Morgunblaðið - 22.07.2007, Side 60
60 SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á WWW.SAMBIO.IS
THE TRANSFORMERS FORSÝND kl. 11 POWERSÝNING B.i.10.ára DIGITAL
THE TRANSFORMERS FORSÝND kl. 11 POWERSÝNING LÚXUS VIP
HARRY POTTER 5 kl. 1 - 2 - 4 - 5 - 7 - 8 - 10 B.i.10.ára
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 B.i.10.ára DIGITAL
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 LÚXUS VIP
EVAN ALMIGHTY kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
BLIND DATING kl. 8 B.i.10.ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
SHREK 3 m/ensku tali kl. 8 - 10:10 LEYFÐ
OCEAN'S 13 kl.10:10 B.i.7.ára
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 4 B.i.10.ára
/ ÁLFABAKKA
HARRY POTTER 5 kl. 1 - 3 - 4 - 6 - 7 - 9 - 10 B.i. 10 ára DIGITAL
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
SHREK 3 m/ensku tali kl. 6 LEYFÐ
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 8 B.i. 10 ára
"LÍFLEG SUMAR-
SKEMMTUN"
eee
L.I.B. TOPP5.IS
eee
S.V. MBL.
SÝND MEÐ ÍSL
ENSKU
OG ENSKU TAL
I
HLJÓÐ OG MYND VIPSALURINNER BARA LÚXUSER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
eeee
FGG - Fréttablaðið
eeee
ÓHT - Rás2
eeee
Morgunblaðið
eeee
RUV
eeee
DV
eeee
Tommi - Kvikmyndir.is
É
g frétti fyrst af skosku
sveitinni Runrig í
gegnum óslökkvandi
áhuga minn á sam-
löndum þeirra Big Co-
untry. Ég hafði fengið ábendingu um
að gítarhljómurinn þeirra væri ekki
ósvipaður og ég varð mér því óðar úti
um tvær plötur, Recovery (1981) og
Heartland (1985). Seinna komst ég að
því að Recovery er jafnan talin með
höfuðverkum sveitarinnar því að þeg-
ar ég keypti þær renndi ég staurblint
í sjóinn; fór bara eftir ártölunum sem
voru nálægt mektarárum Big Co-
untry.
Þessi kaup voru gerð skömmu eftir
1990 og fengu plöturnar að rúlla
nokkra hringi án þess að vekja neina
verulega eftirtekt. Það var svo fyrir
nokkrum árum síðan að áhugi minn
fyrir sveitinni fór ört að vaxa, sam-
fara auknum áhuga á allra handa
keltarokki eins og það er kallað. Í því
sambandi þótti mér sérstaklega
spennandi að rannsaka fyrstu verk
Runrig, en þau eru eingöngu sungin á
gelísku, líkt og með fyrstu plötur
hinnar írsku Clannad. Runrig koma
enda frá Hebrideseyjum sem liggja
utan við vesturströnd Skotlands, en
þar lifir skoska gelískan góðu lífi (um
100.000 manns hafa einhverja þekk-
ingu á málinu í dag). Fyrsta platan,
Play Gaelic (1978), leiddi mig síðan
áfram og ég ákvað bara að kanna fer-
ilinn til hlítar úr því að ég væri að
þessu, þó að vafasöm spor hafi verið
tekin þar reglulega eins og gengur.
Þau breyta því þó ekki að Runrig nýt-
ur í dag mikillar virðingar – og gletti-
lega mikilla vinsælda – og það eftir 34
ára langan feril. Með árunum hefur
hún orðið að eins konar táknmynd
fyrir hina algeru SKOSKU sveit, og
tónleikar hennar eru fyrir mörgum
einskonar baráttusamkomur eða
þjóðernisveislur (Einn af fyrrverandi
meðlimum sveitarinnar, hljómborðs-
leikarinnar Peter Wishart, situr á
þingi fyrir skoska þjóðernisflokkinn
en fyrsti söngvari sveitarinnar, Don-
nie Munro, bauð sig og fram til þings
og gegndi stöðu rektors við Ed-
inborgarháskóla um hríð).
Vinsældir og ekki
Það er melankólísk undiralda í lög-
um fyrstu platnanna sem minnir
nokkuð á blæbrigði færeyskrar tón-
listar en samgangur á milli strand-
svæða Skotlands og Færeyja hefur
verið allnokkur í gegnum aldirnar.
Gott dæmi um þau tengsl er hin út-
dauða tunga Norn, sem notuð var á
Hjaltlands- og Orkneyjum og í Kata-
nesi í norðausturhluta Skotlands allt
fram á 19. öld en málið var náskylt
færeyskunni.
Þannig er Play Gaelic (’78) eig-
inlega hrein þjóðlagaplata. En ári síð-
ar, á plötunni The Highland Connec-
tion, voru rafgítararar farnir að
gægjast inn í meiri mæli. Það var svo
á áðurnefndri Recovery (’81) sem allt
small saman; falleg, angurvær og
þjóðlagaskotin lög sem fjalla um
ástand og möguleg afdrif keltneska
samfélagsins í Skotlandi.
Á Heartland (’85) sneri sveitin svo
vopnum sínum í átt að meg-
instraumsrokki; og lögin því grípandi
popprokkarar, fægðir vel og rækilega
með eitís-bóni. Heartland er giska vel
heppnuð plata og efldist Runrig enn
frekar með næstu plötu, Cutter and
the Clan (’87), sem var gefin út af
stóru merki, Chrysalis. Searchlight
(’89) og The Big Wheel (’91) fylgdu í
kjölfarið og þótti mörgum sem sveitin
væri þar farin að fjarlægast ræturnar
æði mikið. Sveitin toppaði þó vinsæld-
arlega um þetta leyti, og lagið „He-
arthammer“ af The Big Wheel náði
inn á vinsældalista.
Tími Runrig sem markaðssveitar
dó þó út með þeim smelli. Amazing
Things (’93) og Mara (’95) eru sterk-
ari plötur tónlistarlega en þær tvær
sem á undan komu en efnilegir út-
varpssmellir voru engir, og fór það
sveitinni einhvern veginn betur.
Runrig gekk nú í gegnum end-
Hálanda-
höfðingjarnir
Merkilegir Skoska hljómsveitin Runrig í allri sinni dýrð.
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
»Með árunum hefur
hún orðið að eins
konar táknmynd fyrir
hina algeru SKOSKU
sveit, og tónleikar henn-
ar eru [...] einskonar
baráttusamkomur eða
þjóðernisveislur.