Morgunblaðið - 30.09.2007, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2007 47
STÖÐULSHOLT - 310 BORGARNES
Glæsilegt einbýlishús í byggingu við Stöðulsholt 7 og 9. Húsin skiptast í anddyri, stofu
og eldhús í alrými, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr með geymslu
inn af. Húsin eru 138,7 fm að stærð og bílskúrinn 31,3 fm. Afhending samkvæmt
samkomulagi. Skilalýsing og teikningar inn á domus.is. VERÐ 28,8 MILLJ.
Elín Davíðsdóttir
Sölufulltrúi
elin@domus.is
s. 664 6026
RAUÐILÆKUR - 105 REYKJAVÍK
Halldór Jensson
Viðskiptastjóri
halldor@domus.is
s. 840 2100/440 6014
Mjög góð, mikið endurnýjuð 5-6 herbergja 123,8 fm íbúð á 3ju hæð (efstu) í fallegu
húsi. Íbúðin skiptist í fjögur góð svefnherbergi, stofu með útgengi á suðursvalir,
borðstofu, eldhús með nýlegri eikarinnréttingu, baðherbergi með stórum sturtuklefa
og þvottahús/geymslu auk sameiginlegrar útigeymslu.
LAUFRIMI - 112 REYKJAVÍK
Mjög snyrtileg og mjög vel staðsett 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli við
Laufrima í Grafarvogi. Leikskóli, grunnskóli og öll almenn þjónusta m.a Spöngin er í
göngufæri. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, gang, eldhús, baðherbergi,
stofu/borðstofu og þvottahús sem er í íbúð, geymsluloft er yfir allri íbúðinni. Falleg og
snyrtileg eign.
Laus við kaupsamning
VERÐ 24,7 MILLJ. VERÐ 34,9 MILLJ.
ÁLFTAHÓLAR 4 - 111 REYKJAVÍK
Glæsileg 2ja herbergja 63,4 fm í búð á 2. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin skiptist í eldhús
með ljósri innréttingu, stofu með útgengi á suðursvalir, rúmgott herbergi og
baðherbergi sem er flísalagt. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð. Hús og sameign
nýlega viðgert.
Halldór Jensson
Viðskiptastjóri
halldor@domus.is
s. 840 2100/440 6014
Björgvin Víðir Guðmundsson
Viðskiptastjóri
vidir@domus.is
s. 664 6024/440 6024
Domus er nútímaleg fasteignasala sem ber umhyggju
fyrir þér. Hafðu samband við okkur í síma 440 6000
og fáðu nánari upplýsingar.
Við verðmetum eignina þína, þér að kostnaðarlausu.
RÁNARGATA - 101 REYKJAVÍK
Mjög sjarmerandi og vel skipulögð 5-7 herbergja, 161,2fm íbúð með miklum karakter.
Íbúðin var öll tekinn í gegn fyrir nokkrum árum og er mjög vel hönnuð. Eign sem vert
er að skoða, sjón er sögu ríkari. Einstök eign á frábærum stað í miðbænum.
Bókaðu skoðun
VERÐ 50 MILLJ.
Ágúst R. Pétursson
Sölufulltrúi
agust@domus.is
s. 664 6025/440 6025
www.valholl.is
www.nybyggingar.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
GLÆSILEGT HÚS
Í GRÍMSNESI
Höfum til sölu mjög fallegt 125 fm
hús ásamt 25 fm aukahúsi/bílskúr
við Freyjustíg 12 í landi Ásgarðs,
ásamt tveimur samliggjandi lóð-
um við Freyjustíg 8 og 10. Lóðirn-
ar eru hver um sig ca 8.000 fm.
Selst allt saman eða hvort í sínu
lagi. Húsið er á steyptum sökkli
með steyptri gólfplötu og gólfhita. Það er klætt með borðagklæðn-
ingu og flísum. Ál-tré gluggar og hurðir. (Viðhaldslítið hús). Húsið er
nú þegar tilbúið til innréttinga. Arkitektastofan TEKTON teiknaði hús-
ið og við hönnun þess var tekið mið af að náttúran nyti sín sem best
með stórum útsýnisgluggum. Skipulag húsins er þannig að í hvorri
álmu eru tvö svefnherbergi og baðherbergi. Í miðálmu eru svo eldhús,
borðstofa og gengið er niður tvö þrep í stofu. Þetta er glæsilegt hús á
góðum útsýnisstað, aðeins 50 mín. keyrsla frá Reykjavík. Stutt í
sundlaugar, á golfvelli og í aðra þjónustu. Eign sem vert er að skoða.
Húsið verður til sýnis í dag, sunnudag, á milli kl. 15 og 17.
Allar nánari upplýsingar veitir Heiðar í síma 693-3356.
Sími 588 4477
Sumir eru alltaf að
skrifa greinar og
senda fjölmiðlum og
er ég ekki einn
þeirra. Ég er jafnvel
ekki svo viss um að
þessi grein verði birt
þar sem hún fjallar
ekki um lyfjaskandal,
eiturlyf eða annað
sem gæti hneykslað
lesendur eða þá sem
stýra því sem birtist í
fjölmiðlum.
Bróðir minn varð
Bandaríkjameistari í
samkvæmisdönsum í byrjun sept-
ember og þar sem mér og mörgum
öðrum fannst það fréttnæmt setti
ég saman smápistil og sendi til
þeirra fjölmiðla sem mér datt í hug
að hefðu áhuga, Morgunblaðið,
Fréttablaðið, Blaðið, Sjónvarpið og
Stöð 2. Samkvæmt því sem ég best
veit hefur einungis
Blaðið birt eitthvað,
Fréttablaðið hafði
samband við bróður
minn en eins og ég
sagði þá veit ég ekki
til þess að neitt hafi
verið birt. Hinir miðl-
arnir höfðu ekki sam-
band og hafa ekki birt
neitt. Við erum að tala
um að Íslendingur hafi
orðið Bandaríkjameist-
ari í samkvæm-
isdönsum. Bandaríkin
eru ein af stærstu ríkjum í heimi
eins og flestir vita og ef það er
ekki fréttnæmt að Íslendingur hafi
orðið Bandaríkjameistari í sam-
kvæmisdönsum hvað er þá frétt-
næmt? Jú, ég skal segja ykkur það.
Um leið og einhver misstígur sig,
t.d. ef dansari fellur á lyfjaprófi þá
er komin frétt. Þá birta allir fjöl-
miðlar eitthvað um málið. Erum við
virkilega þannig að það sem er já-
kvætt er ekki frétt og það sem er
neikvætt er frétt? Eða eru fjölmiðl-
arnir bara þannig? Það eru þeir
sem vinna á fjölmiðlunum sem
stjórna því sem birtist þar. Ég
vona að ég sé ekki sá eini sem vill
sjá meira af jákvæðum fréttum í
fjölmiðlum.
Erum við
virkilega svona?
Ragnar Sverrisson telur það
fréttnæmt að Íslendingur verði
Bandaríkjameistari í sam-
kvæmisdönsum
Ragnar Sverrisson
» Bróðir minn varðBandaríkjameistari
samkvæmisdönsum og
þar sem mér fannst það
fréttnæmt setti ég sam-
an smápistil og sendi til
fjölmiðla.
Höfundur er danskennari
og dansskólaeigandi.