Morgunblaðið - 28.10.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2007 33
Eftir Jón Sigurðsson
jonsig@vortex.is
Sigurbjörg Þórunn Jónsdóttir,sauðfjár- og hrossabóndi íLitladal í A-Húnavatnssýslu,
hefur til margra ára unnið að
margs konar listiðnaði í hjáverk-
um. Núna langar hana til að hrinda
gömlum draumi í framkvæmd. Í
því skyni hefur hún komið sér upp
handverkshúsi þar sem megin-
þættirnir lúta meðal annars að
hönnun og vinnslu minjagripa, t.d.
fyrir Húnavatnssýslur.
Útskurður og hönnun stærri
verka, svo sem gestabækur, kistl-
ar, lágmyndir, styttur og fleira,
verður innan veggja handverks-
hússins. Sigurbjörg hefur einnig
mikinn hug á að koma á fót nám-
skeiðum í leirvinnu til undirbún-
ings fyrir útskurð í tré og jafn-
framt kenna útskurðinn. Hugur
hennar stendur til að halda tveggja
daga námskeið með 7-8 þátttak-
endum hverju sinni og leggja höf-
uðáherslu á að kenna höfðaletur og
gömul mynstur til að viðhalda
gömlum venjum. Einnig vill hún
kenna leirstyttugerð sem síðan er
skorið út eftir.
Í stuttu máli stefnir Sigurbjörg
að því að skapa ¼ til ½ ársverk við
útskurð og kennslu. „Mín sérstaða
er fólgin í því að eiga vel búið verk-
stæði, svo hef ég yfir nokkurri
þekkingu á handverki að ráða. Ég
hef sótt nám í útskurði hjá Bjarna
Þór Kristjánssyni, Halldóri Sig-
urðssyni í Miðhúsum, Matthíasi
Andréssyni í Kópavogi, Guiseppe
Rumerio, ítölskum meistara, og
fleirum,“ segir Sigurbjörg. Hún
minnist sérstaklega á Matthías
Andrésson sem skemmtilegan og
fræðandi leiðbeinanda en núna hef-
ur hún eignast öll hans verkfæri og
mynstur.
Sigurbjörg hefur verið beðin um
að skera út gestabækur, lágmynd-
ir, styttur (verðlaunagripi) og
minjagripi. Henni finnst vanta sér-
húnvetnska handverksmuni á
markaðinn og segir fáa fást við út-
skurð á myndum og smádýrum.
Lítið sé einnig um heimagerða
minjagripi frá svæðinu, þótt eft-
irspurn sé fyrir hendi.
Enginn sem býr á svæðinu kenn-
ir útskurð en slíkt telur Sigurbjörg
mjög mikilvægt. Hún segir að fólk
með svipuð áhugamál ætti að hitt-
ast reglulega og fjalla um hugð-
arefni sín, svona svipað og gerist í
saumaklúbbum og best væri að
fleiri færu út í þetta handverk.
Hún segir þörf á að vinna muni
fyrir söfn og þá eftir gripum sem
þar eru til sýnis. „Það hafa komið
fram óskir um slíka vinnu.“
Spurð hversu lengi hún sé að
vinna hvern hlut nefnir Sigurbjörg
að það hafi verið samfelld hálfs-
mánaðar vinna að skera út gesta-
bók þar sem Páll Pétursson á
Höllustöðum prýðir forsíðuna. „Og
taktu eftir að þetta var einungis
hægri hliðin á honum, “ segir Sig-
urbjörg og skellihlær.
Hún vill koma því á framfæri að
það hafi verið afar gaman að vinna
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Handverkshús
með minjagripi
Í HNOTSKURN
» Í handverkshúsi Sigur-bjargar veður framleiðsla
og sala á gripum úr tré, sér-
smíðuðum og útskornum.
» Unnið er að undirbúninginámskeiða fyrir áhugafólk
um tréskurð.
» Fyrirtækið byggist á eldrigrunni. Starfsemin hefst
væntanlega í ársbyrjun 2008.
Dalalist
Listagripir Sigurbjörg Þórunn Jónsdóttir við nokkra útskorna minjagripi.
að þessu vaxtarsprotaverkefni.
„Leiðbeinendurnir voru ein-
staklega lagnir við að hvetja okkur
áfram og eins að koma auga á nýja
fleti á þeim verkefnum sem við
vorum að kynna og vinna að.“
Eftir Óla Má Aronsson
olimar@rang.is
Bærinn Hrólfsstaðahellir erekki alveg í alfaraleið, hannstendur á bökkum Ytri-
Rangár neðarlega í Landsveit, um
20 km akstursleið frá hringveg-
inum. Á bænum búa hjónin Eiður
Kristinsson og Anna Björg Stef-
ánsdóttir ásamt börnum sínum og
þar reka þau ýmiss konar starfsemi,
gistihús, tjaldstæði, hrossa- og
fjárbúskap. Eiður er með tamninga-
próf og taka þau hjón hesta í þjálfun
og Anna Björg sér um skólaakstur í
sveitinni. Að auki taka þau um þess-
ar mundir þátt í vaxtar-
sprotaverkefninu í nýsköpun.
Eiður og Anna Björg ætla sér að
stofna nýtt fyrirtæki í Hrólfs-
staðahelli, Hellisbúann, sem lýtur að
verkun og sölu á kjöti sem framleitt
er á búinu. Þar verður verkað
sauða- og lambakjöt, reykt, saltað
og hangið. Jafnframt verða seldar
afurðir af hrossum, saltað og reykt
folalda- og hrossakjöt, ásamt
hrossabjúgum sem verða verkuð á
gamla mátann. Ekki verður notuð
svokölluð sprautusöltun við verk-
unina. Einnig verða verkaðar steik-
ur úr hrossakjöti. Eiður er ekki
óvanur slíkri verkun, en hann hefur
starfað í sláturhúsum og kjöt-
vinnslum á Suðurlandi gegnum ár-
in.
„Það er ekki mín sterkasta hlið að
vinna við tölvur og gera áætlanir í
töflureikni eða vera með Power
Point-kynningar, en Elín Aradóttir
verkefnisstjóri Vaxtarsprota hefur
hvatt mig áfram og veitt mér ómet-
anlega hjálp við þann hluta verkefn-
isins þegar ég var kominn að því að
gefa það upp á bátinn,“ segir Eiður.
Fyrirhugað er að fyrirtækið taki
til starfa haustið 2008, miðað við að
öll leyfi og heimildir til starfsem-
innar liggi fyrir. Reiknað er með að
breyta húsnæði sem fyrir er á staðn-
um í kjötvinnslu, en ekki byggja
nýtt. Öll slátrun fer fram í við-
urkenndum sláturhúsum en mjög
örðugt er að fá leyfi til heimaslátr-
unar.
Eiður og Anna Björg hafa verkað
kjöt og gert tilraunir fyrir heimili
sitt í nokkur ár og hefur gestum og
gangandi líkað vel og hvatt þau til
dáða í þessu sambandi. Nýlega
gengu þau til liðs við verkefnið
„Beint frá býli“ sem er á vegum
Bændasamtakanna og fleiri aðila en
markmiðið með verkefninu er að
stuðla að framleiðslu matvæla á
sveitabýlum og milliliðalausri sölu
þeirra til neytenda. Einnig á að þróa
vörumerki, útbúa leiðbeiningar fyrir
bændur og framkvæma til-
raunaverkefni með þeim.
Hellisbúinn
Kjötvinnsla á gamla mátann
Bændurnir í Hrólfsstaðahelli Eiður Kristinsson og Anna Björg Stef-
ánsdóttir voru að láta fitu- og vöðvamæla gimbrar. Þórey Bjarnadóttir frá
Búnaðarsambandi Suðurlands annaðist mælingarnar.
Í HNOTSKURN
» Meginmarkmið starfsemi Hellisbúans verður að auka verðmætiþeirra afurða sem falla til á búinu í Hrólfsstaðahelli og að fram-
leiða hágæða vöru sem byggist á áralangri reynslu.
» Aukinn áhugi er á heimaunnum matvörum sem byggjast á ís-lenskri hefð.
» Stöðug vaxandi hvatning er frá forsvarsmönnum landbúnaðar áÍslandi og meðal bænda. M.a. stendur yfir verkefnið „Beint frá
býli“ sem styður við framleiðslu og sölu á matvælum heima fyrir og
milliliðalausri sölu til neytenda.
Morgunblaðið/Óli Már Aronsson
FL Group hf. (hér eftir „tilboðsgjafi”) er eigandi að samtals
97,92% hlutafjár í Tryggingamiðstöðinni hf. (hér eftir
„TM”). Tilboðsgjafi hefur tekið ákvörðun um að gera
hluthöfum í TM tilboð um að selja hluti sína í félaginu til
tilboðsgjafa. Um er að ræða valfrjálst yfirtökutilboð, á
grundvelli ákvæða laga um verðbréfaviðskipti nr.
33/2003. Tilboðið er lagt fram á grundvelli nánari
skilmála sem fram koma í tilboðsyfirliti, dags. 29. október
2007, sem hluthafar eru hvattir til þess að kynna sér.
Tilboðsyfirlitið er aðgengilegt á heimasíðu FL Group hf.,
www.flgroup.is, og fæst jafnframt afhent hjá umsjónar-
aðila yfirtökutilboðsins, Fyrirtækjaráðgjöf Glitnis banka
hf., Kirkjusandi 2, 105 Reykjavík. Tilboðsyfirlitið hefur að
geyma samþykkiseyðublað, sem hluthafar skulu ganga
frá og senda með þeim hætti sem þar greinir, ákveði þeir
að taka tilboðinu. Tilboðsyfirlitið er jafnframt sent í pósti
til nafnskráðra hluthafa í Tryggingamiðstöðinni hf.
Tilboðið tekur gildi 31. október 2007 og gildir í fjórar vikur.
Reykjavík, 27. október 2007
Yfirtökutilboð til hluthafa
Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
FL GROUP
Strengjahljóðfæ
ri
Við erumflutt í Síðumúla20
SÍÐUMÚLA 20 · REYKJAVÍK · WWW.HLJODFAERAHUSID.IS · SÍMI 591 5340
KONTRABASSAR · CELLO · FIÐLUR · VIOLUR