Morgunblaðið - 02.11.2007, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.11.2007, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. MÁLEFNALEGUR SIGUR Svandís Svavarsdóttir, borgar-fulltrúi Vinstri grænna og odd-viti stýrihóps um málefni Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavík Energy Invest, hefur unnið mikinn málefnalegan sigur með þeirri nið- urstöðu borgarráðs í gærmorgun að hafna samruna Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy og þjónustusamningi Orkuveitunnar og REI, eftir að í ljós var komið, hvern- ig unnið hafði verið að þessum sam- runa og samningum. Þessi niðurstaða er líka mikill sig- ur fyrir þá sex borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins, sem neituðu að fall- ast á þann málatilbúnað, sem hafður hafði verið uppi í málinu. Niðurstaðan er hins vegar mikill ósigur fyrir Björn Inga Hrafnsson, borgarfulltrúa Framsóknarflokks- ins, sem rauf meirihlutasamstarf við Sjálfstæðisflokkinn vegna þess, að hann vildi ekki una niðurstöðu af því tagi, sem nú er að verða að veruleika. En auðvitað átti borgarfulltrúi Framsóknarflokksins engra kosta völ. Hann verður að sitja og standa eins og samstarfsaðilum hans hentar. Jafnframt er athyglisvert, að Sam- fylkingin og borgarstjóri hennar eru engir gerendur í þessu máli. Þeir fljóta með og fylgja forystu borgar- fulltrúa Vinstri grænna. Nú á eftir að koma í ljós hver næstu skref verða en Svandís hefur unnið fyrstu lotuna. Gera má ráð fyr- ir því, að borgarfulltrúi Framsókn- arflokksins geri tilraun til að koma málum í sama farveg og áður og ekki er ólíklegt að borgarfulltrúar Sam- fylkingar muni hafa uppi tilburði til að styðja hann í þeirri viðleitni. Það er hins vegar alveg ljóst, að þeir hafa enga möguleika á að knýja þá niðurstöðu fram, einfaldlega vegna þess að ganga má út frá því sem vísu, að bæði Svandís Svavars- dóttir og Margrét Sverrisdóttir muni standa gegn því. Það fer ekki á milli mála, þegar lesið er á milli lína, að stýrihópnum og fleirum ofbýður það, sem þeir hafa séð af vinnubrögðum forsvars- manna Orkuveitunnar. Þess vegna hefur verið ákveðið að stjórnsýsluút- tekt verði gerð á Orkuveitu Reykja- víkur. Slík ákvörðun hefði ekki verið tekin nema vegna þess, að stýrihópn- um hefur ekki litizt á blikuna, þegar fulltrúar í honum fóru að kíkja undir teppi og opna lokaðar skúffur. Það þarf ekki að kafa djúpt ofan í þetta mál til þess að sjá, að það er kvennaveldið í öllum flokkum, sem hefur tekið höndum saman um að lofta út í húsakynnum Orkuveitunnar og það rækilega. Sennilega er þetta mál eitt skýr- asta dæmið, sem upp hefur komið, um að konur vinni öðruvísi í pólitík en karlar og kannski tími til kominn að það kæmi í ljós. En um leið skiptir máli, að þær standi sig alveg til loka í þessu máli og láti ekki undan margvíslegum þrýstingi, sem þær verða áreiðan- lega fyrir þessa dagana. Kaupsýslu- mennirnir gefast ekki upp baráttu- laust. SJÁLFSTÆÐUR SEÐLABANKI Bankastjórn Seðlabanka Íslandskom öllum að óvörum með til- kynningu um hækkun stýrivaxta um 0,45% í gærmorgun. Ljóst er að fáir, ef nokkrir, bjuggust við slíkri ákvörð- un. Viðbrögðin hafa ekki verið jafn hörð og neikvæð og búast hefði mátt við. Greiningardeildir bankanna sýn- ast að einhverju leyti taka undir með Seðlabankanum um að vaxandi hætta sé á aukinni verðbólgu. Samtök at- vinnulífsins eru hins vegar hörð í gagnrýni sinni á aðgerðir Seðlabank- ans. Ekki verður annað séð en Seðla- banki Íslands beiti sömu aðferðum við að ná markmiðum sínum varðandi verðbólgu og seðlabankar í öðrum löndum. Bankarnir hækka eða lækka stýrivexti eftir því hver staðan er í nánasta umhverfi þeirra. Við Íslendingar erum ekki vanir seðlabanka, sem tekur sjálfstæðar ákvarðanir. Yfirleitt hefur Seðla- banki Íslands tekið ákvarðanir í meira samráði við ríkisstjórn en nú. Og stundum hefur Seðlabankinn fylgt í kjölfar ríkisstjórna. Það er orðið nokkuð ljóst, að Seðla- banki Íslands undir forystu Davíðs Oddssonar, fyrrverandi forsætisráð- herra, vinnur á annan veg en Seðla- bankinn hefur áður gert. Menn getur greint á um hversu heppilegt það er. Á þeim árum þegar Seðlabankinn fylgdi í kjölfar ríkisstjórna gætti gagnrýni á það að bankinn væri ekki sjálfstæðari í ákvörðunum. Nú þegar bankinn er augljóslega orðinn sjálf- stæður í ákvörðunum og fylgir ekki línu frá ríkisstjórn í einu og öllu má heyra gagnrýnisraddir á þá háttsemi. Í Bandaríkjunum er hefð fyrir mjög sjálfstæðum seðlabanka og þar er það talið efnahagslífinu til fram- dráttar að svo sé. Það er áreiðanlega gagn að því fyr- ir okkur Íslendinga að prófa það fyr- irkomulag, að Seðlabankinn taki sjálfstæðar ákvarðanir og fylgi sann- færingu sinni. Það skapar ákveðið jafnvægi í ákvörðunum um efnahags- mál og tryggir að ríkisstjórnin hefur hæfilegt aðhald frá aðila, sem hefur mikla burði, eins og Seðlabankinn hefur. Þeir, sem eru ósammála Seðla- bankanum, munu að sjálfsögðu beina spjótum sínum að honum og formanni bankastjórnar Seðlabankans. Slíkt aðhald er líka gott fyrir Seðlabank- ann, sem auðvitað má ekki verða ríki í ríkinu, enda tæpast hætta á því vegna þess að möguleikar hans til þess að hafa áhrif á þróun efnahagslífsins eru einfaldlega ekki svo margir. Þetta verður spennandi tilraun næstu misserin. Þá kemur í ljós, hvort mjög ákveðin aðhaldsstefna Seðlabankans í efnahagsmálum skil- ar þeim árangri, sem að er stefnt. Áhrif Seðlabankans til lengri fram- tíðar markast mjög af því, hvort hann nær þeim árangri, sem að er stefnt. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eftir Rúnar Pálmason og Silju Björk Huldudóttur Stýrihópur borgarráðs um samrunaReykjavik Energy Invest (REI) ogGeysir Green Energy (GGE) hefur kom-ist að þeirri niðurstöðu að málsmeðferð og ákvarðanataka í samningaferli um sameiningu REI og GGE kunni að orka verulega tvímælis og sé ekki hafin yfir vafa. Málsmeðferðin sé því verulegt áfall fyrir stjórnsýslu Reykjavíkurborg- ar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í bréfi stýrihópsins sem lagt var fyrir borgarráð í gær. Í bréfinu voru lagðar fram þrjár tillögur og voru þær allar samþykktar í borgarráði. Í fyrsta lagi fellst borgarráð ekki á samruna REI og GGE og telur jafnframt að þjónustusamningur Orku- veitu Reykjavíkur og REI sé óviðunandi. Í öðru lagi telur borgarráð að eigendafundur OR 3. október sl. og þær ákvarðanir sem þar voru tekn- ar séu háð miklum annmörkum og mikill vafi leiki á um lögmæti fundarins. Í þriðja lagi samþykkir borgarráð að beina því til fulltrúa borgarinnar í stjórn OR að ljúka málinu í samræmi við þessa niðurstöðu borgarráðs. Engin rök sem réttlæti málshraða Borgarráð samþykkti einnig þær tillögur stýri- hópsins að innri endurskoðun Reykjavíkur verði falið að gera stjórnsýsluúttekt á OR. Úttektinni er ætlað að ná til a.m.k. stjórnskipulags og ábyrgðar verkefna, en fara á yfir hvort ábyrgð og hlutverk stjórnar, stjórnenda og starfsmanna séu skýr, endurspeglist í skipuriti og samræmist rekstrarlegri umsýslu og ábyrgð. Jafnframt á að fara yfir hvernig OR hafi staðið að stofnun félaga og hvernig eftirliti með slíkum félögum sé háttað. Loks á að leggja mat á fyrirkomulag innra eft- irlits. Í fyrrnefndu bréfi stýrihópsins segir, að engar haldbærar skýringar eða rök hafi komið fram sem réttlæti þann hraða sem viðhafður hafi verið í málinu og leiddi til þess að reglur um boðun eig- Áfall fyrir stj Kalla eftir stjórnsýsluúttekt á OR Borgarráð fel Borgarráð samþykkti allar tillögur stýrihóps um samruna REI og GGE „ÞAÐ eru allir sam- mála. Það eru allir íslenskir stjórn- málaflokkar sam- mála um þessa nið- urstöðu,“ sagði Svandís Svav- arsdóttir eftir að borgarráð hafði ein- róma samþykkt til- lögur stýrihóps um að hafna samruna Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy og að láta fara fram stjórnsýsluúttekt á Orkuveitu Reykja- víkur (OR). Með þessari þverpólitísku sátt væri brotið blað í íslenskum stjórnmálum. Svandís sagði að forsendurnar fyrir að hafna samrunanum væru fyrst og fremst tvær. Í fyrsta lagi væri ljóst að allar reglur hefðu verið þverbrotnar, umboð farið fyrir ofan garð og neðan auk þess sem kynningu og opinberri umræðu hefði verið verulega ábóta- vant. Þetta væri í raun eitt og sér til- efni til að taka allan gjörninginn upp. „Þetta verkefni kann að vera gott og fela í sér sóknarfæri og góðar hug- myndir. En við sem fulltrúar almenn- ings getum aldrei sætt okkur við að svona ákvarðanir séu teknar á grund- velli nánast engra upplýsinga,“ sagði hún. Hin meginröksemdin væri efn- isleg og varðaði meiru en hún lyti að 20 ára þjónustusamningnum sem OR gerði við REI. Kann að verða óaðgengileg Aðspurð um hugsanlega skaðabóta- ábyrgð borgarinnar vegna þessarar ákvörðunar sagði Svandís að þetta væri besta niðurstaðan fyrir alla og langbest væri ef sátt tækist um málið. „Hins vegar er það þannig að þessi lína sem við erum að draga hér með afstöðu okkar í borgarráði kann að verða óað- gengileg fyrir einhverja aðila og ef þeir kjósa að leita réttar síns þá verða þeir að gera það. En ég mundi vilja sjá það að fjárfestar og aðrir aðilar sem koma að þessu máli áttuðu sig á því að al- menningur gerir þessa kröfu sem við erum að reisa hér í borgarráði í dag.“ Borgarráð samþykkti að fela stjórn OR að ljúka málinu í samræmi við þá nið- urstöðu sem samþykkt var á fundinum í gær og sagði Svandís að stjórnin kynni að gera það með ýmsum hætti en borgarráð tæki ekki afstöðu til þess hvernig það yrði gert. Allir eru sammála BJÖRN Ingi Hrafnsson, borg- arfulltrúi Fram- sóknarflokksins, sagði að alls ekki væri hægt að líta svo á að niðurstaða borgarráðs þýddi að stefna hans varð- andi sameiningu REI og GGE hefði beðið skipbrot. Stefna hans hefði byggst á að Orku- veita Reykjavíkur ætti að taka þátt í út- rásinni en í ljósi þess að fram hefðu komið upplýsingar um að ekki hefði verið staðið rétt að samruna fyrirtækj- anna hefði verið nauðsynlegt að byrja með hreint borð. Hann hefði jafn mikla trú og áður á því að OR ætti að taka þátt í útrásinni. Björn Ingi hefur m.a. sagt að Reykjavíkurborg gæti hagnast um marga milljarða á samruna REI og GGE. Hann sagði aðspurður að ekki væri sárt fyrir hann að sjá á eftir þeim fjármunum, úr því formgallar hefðu verið á málinu hefði verið nauðsynlegt að taka málið upp á nýjan leik. Innanhússvandamál Sameining REI og GGE var skerið sem samstarf Framsóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks í borgarstjórn steytti á. Aðspurður hvort hann hefði getað kom- ist að þessari niðurstöðu, að hafna sam- runanum, með Sjálfstæðisflokknum, sagði hann að sjálfstæðismenn hefðu komist að þeirri niðurstöðu að selja ætti REI tafarlaust. Því hefði hann ekki verið sammála. Spurður hvort hægt hefði verið að ræða um þetta, að reyna að ná samkomulagi, sagði Björn Ingi: „Það hefur blasað við síðustu daga og vikur það ósætti sem er innan borg- arstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins og það var ekki verkefni þessarar þver- pólitísku nefndar að rannsaka hvers vegna og hvenær meirihlutinn í Reykjavík sprakk.“ Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa lýst því yfir að þeir hafi, áður en meirihlutinn sprakk, ekki haft allar þær upplýsingar sem síðar komu fram, t.d. ekki um fyrrnefndan 20 ára samn- ing. Björn Ingi sagði að þessar upplýs- ingar hefðu legið fyrir og borgarstjóra verið kunnugt um hann. Ef borg- arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hefðu ekki vitað um hann væri það þeirra inn- anhússvandamál. Ekkert skipbrot D e a m b a á v a REI og GGE hefði þess. Þetta væri au skref til að OR gæt áfram en á nýjum f Dagur sagði aðsp hefðu verið í stýrih og samstaða ríkt um hlutans. „En ég ætl úr því að auðvitað e anfarinna vikna það þetta er unnið við m umstæður. Og ég te Svandísi Svavarsdó þessa breiða hóps, m til sameiginlegrar n að það komi í raun m hvað þetta hefur ge Dagur sagði að e verið yfir málið hef fella samruna REI lagi hefði leikið svo mæti eigendafunda það hefði verið óhjá af skarið og í öðru l an af samrunanum væri að halda áfram um forsendum. Dagur vildi ekki ingar um hvernig O rás framvegis. „Við ur tíma til að finna samstarfsform sem árangri í þessari út Samstarf við einkaa lega til greina en ha yrði gert á sömu for fyrir í samruna RE Spurður um hugs skyldu borgarinnar hefði verið yfir mál legum lögfræðilegu hvort fyrir lægi lög efnis að borgin vær skyld, sagði Dagur tekin að mjög yfirv tók fram að ákvörðu beindist ekki gegn hvorki stjórnenden fjárfestum sem tók REI og OR. Endur uð útrá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.