Morgunblaðið - 30.09.2007, Síða 55

Morgunblaðið - 30.09.2007, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2007 55 , Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is HRÍSMÓAR – 3-4RA HERB. GARÐABÆR Falleg og rúmgóð, 3ja-4ra herb. (á teikn 4ra) 110 fm lúxusíbúð á 4. hæð í lyftuhúsi við Hrísmóa 1, Garðabæ. Útsýni. Tvennar svalir. V. 25,9 millj. HRÍSMÓAR – 3-4RA HERB. Nýkomin í einkasölu sérlega falleg, 3-4ra herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli, auk innbyggðs bílskúrs, samtals 140 fm. Sérþvottaherbergi, suðursvalir. Frábær staðsetning og útsýni. Myndir á mbl.is. Verð 34,9 millj. LANGALÍNA – M. BÍLSKÝLI Nýkomin sérlega falleg, fullbúin, 3ja herb., 116 fm íbúð á fyrstu hæð í glæsilegu nýlegu fjölb. Glæsilegar innréttingar og gólfefni, allt fyrsta flokks. Góð geymsla og sérstæði í vönduðu bílskýli. Íbúðin er laus til afhendingar. FAXATÚN - EINBÝLI Nýkomið sérlega fallegt, talsvert endurnýjað einbýli á einni hæð með bílskýli samtals ca 183 fm. Fallegar innréttingar, parket, nýlegur skáli. Gróinn garður. Verð 41,5 millj. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Vættaborgir Glæsilegt 162 fm parhús á tveimur hæðum á frábærum útsýnisstað í lokaðri götu. Rúmgóð og björt stofa/borðstofa með arni, vandað eldhús með fallegri hvíti innréttingu, 3 góð herbergi, sjónvarpshol með útg. á flísalagðar svalir og flísalagt baðherb. auk gesta w.c. Gott útsýni er af báðum hæðum. Aukin lofthæð á efri hæð og út- gangur á stórar svalir í suðvestur. Falleg ræktuð lóð með timburverönd og skjólveggjum. Verð 57,0 millj. Baughús Fallegt og vel skipulagt, 174 fm tvílyft parhús með innb. bílskúr á góðum útsýnisstað auk sólskála út af stigapalli. Eignin skiptist m.a. í rúmgóða stofu með útgangi á út- sýnissvalir til vesturs, eldhús, 4 herbergi og baðherbergi auk gest- asnyrtingar. Parket og flísar á gólfum. Falleg gróin ræktuð lóð með timburverönd til suðurs. Verð 55,0 millj. Sörlaskjól Glæsileg neðri sérhæð ásamt bílskúr Glæsileg 109 fm, neðri sérhæð í þríbýlishúsi ásamt 25 fm bílskúr á þessum eftirsótta stað í vestur- bænum. Hæðin er mikið endurnýj- uð á vandaðan og smekklegan hátt og skiptist m.a. í tvær rúm- góðar stofur, 2 herbergi og vand- að eldhús. Svalir til suðvesturs. Fallegt útsýni til sjávar. Laus til afh. við kaupsamning. Verð 49,0 millj. Keilufell - einbýlishús á útsýnisstað Fallegt 203 fm einbýlishús, hæð og ris á steyptum kjallara auk 29 fm opins bílskýlis. Nýlegar innrétt- ingar eru í eldhúsi, tvær stofur og 5 herbergi auk fataherbergis. Mögul. er að innrétta íbúð í kjall- ara. Eignin stendur mjög skemmtilega á hornlóð með stórkostlegu útsýni yfir Elliða- vatnið, Elliðaárdalinn og víðar. Verð 52,5 millj. Baughús - efri sérhæð Vel skipulögð, 128 fm, efri sérhæð ásamt 34 fm bílskúrá góðum út- sýnisstað. Rúmgóð stofa/borð- stofa, 3 góð herbergi og rúmgott eldhús. Aukin lofthæð og innfelld lýsing að hluta. Góð suðurverönd með skjólveggjum. Glæsilegt út- sýni er frá stofum og svölum til norðurs og vesturs. Hiti í bílaplani og að húsi. Verð 45,0 millj. Dísarás - útsýni yfir Elliðaárdalinn Fallegt 258 fm raðhús ásamt 40 fm bílskúr á þessum eftirsótta stað í Seláshverfi. Eignin er tvær hæðir og kjallari og skiptist m.a. í rúmgóða og bjarta stofu/borð- stofu, eldhús með góðri borðað- stöðu, sjónvarpshol/stofu, 4-5 herbergi og baðherbergi, flísalagt í gólf og veggi. Góð lofthæð á efri hæð. Möguleiki á aukaíbúð í kjall- ara. Falleg ræktuð lóð. Verð 68,0 millj. Haðarstígur - Þingholtin Mikið endurnýjað 140 fm parhús í Þingholtunum. Björt stofa, eldhús með ljósri viðarinnréttingu, sjón- varpshol, 3 herbergi og nýlega endurnýjað baðherbergi. Eign sem hefur nánast öll verið endurnýjuð að innan sem utan síðustu 10 ár- in. Fallegur bakgarður með timb- urverönd, skjólveggjum og lýs- ingu. Verð 46,5 millj. LÍFSSKOÐANIR okkar hafa djúp áhrif á það hvernig okkur reiðir af og hvernig lífshlaup okkar verð- ur í því samfélagi sem við búum í. Upp- gangur húmanískra siðferðishugmynda hefur orðið til þess að miklar framfarir hafa orðið í mann- réttindamálum víða um heim og þá sér- staklega í hinum „vestræna“ hluta hans. Fólk hefur los- að sig undan kreddu- kenndum hug- myndum trúarbragða, afvega- leiddrar þjóðern- ishyggju og forræð- ishyggju, sem lifði góðu lífi á gullöldum kirkjulegra valda í Evrópu. Óskorað vald karlmanna hefur smám saman orðið að víkja og stærsti sigurinn vannst þegar konur fengu kosningarrétt á fyrri hluta 20. aldarinnar þrátt fyrir mikla andstöðu kirkjudeilda og íhaldssamra stjórnmálaafla. Mismunun vegna kynþáttar eða kynhneigðar hefur víða mátt víkja en helst eru það trúfélög sem standa á móti rétti samkyn- hneigðra til að njóta sömu þjóð- félagsstöðu og aðrir í heiminum. Í húmanismanum felst heims- spekileg náttúruhyggja (að lífið eigi sér náttúrlegar skýringar), skynsemishyggja (treysta á vit- ræna getu okkar) og efahyggja, þ.e. að nýjar staðhæfingar eða til- gátur séu ekki teknar trúanlegar nema að þær standist rök- fræðilega skoðun og prófanir, t.d. með aðferðum vísindanna. Einn stærsti sigur húmanískra hug- sjóna var stofnun Sameinuðu Þjóðanna (SÞ) og gerð mannrétt- indayfirlýsingar þeirra. Alþjóða- samtök húmanista, International Humanist and Ethical Union (IHEU) hafa alla tíð starfað náið með SÞ og það var fyrsti forseti alþjóðaþings IHEU, líffræðing- urinn Julian Huxley sem var einn- ig fyrsti forseti menningar-, mennta- og vísindastofnunar SÞ, UNESCO árið 1946. Einn þekkt- asti trúleysingi og mannúðarsinni síðustu aldar var Englendingurinn Bertrand Russell (1872-1970) sem hlaut Nóbelsverðlaunin í bók- menntum árið 1950 fyrir skrif í þágu frálsrar hugsunar. Nú á tímum upplýsingaflæðis og alþjóðavæðingar er á ný sótt að skynsemishyggju og húm- anískum gildum með lúmskri trúarlegri innrætingu, „pólitískt réttum“ yfirgangi bókstafs- trúarfólks og uppgangi gervivís- inda sem notfæra sér glundroða þann sem ófullnægjandi raun- greinakennsla og stundum óvand- aður fréttaflutningur um vísindi og læknisfræði hafa skapað í hug- um fólks. Vegna þessa hafa fjöl- margir fylgjendur manngildisins og velferðar hins lýðræðislega samfélags risið upp og komið sam- an í æ meira mæli sem húm- anistar víða um heim. Í kjölfar hryðjuverkanna 11. september 2001 hafa æ fleiri gert sér grein fyrir því að það eru ekki aðeins bókstafstrúarmenn sem ógna húm- anískum gildum eins og mannréttindum heldur einnig hin svo- kölluðu hófsömu trúarbrögð með því að viðhalda grunninum að hinum trúarlega og forneskjulega hug- myndaheimi þeirra. Margt fólk er að vakna til vitundar um mikilvægi húmanism- ans, t.d. sem sú lífs- skoðun sem er öfl- ugasta vopnið gegn kúgun kvenna víða um heim. Fyrirlestar bar- áttukonunnar Maryam Namazie á dögunum báru því glöggt vitni. Sómalski rithöfund- urinn, femínistinn og trúleysinginn Ayaan Hirsi Ali benti einnig á hættuna af trúarlega tengdu sið- ferði í sjónvarpi og blöðum ný- lega. Á Íslandi hafa húmanistar átt sitt lífsskoðunarfélag frá 1990 en það heitir Siðmennt, félag sið- rænna húmanista á Íslandi. Á næsta ári á borgaraleg (veraldleg) ferming 20 ára afmæli og er það sérstakt ánægjuefni því nær 1000 ungmenni hafa hlotið húmaníska lífssýn í gegnum fermingarfræðslu félagsins á þessum árum. Það stefnir nú í metþátttöku á afmæl- isárinu. Siðmennt nýtur ekki þeirra fríðinda að fá félagsgjöld í formi „sóknargjalda“ innheimt og afhent af ríkinu líkt og trúfélög á Íslandi fá, þrátt fyrir að standa fyrir þau gildi sem stuðla að hvað mestri mannvirðingu, jafnrétti og bestu menntun allra landsmanna. Ég vil hvetja það fólk sem telur sig vera húmanista að skrá sig „utan trúfélaga“ á skrifstofu Þjóð- skrár og ganga til liðs við Sið- mennt. Vefsíða félagsins er www.sidmennt.is. Þetta er mik- ilvægt því húmanistar þurfa að standa saman og verja og rækta gildi sín. Siðmennt þarfnast þess að fólk sem telur sig eiga samleið með húmanískum lífsgildum gangi til liðs við félagið til að stuðla að uppbyggingu veraldlegra valkosta við félagslegar athafnir eins og út- farir, nefningar og giftingar. Það er sérstaklega ánægjulegt að í vetur mun Siðmennt bjóða uppá þjálfaða athafnarstjóra fyrir ver- aldlegar útfarir í fyrsta sinn. Tök- um höndum saman. Húmanismi – lífsskoðun til framtíðar Svanur Sigurbjörnsson skrifar um húmanískar siðferð- ishugmyndir Svanur Sigurbjörnsson »Einn stærstisigur húm- anískra hug- sjóna var stofn- un Sameinuðu þjóðanna (SÞ) og gerð mann- réttindayfirlýs- ingar þeirra. Höfundur er læknirog félagsmaður í Siðmennt. Fréttir á SMS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.