Morgunblaðið - 02.11.2007, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 02.11.2007, Qupperneq 34
34 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Geirfinna Guð-rún (Geira) fæddist á Akranesi 8. júlí 1958. Hún andaðist 29. október síðastliðinn. For- eldrar hennar eru hjónin Margrét Jó- mundsdóttir hús- móðir og bóndi, f. 27.7. 1935, og Óli Ragnar Jóhannsson fyrrverandi verk- stjóri hjá Vegagerð- inni, f. 12.9. 1926, í Klettstíu í Borg- arfirði. Bræður Geirfinnu eru: a) Jómundur, f. 18.8. 1959, í sambúð með Guðríði Áskelsdóttur, Jó- mundur og Þórdís Reynisdóttir eiga þrjú börn og tvö barnabörn; b) Eiður, f. 25.2. 1963, kvæntur Guðrúnu Sigurjónsdóttur, þau eiga 3 börn; og c) Elvar, f. 26.4. 1969, kvæntur Þórhildi Þorsteins- dóttur, þau eiga tvö börn. Dætur Geirfinnu og Gunnlaugs Ingvarssonar, f. 18.11. 1955, eru Líf, f. 3.1. 1984 og Tinna, f. 21.1. 1985. Sonur Tinnu og Erlings Jacks Guðmundssonar er Eiður Jack Erlingsson, f. 28.4. 2005. Að lokinni hefðbundinni skóla- göngu lá leið Geiru til Danmerkur þar sem hún stundaði nám við lýðháskóla. Sumarvinnu stundaði Geira á mörgum stöðum, m.a. við ferðalögum og fór meðal annars í heimsreisu með vinkonu sinni, en Danmörk var það land sem var í mestu uppáhaldi hjá henni. Geira var einstaklega góður starfskraftur, samviskusöm og dugleg og eftirsótt af öllum þeim sem til starfa hennar þekktu. Á ár- unum 1994-1997 vann Geira á leik- skólanum Árborg þar sem hún hafði starfað áður. Þar hafði hún umsjón með litlum dreng, Hilmari, sem á við fötlun að stríða. Milli þeirra tókst ákaflega góð vinátta og Geira tók að sér liðveislu fyrir drenginn og hitti hann mán- aðarlega allt þar til hún veiktist. Árið 2001 var Geira ráðin til Al- þingis og gegndi þar starfi ritara þingflokka þar sem reynir á trún- að og þjónustulund. Hún naut sín í því starfi og hvað eftir annað kom fram einlæg væntumþykja hennar til þess fólks sem hún starfaði þar með og fyrir. Geira var stolt af sín- um dætrum og lét sér mjög annt um að búa þær sem best undir líf- ið. Fyrir tæpum þremur árum kenndi Geira fyrst þess meins sem nú hefur lagt hana að velli. Hún gerði sér fulla grein fyrir að hverju stefndi og sýndi einstakan dugnað og styrk allt þar til yfir lauk. Útför Geiru fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Sumarhótelið að Bif- röst í Borgarfirði. Hún var því öllum hnútum kunnug á þeim stað er hún hóf nám við Samvinnu- skólann á Bifröst 1979. Þaðan útskrif- aðist hún 1981, en að skóla loknum bauðst henni að fara í starfs- nám á vegum Sam- bands íslenskra sam- vinnufélaga, sem var í senn fjölbreytt og eftirsótt og aðeins örfáum nemendum frá Bifröst gafst kostur á að stunda. Geira hóf sambúð með Gunnlaugi Ingv- arssyni á Djúpavogi 1982 þar sem þau eignuðust báðar dæturnar. Þau slitu samvistum árið 1989. Haustið 1988 hóf Geira nám í gull- smíði hjá Dýrfinnu Torfadóttur á Ísafirði og lauk sveinsprófi í Kaup- mannahöfn 1992. Geira var afar listfeng; teiknaði og málaði og skrautritun hennar vakti aðdáun. Sérstaklega unni hún gullsmíðinni og naut þess tíma sem hún vann við þá atvinnugrein, fyrst hjá Dýr- finnu á Ísafirði en seinna hjá Gull og Silfur í Reykjavík. Geira var söngelsk og hafði gaman af tón- list, söng um tíma með hljóm- sveitum og tók þátt í kórastarfi. Hún hafði gaman af hvers konar Elsku mamma. Núna ertu farin á fallega staðinn sem við ræddum um síðustu dagana áður en þú fórst og ert frjáls úr líkamanum þínum sem var farinn að kvelja þig svo mikið. Ég á eftir að sakna þín svo virkilega mikið, elsku mamma, því að þú varst svo frábær. Ég er svo heppin að hafa átt þig að og fengið að njóta þín í tuttugu og þrjú ár, þó að við hefðum svo gjarnan viljað hafa þau svo miklu fleiri ef aðstæður hefðu verið aðrar. Þú kenndir mér svo margt frá fyrsta degi, mamma. Þú kenndir mér að vera gagnrýnin á það sem öðrum þótti sjálfsagt, þú kenndir mér að tala fallegt mál, þú kenndir mér að „hygge mig“, þú kenndir mér að bera virðingu fyrir náttúrunni og náunganum, þú kenndir mér að standa með sjálfri mér og vera sjálfri mér trú, þú kenndir mér á lífið. Ég veit líka að þú átt eftir að kenna mér heilmikið ennþá þrátt fyrir að þú sért ekki hérna enn, ég veit að þú fylgist með okkur og munt alltaf verða ljósið sem lýsir fyrir mig í líf- inu. Þú varst svo góð í að búa til fal- legar stundir sem ég á í hjartanu, mamma, öll jólin og hátíðirnar voru sveipuð svo hátíðlegum blæ hjá þér og þú lagðir alltaf allt þitt í að gera hvert augnablik ómetanlegt. Ég er þakklát fyrir það, mamma mín. Ég er svo ánægð að hafa fengið að segja þér svo oft hvað mér þótti mik- ið vænt um þig á hverjum einasta degi síðasta árið og standa með í gegnum þessi veikindi sem þú sigr- aðir sjálf, mamma, þó að þau hafi á endanum tekið líkamann þinn. Þú hafðir svo mikinn styrk sem skein í gegn í veikindunum í lokin, ég skil ennþá ekki hvaðan þú fékkst þennan styrk og þetta æðruleysi til að takast á við aðstæðurnar á þann máta sem þú gerðir að lokum þegar okkur hafði verið gerð grein fyrir því hvert stefndi. Þegar þú fórst, mamma, þá byrj- aði strax að snjóa. Það hafði verið rok og rigning í marga daga en þarna á þessari stundu kom fallegur snjór niður til jarðar og lognið og allt varð hljótt. Ég sakna þín svo ótrúlega mikið, mamma mín. Þín dóttir, Líf. Geira hafði þann sérstaka eigin- leika að laða að sér fólk, einfaldlega vegna þess hvernig hún var. Hún var vinsæl, hvort sem var í vinahópi eða hjá starfsfélögum. Hún var sam- viskusöm og það sem hún tók að sér gerði hún vel. Við minnumst Geiru aðeins að góðu einu. Umhyggjusemi Geiru í garð barna okkar, púkanna – eins og hún kallaði þau gjarnan – var mikil og var hún sífellt að gauka að þeim einhverju sem hún vissi að myndi gleðja þau. Það leyndi sér aldrei frá hverjum pakkarnir voru, handbragðið á inn- pökkuninni og innihaldið sjálft var alltaf svo „Geirulegt“ það er fínlegt og flott. Geira lærði gullsmíði og þegar hún var í skólanum í Kaup- mannahöfn var eitt af verkefnunum að skila tveimur teikningum. Kenn- arinn hafði sett viðfangsefnið fyrir og sagði nemendunum síðan hverj- um og einum hverju væri ábótavant hjá þeim. Lýsingarorðið sem hann hafði um teikningar Geiru voru eftir að hafa skoðað þær gaumgæfilega var einfaldlega: óaðfinnanlegt. Það er það orð sem við kjósum einnig að gefa handverki Geiru, sama hvort um var að ræða saumaskap, teikn- ingar, skrautskrift, kortagerð, gull- smíði eða annað sem hún tók sér fyr- ir hendur. Geira unni gömlum munum og fann oft margvíslegt notagildi fyrir hluti sem aðrir sáu ekki. Bruðl og só- un var henni ekki að skapi en uppfull af hugmyndum gengu til dæmis steypustyrktarjárn, símakúlur og rekaspýtur í endurnýjun lífdaga og fengu nýtt hlutverk í höndum Geiru. Inn í íbúð Geiru þvældist í haust húsfluga sem Geira ákvað að friða. Það var mikið gert grín að þessari húsflugu sem enn flýgur friðuð um íbúðina. Ástæða friðunarinnar var sú að suðið í flugunni minnti Geiru á ferðir í berjamó en að tína ber og njóta náttúrunnar var eitt það skemmtilegasta sem hún gerði. Við vonum að blágresi og berjamór sé allt í kringum Geiru á nýjum dval- arstað og að náttúran skarti sínu fegursta. Okkar innilegustu þakkir til allra sem hjálpuðu við að gera Geiru lífið bærilegra í veikindum hennar. Eiður bróðir og Guðrún. Það er mynd á vegg í stofu okkar hjóna sem okkur þykir vænt um. Við höfum átt hana í tæp 30 ár og hún minnir á þann tíma er við dvöldum á Bifröst. Þetta er teikning og fyrir- myndin er bókahilla Geiru eins og hún sá hana við lestur úr stólnum í herbergi sínu. Hverju atviki, bókum sem öðrum hversdagslegum hlutum, eru gerð skil í smáatriðum. Línurnar eru fínlegar og þótt margar séu ald- eilis örfínt dregnar eru þær samt svo skýrar og skera sig örugglega úr á hvítum bakgrunninum. Myndin ber listfengi höfundarins vitni en minnir í senn á höfundinn sjálfan, hana Geiru. Svo sannarlega var hún fínleg en jafnframt skýr í skoðunum og hugs- unum. Hún var öllum hnútum kunnug á Bifröst, þar sem hún hafði unnið þar áður en hún hóf þar nám. Fyrir kennarann virkaði hún hlédræg en greinilega ákveðin og þroskaður per- sónuleiki. Eftir Bifrastardvöl lágu leiðir oft saman og með okkur hjónunum og Geiru þróaðist samband sem varð að einlægri vináttu, og traust hennar til okkar, ekki síst nú síðustu mánuðina þegar ljóst var að hverju stefndi, var langt umfram það sem við áttum von á. Svo sannarlega munum við reyna að standast hennar væntingar hvað það allt varðar. Já, Geira skar sig frá fjöldanum, falleg og fíngerð en samt svo und- ursterk. Af miklum dugnaði og út- sjónarsemi tókst henni að búa sér og dætrum sínum alla tíð fallegt heimili og eigið húsnæði. Síðustu íbúðar- kaupunum gekk hún frá fyrir fáein- um vikum, – búin að líkama en með fulla hugsun og framtíðarsýn. Hag dætra sinna og litla dóttursonarins bar hún fyrir brjósti, hún vildi gera þeim sem best veganesti til lífsins göngu. Já, stolt getur þessi litla fjöl- skylda varðveitt minningu móður og ömmu. Enginn þarf að fara í grafgötur um hve mikið áfall það var henni og dætrunum er ljóst var að lífsgöng- unni lyki senn. Þá sem aldrei fyrr reis Geira upp og nú í öllu sínu veldi. Hún kaus að undirbúa brottförina, ganga frá hlutum á þann veg sem hún vildi og taldi bestan. Hnarreist mætti hún örlögum sínum og þrátt fyrir að eitthvað væri óljóst í hennar huga hvað biði hennar, óttaðist hún ekkert. Við sem trúum á eilíft líf og náð Jesú Krists, hins upprisna sonar Guðs, vitum að hjá honum er henni búinn staður. Nú er leiðir skilja er okkur hjón- um efst í huga innilegt þakklæti til Geiru okkar fyrir tryggð hennar, vináttu og allar góðar stundir. Um leið og við biðjum henni blessunar Guðs óskum við þess að dætur henn- ar og dóttursonur megi erfa ríkulega þá góðu eiginleika sem Geira hafði til að bera. Elsku Líf, Tinna og Eiður Jack. Lífið heldur áfram og nú varðveitið þið minningu um einstaka mömmu og ömmu sem þið munið alltaf eiga. Guð blessi ykkur og veiti ykkur styrk jafnt á þessum erfiðu dögum sem um alla framtíð. Níels Árni og Kristjana. Geira sagði við mig stuttu áður en hún lést: „Ég er tilbúin að yfirgefa partíið og þakka fyrir mig.“ Þessi orð eiga vel við því Geira var við stjórnvölinn í sínu lífi eins og hægt var fram á síðasta dag. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að taka þátt í sumum köflum lífs hennar því það hefur gert mig ríkari. Listakonan og handverkskonan Geira var dugnaðarforkur. Hún var lærður gullsmiður og það lék allt í höndunum á henni. Eitt af uppá- haldshálsmenunum mínum er henn- ar verk, gjöf frá sameiginlegum starfsfélögum. Geiru kynntist ég ár- ið 1995 er ég hóf störf á leikskólanum Árborg. Þar komu hæfileikar hennar og áhugi að góðu gagni. Hún var hrifin af franskri menningu og í til- raunaverkefni í leikskólanum um fjölmenningu, þar sem hin ýmsu lönd og menning þeirra var kynnt, sá Geira um að setja upp frönsku vik- una. Þar æfðu börnin nokkur orð á frönsku, lesin voru frönsk ævintýri, sungin frönsk lög, franskur matur var á borðum, myndband sýnt um Frakkland og leikskólinn skreyttur í frönskum stíl. Franska vikan í hönd- um Geiru varð ótrúlega flott og bar hugmyndaríki hennar og samvisku- semi merki. Geira hafði ekki bara áhuga á franskri menningu heldur var Dan- mörk og dönsk menning henni hug- leikin enda talaði hún reiprennandi dönsku eftir að hafa dvalið þar af og til við nám. Það var yndislegt að skreppa með henni og dætrum henn- ar, Tinnu og Líf, til Kaupmannahafn- ar í sumar sem leið. Hún var ótrú- lega borubrött þrátt fyrir veikindin og þvældumst við m.a. um Strikið og á kaffihús borgarinnar og nutum mannlífsins. Hér heima var það sama uppi á teningnum. Hún var „kaffihúsakúnstner“ í mínum aug- um, hún naut þess að anda að sér kaffihúsamenningunni í Reykjavík, þekkti öll kaffihús bæjarins og ég var svo heppin að fá að njóta þess margoft með henni. Geira var traustur vinur og ég er þakklát fyrir vinskap okkar. Ég votta dætrum, foreldrum og öðrum ástvinum innilega samúð. Hjördís Fenger. Geira vinkona mín og skólasystir frá Bifröst er nú látin en mun lifa áfram í börnum sínum og barna- börnum eins og hún komst sjálf að orði. Vinskapur deyr ekki og minn- ingar mínar um Geiru verða dýr- mætur og lærdómsríkur hluti af lífi mínu um ókomna framtíð. Ég kynnt- ist Geiru fyrir tuttugu og átta árum í Samvinnuskólanum Bifröst en þar vorum við herbergisfélagar tvo vet- ur, við kynntumst vel og komumst að því að við áttum mörg sameiginleg áhugamál. Eftir að skólanum lauk skildu leiðir og lífsbaráttan tók við hjá okkur flestum. Ég heimsótti Geiru á Ísafjörð þeg- ar hún var í gullsmíðanámi hjá Dýr- finnu Torfadóttur og það fór ekki milli mála hve vel hún naut sín í því fagi. Við töluðum um að við ættum að hittast oftar en tíminn líður og við grínuðumst seinna með að við mynd- um verja eftirlaunaárunum í að sinna sameiginlegum áhugamálum. Fyrir ári síðan þegar ég heimsótti Geiru var hún orðin mjög veik og ljóst að engin lækning væri til. Hún var þess fullviss að hún myndi aldrei framar fara niður á Laugaveg né gera nokkurn hlut framar að gagni. Það má segja að það hafi verið kraftaverk þegar Geira ákvað að lifa þótt hún væri að deyja. Hún ákvað að skipuleggja tvo daga fram í tím- ann og einbeita sér að því að gera eitthvað skapandi heima við, festa silkiborða á stólasessur sem hafði ekki verið komið í verk eða breyta gamalli flík. Ég bauðst til að koma á þriðjudög- um sem heimilishjálp en þegar upp var staðið þá fékk ég aldrei að taka sóp í hönd því við höfðum um svo margt að tala. Heimspeki, trúmál, matargerð, hönnun og handverk var helsta umræðuefnið og þá mánuði sem best lét vorum við á ýmsum kaffihúsum. Skemmtilegast fannst Geiru að fara og fá sér kaffi í Salt- félaginu og skoða hönnun í leiðinni en Geira hafði augastað á mjög sér- stökum sófa þar. Það var hin einstaki hæfileiki Geiru til að finna sér ný og ný áhugaverð verkefni og njóta hverrar góðu mínútu sem hún fengi, sem er svo fágætur og hvetjandi. Geira stóð í þeim stórræðum að selja íbúðina sína á Framnesvegi og flytja aðra minni og hentugri í sömu götu. Nýja íbúðin er einstaklega falleg og ber vitni um einstæðan smekk henn- ar sem endurspeglar persónuleika hennar, áhugann fyrir framsækinni hönnun í bland við nánast fagur- fræðilega nægjusemi og nýtni. Síð- ustu verkefni Geiru voru á sviði kortagerðar þar sem skriftar-, teikni- og hönnunarhæfileikar henn- ar nutu sín. Geira hélt áfram að búa til kort eftir að hún var lögð inn á líknardeild þar sem hún kom sér upp örlitlu vinnuborði. Í síðasta skipti sem ég hitti Geiru hjálpuðumst við að við að gera eitt kort sem varð það síðasta og vísaði til litlu flugunnar sem sem flutti inn til hennar í nýju íbúðina og varð uppspretta margra hugleiðinga um lífið og tilveruna. Það verða nú ekki fleiri þriðjudag- ar með Geiru sem hafa nú verið fast- ur liður hjá mér í heilt ár. Ég get ekki verið annað en þakklát fyrir að hafa haft tækifæri til þessara sam- vista, tækifæri til að kynnast dætr- um hennar, móður og ekki síst auga- steininum hennar Geiru, litla ömmubarninu Eiði Jack. Elsku Margrét, Líf og Tinna og aðrir vandamenn. Ég samhryggist ykkur af heilu hjarta og þakka ykkur ánægjuleg kynni á liðnu ári. Þóra Þórisdóttir. Á okkar lífsins leið fáum við stund- um að njóta þess að kynnast fólki sem er mjög ljúft að umgangast, ein- staklingum sem gefa þeim sem það velur sér að vinum umhyggju og ást. Ég var svo lánsamur að elskan hún Geira mín var ráðin ritari okkar þingmanna í Vonarstræti 12. Við urðum samstarfsmenn í mörg ár og nánir vinir. Ávallt var hún tilbúin að leysa þau verk sem beðið var um, hvort sem um ritvinnslu eða upplýs- ingaöflun sem á þurfti að halda vegna starfsins væri að ræða, þó oft væri óskað verka á hlaupum eins og sagt er eða símleiðis utan af landi. Það var góður starfsandi í Von 12 þar sem Frjálslyndir og Vinstri grænir voru saman til húsa í átta ár. Oft var glatt á hjalla, sungið og sagð- ar sögur. Gleði og gamansemi á góðri stund var henni Geiru minni í blóð borin og þannig verður hún í mínum huga ætíð. Mér brá illa og leið ekki vel þegar hún sagði mér að hún hefði greinst með krabbamein en vissu- lega var hún vongóð um bata og þess bað ég að Geira næði heilsu á ný. Hugrekki hennar og vilji í baráttu við sjúkdóminn var mikill, samt vissi hún lengi að hverju dró. Ég dáðist oft að henni Geiru minni á þessari erfiðu vegferð og tár féllu á stein þegar ég gekk burt úr heimsókn á heimili hennar. Geira naut stuðnings og um- hyggju barna sinna og sólargeislinn var dóttursonurinn. Ég færi þeim, foreldrum og systkinum mínar inni- legustu samúðarkveðjur og bið þeim Guðs blessunar í sorginni við missi Geiru, minnar elskulegu vinkonu. Guðjón A. Kristjánsson. Kynni okkar bar að án nokkurs fyrirvara. Ég fékk hringingu að sunnan, hvort möguleiki væri á að ég tæki nema í gullsmíði, hún væri ein- stæð móðir með tvær ungar dætur. Mér fannst það svo sem ekki tiltöku- mál en sagði að ég ætti nú erfitt með þetta gegnum síma. Næstu helgi var hún komin vestur á Ísafjörð í kynn- isferð með fallegu dæturnar sínar tvær, Líf og Tinnu. Þannig hófst samstarf og vinátta okkar Geirfinnu Óladóttur sem ég fylgi til grafar í dag. Þetta stóra skref Geiru var ein- kennandi fyrir hana, hún var stefnu- föst, viljasterk en þó varfærin. Hún var ókunnug á Ísafirði, fjarri vanda- mönnum en var fljót að aðlaga sig og eignaðist fáa en trausta vini. Í starfi sínu og námi var Geirfinna traust og samviskusöm. Hún var dul í daglegri umgengni en þægileg, lagði gott til mála og hnjóðsyrði í garð annarra heyrði ég aldrei hrjóta af vörum hennar, hvorki til samferðafólks eða annarra sem ég gat ímyndað mér að Geirfinna Guðrún Óladóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.