Morgunblaðið - 16.11.2007, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
ÞÚSUNDIR heimila eyðilögðust í
öflugum fellibyl sem gekk yfir suð-
vesturströnd Bangladesh í gær-
kvöldi. Hundruð þúsunda manna
þurftu að flýja heimili sín, m.a. vegna
hættu á mikilli flóðbylgju.
Vindhraðinn var allt að 67 metrar
á sekúndu, en hér á landi miðast fár-
viðri, eða tólf vindstig, við tæpa 33
metra á sekúndu. Búist var við að
fellibylurinn ylli allt að sex metra
hárri flóðbylgju sem gæti fært stór
svæði í strandhéruðunum í kaf.
Haft var eftir íbúum strandhérað-
anna að þúsundir heimila, aðallega
strá- og leirkofar, og margir skólar
hefðu eyðilagst í óveðrinu.
Ekki var vitað um manntjón af
völdum óveðursins í gærkvöldi.
Miklar varúðarráðstafanir
Yfirvöld sögðu að um 3,2 milljón-
um manna hefði verið sagt að forða
sér af strandsvæðunum og að
minnsta kosti 650.000 manns hefðust
við í neyðarskýlum.
Samarendra Karmakar, veður-
stofustjóri Bangladesh, sagði að byl-
urinn hefði verið álíka öflugur og
fellibylur sem gekk yfir landið árið
1991 og varð u.þ.b. 138.000 manns að
bana. „Við búumst þó við minna
manntjóni núna vegna þess að
stjórnvöld gripu tímanlega til varúð-
arráðstafana. Við gerðum fólki við-
vart og sögðum því að forða sér
fljótt.“
Almannavarnayfirvöld í Bangla-
desh spáðu því að eignatjónið yrði
gríðarlegt. Um 40.000 lögreglu-
menn, hermenn, læknar og hjúkrun-
arfræðingar voru send á hættusvæð-
in á ströndinni. Talið var að
fellibylurinn gæti einnig valdið tjóni
á austanverðu Indlandi og á vestur-
strönd Búrma.
Fellibyljir eru algengir í strand-
héruðum Bangladesh. Mannskæð-
asti bylurinn kostaði rúma hálfa
milljón lífið árið 1970. Hann varð til
þess að yfirvöld komu upp mörgum
neyðarskýlum og viðvörunarkerfi
sem hefur orðið til þess að mann-
tjónið af völdum fellibylja hefur
minnkað til muna.
Fellibylur olli miklu
tjóni í Bangladesh
,- , . ( /
0
1 1
0
(
'
2344506478
$09:49;3 !"" #
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
RÍKISSAKSÓKNARINN í Pakistan
segir að Pervez Musharraf forseti
ætli að hætta sem æðsti yfirmaður
hersins fyrir 1. desember nk. Áður
hefur Musharraf heitið því að víkja
um leið og hæstiréttur Pakistans hef-
ur staðfest kjör hans sem forseta til
næstu fimm ára, en gert er ráð fyrir
að það gerist innan fárra daga.
Musharraf skipaði í gær nýja
bráðabirgðaríkisstjórn en hún á að
sögn embættismanna að fara með
völdin í Pakistan þangað til búið er að
halda þingkosningar í janúar. Á sama
tíma lýstu tveir helstu leiðtogar
stjórnarandstöðunnar, Benazir
Bhutto og Nawaz Sharif, því yfir að
þau hefðu hafið formlegar viðræður
um kosningabandalag. Bhutto sneri
aftur til Pakistans í lok síðasta mán-
aðar eftir útlegð
og var þá talið að
hún og Musharraf
hefðu gert sam-
komulag sín í
millum. Eftir að
Musharraf setti
neyðarlög hefur
Bhutto hins vegar
sagt að ekki komi
til greina að deila
völdum með Mus-
harraf. Hann verði að víkja.
Ein skýring stjórnmálakrepp-
unnar í Pakistan er sú að Musharraf
hefur allt frá 1999, er herinn rændi
völdum, gegnt embætti æðsta yf-
irmanns hersins um leið og hann hef-
ur verið forseti. Geri Musharraf nú
loksins alvöru úr því að víkja sem yf-
irmaður hersins er talið líklegt að við
hlutverkinu taki Ashfaq Pervez Kiani
hershöfðingi.
Vestrænir hermálasérfræðingar
segja Kiani afskaplega hæfan mann
sem lítinn áhuga hafi á því að blanda
sér í stjórnmál Pakistans, ólíkt Mus-
harraf. Kiani ólst upp við bág kjör en
tilheyrir þó áhrifamikilli ætt í Pun-
jab-héraði. Hann var ekki í innsta
hring valdakjarnans í hernum sem
studdi gjörðir Musharrafs 1999, er
hann tók völdin í Pakistan, en hefur
undanfarin ár verið honum hand-
genginn. Kiani hefur verið við nám í
herskóla Bandaríkjahers í Fort Lea-
venworth í Kansas og þekkir til í
Pentagon. Athygli vekur svo að Kiani
er sagður hafa ágætis tengsl við
Bhutto, en margir í hernum hafa
ímugust á henni. Hann átti sæti í rík-
isstjórn Bhutto sem ráðgjafi í her-
málum snemma á tíunda áratugnum
og hann sinnti hlutverki milligöngu-
manns í samningaviðræðum hennar
og Musharrafs nú í haust.
Valdaskipti í hernum
Musharraf heitir því að hætta sem yfirmaður hersins fyrir
mánaðamót en við starfinu tekur líklega næstráðandi hans
Ashfaq Pervez
Kiani
MENN þurftu að hafa fyrir því að
komast inn í þær farþegalestir
sem gengu í París í gær en þá var
annar dagur verkfalls lestarstarfs-
manna. Hvarvetna mátti heyra
fólk kvarta yfir því að þurfa að
taka sér frí frá vinnu eða vera í
erfiðleikum ella með að komast til
vinnu.
AP
Verkfall tekur á taugarnar
ANDERS Fogh Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, hyggst
ræða við leiðtoga allra flokkanna á
danska þinginu um nýjan stjórn-
arsáttmála Venstre og Íhalds-
flokksins. Fogh hefur þegar rætt
við formenn Danska þjóðarflokks-
ins og Nýs bandalags, sem vilja
styðja stjórnina, en á mánudag fá
forystumenn hinna flokkanna tæki-
færi til að ræða við hann um stjórn-
arsáttmálann og úrlausnarefni
næsta árs, að því er fram kom á
fréttavef danska ríkisútvarpsins.
Fogh vonast eftir breiðri sam-
stöðu um umbótatillögur stjórn-
arinnar, m.a. í skattamálum, lofts-
lags- og orkumálum og stefnuna í
atvinnumálum. Að sögn frétta-
vefjar danska ríkisútvarpsins legg-
ur forsætisráðherrann þó mesta
áherslu á að flokkarnir nái sem
fyrst samkomulagi um hvað gera
eigi í máli íraskra borgara sem hef-
ur verið synjað um hæli í Dan-
mörku.
Að sögn fréttavefjar danska
blaðsins Politiken hyggst Fogh síð-
an hefja víðtækari viðræður um
langtímastefnu í málefnum innflytj-
enda og hælisleitenda.
Forsætisráðherrann stefnir að
því að kynna nýjan stjórnarsátt-
mála og ráðherralið stjórnarinnar
fyrir lok næstu viku. Leiðtogar
Danska þjóðarflokksins og Nýs
bandalags hafa hvatt stjórnina til
að semja nýjan sáttmála án þess að
leita eftir samþykki flokkanna
tveggja við öll atriði hans.
Reuters
Vill breiða samstöðu Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dan-
merkur, ræðir myndun nýrrar stjórnar við fréttamenn í Kaupmannahöfn.
Vill sátt um hælisleitendur
HUGSANLEG brot Ehuds Olmerts,
forsætisráðherra Ísraels, á lögum
um fjármögnun kosninga eru nú til
skoðunar hjá ísraelsku lögreglunni.
Er fullyrt að lögreglan hafi nú undir
höndum upptöku á símasamtali þar
sem ráðgjafi heldur því fram að Ol-
mert skuldi honum 100.000 Banda-
ríkjadali frá því í forkosningum
1999. Sé þetta rétt væri mögulega
um lögbrot að ræða því að lán þetta
var aldrei tilkynnt til yfirvalda. Fyrr
í vikunni réðst lögreglan inn á tutt-
ugu stöðum í leit að gögnum sem
tengjast rannsókn á hendur Olmert
fyrir meinta spillingu.
AP
Í fangelsi? Veggspjöld sem ýja að
meintri spillingu hanga nú uppi.
Olmert undir
smásjánni
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin
(IAEA) segir í skýrslu, sem birt var í
gær, að Íranar hafi veitt henni upp-
lýsingar um kjarnorkuáætlun þeirra
en virt að vettugi kröfuna um að
hætta auðgun úrans. Bandaríkja-
stjórn kvaðst ætla að halda áfram að
beita sér fyrir refsiaðgerðum gegn
írönsku klerkastjórninni sem sagði
hins vegar að skýrslan sýndi að Ír-
anar hygðust aðeins hagnýta kjarn-
orkuna í friðsamlegum tilgangi.
Blendin skýrsla
ÁSTRALAR menga mest allra
þjóða skv. nýrri rannsókn, þeir
framleiða fimm sinnum meira af
koltvísýringi heldur en Kínverjar.
Bandaríkin koma næst, þau fram-
leiða sextánfalt á við Indverja.
Menga mest
JEAN-Marie Guehenno, yfirmaður
friðargæslumála hjá Sameinuðu
þjóðunum, óttast að áætlanir um
sameiginlegar friðargæslusveitir
Afríkusambandsins og SÞ í Darfur
renni út í sandinn vegna þess að
ekki hefur tekist að tryggja liðinu
mannskap og tæki, einkum þyrlur
til flutninga og hernaðaraðgerða.
Dapurt í Darfur
das H þreyta.
Það sækir að mér das
Washington. AFP. | Fulltrúadeild
Bandaríkjaþings hefur samþykkt
lög um fjármögnun stríðsrekstrarins
í Írak sem ganga þvert á óskir
George W. Bush Bandaríkjaforseta.
Löggjöfin hefur að geyma tímaáætl-
un um brotthvarf Bandaríkjahers
frá Írak en hún felur í sér að byrja
eigi að kalla herinn heim innan mán-
aðar og að allir bandarískir hermenn
eigi að vera horfnir frá Írak 15. des-
ember 2008.
Bush hefur ítrekað lýst því yfir að
hann muni ekki sætta sig við áætl-
anir sem þessa og mun væntanlega
beita neitunarvaldi sínu gegn frum-
varpinu sem er runnið undan rifjum
demókrata sem hafa meirihluta í
báðum deildum þings.
Samþykktu
tímaáætlun
ÍBÚAR Kosovo ganga til kosninga
á morgun en bæði er um þingkosn-
ingar að ræða og sveitarstjórnar-
kosningar. Sjálfstæði til handa Kos-
ovo er hið eina sem kemst að hjá
Kosovo-Albönum en ólíklegt er að
niðurstaða þessara kosninga hafi
áhrif á viðræður um stjórnar-
skrárstöðu Kosovo sem áætlað er
að ljúki 10. desember. Hashim
Thaci, fyrrverandi foringi Frels-
ishers Kosovo, (sjá mynd) og flokk-
ur hans eru líklegir sigurvegarar
þessara kosninga nú.
AP
Kosovo-búar kjósa