Morgunblaðið - 30.09.2007, Side 56
56 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Opið hús í dag milli kl. 14 og 15
Vallarbarð 4 – Hafnarfirði
BORGARTÚN 29
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
REYNIR BJÖRNSSON
ELÍAS HARALDSSON
L Ö G G. FA S T E I G N A S A L A R
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Glæsilegt
og vel stað-
sett ca 178
fm einbýlis-
hús á tveim-
ur hæðum
ásamt ca 34 fm frístandandi bílskúr, samtals ca 212 fm. Neðri hæð skiptist í
forstofu, hol, baðherbergi, þvottahús, geymslu, eldhús og þrjár stofur. Efri
hæð skiptist í fjögur svefnherbergi, baðherbergi og stórar svalir. Parket og flís-
ar á gólfum. Fallegur garður í rækt með stórum sólpalli og skjólveggjum.
Hellulögð aðkoma með hita í stéttum. Verð 55 millj.
Reynir Björnsson lögg. fasteignasali tekur á móti gestum
milli kl. 14 og 15. Teikningar á staðnum.
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013
Vel staðsett iðnaðarhúsnæði á jarðhæð á efri hæð hússins. Skráð 240 fm. Húsið er
steinsteypt og eru góð bílastæði fyrir framan. Á framhlið hússins er stór innkeyrslu-
hurð, góðir gluggar og gönguhurð inn í móttöku viðskiptavina. Á bakhliðinni eru góðir
gluggar. Húsnæðið er opið rými með góðri lofthæð, einnig er ca. 20 fm milliloft, þar er
kaffistofa starfsmanna. Húsnæðið er vel lagað og nýtist vel. Verð 46,6 millj.
jöreign ehf
TIL SÖLU
SKEMMUVEGUR 18 - KÓP.
Kristinn Valur Wiium Ólafur Guðmundsson
sölumaður s. 896-6913 sölustjóri s. 896-4090
STAÐGREIÐSLA
Traustur kaupandi óskar eftir einbýlishúsi í
Fossvogi.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir
Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
EINBÝLISHÚS Í
FOSSVOGI ÓSKAST
Höfum verið beðin um að útvega sérhæð
fyrir traustan kaupanda.
Staðgreiðsla í boði.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson
löggiltur fasteignasali.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
HÆÐ Í VESTURBÆNUM EÐA Í
NÁGRENNI MIKLATÚNS ÓSKAST.
Hraungata 28 í Urriðaholti er 952 fm
leigulóð fyrir allt að 552 fm einbýlishús
með 244 fm. byggingarreit. Lóðin er ein-
staklega vel staðsett neðan götu í þessu
vel hannaða og eftirsótta íbúðarhverfi.
Verð 21 millj. 6645
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Byggingarlóð í Urriðaholti
SAMKYN-
HNEIGÐ, vinaleið
og aðskilnaður frá
ríkinu eru meðal
mála sem hafa verið
mikið í samfélags-
umræðunni um þjóð-
kirkjuna undanfarna
daga. Í henni hafa
ýmis viðhorf til kirkj-
unnar birst. Mér sýn-
ist raddir úr sam-
félaginu oftast harðar
og fullar af gagnrýni
í garð þjóðkirkj-
unnar. Mig langar til
að skjóta inn, í tíma,
nokkrum línum um
framtíðarsýn þjóð-
kirkjunnar.
Áður en ég tjái
skoðun mína tel ég
rétt að segja frá því
hvernig ég tengist
þjóðkirkjunni. Í
fyrsta lagi er ég
þjónandi prestur
þjóðkirkjunnar, ég
fæ laun fyrir störf mín þar og er
því beinn hags-
munaaðili. Hins vegar
fékk ég köllun mína
og hlaut menntun sem
prestur í kirkju í Jap-
an og er þess vegna
ég ekki svo sterklega
bundinn við hugtakið
„þjóðkirkja“. Hvort
kirkja er þjóðkirkja
eða ekki er fyrir mér
tæknilegt mál, en
hvorki trúmál né
hjartans mál.
Það er stundum
sagt að glöggt sé
gests augað og fyrir
mig var ,,þjóðkirkja“
ekki sjálfsögð eins og
fyrir marga Íslend-
inga þegar ég kom
hingað til lands fyrir
15 árum en síðar lærði
ég um það stóra hlut-
verk sem hún lék í
sögu Íslands. Mér
skilst t.d. að þjóð-
kirkjan hafi verið ein
þeirra stofnana sem
stóðu vörð um ís-
lenska tungu þegar
þjóðin var undir
stjórn Danmerkur. Þá voru engar
útvarps- eða sjónvarpsútsendingar
eins og í dag og messur voru mik-
ilvægir miðlar sem héldu við og
varðveittu íslenska tungu á meðal
Íslendinga. Margir prestar færðu
einnig sögu Íslands í letur fyrir al-
menning, ortu ljóð um landið og
sáu um kennslu ungmenna. Þjóð-
kirkjan hafði einnig frumkvæði
þegar þurfti að bregðast við nátt-
úruhamförum eða halda stór-
viðburði eins og þjóðhátíðir. Þetta
eru bara fáein dæmi sem sýna að
þjóðkirkjan hefur að vissu leyti
verið meira en bara trúfélag í
hefðbundinni merkingu þess orðs.
Þegar þjóðin hlaut sjálfstæði ár-
ið 1944 hlaut það að vera eðlilegt
framhald af sögunni að setja þar
ákvæði um ,,þjóðkirkju“. Núna í
dag starfar þjóðkirkja og þjónar
samkvæmt þessu ákveðna stjórn-
sýslukerfi og ég tel til þess að um-
ræðan um framhaldið og framtíð-
arsýnina verði markviss verðum
við að viðurkenna þetta atriði.
Þegar ég fylgist með umræðum
sem varðar þjóðkirkjuna þessa
dagana þykir mér leitt að í gagn-
rýninni er oftast blandað saman
ábendingum um kerfisgalla og ein-
staklingsbundinni tilfinningalegri
andúð. Mér finnst t.d. alveg rétt
að benda á mál, eins og í hvaða
málefni eigi að verja skatttekjum,
ef viðkomandi finnst þar ríkja ein-
hvers konar óréttlæti. Það er
sjálfsagt mál að taka málið upp,
kanna og ræða. Hins vegar finnst
mér ekki réttlætanlegt að ræða
málin eins og starfsmenn kirkj-
unnar séu að svíkja fé af almenn-
ingi og því glæpamenn. Það gæti
verið gott tækifæri fyrir suma til
þess að fá útrás fyrir andúð sína
gagnvart kirkjunni en það er alls
ekki réttmætt. Slík viðhorf eru ein
af ástæðum þess að erfiðara er að
halda upp málefnalegri umræðu
fyrir alla.
En hvað um framtíðarsýn þjóð-
kirkjunnar? Ég held það sé alveg
sjálfsagt að við endurskoðum
gamla kerfið og gerum það að
betra kerfi sem passar núverandi
og verðandi aðstæðum samfélags-
ins. Þjóðkirkjukerfið er ekki und-
antekning frá því og það getur
ekki gengið á sama hátt og áður
aðeins vegna framlags síns í for-
tíðinni. Persónulega sýnist mér
skýrt í hvaða átt þjóðkirkjan verð-
ur að fara í framtíðinni. Það stríð-
ir að mörgu leyti gegn þróun
mannréttindahugmynda að
stjórnskráin skuli gefa einu
ákveðnu trúfélagi sérstöðu sem
,,þjóðartrú“ (Ég er samt ekki sam-
mála því áliti að aðskilnaður kirkj-
unnar frá ríkinu yki beint trúfrelsi
hérlendis og ég bíð eftir næsta
tækifæri til að tjá mig um það at-
riði).
Eins og ég sagði hér að ofan tel
ég að þjóðkirkjukerfið snúist ekki
um trúmál heldur hvort hún sé
hluti af samfélagskerfi. Að mínu
mati þarf það ekki að vera nei-
kvætt þótt þjóðkirkjan fari út úr
þessu samfélagskerfi eða afsali sér
sérstöðu sinni í stjórnarskránni en
að sjálfsögðu munu því fylgja ýmis
vandkvæði. Mér finnst löngu tíma-
bært að setja sérnefnd hjá stjórn-
völdum til þess að fjalla um ,,að-
skilnað kirkjunnar frá ríkinu“ á
málefnalegan hátt og kanna kosti
þess og galla.
Það er fordæmi fyrir því að
þjóðkirkja hætti að vera þjóð-
kirkja, eins og t.d. sænska kirkjan
sem steig það skref árið 2000. Af
hverju eigum við ekki að skoða
þetta dæmi málefnislega og safna
upplýsingum og álitum? Síðan
mun verða hægt að setja áþreif-
anlega tímaáætlun til þess að
framkvæma aðskilnaðinn, ef það
er vilji Íslendinga.
Að lokum langar mig til að
ítreka að mál um þjóðkirkjukerfið
er ekki trúmál, heldur er það mál
um samfélagskerfi sem varðar
hagsmuni allra. Og því er þetta
alls ekki mál eins og hvort kirkjan
sé góð eða vond, eða hvort kirkjan
sigri eða tapi. Ég óska þess inni-
lega að málið komist á almenni-
lega umræðubraut.
Einlæg umræða
um framtíð þjóð-
kirkjunnar óskast
Toshiki Toma
skrifar um málefni
þjóðkirkjunnar
Toshiki Toma
»Ég held þaðsé alveg
sjálfsagt að við
endurskoðum
gamla kerfið og
gerum það að
betra kerfi sem
passar núver-
andi og verð-
andi aðstæðum
samfélagsins.
Höfundur er prestur innflytjenda.
Fréttir í tölvupósti