Morgunblaðið - 16.11.2007, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 17
ÁTTATÍU og sjö af 192 aðild-
arríkjum Sameinuðu þjóðanna hafa
lagt fram tillögu fyrir allsherj-
arþing SÞ þess efnis að bann verði
lagt við dauðarefsingum en síðar
meir verði þær formlega aflagðar.
Um er að ræða Evrópusambands-
ríkin og nokkur lönd annars vegar í
Rómönsku Ameríku og í Afríku.
Ríki sem beita dauðarefsingum eru
hins vegar allt annað en ánægð með
tillöguna og fastafulltrúi Singapúr
hjá SÞ – en í Singapúr fylgir dauða-
dómur sjálfkrafa flestum fíkniefna-
glæpum – sagði hana geta „eitrað
andrúmsloftið“ milli aðildarríkj-
anna.
Tillagan liggur sem stendur fyrir
mannréttindanefnd allsherjarþings-
ins. Tvívegis á síðasta áratug voru
lagðar fyrir allsherjarþingið –
ályktanir þess eru ekki bindandi en
hafa „mórölsk áhrif“ – en runnu út í
sandinn. Að þessu sinni gengur til-
lagan þó skemur því að þess er ekki
krafist að dauðarefsingar verði
formlega aflagðar þegar í stað. Til-
lagan gerir hins vegar ráð fyrir
„banni við framkvæmd dauðarefs-
inga með það fyrir augum að af-
nema þær“. Kemur fram í grein-
argerð að dauðarefsingar grafi
undan mannlegri reisn og að engin
sannfærandi gögn sýni fram á að
dauðarefsingar hafi fyrirbyggjandi
áhrif. Þá sé ljóst að réttarfarsleg
mistök séu óafturkræf.
Ríki ákveði sjálf refsingar
Andstæðingar tillögunnar koma
úr ýmsum áttum og benda þeir á að
dauðarefsingar séu til í refsirétti
meira en 100 aðildarríkja SÞ og að
sjálfsákvörðunarréttur þjóða kveði
skýrt úr um að aðildarríkin sjálf
ákveði hvernig refsingum þau beiti
við alvarlegustu glæpum.
Fulltrúi Singapúr, Kevin Cheok,
sagði ESB vera að reyna að
þröngva gildismati sínu upp á aðrar
þjóðir. „Við þekkjum þá tilhneig-
ingu frá gamalli tíð,“ sagði hann og
vísaði til nýlendutímans. „Sú var
tíðin að sjónarmið okkar fengu enga
áheyrn. Flest okkar hér börðumst
árum saman til að losna undan því
oki. Það er því kaldhæðni fólgin í
því að nú sé okkur sagt enn á ný að
aðeins eitt sjónarmið sé réttlæt-
anlegt og að öll önnur séu röng.“
!
"
#$ #%
;97<98325:98$38=4;5::5
2 )**>;
1
'
&
'()*(
$
(+(+,
% (--
& ./
% 0)
'() 0),
) %$ )1
+%%(2*
!"
1/-.
#$$%
((20
!"&
-21
!!&
2/-/ #$$'
1-*-
#$$&
()*(
#$$(
/(2.
+%,-& - +%#,+
. 3*+4
. )&,#& )+ .
+, &/,
$ %0,%&
12#3 #3((4
+%,-&
,# +%,
)%,/,31/4
4$ &,#/,
)+%,-& #
3024
5
"
# - ,#
)+%,-&
3%+!""
6
- )+%,-&
$5( $!""6
7 - )+%,-&
$5( $!""6
7 ,&#/%,8 %
)&1+ -%# 01+& &
0%
- +$ 01+%,+& -8%%, ,- ) &
,%5%*
9 &'#, +95:+ && )
6%$ .
#&.+0
)+%,-& !!%$ &3
53!"%,)),
01+9 +: 5:&,%#
, ) ,%+ . %
'#98 ,- )
&0, . -%3&;%9%-
( &+
#,%
$ &
,%5%9
Bann við dauðarefsing-
um til umræðu hjá SÞ
Sydney. AFP. | Jólasveinum í Sydney í
Ástralíu hefur verið ráðið frá því að
segja „hó, hó, hó“ þegar þeir heilsa
fólki vegna þess að það getur talist
móðgun við konur, að sögn ástralska
dagblaðsins The Daily Telegraph.
Blaðið segir að jólasveinum í
borginni hafi verið sagt að segja
frekar „ha, ha, ha“.
Blaðið hafði eftir óánægðum jóla-
sveini að umboðsfyrirtæki jólasveina
hefði sagt honum að segja ekki „hó,
hó, hó“ vegna þess að það gæti hrætt
börn og líktist bandaríska slang-
urorðinu „ho“ sem þýðir vænd-
iskona.
„Nei, hættu nú,“ sagði Julie Gale,
sem fer fyrir ástralskri hreyfingu
sem berst gegn því að kynlífi sé otað
að börnum. „Þetta eru bara lítil börn
sem skilja ekki að „hó, hó, hó“ geti
þýtt eitthvað annað og ættu ekki að
vita það.“
Talsmaður umboðsfyrirtækisins
sagði að það væri „villandi“ að segja
að jólasveinunum hefði verið bannað
að nota þetta orð, aðeins hefði verið
mælst til þess.
Jólasveinum ráðið frá
því að segja „hó, hó, hó“
Sydney. AFP. | Flest bendir til að
valdatíð Johns Howards sé senn á
enda runnin í Ástralíu en kosningar
fara fram í landinu eftir rúma viku,
laugardaginn 24. nóvember. Skoð-
anakannanir sýna næstum allar að
Verkamannaflokkurinn, undir for-
ystu Kevins Rudds, muni sigra
örugglega í kosningunum.
John Howard hefur verið forsætis-
ráðherra Ástralíu í ellefu ár, þ.e. frá
því að íhaldsmenn báru sigur úr být-
um í þingkosningum í mars 1996.
Howard segist að vísu bjartsýnn á að
hann geti tryggt sér sitt fimmta kjör-
tímabil á valdastóli en nýleg könnun
sýndi hins vegar að Verkamanna-
flokkurinn hefur 55% fylgi en banda-
lag Howards 45%. Og persónulegt
fylgi Rudds er einnig mun meira en
Howards, 48% kjósenda vilja Rudd
sem forsætisráðherra en 40% að
Howard verði áfram.
Rudd kynnti helstu kosningamál
sín á miðvikudag og lofaði því þá að
ríkisstjórn hans myndi iðka sjálf-
stæða utanríkisstefnu og að ástralsk-
ir hermenn yrðu kallaðir heim frá
Írak, jafnframt því sem hann hét því
að í hönd færi „menntamálabylting“.
Rudd hét því einnig að grípa til að-
gerða í loftslagsmálum. Loks sagði
hann að Verkamannaflokkurinn
myndi uppfylla sín kosningaloforð án
þess að efna til þess „óábyrga eyðslu-
fyllerís“ sem kosningaloforð How-
ards myndu hafa í för með sér.
Rudd sagði að ríkisstjórn How-
ards væri að þrotum komin eftir ell-
efu ár við völd. Hann byði Áströlum
að kjósa til valda nýja stjórnmála-
leiðtoga sem hefðu skýr áform um
framtíðarverkefni. Howard væri
hins vegar ekki að bjóða Áströlum
neitt annað en þá fullvissu, að hann
myndi sjálfur víkja sem forsætisráð-
herra á kjörtímabilinu fyrir Peter
Costello fjármálaráðherra. Howard
lagði hins vegar áherslu á það, er
hann kynnti áherslur sínar í byrjun
vikunnar, að öllu skipti að þeim sem
færu með völdin væri treystandi til
að ástunda ábyrga efnahagsstjórn-
un.
Rudd heldur forskoti
sínu á John Howard
Í HNOTSKURN
»Ástralar ganga að kjör-borðinu 24. nóvember.
»Kevin Rudd er fimmtugurog starfaði áður í utanrík-
isþjónustunni, m.a. í sendiráð-
um Ástralíu í Svíþjóð og Kína.
»John Howard er 68 áragamall. Hann komst til
valda 1996 og hélt síðan völd-
um í þrennum kosningum:
1998, 2001 og 2004.
Dalvegi 10-14 • Sími 577 1170
Innrettingar
Þi´n vero¨ld
X
E
IN
N
IX
0
7
10
0
25
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur
eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi
innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til
og með 15. nóvember 2007, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. nóvem-
ber 2007 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og
með 15. nóvember 2007, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisauka-
skatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjár-
magnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi,
olíugjaldi, kílómetragjaldi, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skrán-
ingargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri fram-
leiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir,
fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi, sektum
skattrannsóknarstjóra og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, sérstakur tekjuskatt-
ur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, fjármagnstekjuskattur, slysatryggingagjald
vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, mark-
aðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, of-
greiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðv-
um gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að
leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 12.700 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald
er 1.350 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru
gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, af-
dreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra
verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt mega
eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir
gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök
greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi inn-
heimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir
ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. nóvember 2007.
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn
á Keflavíkurflugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á Ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn
í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn
á Hvolfsvelli