Morgunblaðið - 30.09.2007, Side 74
Þegar maður er 18
ára og í hljómsveit er
eðlilegt að halda að maður
sé í bestu hljómsveit í
heimi … 79
»
reykjavíkreykjavík
STOFNMEÐLIMIR múm, þeir
Örvar Þóreyjarson Smárason og
Gunnar Örn Tynes, eru orðnir
þreyttir á vangaveltum fjölmiðla um
það hvort múm sé hljómsveit, dúett
eða eitthvað allt annað. „Þetta kem-
ur bara upp í viðtölum,“ segir Örvar.
„Stundum erum við fimm, stundum
eitthvað annað, þetta flækir málin
ekki neitt fyrir okkur. Það er bara
þegar maður er krafinn um skil-
greiningu sem þetta verður flókið,“
bætir Örvar við og réttir blaðamanni
örvandi bolla af kaffi úr forláta, fag-
urrauðri espressóvél.
Í upphafi voru tvíburasysturnar
Gyða og Kristín Anna Valtýsdóttir í
múm en eru ekki lengur. Fjöldi tón-
listarmanna hefur lagt sitt af mörk-
um til sveitarinnar og sérstaklega
margir á nýju plötunni, m.a. Ólöf
Arnalds og Sigurlaug Gísladóttir,
öðru nafni Mr. Silla.
Hausar fjúka
Titill nýútkominnar breiðskífu
múm, þeirrar fjórðu á níu ára starfs-
ævi sveitarinnar, er allsérstakur og
torskilinn: Go Go Smear The Poison
Ivy, eða Áfram áfram berðu á
brennimjólkina (þýðing blaða-
manns). Hvaðan skyldi nafnið koma?
„Þetta kemur fram í einum af
textunum, ég lá ekki mikið yfir
þeim,“ segir Örvar kíminn. „Þetta er
eins og með nöfnin á lögunum hjá
okkur, það er oft heilmikið að gerast
en ekki skýr merking. Þetta er túlk-
unaratriði,“ bætir Gunnar við. Plöt-
ur múm hafi áður borið slíka titla og
þeir séu opnir fyrir hvers konar túlk-
un þeirra sem í þeim vilja pæla.
Myndband við lagið „They made
frogs smoke ’til they exploded“ hef-
ur fengið gríðarmikið áhorf á mynd-
bandavefsíðunni Youtube. Það er
sköpunarverk myndlistarkonunnar
Ingibjargar Birgisdóttur sem einnig
hannaði umhverfisvænt umslag plöt-
unnar. Í það er m.a. notaður kart-
öflumassi og geri aðrir umhverf-
isverndarsinnar betur! Í
myndbandinu er ákveðinn kvikind-
isskapur á ferð, hausar slitnir af dýr-
um meðal annars. Ingibjörg fékk
frjálsar hendur við myndbandsgerð-
ina en hafði til hliðsjónar forláta
landslagsmálverk á tréspjaldi með
álímdri andlitsmynd af ungum dreng
sem Örvar keypti á flóamarkaði í
Prag. Það verk fellur líklega í
„kitsch“-flokk. Ingibjörg hefur aug-
ljóslega frjótt ímyndunarafl, ef
marka má verk hennar fyrir múm.
Skyldi einhver kvikindisskapur
vera hlaupinn í hina krúttlegu hljóm-
sveit múm? Eru Gunnar og Örvar að
brjóta niður hina sætu ímynd?
„Nei, alls ekki,“ segir Örvar og
Gunnar hlær að vangaveltum blaða-
manns. „Mikið af því sem við gerum
er leikur og kvikindisskapur fylgir
honum mjög eðlilega. Að stríða að-
eins.“ Örvar segir merkilegt að
myndbandið hafi stuðað einhverja
sem horfðu á það á Youtube. Ein-
hverjum hafi þótt illa farið með dýr
sem sé skondið í ljósi þess að mynd-
bandið er í heldur barnalegum
klippi-teiknimyndastíl, alls ekki
grófara en hver önnur teiknimynd
með Tomma og Jenna.
Tekið upp í Galtarvita
Múm hefur alla tíð verið til-
raunaglöð hljómsveit, spunnið lögin
við tökur og valið óvenjulega upp-
tökustaði. Go Go Smear The Poison
Ivy var m.a. tekin upp í tónlistar-
skólanum á Ísafirði, gömlum skóla á
eynni Nötö milli Svíþjóðar og Finn-
lands, í Galtarvita og sumarbústað
foreldra Gunnars.
Hefur tónlistin breyst mikið á
þessum níu árum sem múm hefur
verið starfandi? „Tónlistin hefur
breyst rosalega mikið, við erum
orðnir miklu opnari fyrir því hvað
við getum gert í tónlistinni. Við get-
um notað miklu fleiri hljóðfæri, ráð-
um yfir miklu meiri tækni og eigum
auðveldara með að gera það sem
okkur dettur í hug. Á móti kemur að
það hefur ekki breyst að við förum
alltaf inn í þetta með einhverjum
leik,“ segir Örvar. Tilviljun sé stór
hluti af tónlistarsmíðinni, hljóðum
hrúgað inn í tölvuna og svo detti
hlutirnir saman einhvern veginn.
Gunnar bætir því við að múm sé frá-
brugðin öðrum hljómsveitum að því
leyti að hún semji tónlistina um leið
og hún er tekin upp. Þeir tónlist-
armenn sem þeir fái í lið með sér hafi
oft á tíðum ekki hugmynd um hver
útkoman eigi að verða. „Ég vona að
það sé spennandi, að fólk fái ekki
magasár,“ segir Örvar.
Múm-liðar hafa mikla reynslu af
tónleikahaldi og hafa farið í langar
tónleikaferðir um Bandaríkin, Evr-
ópu og Asíu. Hvar finnst Gunnari og
Örvari skemmtilegast að spila? „Í
Póllandi,“ svarar Örvar. Gunnar tek-
ur undir það og bætir við að Pólverj-
ar séu snillingar. „Það er bara ein-
hver æsingur sem við eigum
sameiginlegan með þeim. Eins og að
fara út á land hérna, svona „no bulls-
hit“-viðhorf,“ segir Gunnar, aug-
ljóslega mikill aðdáandi Pólverja.
Taílendingar eru einnig ofarlega á
lista og Suður-Evrópubúar.
Enginn köttur
Múm á sér stóran aðdáendahóp
víða um heim og ljóst að hróður
sveitarinnar hefur vaxið með ári
hverju. Er múm orðið álíka nafn og
Björk og Sigur Rós úti í hinum stóra
tónlistarheimi?
„Nei, en fólk sem er að pæla í tón-
list kannast við nafnið,“ svarar Örv-
ar. „Annaðhvort virkar þetta eða
virkar ekki á fólk,“ bætir Gunnar
við. Einhverra hluta vegna hafi múm
ekki notið mikillar hylli á Íslandi.
Sumar útvarpsstöðvar virðist eiga
erfitt með að leika lög múm og ekki
virðist þau heldur kaffihúsavæn. Það
er nóg að gera hjá sveitinni en þó
segjast Örvar og Gunnar rétt ná að
lifa af listinni. „Ég á enga peninga,
bara hljóðfæri og tölvu,“ segir Gunn-
ar og hlær. Hann eigi ekki einu sinni
kött.
BRENNIMJÓLKIN BORIN Á
Morgunblaðið/Golli
Múm „Tónlistin hefur breyst rosalega mikið, við erum orðnir miklu opnari fyrir því hvað við getum gert í tónlistinni.“ Örvar Þóreyjarson Smárason og Gunnar Örn Tynes.
HLJÓMSVEITIN MÚM FER ÓTROÐNAR SLÓÐIR Á NÝJUSTU PLÖTU SINNI, GO
GO SMEAR THE POISON IVY, SEM ER FJÓRÐA BREIÐSKÍFA SVEITARINNAR.
HELGI SNÆR SIGURÐSSON SPJALLAÐI VIÐ FORSPRAKKA MÚM UM NÝJU
PLÖTUNA, OG ÓTRÚLEGAR VINSÆLDIR Á YOUTUBE.
www.mumweb.net
Áfram! Umslag nýju plötunnar.