Morgunblaðið - 02.11.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2007 23
AUSTURLAND
PÓSTSENDUM
www.islandia.is/~heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Krónan Mosfellsbæ
Nóatún Hafnarfirði
Mjólkurþistill
Styrkir og hreinsar lifrina
Reykjanesbær | Fyrsta glerblást-
ursverstæði á Íslandi sem starfar
fyrir opnum dyrum verður opnað
formlega við athöfn á morgun,
laugardag, kl. 13 til 20. Verkstæðið
er í Grófinni
2, við smá-
bátahöfnina í
Keflavík.
Að Iceglass
standa mæðg-
inin Lárus
Guðmundsson
og Guðlaug
Brynjars-
dóttir en þau ráku verkstæði í Dan-
mörku um langt árabil. Öll fram-
leiðsla fer fram fyrir opnum dyrum
og gestir og gangandi geta því
fylgst með framleiðslunni.
Í tilefni opnunarinnar verður
boðið upp á léttar veitingar. Böðvar
Gunnarsson sýnir eldsmíði og Þor-
björn Einar Gunnarsson myndlist
og hægt verður að fylgjast með
glerblásurum að verki.
Iceglass opnar
verkstæði sitt
SUÐURNES
Grindavík | Menningar- og sögu-
tengd ganga í boði Grindavíkur-
bæjar, Saltfisksetursins og Björg-
unarsveitarinnar Þorbjörns
verður á morgun, laugardag, og
hefst klukkan 13.
Gangan byrjar við nýja sögu-
skiltið af Þórkötlustaðanesinu,
sögusviði sjósóknar og útgerðar.
Skiltið er rétt fyrir ofan gömlu
bryggjuna. Genginn verður stutt-
ur hringur á Nesinu að rústum
Þórshamars og fleiri húsa sem
voru á Nesinu, ýmislegt skoðað
þar og í nágrenninu. Leiðsögu-
menn sjá um fræðsluna. Í lok
göngu er boðið upp á afmæliskaffi
hjá Björgunarsveitinni Þorbirni
við Seljabót.
Gengið um
Þórkötlustaðanes
Reykjanesbær | Einstaklingur hef-
ur fært Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja gjafir að verðmæti um 2,4
milljónir króna á þessu ári. Hjúkr-
unardeildarstjóri segir að þetta sé
með stærri gjöfum sem einstakling-
ur hefur fært stofnuninni.
Sigurður Wíum Árnason kom á
fund stjórnenda og starfsfólks Heil-
brigðisstofnunarinnar 30. október
og færði stofnuninni að gjöf tvær
súrefnissíur og sjúklingalyftara.
Verðmæti gjafarinnar er um 1,6
milljónir kr. Sigurður gefur tækin í
minningu sonar síns, Sveins Wíum,
sem hefði orðið þrítugur þennan
dag.
Fyrr á árinu gaf Sigurður Heil-
brigðisstofnuninni tvær súrefnis-
síur, að verðmæti um 800 þúsund
krónur. Sú gjöf var til minningar
um eiginkonu hans, Bertu Sveins-
dóttur, og soninn Svein Wíum, sem
bæði létust á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja, langt fyrir aldur fram.
Sigurður hefur því gefið stofnun-
inni tæki að verðmæti samtals um
2,4 milljónir króna á þessu ári.
Bryndís Sævarsdóttir, hjúkrunar-
deildarstjóri D-deildar, segir að
það sé með verðmætustu gjöfum
sem einstaklingar hafi fært stofn-
uninni ef ekki sú stærsta.
Súrefnissíurnar eru tæki sem
vinna súrefni úr loftinu með raf-
magni. Þetta eru mun léttari tæki
og meðfærilegri en hinir hefð-
bundnu súrefniskútar sem lungna-,
hjarta- og krabbameinssjúklingar
þurfa stundum að nota. Bryndís
segir að þeir nýtist vel skjólstæð-
ingum heimahjúkrunar og einnig
inniliggjandi sjúklingum, létti þeim
lífið og auki lífsgæði. Sjúklingalyft-
an er sömuleiðis afar fullkomin og
nýtist vel við umönnun sjúklinga.
Ljósmynd/Víkurfréttir
Tæki Sigurður Wíum ásamt framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar og
starfsfólki við afhendingu gjafar. Fyrir framan þau sjást tvö súrefnistæki.
Einstaklingur gefur
verðmæt tæki
Reykjanesbær | „Ég tek þessari
skoðanakönnun fagnandi. Þetta get-
ur orðið leiðarljós fyrir sveitar-
stjórnarmenn að fara eftir,“ segir
Guðbrandur Einarsson, oddviti A-
listans í Reykjanesbæ, um undir-
skriftalista sem Hannes Friðriks-
son, íbúi í Reykjanesbæ, stendur að.
Skorað er á sveitarstjórnarmenn að
tryggja að Hitaveita Suðurnesja
verði áfram í meirihlutaeigu sveit-
arfélaganna og annist áfram sölu og
dreifingu á vatni og rafmagni.
Hannes Friðriksson hefur verið
að kynna undirskriftasöfnun sína og
farið í þeim tilgangi um sveitar-
félögin fimm til að koma listum í
umferð. Kvöldin notar hann síðan til
að ganga í hús. Um miðjan dag í
gær höfðu um 4.500 undirskriftir
borist, meirihlutinn á hefðbundnum
undirskriftarlistum en tæplega 900
á vefsíðunni askorun2007.is.
Hannes segir að söfnunin hafi
gengið ótrúlega vel í byrjun en nú
sé farið að hægjast á. Hann er að
safna liði til að ganga í hús um
helgina. Hannes segir að mikill
áhugi sé í Hafnarfirði á þátttöku og
vonast til að hægt verði að bæta því
sveitarfélagi við. Tekur hann fram
að Hafnfirðingar geti skráð sig á
netinu og hafi einhverjir þegar gert
það.
Almenningur láti heyra í sér
Guðbrandur Einarsson segir að
hingað til hafi umræðan um HS
nánast bara verið á borði sveitar-
stjórnarmanna. Það sé kominn tími
til að almenningur láti heyra í sér.
„Mér sýnist að það muni verða ansi
stór hópur sem skrifar undir. Það
segir okkur að almenningur er sam-
mála þeim málflutningi sem hefur
verið haldið uppi af forsvarsmönn-
um A-listans um að menn ættu að
reyna að beita forkaupsrétti og ná
hitaveitunni aftur til baka.“
Björk Guðjónsdóttir, fulltrúi
Sjálfstæðisflokks og forseti bæjar-
stjórnar Reykjanesbæjar, segist
hafa fundið það að fólk hafi velt
hitaveitumálunum mikið fyrir sér.
„Það er kannski ekki óeðlilegt að
margir skrifi undir,“ segir Björk.
Eins og staðan sé núna sé ekkert
að gerast í málum Hitaveitunnar.
Sér vitanlega hafi ekki komið nein
tilkynning um breytingar á eignar-
haldi. „Það þarf að skoða þetta mál
allt í heild sinni þegar og ef það
kemst hreyfing á það,“ segir Björk.
Um 4.500 íbúar hafa
skrifað undir áskorun
Egilsstaðir | SS-búðin er heiti á
nýrri verslun á Egilsstöðum. Sig-
urlaug Gísladóttir er eigandi henn-
ar og stendur jafnframt vaktina í
búðinni. „Búðin er nefnd í höfuðið á
okkur hjónum, Sigurlaugu og Sig-
urði og var opnuð 6. október sl.,“
segir Sigurlaug. „Þetta hefur verið
draumur minn í 20 ár og eiginmað-
urinn sagðist ekki ætla með mér á
elliheimili þegar þar að kæmi, tuð-
andi yfir því að hafa aldrei látið
drauminn rætast og lagði mér því
lið.“
Silla höndlar með pottablóm, af-
skorin blóm og flest sem viðkemur
blómstrum yfir höfuð. Íslensk
handunnin kerti eru áberandi og
annað íslenskt handverk, glugga-
tjöld, ljósakrónur, silkiblóm, vara
frá Lisbeth Dahl og pólsku söfn-
unarstellin og kristall, svo eitthvað
sé nefnt. Hún selur einnig varning
fyrir börn og gæludýr og allt mögu-
legt sprell og fínirí fyrir afmælis-
veislur og önnur boð.
„Ég er að taka upp jólavörurnar
og margt flott að koma inn þessa
dagana“ segir Sigurlaug og hlakkar
til komandi vikna, enda mikil jóla-
manneskja. Húsnæði verslunarinn-
ar, Kaupvangur 5, á sér langa og
litríka sögu, því þar hefur gegnum
árin verið höndlað með brauð, slát-
ur og mjólk svo eitthvað sé nefnt og
fyrir daga SS-búðarinnar höfðu
vaskir píparar þar aðstöðu sína.
Tveggja áratuga
draumur rætist
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Fínirí Sigurlaug Gísladóttir lét
draum um að eiga verslun rætast.
Neskaupstaður | Nemendur í leikfélaginu Djúpinu í
Verkmenntaskóla Austurlands hófu nýverið vetrardag-
skrá leikfélagsins með eldhressu götuleikhúsi í Nes-
kaupstað. Þau undirbúa nú nýja leiksýningu með leik-
stjóra sínum Snorra Emilssyni, sem og viðburði á degi
íslenskrar tungu og á jólastund skólans á aðventunni.
Ljósmynd/VA
Leikurinn gerjast í Djúpinu
ÞAU sveitarfélög á Austurlandi sem
liggja utan Mið-Austurlands þar sem
þenslan er að mestu leyti, hyggjast
stofna sérstakan verkefnahóp sem
skipaður verði fulltrúum sveitarfé-
laganna, ríkisvaldsins og atvinnu-
veganna. Slíkur verkefnahópur á að
hafa að meginmarkmiði að gera til-
lögur um hvernig stuðla megi að því
að auka möguleika á atvinnuupp-
byggingu á svæðunum utan Mið-
Austurlands.
Unnið er um þessar mundir að
undirbúningi með viðræðum við ríki
og atvinnulíf auk innbyrðis samræðu
í héraði.
Fólksfækkun og ónógar tekjur
Sveitarfélögin sem vilja bindast
samtökum um að efla atvinnulíf á
sínum svæðum eru Vopnafjarðar-
hreppur, Borgarfjarðarhreppur,
Seyðisfjarðarkaupstaður, Breiðdals-
hreppur og Djúpavogshreppur.
Forsvarsmenn sveitarfélaganna
hafa rætt vandamál byggðarlaganna
sameiginlega og segja þau m.a. til
komin vegna fólksfækkunar, ónógra
tekna og fyrirsjáanlegs samdráttar í
kjölfar kvótaskerðingar í þorski.
Grípa til sinna ráða
Jaðarsveitarfélög á Austurlandi leita leiða í atvinnusköpun Djúpivogur | Djúpavogshreppur
hyggst ekki endurnýja samning við
eftirlitsstofnun með fjármálum
sveitarfélaga. Á fundi sveitar-
stjórnar 25. október sl. var bókað að
í ljósi þess að ekki væri sjáanlegur
fjárhagslegur ávinningur fyrir
sveitarfélagið af samningnum yrði
hann ekki framlengdur nema sveit-
arstjórn yrði þvinguð til þess og/
eða fyrir lægi að félagsmálaráðu-
neyti tryggði að gripið yrði til fjár-
hagslegra aðgerða. „Í dag liggur
fyrir að sveitarfélagið mun í bezta
falli njóta jafnræðis við önnur
sveitarfélög sbr. þó löngu úreltar og
ósanngjarnar reiknireglur bæði
hvað varðar úthlutun á svonefndum
1,4 milljörðum og fjárhagslegan
stuðning Jöfnunarsjóðs sveitarfé-
laga eins og honum er beitt í dag til
að viðhalda sveltistefnu í garð
ákveðinna sveitarfélaga, einkum ut-
an vaxtarsvæða“ segir í bókuninni.
Sveltistefna Jöfnunarsjóðs