Morgunblaðið - 02.11.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2007 19
DAVID Camer-
on, leiðtogi
breska Íhalds-
flokksins, hefur
sínar skoðanir á
sumum styrkjum
til listamanna en
hann þótti kom-
ast heldur
óheppilega að
orði hjá breska
listráðinu nýlega.
Mail On Sunday sagði, að Cam-
eron hefði sagt, að vonandi færi
enginn styrkur til „einfættra, lithá-
ískra lesbía“ en sjálfur segist hann
hafa talað um „einfætta, litháíska
dansara“. Hvort sem er, þá hafa
þessi orð vakið mikla reiði í Litháen
og sendiherra landsins í Bretlandi
hefur mótmælt þeim opinberlega.
Litháar æfir
Cameron
David Cameron
PAUL Warfield Tibbets Jr er látinn
en hann var frægur fyrir að stjórna
B-29-flugvélinni, sem varpaði
kjarnorkusprengjunni á Hiroshima
6. ágúst 1945. Hún varð um 140.000
manns að bana. Hann var 92 ára.
Fyrsta sprengjan
ÞAÐ þótti bylting þegar rafrænu
kortin leystu peningana af hólmi að
mörgu leyti en nú eru þau á útleið
líka. Í Chicago er nú hægt að kaupa
bensín hjá Shell með fingraför-
unum einum.
Rafrænir fingur
LÖGREGLAN í
Lundúnum var í
gær dæmd fyrir
að hafa brotið
gegn lögum þeg-
ar Brasilíu-
maðurinn Jean
Charles de
Menezes var
skotinn til bana í
misgripum fyrir
hryðjuverka-
mann 22. júlí 2005.
Fjölskylda Menezes er ósátt við
dóminn og hyggst halda málinu
áfram, en lögreglan var m.a. dæmd
fyrir brot gegn öryggi þegnanna.
Lögreglan sek
Saklaus Jean
Charles de Menezes
BANDARÍSKUR almenningur er
andvígur því að atvinnurekendur
reki starfsfólk sem er reykinga-
menn eða of þungir, ef marka má
niðurstöður nýrrar könnunar.
Aðeins fjórir af hundraði þeirra
sem tóku þátt í könnun Harris Int-
eractive, sem gerð var fyrir The
Wall Street Journal, töldu réttlæt-
anlegt að reka þá sem ekki vilja
grennast, sjö af hundraði töldu rétt
að reka þá sem ekki vildu hætta að
reykja. Borið hefur á brottrekstri
vegna hvors tveggja vestanhafs,
jafnvel vegna reykinga utan vinnu.
Þá hefur þeim fækkað verulega
sem telja að þeir sem lifa óheil-
brigðu lífi eigi að greiða hærri
sjúkratryggingar, þeir eru 37 af
hundraði nú en voru 53 af hundraði
í fyrra.
Styðja of feita
og tóbaksfíkla
MIKIL mengun fylgir skógareldi
og nú hefur verið reiknað út, að 8,7
millj. t. af koltvísýringi hafi borist
út í andrúmsloftið í eldinum í Kali-
forníu, meira en frá öllum bílum og
orkuverum í Bandaríkjunum.
Eldarnir menga
Til
bo
ði
ð
gi
ld
ir
til
2.
11
.2
00
7
og
a
ðe
in
s v
ið
S
m
ár
at
or
g.
F
yr
irv
ar
i v
ar
ða
nd
i p
re
nt
vil
lu
r o
g
vö
ru
fra
m
bo
ð.
1.999,-
AÐEINS 100 EINTÖK
Í BOÐI. TILBOÐ:
ÞÚ SPARA
R 2.000
,-
1.849,-
AÐEINS 100 EINTÖK
Í BOÐI. TILBOÐ:
ÞÚ SPARA
R 1.850
,-
1.749,-
AÐEINS 100 EINTÖK
Í BOÐI. TILBOÐ:
ÞÚ SPARA
R 1.750,-
749,-
AÐEINS 120 EINTÖK
Í BOÐI. TILBOÐ:
ÞÚ SPAR
AR 750
,-
8.999,-
AÐEINS 30 EINTÖK
Í BOÐI. TILBOÐ:
ÞÚ SPARA
R 9.000
,-
SMÁRATORG 3, 200 KÓPAVOGUR. sími 5500 800
124658
BARBIE HÚS Á 3 HÆÐUM
Með raunsæislegum hljóðum,
mörgum herbergjum og stiga.
Meira en 60 hlutir. Húsið er
90 sm hátt. Notar 3 C-rafhlöður
og 2 E-rafhlöður. Venjulegt
lágvöruverð er 17.999,-
OPIÐ LENGIALLA DAGAVirka daga
10-19
Nema fi mmtudaga 10-21
Laugardaga
10-18
Sunnudaga
12-18
222593
CUSTOM GARAGE
Notar 2 E-rafhlöður.
Margar gerðir í boði.
Venjulegt lágvöruverð
er 1.499,-
431279
DISNEY PRINSESS-KJÓLAR
4 stk. í tösku. Með Öskubusku-,
Mjallhvítar-, Þyrnirósar- og
fegurðardísarkjólum.
Hárband við hvern kjól.
Venjulegt lágvöruverð
er 3.699,-
520824
TOY STORY RAFMAGNS BUZZ
Með flugskeytum og handfall-
byssu. Notar 3 C-rafhlöður.
Venjulegt lágvöruverð
er 3.499,-
531304
PONY HÁRSKERASETT
Pony-fjölskylda sem samanstendur af 2 stórum smáhestum
(30 sm), 2 folöldum (15 sm) og litlum smáhesti (10 sm).
Með síðu tagli og faxi. Innifalið er hárskraut, límmiðar,
greiða, bursti og hárþurrka. Notar 1 C-rafhlöðu.
Venjulegt lágvöruverð er 3.999,-
Bagdad. AP. | Mannfallið í röðum
óbreyttra borgara og bandarískra
hermanna í Írak virðist hafa minnk-
að verulega í síðasta mánuði, sam-
kvæmt samantekt fréttastofunnar
Associated Press. Er þetta í sam-
ræmi við aðrar vísbendingar um að
dregið hafi úr blóðsúthellingunum í
landinu.
Í september létu að minnsta kosti
1.023 óbreyttir íraskir borgarar lífið,
en í síðasta mánuði a.m.k. 875. Er
þetta lægsta tala óbreyttra borgara
sem fallið hafa á einum mánuði und-
anfarið ár, en í október í fyrra féllu
að minnsta kosti 1.216 manns.
Tölurnar byggjast á upplýsingum
frá lögreglunni, sjúkrahúsum, lík-
húsum og staðfestum frásögnum
vitna. Fréttastofan tekur fram að
mannfallið sé líklega meira í raun
þar sem ekki er skýrt frá öllum árás-
unum, einkum utan Bagdad og An-
bar-héraðs.
Mannfallið virð-
ist minnka í Írak
AP
Blóði enn úthellt Bandarískir hermenn á varðbergi eftir sprengjutilræði í
Bagdad. A.m.k. sextán manns biðu bana í árásum í borginni í gær.