Morgunblaðið - 16.11.2007, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
UM 200 tegundir af íslenskum mjólkurvörum voru
stöðvaðar í tolli í Svíþjóð, en vörurnar áttu að fara á
mjólkurvörusýningu í Herning í Danmörku sem nú
stendur yfir. Þetta leiddi til þess að ekkert varð út þátt-
töku Íslands á sýningunni. Magnús Ólafsson, aðstoð-
arforstjóri MS, segir að MS hafi verið búin að leggja
mikla vinnu í undirbúning og því miður að svona skyldi
fara.
Árið 2005 voru mjólkurvörur sendar út með hefð-
bundnu farþegaflugi, en þá skemmdist nokkuð af vör-
unum. Að þessu sinni var Jónum hf. falið að flytja vörurnar og lagði fyr-
irtækið til að vörurnar yrðu fluttar með fragtvél til Svíþjóðar og þær síðan
fluttar með bíl til Danmerkur og tollafgreiddar þar. Af einhverjum ástæð-
um fóru þær hins vegar gegnum toll í Svíþjóð og þar var sendingin stöðv-
uð. Magnús segir ljóst að röð atvika hafi leitt til þessarar niðurstöðu.
Íslenskar mjólkurvörur hafa iðulega staðið sig vel á þessari sýningu en
að þessu sinni náðu þær ekki að keppa við aðrar vörur á sýningunni.
Stoppaðar í tolli í Svíþjóð
HALLUR Páll Jónsson hefur verið
ráðinn mannauðsstjóri Reykjavík-
urborgar til eins árs frá 1. nóv-
ember. Fráfarandi mannauðsstjóri
Birgir Björn Sigurjónsson hefur
verið ráðinn fjármálastjóri Reykja-
víkurborgar til eins árs frá sama
tíma.
Hallur Páll hefur undanfarin
tvö ár verið deildarstjóri ráð-
gjafadeildar mannauðsskrifstofu
Reykjavíkurborgar. Áður var
hann starfsmannastjóri fé-
lagsþjónustu Reykjavíkurborgar
um ellefu ára skeið. Hallur Páll
hefur lokið BA-gráðu í heimspeki
og sálfræði og meistaragráðu í
mannauðsstjórnun frá Háskóla Ís-
lands.
Hallur Páll
mannauðsstjóri
Á FUNDI heimsorkuráðsins í Róm í
vikunni var samþykkt að halda ár-
legan framkvæmdaráðsfund þess
árið 2009 í Reykjavík.
Össur Skarphéðinsson iðn-
aðarráðherra mælti fyrir framboði
Íslendinga að lokinni kynningu
Þorkels Helgasonar orku-
málastjóra á stöðu orkumála á Ís-
landi. Í ræðu sinni undirstrikaði
iðnaðarráðherra forystuhlutverk
Íslands í virkjun jarðvarma og
benti á að engin önnur þjóð mætti
75% af orkuþörf sinni með grænni
endurnýjanlegri orku.
Langflestar þjóðir heims eru að-
ilar að heimsorkuráðinu og er búist
við að um 500 manns komi til lands-
ins í tengslum við fundinn.
Heimsorkuráðið
fundar á Íslandi
Pétur H. Blöndal, alþingismaður
Sjálfstæðisflokks, segir að fram-
undan kunni að vera varasamur tími
fyrir fólk sem sé að kaupa sína fyrstu
íbúð. Vextir séu ekki aðeins háir og
húsnæðisverð hátt heldur kunni að
vera framundan verðlækkun á fast-
eignum.
Pétur sagði að þó að staðan á hús-
næðismarkaði væri erfið fyrir ungt
fólk og fólk á leigumarkaði mætti
ekki gleyma því að stærstur hluti al-
mennings hefði hagnast mikið á síð-
ustu þremur árum á hækkun fast-
eignaverðs. „Allur þorri almennings
býr í eigin húsnæði og hann hefur
hagnast mikið á þessari þróun.
Eignaverð hefur hækkað mikið og
langt umfram skuldir. Þeir sem sitja
eftir eru leigjendur sem ekki hafa
notið eignamyndunar og þeir sem
eru að fara út á markaðinn núna til
að kaupa sína fyrstu íbúð. Þessi hóp-
ur er að fara inn í mjög varasamt
tímabil sem getur falist í því að fast-
eignaverð lækki en skuldirnar ekki
og eigið fé gufar upp.“
Pétur sagði að lækkun vaxta á sín-
um tíma hefði orðið til þess að hækka
fasteignaverð. Nú þegar vextir
hækkuðu ætti fasteignaverð að
lækka. „Ég get tekið sem dæmi 40
ára lán með 4,15% vöxtum. Greiðslan
af því er á hverju ári jafnmikil og af
22% lægra láni til 40 ára en með 6%
vöxtum. Þetta þýðir að fyrir sömu
árlegu greiðsluna fær fólk 22%
lægra lán með þessum háum vöxtum
en þegar vextirnir voru sem lægstir.
T.d. 25 mkr. í stað 32 mkr. Þetta seg-
ir manni að verðið ætti að lækka, en
vissulega vegur á móti að laun hafa
hækkað.“
Pétur sagði að þessi staða væri
mjög erfið fyrir fólk sem væri að
kaupa sér fasteign í fyrsta skipti og
nauðsynlegt fyrir félagsmálanefnd
að ræða það. „Flestir búast hins veg-
ar við því að fasteignaverð lækki og
þá lagast þessi staða af sjálfu sér.“
Pétur sagði að búið væri að leigja
hundruð íbúða í Keflavík og það ætti
að létta á leigumarkaðinum á höf-
uðborgarsvæðinu. Hann sagði að
leiguverð væri háð fasteignaverði og
því ætti lækkun á fasteignaverði að
stuðla að lægri leigu.
Guðbjartur Hannesson, þingmað-
ur Samfylkingar og formaður félags-
málanefndar, segir brýnt að vinna
hratt í þessum málum því að vanda-
málið sé mjög stórt, bæði hvað varð-
ar leigumarkað og aðgang ungs
fólks, sem ekki hefur góðar tekjur,
að húsnæðismarkaðinum.
„Þetta er fólk sem hefur orðið út
undan í hamagangi síðustu ára.“
Á vegum félagsmálaráðherra er
starfandi nefnd sem vinnur að til-
lögum um úrbætur í húsnæðis-
málum. Guðbjartur sagðist hafa
fylgst með störfum nefndarinnar.
Hann sagðist eiga von á að tillögur
nefndarinnar kæmu fram á næstu
vikum.
Guðbjartur sagði að þróunin á
húsnæðismarkaði sýndi að Íbúða-
lánasjóður hefði afar mikilvægu
hlutverki að gegna. Hann væri að
lána fólki á landsbyggðinni sem
bankarnir hefðu lítið sinnt og einnig
hefði sjóðurinn verið mikilvægur fyr-
ir þá sem lakar væru settir.
Óskaði eftir umræðu
á þingi um húsnæðismál
Birkir Jón Jónsson, alþingismaður
Framsóknarflokksins, hefur óskað
eftir umræðu utan dagskrár um
stöðu ungs fólks á húsnæðismarkaði,
en ekki liggur fyrir hvenær hún fer
fram.
„Þessi staða í
húsnæðismálum
er mikið áhyggju-
efni og eitt
stærsta úrlausn-
arefni sem við
stöndum frammi
fyrir í dag. Það er
að koma hér kyn-
slóð sem hefur
ekki efni á að
koma sér þaki yf-
ir höfuðið, a.m.k. á höfuðborg-
arsvæðinu.
Ég tel brýnt að menn sameinist
um að leysa þetta þvert á flokka. Hér
er um að ræða svo stórt samfélags-
legt mál að það er hafið yfir flokka-
drætti að mínu mati. Ég verð var við
það hjá minni kynslóð að fólk hefur
mjög miklar áhyggjur af þessu. Það
er orðið mjög glannalegt hvernig
fólk þarf að skuldsetja sig til að kom-
ast yfir íbúð,“ sagði Birkir Jón.
Kristinn H. Gunnarsson, þing-
maður Frjálslynda flokksins, segir
markmiðið eiga að vera að hafa hús-
næðiskostnað sem lægstan og að
efnahagsstefnan miði að því að
stjórna annarri einkaneyslu.
„Ódýrasta kerfið er þekkt. Það er
einfaldlega að reka Íbúðalánasjóð og
bjóða fólki örugg lán á lágum vöxtum
fyrir tilstyrk afls ríkissjóðs. Ég er
ekki að tala um að ríkissjóður borgi
niður vexti heldur að hann veiti
ábyrgðir og styrk til að tryggja lán á
lágum vöxtum.“
Kristinn sagði að flestir væru
sammála um að ef bankarnir hefðu
verið einir í íbúðalánum væri staðan
enn verri. Menn verði bara að við-
urkenna það að markaðslögmálin
hafi ekki virkað í þessu máli. „Op-
inbert lánakerfi, þó að það sé á
ákveðnum markaðsforsendum, reyn-
ist fólkinu best.“
Mistök að leggja félagslega
húsnæðiskerfið niður
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,
varaþingmaður VG sem situr í fé-
lagsmálanefnd, segir að það blasi við
neyðarástand í húsnæðismálum.
Hún segir að ekkert hafi komið fram
um að nefnd sem er að störfum muni
leggja fram lausnir sem duga. „Bæði
húsaleigubætur og vaxtabætur hafa
verið skertar og ekki fylgt vísitölu
húsnæðiskostnaðar, en þessum bót-
um var ætlað að koma á móts við
tekjulágt fólk.“
Guðfríður sagði að samkvæmt
fjárlagafrumvarpinu væri tiltekin
upphæð ætluð í niðurgreiðslur á lán-
um til félagslegs húsnæðis. Vextir af
þessum verðtryggðu lánum væru
3,5%. Hún sagði að fátækt fólk gæti
ekki staðið undir lánum á þessum
kjörum. Einu sinni hefði verið boðið
upp á félagsleg lán með 1% vöxtum.
Guðfríður Lilja sagði að á sínum
tíma hefði verið unnið stórkostlegt
skemmdarverk þegar félagslega
húsnæðiskerfið var lagt niður og fólk
væri enn að súpa seyðið af því. „Það
er alveg skýrt og verður ekki hjá því
komist að sérstakra úrræða er þörf
fyrir tekjulágt fólk sérstaklega og
fyrir höndum er almennileg upp-
bygging á félagslega kerfinu í þess-
um efnum.“
„Mjög varasamur tími fram-
undan í húsnæðismálum“
Ef fasteignaverð lækk-
ar minnkar eigið fé
fólks sem keypt hefur
fasteign því skuldirnar
lækka ekki. Það kunna
því að vera varasamir
tímar framundan í hús-
næðismálum.
Morgunblaðið/Ómar
Lán Vextir á íbúðalánum hafa hækkað síðustu vikurnar og eru bankarnir
nú að bjóða um 6,4% vexti þeim sem eru í viðskiptum við bankann.
Pétur H.
Blöndal
Birkir Jón
Jónsson
Kristinn H.
Gunnarsson
Guðbjartur
Hannesson
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir
læpulegur L slyttislegur, latur, linur,
kveifarlegur.
Þú ert svei
mér læpuleg