Morgunblaðið - 16.11.2007, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
„BÓKIN er ekki andsvar við Tíu
litlum negrastrákum. Frekar mætti
kalla þetta jákvætt innlegg í um-
ræðuna, við erum
ekki að lýsa yfir
neinum skoð-
unum á hinni
bókinni,“ segir
Sigrún Eldjárn
um barnaljóð-
abókina Tíu litlir
kenjakrakkar
sem var að koma
út. Sigrún teikn-
aði myndirnar í bókinni og bróðir
hennar Þórarinn samdi vísurnar. Í
bókinni segir frá tíu krökkum sem
vegna kenja og hrekkja fækkar
smám saman í einn. En á síðustu
stundu tekst þeim að snúa við
blaðinu og sameinast að nýju. „Bók-
in er byggð upp eins og negrastráka-
bókin og hægt að syngja vísurnar
við sama lag og vísurnar í þeirri bók.
Þessar eru reyndar, að mínu mati,
mun betur ortar.
Þetta er bók sem allir ættu að
hafa gaman af og enginn ætti að
þurfa að æsa sig yfir, bara gleðjast.
Krakkarnir eru pínulítið óþekk og
koma sér í vandræði en svo lagast
þetta allt saman í lokin og enginn
deyr. Þetta er bók sem allir mega
lesa.“
Aðeins eru tæplega þrjár vikur
síðan Sigrún og Þórarinn fengu hug-
myndina að þessum niðurtalningar-
vísum. „Þegar allt var logandi í um-
ræðunni um negrastrákana datt mér
í hug að gera jákvæða bók sem
krakkar mættu örugglega fá í hend-
urnar. Þórarinn ruddi út úr sér vís-
unum, ég hamaðist við myndirnar og
hún fór á hraðferð í gegnum prent-
smiðjuna. Þetta er hægt!“ segir Sig-
rún en allt bendir til þess að hér hafi
verið slegið hraðamet í bókaútgáfu
sem erfitt verður að bæta.
Jákvætt
innlegg
Tíu litlir kenja-
krakkar komin út
RITHÖFUNDURINN Ira Levin
er látinn. Hann var þekktastur fyr-
ir að skrifa Rosemary’s Baby, The
Boys From Bra-
zil og The Step-
ford Wives.
Hann lést á
heimili sínu í
Manhattan á
mánudaginn af
völdum hjarta-
áfalls, 78 ára
gamall.
Kvikmynd var
gerð eftir bókinni
Rosemary’s Baby árið 1968 í leik-
stjórn Romans Polanski með Miu
Farrow í aðalhlutverki.
Fleiri bækur Levin voru færðar á
hvíta tjaldið, t.d. The Boys From
Brazil, sem Laurence Olivier lék í,
og The Stepford Wives með Nicole
Kidman. Einnig var gerð mynd eft-
ir leikriti hans, Deathtrap, með
Michael Caine og Christopher
Reeve.
Levin fæddist í Bronx-hverfinu
og vissi frá upphafi að hann vildi
verða rithöfundur. Hann byrjaði að
skrifa fyrir sjónvarp, en fyrsta
skáldsaga hans, A Kiss Before Dy-
ing, sló strax í gegn og færði hon-
um Edgar Allan Poe-verðlaunin ár-
ið 1953. Sú saga hefur tvisvar verið
færð í kvikmyndaform, árin 1956 og
1991.
Levin lætur eftir sig þrjá syni og
þrjá sonarsyni.
Ira Levin
látinn
Ira Levin
Í KVÖLD kl. 20–22 verður
sagnakvöld í boði Grindavík-
urbæjar, Saltfisksetursins og
Björgunarsveitarinnar Þor-
björns.
Sagt verður frá sjóslysum og
björgunum við Grindavík; sögur
af verslunum, en saga þeirra er
samofin sögu fiskveiða, og upp-
hafi þéttbýlismyndunar í Grinda-
vík. Að lokum mun Sigrún Jóns-
dóttur Franklín fjalla um
menningararf út frá bókinn, Ævidagar Tómasar
Þorvaldssonar útgerðarmanns. Milli atriða verður
ljóðaflutningur, einnig verður boðið upp á kaffi og
meðlæti. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Bókmenntir
Sagnaslóðir
á Reykjanesi
Frá björgunar-
aðgerð.
DIDDA Hjartardóttir opnar
sýningu á ljósmyndum í Hoff-
mannsgalleríi í dag kl.17.
Á sýningunni kortleggur
Didda hluta götunnar Green
Lanes í London og heimfærir
þær á ganga Reykjavík-
urakademíunnar og heldur
þannig áfram að vinna útfrá
götukortabók af London,
London A-Z.
Hoffmannsgallerí er staðsett
í Reykjavíkurakademíunni á fjórðu hæð JL-
húsisins við Hringbraut 121 í Reykjavík. Sýningin
stendur fram yfir áramót og er hún opin alla virka
daga frá kl. 9 til 17.
Myndlist
Hversdagurinn
við Green Lanes
London í
Reykjavík.
Kammertónleikaröð Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands verða
haldnir í kristalssal Þjóðmenn-
ingarhússins kl.17. Þar gefst
færi á að heyra eitt af meist-
araverkum strengjatónbók-
menntanna, Strengjaoktett
Mendelssohns. Þessi frábæra
tónsmíð verður enn magnaðri ef
haft er í huga að tónskáldið var
einungis 16 ára gamalt þegar
það samdi verkið. Hljóðfæra-
leikarar eru Guðný Guðmundsdóttir, Sif Tulinius,
fiðla, Andrzej Kleina, Greta Guðnadóttir, Helga
Þórarinsdóttir, Herdís Jónsdóttir, Bryndís Halla
Gylfadóttir og Sigurgeir Agnarsson.
Tónlist
Meistaraverk
undrabarns
Þjóðmenning-
arhúsið.
HREINN Friðfinnsson myndlist-
armaður hlaut heiðursverðlaun
Myndstefs í gær, en Edda Jóns-
dóttir tók við verðlaununum fyrir
hönd Hreins sem staddur er erlend-
is. Viðurkenninguna hlýtur Hreinn
fyrir framlag sitt til íslenskrar
myndlistar, en hluta þess framlags
má nú sjá á yfirlitssýningu í Lista-
safni Reykjavíkur, sem upphaflega
var sett upp í Serpentine Gallery í
Lundúnum í sumar. Heiðurs-
verðlaunin nema einni milljón króna.
Þetta er í þriðja sinn sem heið-
ursverðlaunum Myndstefs er út-
hlutað. Dómnefnd skipuðu Áslaug
Thorlacius myndlistarmaður, Björg-
ólfur Guðmundsson, stjórn-
arformaður Landsbanka Íslands, og
Margrét Harðardóttir arkitekt.
Dómnefnd segir verk Hreins „hríf-
andi og einföld, full af ljóðrænum
vísunum og heimspekilegum vanga-
veltum. Ásýnd hlutanna skiptir ekki
höfuðmáli heldur andinn og hin tæra
hugsun enda snúast verkin gjarnan
um eitthvað loftkennt og ósnert-
anlegt einsog ljósið, vindinn eða það
sem ekki er. Þrátt fyrir – og kannski
einmitt fyrir þessa ákveðnu naum-
hyggju – búa þau yfir einstökum
þokka og fegurð.“
Hreinn fær
heiðursverðlaun
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Forsetinn og Edda Edda Jónsdóttir tók við verðlaunum Hreins sem var
ytra, einni milljón króna sem Myndstef og Landsbankinn láta í té.
♦♦♦
FRÉTTASKÝRING
Eftir Helga Snæ Sigurðsson og
Höskuld Ólafsson
EITT af frumskilyrðum þess að ís-
lensk tunga deyji ekki út er að ný
orð bætist í hóp þeirra sem fyrir
eru. Orð sem annað hvort ná utan
um nýja „íslenska“ hugsun eða orð
sem þýða má úr erlendu tungu-
máli. Ný orð verða hins vegar ekki
til af sjálfu sér og þó einhverjum
snjöllum orðasmiði detti sniðug
þýðing í hug er ekki þar með sagt
að hún öðlist strax gildi. Málrækt-
arsvið Stofnunar Árna Magn-
ússonar í íslenskum fræðum hefur
m.a. það hlutverk að styðja við íð-
orðasöfnun í landinu og einnig að
halda utan um nýyrðasköpun.
Ágústa Þorbergsdóttir, starfs-
maður stofnunarinnar, segir íð-
orðanefndir oft vera grasrót-
arsamtök og ekki alltaf settar á
laggirnar með formlegum hætti.
Íðorðanefndirnar tengjast mjög oft
fagfélögum og eru skipaðar að
þeirra eigin frumkvæði. Algengt er
að þeir sem sitja í íðorðanefnd-
unum séu háskólakennarar í við-
komandi fagi. Málræktarsvið
Stofnunar Árna Magnússonar í ís-
lenskum fræðum tilnefnir ekki í
slíkar nefndir en hefur mikinn
áhuga á starfi þeirra. Hins vegar
er flugorðanefnd dæmi um stjórn-
skipaða nefnd og heyrir hún undir
samgönguráðuneytið. Nefndirnar
geta lagt orð í orðabanka, sem enn
er kenndur við Íslenska málstöð á
netinu, en þar eru 40 orðasöfn.
Tískuviti skráður
Hvað nýyrði í almennu máli
varðar, orð sem ekki falla í neinn
sérstakan flokk í íðorðasafni, þá
segir Ágústa að ef stofnunin frétti
eða sé látin vita af nýyrði eða
tökuorði þá sé það skráð. Dæmi
um slíkt er enska orðið „trendset-
ter“, sem auglýst var eftir þýðingu
á í fyrra í nýyrðasamkeppni og þá
kom fram orðið tískuviti. „En það
getur auðvitað einhver búið til orð
eins og tískuviti og aldrei látið
okkur vita af því,“ bætir Ágústa
við. Auðveldara sé að halda utan
um þau orð sem orðanefndir komi
með, þar sem þær haldi utan um
sín orðasöfn og vinni í þeim. Ekki
sé auðvelt að finna ný orð í al-
mennu máli vegna gríðarlegs
textamagns sem þyrfti að fara yfir.
Þar gætu þó aðferðir tungu-
tækninnar auðveldað verkið í
framtíðinni.
Vald fjölmiðla
Ágústa segir að fólk hafi mikinn
áhuga á nýyrðum sem tengjast
tækni. Þar megi nefna orðið „tón-
hlaða“, sem eigi að ná yfir staf-
ræna spilara á borð við iPod.
Babb geti komið í bátinn þegar
tækið breytist, í þessu tilfelli úr
því að vera aðeins hljóðspilari í
það að geta sýnt hreyfimyndir,
ljósmyndir og sjónvarpsefni. Þá er
merking orðsins orðin of þröng.
Þegar farsíminn leit dagsins ljós
veltu menn ýmsum orðum á milli
sín, t.d. „heimssíma“. Að lokum
stóð val milli farsíma og gemsa, en
orðin virðast álíka mikið notuð.
„Það er enginn einn sem ákveður
slíkt. Þetta ákveða fjölmiðlarnir
mjög mikið, þið hafið ekki minna
vald en við. Með því að nota þessi
orð í fréttum heyrir fólk þau,“ seg-
ir Ágústa.
Tímafrek vinna
Jóhannes B. Sigtryggsson,
starfsmaður málræktarsviðs, segir
að langflest þeirra orða sem finna
má í nýyrðadagbókinni hafi verið
skráð í tengslum við málfars-
ráðgjöf hjá Íslenskri málstöð. Hún
sé því ekki afrakstur skipulegrar
orðtöku úr nútímamáli. „Við höfum
ekki mikinn tíma til að sinna þessu
sérstaklega en ef við rekumst á
nýyrði skrifum við þau hjá okkur.“
Jóhannes segir málnefndir í öðrum
löndum, t.d. Svíþjóð, safna skipu-
lega nýyrðum; úr dagblöðum, nýj-
um bókum og öðrum miðlum og
þar séu gefnar út orðabækur yfir
nýyrði.
Málræktarsvið Stofnunar Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum
stefnir hugsanlega að frekari ný-
yrðasöfnun. „Það er í rauninni
ekki hægt að fá skýrt yfirlit yfir
nýyrði nema með skipulegri söfn-
un, t.d. leit í gagnasafni Morg-
unblaðsins að orðum, athuga aldur
þeirra og uppruna. Við höfum auð-
vitað áhuga á að safna sem flestum
nýyrðum en höfum ekki komist í
að safna þeim skipulega. Þetta er
mjög tímafrekt og nú horfum við
frekar til þess hvort hægt verður í
náinni framtíð að nota nútímalegri
aðferðir, það er að láta tölvur
vinna verkið að mestu leyti.“
Engin skipuleg söfnun nýyrða
Vonast er til að í framtíðinni geti tölvur hjálpað til við leit á nýjum orðum
Reuters
Nefnd af Jónasi Skjaldbaka var eitt af mörgum nýyrðum Jónasar Hall-
grímssonar. Þessi skjaldbaka lifði í meira en hundrað ár en óvíst er að hún
hafi verið nógu gömul til að hafa verið samtíða Jónasi.
jobba, -aði S starfa.
Hvar jobbar þú?
Á hverjum tíma eru mörg erlend
orð í umferð sem gott væri að fá
þýðingu á. Hér eru nokkur dæmi og
tillögur góðra orðasmiða :
Þórarinn Eldjárn lagði eftirfar-
andi til um enska orðið „shortcut“:
skáskot (samanber „að skáskjóta
sér“) og um enska orðið „take-
away“ leggur hann til nafnorðið
meðtak (húmoristar gætu einnig
talað um brottnámsrétti).
Pétur Þorsteinsson kom með
þessar hugmyndir að enska orðinu
„brunch“: dragbítur (árbítur sem
dregst) og að blogga: Að daga.
Bloggfærsla: Dögun.
Á meðal annarra orða sem ekki
hafa verið íslenskuð eru eftirfar-
andi: Að gúggla, iPod, að deita,
wannabe, grandparents, outlet og
gigg. Hafi lesendur góðar hug-
myndir að þýðingum á þessum orð-
um mega þeir gjarnan senda línu á
menning@mbl.is.
Nýyrðafjöld