Morgunblaðið - 30.09.2007, Blaðsíða 70
70 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Kalvin & Hobbes
GÓÐAN DAGINN, ÞETTA
ER KALVIN. MIG LANGAR AÐ
PANTA HJÁ YKKUR PIZZU
HA,
HVAÐ?
ÞÁ HLÝTUR ÞÚ
AÐ HAFA HRINGT
Í SKAKKT NÚMER
ÉG REYNI AÐ GERA
DAGANA ÖGN
SÚRREALÍSKARI
FYRIR AÐRA
Kalvin & Hobbes
HVAÐ ERTU
AÐ GERA? VERA
SVALUR
ÞÚ LÍTUR FREKAR ÚT
FYRIR AÐ VERA AÐ
DEYJA ÚR LEIÐINDUM
HEIMURINN
ER EKKERT
SPENNANDI
ÞEGAR MAÐUR
ER SVALUR
Kalvin & Hobbes
ÉG ÞARF EKKERT FYLGI TIL
ÞESS AÐ VERA PABBI ÞINN.
PABBAR ERU EKKI KOSNIR
ÞANNIG AÐ ÞÚ GETUR
GERT HVAÐ SEM ÞÚ VILT ÁN
ÞESS AÐ MISSA VÖLD?
JÁ!
ÞÁ VERÐ ÉG
BARA AÐ GERA
UPPREISN EÐA
FARA Í ÚTLEGÐ
MÉR
LÍST
EKKERT Á
ÞESSAR
SAM-
RÆÐUR
PABBI, FYLGI
ÞITT ER AÐ MINNKA
Risaeðlugrín
© DARGAUD
ERTU FARINN AÐ SKILJA
ÞETTA NÚNA?
NEI, EKKI
ALVEG
ÉG SÉ HANN KOMA...
HANN NÆR SVAKALEGUM
HRAÐA!
SKILURÐU ÞETTA NÚNA? ÞAÐ ERU ALLIR
HÆTTIR AÐ GERA GRÍN AÐ HONUM VEGNA ÞESS
AÐ HANN ER HEIMSMEISTARI Í KEILU... ÞANNIG
AÐ NÚNA ER HANN EKKI LENGUR LEIÐUR
HANN TEKUR SÉR STÖÐU
VIÐ ENDA BRAUTARINNAR MEÐ
UPPRÚLLAÐA SKÍTINN
dagbók|velvakandi
Bloggað um fréttina
Nú tíðkast sá siður á vefmiðlinum
mbl.is að blogga um fréttir, og geta
þá notendur sagt sína skoðun á frétt-
um dagsins. Afar hvimleitt er að reka
augun í ummælin áður en frétt er les-
in því óhjákvæmlega hefur það áhrif
á hvernig lesandi les viðkomandi
frétt. Betra væri, eins og vefmiðillinn
visir.is gerir, að taka hreinlega út slík
ummæli eða þá að vísa eingöngu í
heimasíðu bloggara sem vilja tjá sig
um fréttina og þá án þeirra frumlegu
fyrirsagna sem þeir eru duglegir við
að semja. Á mbl.is í dag var t.d. frétt
um að hugsanlegt væri að ferðamað-
urinn Clara Torres hefði náð mynd af
Madeleine McCann. Með fréttinni er
vísun í blogg frá Jóni Arnari með fyr-
irsögninni: „Æ hún Clara klára“.
Trúverðugleiki og raunveru-
leikatenging fréttanna tapast við slík
ummæli, svo ekki sé talað um ánægj-
una við að lesa fréttirnar á netinu.
Hlín.
Skert mannorð
Viltu besta starf í heimi auglýsir ÍTR
og óskar eftir fólki í eftirtalin störf
með börnum: Tónlist, myndlist,
smíði, textíl, úti- og innileiki, göngu-
ferðir, náttúruskoðun, hópstarf,
barnafundi, sögulestur, vináttu og
samveru. Þegar maður lítur á þessa
upptalningu sést vel hversu fáránlegt
það var að segja öryrkjanum upp í
byrjun skólaárs. Hægum hreyfingum
gat konan ekki breytt vegna lyfja
sem hún tekur eftir aðgerðina og
valda hægari hreyfingum. Aðeins er
hægt að minnka lyfjagjöfina um hálfa
töflu á ári og tekur það því um tvö ár
enn að minnka þau svo að fullur
starfshraði náist. Athugum menntun
konunnar: Hún hefur lokið sex ára
námi frá söngskóla, sem hefði átt að
nýtast til tónlistarkennslu barnanna,
hún reyndi það að vísu síðastliðinn
vetur, en fékk ekki að sinna því að
neinu gagni, hún er einnig með raf-
virkjapróf frá FB og tækniteiknun
frá Iðnskólanum. Verst er þó að upp-
sögnin hefur valdið þessari konu
ákveðinni mannorðsskerðingu því
þeir sem hún hefur leitað eftir vinnu
hjá telja að eitthvað annað en hægar
hreyfingar liggi að baki. Þetta ætti að
sýna þeim sem að uppsögninni stóðu
hversu ómannúðleg vinnubrögð
þeirra voru og grunnt hugsuð. Verst
tel ég þó að borgarfulltrúi skuli valda
saklausum aðila mannorðsskerðingu
og fjárhagslegu tjóni með illa grund-
uðum vinnubrögðum. Tel ég því að
hann ætti að biðja öryrkjann op-
inberlega afsökunar, til að draga úr
mannorðsskerðingunni.
Guðvarður Jónsson
Fjallahjól fannst
Grænt, vel farið Trek-fjallahjól
fannst í miðbæ Reykjavíkur. Nánari
upplýsingar fást í síma 846-4863.
Reiðhjól tapaðist
Blátt og silfurlitað Trek 4300-ungl-
ingareiðhjól hvarf frá Frið-
rikskapellu við Valsheimilið 20. ágúst
sl. Festing fyrir hraðamæli og ljós er
á stýrinu. Finnandi vinsamlegast hafi
samband í síma 588-3338 eða 869-
8686. Fundarlaun.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Það hefur blásið hressilega á landsmenn síðustu dagana. Þessir drengir
létu smávindgust þó ekki koma í veg fyrir íþróttaiðkun og sýndu efnilega
takta þar sem þeir létu boltann ganga á milli sín.
Morgunblaðið/Frikki
Fótboltahetjur framtíðarinnar?
Kr. 1450 fyrir fullorðna
Kjötsúpa og ferjutollur
Kr. 800 fyrir börn
Heit samloka, safi
og ferjutollur
Nánari
upplýsingar
www.videy.com
533 5055
Kjötsúpa
ogViðey
Uppgötvaðu
Viðey
Veitingasala
kl. 11:30 – 17:00
grunnskóli - framhaldsskóli - háskóli
NÁMSAÐSTOÐ
íslenska - stærðfræði - enska - danska
franska - eðlisfræði - efnafræði - tölfræði
þýska - spænska - lestur - stafsetning o.fl.
greining á lestrarerfiðleikum
Nemendaþjónustan sf. Sími 557 9233 • www.namsadstod.is