis var gerð frá Kópavogskirkju 9. júlí. gott skap, og tel ég að skapferli hans og hinn sérstæði sterki per- sónuleiki hans hafi skilað okkur mun meiri árangri en við höfðum raunar búist við er lagt var af stað í samningaviðræður. Oft var tekist hart á í málum á samninga- fundum og stundum lá við strandi, en fyrir hans tilverknað og hvernig honum tókst alltaf að vinna trúnað andmælenda okkar, fann hann leiðina sem leiddi til lausnar á málunum. Alltaf nær átakalaust og með bros á vör. Þetta var hæfileiki sem fáum er gefinn og tel ég að þeir listamenn, bæði innan raða Félags íslenskra leikara og annarra félaga listamanna sem hann bæði stýrði og vann með, hafi notið góðs af í ríkum mæli. Haft hef- ur verið á orði að kjör leikara hafi aldrei verið betri en á þessum árum. Í þessa tíð voru gerðar gagngerar endurbætur á öllum samningum Félags íslenskra leikara, bæði við Þjóðleikhúsið, en sá kjarasamning- ur var gerður við fjármálaráðu- neyti, svo og við Leikfélag Reykja- víkur, sem í byrjun starfsferils Sigurðar gerðist atvinnuleikhús. Einnig var samningum við Ríkisút- varpið umbylt og eftir að sjónvarpið tók til starfa voru auðvitað gerðir nýir samningar þar og einnig voru á þessum árum gerðir fyrstu samn- ingar við kvikmyndagerðarmenn. Af þessari upptalningu má sjá að mikið var um að vera og naut Sig- urðar við í öllum þessum samning- um svo og öðru er að félaginu laut. Einkum var mikilvæg þekking hans á höfundaréttarmálum og tel ég á engan hallað þó ég fullyrði að eng- inn hérlendur lögmaður hafi þekkt þessi mál jafn vel í grunninn og Sig- urður, enda naut hann mikillar virð- ingar þar sem um þessi mál var fjallað, bæði hjá stjórnvöldum og öðrum, og náði orðstír hans hvað þetta varðar langt út fyrir land- steinana. Ég átti þessi kost að sitja í svo- nefndri Nordsat-nefnd með Sigurði ásamt fleirum, en sú nefnd fjallaði um þá hugmynd að koma upp gervi- hnetti er dreifði sjónvarpsefni um Norðurlöndin. Þetta var heilmikið mál, einkum hvað varðaði höfunda- rétt, og voru haldnir margir fundir í hinum ýmsu höfuðborgum Norður- landa. Á ég margar mjög skemmti- legar minningar frá þessum funda- ferðum þar sem við Sigurður styrktum vináttu okkar, en einkum minnist ég þó þess hversu mikil virðing var borin fyrir skoðunum Sigurðar á fundum þessum. Ekkert varð þó af því að úr Nordsat yrði, sem rekja má til mikilla framfara á þessu tæknisviði. Nokkur voru þau skipti sem Sig- urður og kona hans Birna buðu okk- ur að sækja sig heim á glæsilegt heimili þeirra á Kársnesinu og var hver stund ógleymanleg og þeirra minnst vel og lengi. Það er ljómi yfir minningunni um Sigurð Reyni, yfir persónu hans og ævistarfi og mun Félag íslenskra leikara lengi búa að því sem hann hefur gert fyrir félagið. Hann var sæmdur gullmerki félagsins í þakk- lætiskyni fyrir störf hans. Ég vil færa Birnu konu hans og fjölskyldu allri innilegar samúðar- kveðjur fyrir hönd Félags íslenskra leikara. Gísli Alfreðsson, fyrrv. formaður FÍL Meira: mbl.is/minningar Vinur minn Eyjólf- ur R. Eyjólfsson er fallinn frá og tíma- bært að kveðjast. Al- þýðuhöfðingi hefur lagst til hvíld- ar eftir langa og farsæla ævi. Síðasta sumar hittumst við á Kaupfélagsstéttinni hér á Hvammstanga, breiddum út faðm- inn hvort móti öðru og heilsuð- umst með hlýju faðmlagi. Hann stóð þarna brosandi, og hnyttin tilsvörin flæddu áreynslulaust eins og ævinlega. Hann var gler- fínn að vanda en greinilegt að ár- um hafði fjölgað síðan síðast. And- inn var þó hinn sami, áhuginn á þjóðmálunum til staðar og eins hvernig vinum vegnaði. Við fórum á bryggjuna og hittum Sævar minn og við hjónin sýndum honum bátinn okkar sem vaggaði í vor- blíðunni. Svo var haldið heim á Brekkugötuna, hitaður sopi og spjallað um stund. Hann var á leið út á Vatnsnes, vildi nota tímann vel og þurfti að hitta marga. Nota- legur morgunn með góðum vini er dýrmætur. Eyjólfur bjó við þann harða hús- bónda Bakkus um árabil. En kóngi þessum var sagt stríð á hendur á fyrstu árum áfengismeðferðar á Íslandi. Stríðsyfirlýsingin var svo afgerandi að gengið var af fullum krafti til liðs við SÁÁ og fórnar- lömb fíknarinnar studd af óbilandi elju meðan kraftar entust. Alltaf var hægt að leita til Eyjólfs og biðja um aðstoð, hvort sem var á nóttu eða degi. Hann útvegaði pláss á Vogi, keyrði fórnarlömbin Eyjólfur Ragnar Eyjólfsson ✝ Eyjólfur RagnarEyjólfsson fæddist í Hafn- arfirði 31. mars 1921. Hann lést á Hrafnistu í Reykja- vík 9. maí síðastlið- inn og var jarðsung- inn frá Bústaðakirkju 18. maí. á staðinn, þurrkaði tár og las viðkomandi pistilinn til uppörv- unar eða aðhalds ef þess þurfti. Og Sína stóð með honum í þessu öllu. Það veit örugglega enginn hve mörgum manns- lífum hann hefur bjargað með sínu ötula starfi. Hann kom til hjálpar á Brekkugötuna fyrir 19 árum, var fljótur að afgreiða málin eft- ir að hafa gengið úr skugga um að einlægur vilji lægi að baki beiðn- inni. Ekkert hik og engar mála- lengingar en plássið fengið með einu símtali. Ég vil þakka Eyjólfi sérstaklega fyrir þennan morgun fyrir 19 árum og fyrir alla sam- veruna gegnum tíðina, í saltfisk- inum hjá Meleyri, við meðhjálp- arastörf í Hvammstangakirkju og notalegar stundir í dagsins önn. Ég kveð þig kæri vinur með virðingu og þökk og Guð blessi þig. Fjölskyldunni sendi ég hlýjar sam- úðarkveðjur. Hólmfríður Bjarnadóttir. Vönduð og persónuleg þjónusta Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj., s. 691 0919 ✝ Innilegar þakkir fyrir alla þá hluttekningu og samúð, sem við urðum aðnjótandi við andlát og útför, HRAFNKELS THORLACIUS arkitekts. Sérstaklega viljum við þakka Heimahlynningunni fyrir hjúkrun og hlýju. Kristín Bjarnadóttir, Áslaug Thorlacius, Halla Thorlacius, Sveinbjörn Þórkelsson Ragnhildur Thorlacius, Björn Ægir Hjörleifsson Steinunn Thorlacius, Guðjón Ingi Eggertsson, Gunnlaug Thorlacius, Sigurjón Halldórsson, Eggert Thorlacius, Stefanía Guðmundsdóttir, Hrafnkell, Anna, Kristín Lilja, Þórunn Edda, Vilhjálmur Atli og Halldór Hrafnkell. ✝ Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, sonar, bróður, mágs, barnabarns og tengda- sonar, MARKÚSAR SÆVARS GÍSLASONAR, Háholti 5, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir fá Sigrún Reykdal læknir, starfs- fólk á deild 11G á Landspítala við Hringbraut og á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fyrir frábæra umönnun í veikindum hans. Svava Óskarsdóttir, Óskar Bjarmi Markússon, Gísli Sigurjónsson, Jóhanna H. Bjarnadóttir, Sæmundur H. Gíslason, Anna Lilja Sigurðardóttir, Sigurjón Már Birgisson, Lilja Hjaltadóttir, Hörður Albert Harðarson, Kristín Kristjánsdóttir, Sigurjón K. Nielsen, Elín Sæmundsdóttir, Óskar Jóhannesson, Sigrún Ingólfsdóttir og fjölskyldur. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, JÓN SVEINSSON rafmagnstæknifræðingur frá Stöðvarfirði, Arahólum 2, Reykjavík, sem lést, fimmtudaginn 12. júlí, á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, mánudaginn 23. júlí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Samtök sykursjúkra eða Félag nýrnasjúkra. Helga Haraldsdóttir, Sveinn Vilberg Jónsson, Guðný Lilja Guðmundsdóttir, Haraldur Þór Jónsson, Helga Jóhanna Úlfarsdóttir, Jóhann Helgi Sveinsson, Helga María Sveinsdóttir, Sunneva Björg Davíðsdóttir, Jón Ágúst Haraldsson. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, INGIMUNDAR EINARSSONAR, áður bónda í Leyni, Laugardal, Fossvegi 4, Selfossi. Sérstakar þakkir til starfsmanna á Heilbrigðisstofnun Suðurlands sem veittu ómælda alúð og hlýju. Lilja Guðmundsdóttir, Guðrún Ingimundardóttir, Þórir Snorrason, Svanheiður Ingimundardóttir, Magnús Guðjónsson, Guðmundur Óli Ingimundarson, Roswitha M. Hammermuller, Fjóla Ingimundardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við fráfall okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa og langafa, BJÖRNS ÁRNASONAR skógarbónda og fyrrverandi bæjarverkfræðings í Hafnarfirði. Kristín Björnsdóttir, Friðrik Már Baldursson, Árni Björn Björnsson, Halldóra Kristín Bragadóttir, Sigríður Björnsdóttir, Valur Ragnarsson, Björn Ágúst Björnsson, Kristín Lúðvíksdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Sendum innilegar þakkir fyrir hlýhug og vinsemd við andlát og útför, BJÖRNS SIGURÐSSONAR frá Lækjarnesi, Hornafirði, síðast til heimilis á Grettisgötu 4 í Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði, Höfn, fyrir góða umönnun og vingjarnlegt viðmót. Karl Sigurðsson og aðrir aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.