Morgunblaðið - 30.09.2007, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 266. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
SUNNUDAGUR
JAKOB-
ÍNARÍNA
ÞÝÐIR EKKERT AÐ
STANDA Í HÁLFKÁKI
TÍÐINDI AF REISU >> 36
Æ FLEIRI
LÆKNAST
ÁRVEKNISÁTAK UM
BRJÓSTAKRABBA
LÍFSBJÖRGIN >> 34
MIKIL vakning hefur orðið í meðferðarstarfi á
Litla-Hrauni. Um 20 fangar mæta á fundi hjá AA-
samtökunum fjórum sinnum í viku, sem er um
fjórðungur allra fanga í fangelsinu. „Það er heims-
met,“ fullyrti einn af þeim sem skipuleggja fundina.
Fangarnir höfðu frumkvæði að því að leita til AA-
samtakanna um að hefja meðferðarvinnu í fangels-
inu í október fyrir tæpu ári. Sérdeildin Brúin var
stofnuð með formlegum hætti 6. júní sl., á afmæl-
isdegi Bubba Morthens. Sérvalinn lokaður hópur
hefur stýrt markvissu starfi af hálfu SÁÁ.
„Það koma gestir á fundina hjá okkur, sem hafa
verið í sömu sporum og við, en náð að rífa sig upp,
og það er mjög hvetjandi,“ segir Magnús Einars-
son, stjórnarmaður Afstöðu, félags fanga. „Menn
sjá að það er til annað líf en fangelsi – að koma það-
an og fara inn aftur.“
„Þetta er eitt helsta betrunarúrræðið,“ segir
Rúnar Ben Maitsland, einnig stjórnarmaður. „Okk-
ur hefur verið veitt svigrúm og við höfum fengið að
fara í bæinn á fundi, þannig að menn sjá meira en
bara betrun í þessu. Og það er allt í lagi ef þetta
byrjar stundum á fölskum forsendum, því svo síast
þetta inn. Menn taka sporin og sjá að það virkar.“
Þeir sem hafa verið lengi í meðferðarstarfi segja
að breytingin á Litla-Hrauni sé gríðarleg og vita
varla hvaðan á þá stendur veðrið. Undir það tekur
Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnun-
ar: „Þetta er okkur að kostnaðarlausu; við greiðum
ekki einu sinni bensínkostnað – ég hef bara haft
samviskubit yfir þessu!“
Það er til annað líf en fangelsi
Fjórðungur fanga á Litla-Hrauni sækir meðferðarfundi fjórum sinnum í viku og hefur starfið ekki
verið svona öflugt í manna minnum Stofnuð hefur verið sérdeildin Brúin innan AA-samtakanna
Betrun eða geymslustaður? | 10
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Sífellt aukin orkuþörf vegna hnatt-
rænnar hlýnunar hefur kallað fram
grundvallarbreytingu á afstöðu
ráðamanna víða um heim til kjarn-
orku.
Aukið fylgi við
nýtingu kjarnorku
Eiginkona hins nýbakaða knatt-
spyrnustjóra Chelsea, Avrams
Grants, varð fræg í sjónvarpi í
heimalandi sínu, Ísrael, fyrir furðu-
leg uppátæki, t.d. súkkulaðibað.
Með ólíkindum
uppátækjasöm
Spakmælin í bókum Antoines de
Saint-Exupérys og Gullkista bóka-
ormsins eru ómissandi öllum sönn-
um bókaunnendum, sannkallaðir
hvalrekar.
Litli prinsinn og
gull bókaormsins
Eftir Freystein Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
HANN situr við hljóðnemann í
Kántrýbæ á Skagaströnd og útvarp-
ar sínum hjartans vinum; sveita-
söngvurum heimsins. Þótt Hallbjörn
Hjartarson sé sjálfur hættur að
syngja kántrí upphátt raular hann
lögin í huganum og stundum skjóta
upp kollinum minningar frá því
hann stóð sjálfur á sviðinu.
Í viðtali við Morgunblaðið lítur
Hallbjörn yfir farinn veg. Þessi lista-
maður með barnshjartað, sem af-
neitaði Guði sínum um tíma, en tók
hann svo aftur í sátt, talar nú við
hann á hverjum degi. Hallbjörn er
ekki einasta kúreki norðursins,
heldur var hann kaupmaður líka,
bíóstjóri og leikari svo fátt eitt sé
nefnt. Í viðtalinu rifjar hann upp
skin og skúrir: „Ég hef bæði staðið á
toppinum og niðri í dýpsta dalnum.“
Hann hefur oft bognað en aldrei
brotnað og ber kórónu íslenzka
kántríkóngsins með sóma.
Hann hefur samið um 130 lög og
fjöldann allan af textum og hljóm-
plöturnar eru orðnar 11.
Hann hefur komið Skagaströnd á
kortið sem Mekka kántrísins á Ís-
landi. Hann hefur aldrei verið óum-
deildur, heldur farið með orði og
æði fyrir brjóstið á mörgum, sem
hafa barizt til þess að hægja á hon-
um. Sjálfur segist hann alltaf hafa
haft sína vitleysu á þurru.
Í Útvarpi Kántrýbæ, sem heyra
má frá Holtavörðuheiði langleiðina
til Akureyrar, lætur Hallbjörn lögin
rúlla eins og honum einum er lagið
og kynningar hans og auglýsing-
arnar halda hlustandanum við efnið.
„Þú ert að hlusta á menningarauk-
ann við húnvetnska strönd.“ | 26
Hallbjörn Hjartarson er enn að útbreiða fagnaðarerindi kántrítónlistarinnar
Ljósmynd/Ólafur Bernódusson
Enn að Þótt Hallbjörn hafi hægt á sér í dagsins önn skýzt hann oft yfir göt-
una milli Brimness og Kántrýbæjar.
Oft bognað
en óbrotinn
Ekki aðeins kántríkóngur heldur líka
kaupmaður og bíóstjóri og leikari
VIKUSPEGILL
Þrír milljarðar í heildaruppbyggingu
fangelsa
VEFVARP mbl.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
9
7
7
4
af sérmerk
tum umbú
›um
Förum í ferðalag saman >> 76
Leikhúsin í landinu