Morgunblaðið - 30.09.2007, Blaðsíða 83
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2007 83
BANDARÍSKI rapparinn P. Diddy
sýndi af sér mikla stjörnustæla í
New York fyrir skömmu. Diddy,
sem heitir réttu nafni Sean Combs,
var á leið á skemmtistaðinn Gold
Bar ásamt fjórum vinum sínum þeg-
ar kvenkyns dyravörður á staðnum
hleypti honum ekki inn um leið.
„Hann gekk beint upp að stúlk-
unni og þegar hún spurði hann
hversu mörg þau væru hellti hann
sér yfir hana og kallaði hana öllum
illum nöfnum. Því næst tók hann
flauelskaðalinn frá sjálfur og
hleypti sér og gestum sínum inn,“
sagði vitni að atvikinu í samtali við
dagblaðið New York Post.
Fyrr í þessum mánuði stóð rapp-
arinn hins vegar sjálfur fyrir sínu
árlega „hvíta partíi“ og þar mun
hann hafa vísað fólki sem klæddist
ekki eingöngu hvítu úr veislunni.
Þar á meðal var Katie, eiginkona
söngvarans Billy Joel, en hún kom
til veislunnar íklædd kremlituðum
kjól. Henni var sagt að hún fengi
aðeins inngöngu ef hún klæddist
fullkomlega hvítum fötum, og
þurfti því að hverfa á braut ásamt
eiginmanni sínum.
Rappari með
stjörnustæla
Reuters
Umdeildur Rapparinn P. Diddy sýndi sínar verstu hliðar í New York.
BRESKI leikarinn Daniel Radcliffe,
sem er langþekktastur fyrir hlut-
verk sitt sem galdrastrákurinn
Harry Potter, hefur mikinn áhuga á
að leika samkynhneigðan njósnara.
Radcliffe, sem er 18 ára gamall, vill
fara með aðalhlutverkið í endurgerð
kvikmyndarinnar Another Country
sem gerð var árið 1984, en myndin
fjallar um ungan dreng á fjórða ára-
tug síðustu aldar sem verður ást-
fanginn af besta vini sínum, en verð-
ur síðar njósnari sem starfar fyrir
stjórnvöld í Sovétríkjunum.
Radcliffe, sem hefur vakið mikla
athygli fyrir að koma nakinn fram í
leikritinu Equus í Lundúnum, segist
hafa mikinn áhuga á að leika persón-
ur sem eru að uppgötva sjálfar sig
kynferðislega. „Ég myndi aldrei
leika homma bara til þess að leika
homma. En ef handritið er gott og
þetta er góður karakter er ég tilbú-
inn,“ sagði leikarinn ungi á blaða-
mannafundi fyrir stuttu. Í sinni nýj-
ustu kvikmynd, December Boys,
leikur Radcliffe í sinni fyrstu kyn-
lífssenu, og því ljóst að leikarinn
ungi þroskast hratt þessa dagana.
Reuters
Þroskaður Daniel Radcliffe.
Vill leika
homma
ELTON John og Madonna hafa
grafið stríðsöxina og munu jafnvel
vinna saman í nánustu framtíð.
Ekki er langt síðan Elton sakaði
Madonnu um að „mæma“ á tón-
leikaferðalagi sínu, en söngvarinn
hefur nú beðið hana afsökunar á
orðum sínum og hann vonar jafn-
framt að þau geti unnið saman í
hljóðveri í framtíðinni. „Madonna
er frábær listamaður og ég er
stundum aðeins of kjaftfor. Hver
myndi ekki vilja vinna með henni?“
sagði söngvarinn í nýlegu viðtali.
Ljóst er að samstarf þeirra tveggja
myndi vekja mikla athygli, og gæti
jafnvel slegið í gegn.
Reuters
Kjaftfor Söngvarinn Elton John.
Gæsileg Söngkonan Madonna.
Bað
Madonnu
afsökunar