Morgunblaðið - 16.11.2007, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ gerði
í gær húsleit hjá verslanakeðjunum
Högum, þ.á m. Bónus og Kaupási,
sem rekur m.a. Krónuna, og einnig
hjá þremur innflytjendum og heild-
sölum á matvörumarkaði, Innesi, Ís-
lensk-ameríska og O. Johnson &
Kaaber. Páll Gunnar Pálsson, for-
stjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að
til grundvallar aðgerðunum liggi upp-
lýsingar sem borist hafi og aflað hafi
verið hjá einstaklingum og fyrirtækj-
um í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um
matvörumarkaðinn að undanförnu.
Talsmenn Bónuss og Krónunnar
fagna athuguninni og vonast til þess
að niðurstöður liggi sem fyrst fyrir,
þannig að þeir megi verða hreinsaðir
af áburði um samráð.
Í tilkynningu Samkeppniseftirlits-
ins segir að í fréttatilkynningu 1. nóv-
ember sl. hafi það hvatt þá sem teldu
sig búa yfir upplýsingum um brot á
samkeppnislögum að koma þeim á
framfæri við Samkeppniseftirlitið og
hefðu allmargir brugðist við þeirri
hvatningu. „Rannsókn sú sem nú er
hafin beinist einkum að ætluðum
brotum á 10. gr. samkeppnislaga, þ.e.
hugsanlegu ólögmætu samráði smá-
söluaðila og birgja. Kemur rannsókn-
in til viðbótar við aðrar athuganir sem
nú standa yfir og áður hafa verið
kynntar opinberlega,“ segir einnig.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkveldi að
einstaklingar og fyrirtæki hefðu síð-
ustu dagana veitt Samkeppniseftirlit-
inu upplýsingar sem gerðu það að
verkum að nauðsynlegt hefði verið að
fara í þessa aðgerð. Rannsóknin
beindist bæði að hugsanlegu samráði
smásölu og birgja og hins vegar milli
smásöluverslana.
Ekki forsendur fyrr en nú
Aðspurður af hverju ekki hefði ver-
ið ráðist í þessar aðgerðir fyrr í ljósi
umfjöllunar um samráð á matvöru-
markaði að undanförnu. sagði Páll
Gunnar að forsendur hefðu ekki verið
fyrir húsleitinni fyrr en nú. „Við höfð-
um ekki nægileg gögn og upplýsingar
úr fjölmiðlaumfjölluninni einni sam-
an, en einstaklingar og fyrirtæki urðu
við hvatningu um að veita okkur upp-
lýsingar sem urðu okkur að liði og
gerðu það að verkum að það var nauð-
synlegt að fara í þessa húsleit. Það
þarf að undirbúa húsleit vel og hún
þarf að vera studd ríkum forsendum,“
sagði Páll.
Í tilkynningu Samkeppniseftirlits-
ins er athygli vakin á að það hafi þýð-
ingu fyrir skjóta úrlausn málsins
hvort fyrirtæki eða einstaklingar
ákveði að liðsinna eftirlitinu við rann-
sókn þess. „Ef um brot er að ræða
getur Samkeppniseftirlitið sam-
kvæmt lögum fallið frá sektarákvörð-
un hafi fyrirtæki verið fyrst til að láta
því í té upplýsingar eða gögn vegna
ólögmæts samráðs sem geta leitt til
sönnunar á broti. Einnig er heimilt að
lækka sektir ef fyrirtæki liðsinna eft-
irlitinu með því að veita mikilvæg
sönnunargögn. Þá getur Samkeppn-
iseftirlitið ákveðið að kæra ekki til
lögreglu hugsanleg brot einstaklinga
sem upplýsa um þau og liðsinna við
rannsókn.“
Páll Gunnar sagði að þeir myndu
hraða rannsókninni eftir því sem
kostur væri. „Það er ljóst að það tek-
ur nokkurn tíma að greina þessi gögn
sem hefur verið aflað. Það veltur svo á
ýmsum atriðum hversu hratt svona
rannsókn getur gengið,“ sagði hann.
Fagna rannsókn
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, sagði að þeir
fögnuðu því að þessar ásakanir um
samaráð yrðu rannsakaðar ofan í
kjölinn og málið til lykta leitt eins
fljótt og mögulegt væri.
Guðmundur sagði að Bónus hefði
alla tíð, frá stofnun verslunarinnar
fyrir átján árum, verið með lægsta
verðið á markaðnum. Það væri sú
stefna sem fyrirtækinu hefði verið
mörkuð í upphafi og á því yrði engin
breyting. Viðskiptavinir Bónuss gætu
treyst því. Það væri ástæðan fyrir vel-
gengni verslunarinnar og það væri
ekkert langt síðan að Bónus hefði ver-
ið lítill aðili á þessum markaði.
„Hverjir gerðu Bónus að því sem það
er í dag? Það eru auðvitað bara neyt-
endur. Þeir hafa greitt okkur atkvæði
með fótunum og við höfum fagnað því
og lagt okkur alla fram við það að
bjóða sem lægst verð,“ sagði Guð-
mundur.
Í fréttatilkynningu frá Bónus segir
ennfremur að Bónus fagni því að
Samkeppniseftirlitið hafi hafið rann-
sókn á þeim alvarlegu ásökunum um
verðsamráð sem hafi komið fram. „Er
það í samræmi við þá ósk sem Hagar
hf., rekstraraðili Bónuss, setti fram í
bréfi til Samkeppniseftirlitsins dag-
sett hinn 1. nóvember s.l.
Bónus fullvissar viðskiptavini sína
um að þessi leit muni hrekja þær
dylgjur um samráð sem hafa átt sér
stað á liðnum vikum og hafa einkum
átt rætur sínar að rekja til rakalauss
fréttaflutnings ríkisfjölmiðlanna.“
Rannsóknin í samræmi við óskir
Eysteinn Helgason, forstjóri
Kaupáss, sem m.a. rekur Krónuversl-
anirnar, sagði að þeir fögnuðu þessari
athugun. Hún væri í samræmi við það
sem þeir hefðu farið fram á gagnvart
opinberum aðilum „að þeir rannsök-
uðu þær dylgjur og órökstuddu full-
yrðingar sem settar hafa verið fram
um samráð og við vonumst bara til
þess að rannsókn ljúki sem fyrst
þannig að hið sanna megi koma í ljós“.
Eysteinn sagði að fyrirtækið hefði
ekkert að óttast í rannsókninni og það
væri fagnaðarefni að hún væri hafin.
Í fréttatilkynningu Kaupáss segir
einnig að „starfsfólk Kaupáss og
Krónunnar mun opna allar sínar
bækur og verða Samkeppniseftirlit-
inu til aðstoðar á allan þann hátt sem
óskað verður eftir og látin er í ljós von
um að rannsókninni verði hraðað eins
og frekast er unnt. Jafnframt er
minnt á að á undanförnum misserum
hefur Samkeppniseftirlitið verið með
víðtæka rannsókn á matvælamark-
aðnum í gangi. Vonast er til að þeirri
rannsókn verði hraðað og niðurstöður
birtar við fyrsta tækifæri.“
Húsleit hjá Bónus, Kaup-
ási og þremur heildsölum
Leitað Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá Bónus og Kaupás í gær vegna ásakana um meint samráð.
skrunka, -u, -ur KV gömul kerling,
gömul og rytjuleg skepna.
Blessuð skrunkan
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
AÐSTÆÐUR voru skelfilegar, að
sögn lögreglumanns sem mætti á
vettvang við bensínstöð Skeljungs
við gatnamót Kleppsvegar og Sæ-
brautar í Reykjavík aðfaranótt
fimmtudags eftir að ökumaður fólks-
bifreiðar missti stjórn á bíl sínum.
Ökumaðurinn og farþegi mega heita
heppnir að vera enn á lífi eftir slysið.
Eins og sést á meðfylgjandi korti
missti maðurinn stjórn á bílnum í
beygju inn á Kleppsveg af Sæbraut.
Talið er að hann hafi jafnvel verið á
ofsahraða er hann keyrði á umferð-
arskilti og stólpa áður en bifreiðin
hringsnerist á plani bensínstöðvar-
innar, með tilheyrandi skemmdum á
bensíndælum, húsnæði og bílnum.
Talið er að bifreiðinni hafi verið ekið
stjórnlaust yfir 200 metra áður en
hún stöðvaðist. Mennirnir voru flutt-
ir á slysadeild Landspítala en slös-
uðust ekki alvarlega. Ökumaður er
talinn hafa verið undir áhrifum
áfengis og fíkniefna.
Gríðarlega óábyrgt
Fleiri ökumenn eru grunaðir um
að hafa farið út í umferðina þrátt fyr-
ir að teljast óökufærir. Einn reyndi
að stinga lögreglu af við vettvang
umrædds slyss en eltingarleikurinn
endaði á Dalbraut. Ökumaður ók bif-
reið sinni út af Gufunesvegi í Graf-
arvogi og akstur annars var stöðv-
aður, einnig í Grafarvogi. Sá er
grunaður um að hafa ekið undir
áhrifum fíkniefna og var án réttinda.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri
höfuðborgarsvæðisins, segir vanda-
málið viðvarandi. „Þetta er náttúr-
lega gríðarlega óábyrg hegðun og
ekki hægt að lýsa því með nokkrum
orðum hvað þetta er mikið hættuspil.
Ég tel að tölurnar frá Rannsóknar-
nefnd umferðarslysa sýni það býsna
vel enda tugir banaslysa á undan-
förnum árum sem rekja má til ölv-
unaraksturs eða aksturs undir áhrif-
um fíkniefna.“ Lögreglustjórinn
segir fólk úr öllum stigum þjóð-
félagsins hegða sér á þennan hátt.
Stjórnlaus
á ofsahraða
Morgunblaðið/Frikki
Gjörónýt Bifreiðin sem er af gerðinni BMW skemmdist mikið og ótrúlegt að ökumaður og farþegi hafi sloppið.
„ÉG TEL að það sé ekki vanþörf á
að efna til umræðu um það sem
þarna er í gangi,“ segir Stefán Ei-
ríksson, lögreglustjóri á höfuðborg-
arsvæðinu, um þá fjölmörgu öku-
menn sem teknir eru undir áhrifum
vímugjafa á hverjum sólarhring. Að-
faranótt fimmtudags lá við stórslysi
þegar ökumaður undir áhrifum
áfengis og vímuefna missti stjórn á
bifreið sinni sem hafnaði á bílaplani
bensínstöðvar Skeljungs við gatna-
mót Kleppsvegar og Sæbrautar.
Stefán segir að þó að margir öku-
menn hafi verið stöðvaðir undanfarið
af þessum sökum sé vandamálið við-
varandi og sífellt sé verið að reyna
að koma í veg fyrir það. „Refsingar
fyrir ölvunarakstur og akstur undir
áhrifum fíkniefna eru býsna þungar.
Fyrir ítrekuð brot fá menn fangels-
isdóm og það er nokkuð algengt að
menn sitji inni fyrir slík brot.“ Í
mörgum tilvikum treysti lögreglan á
ábendingar borgaranna sem hefur
gefist vel. Stefán telur þó að allir
verði að líta í eigin barm. „Síðan
þurfa menn að vera duglegir við að
láta lögregluna vita ef þá grunar að
ökumenn séu undir áhrifum.“
Treysta á ábendingar