Morgunblaðið - 16.11.2007, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
REYKJAVÍKURHÖFN átti mikinn
þátt í því að Reykjavík náði miklum
yfirburðum yfir aðra staði á Íslandi
á 20. öld og varð
t.a.m. til þess að í
höfuðborginni
varð umskip-
unarhöfn fyrir
allt landið og
nánast öll heild-
sala landsins
safnaðist þar
saman sem
reyndist afar
mikilvægt fyrir
vöxt og viðgang
Reykjavíkur. Það segir Guðjón
Friðriksson sagnfræðingur sem í
nýjasta tölublaði Hafnarblaðsins
rifjar upp sögu Reykjavíkurhafnar, í
tilefni þess að í dag eru 90 ár eru frá
því að danska verkfræðifyrirtækið
Monberg skilaði höfninni í hendur
bæjarstjórnar. Smíðin hafði þá tekið
fjögur ár.
Árið 1911 voru á Alþingi sam-
þykkt ný hafnarlög fyrir Reykjavík-
urbæ. Í þeim var kveðið á um að
landsjóður legði til hafnargerðar
400 þúsund krónur í peningum auk
þess að ábyrgjast 1,2 milljóna króna
lán sem Reykjavík hugðist taka.
Lögin hlutu staðfestingu konungs
og ráðist var í undirbúning.
Mjög dýr fjárfesting sem
heppnaðist fullkomlega
Í lok sama árs var samþykkt að
bjóða verkið út og bárust þrjú til-
boð, eitt frá Noregi og tvö frá Dan-
mörku. Eitt þeirra var barst frá
verkfræðistofu N.C. Monbergs og
náðust samningar við fyrirtækið
veturinn 1912-1913. Höfnin var gíf-
urlega mikið mannvirki og það lang-
stærsta sem Íslendingar höfðu farið
út í á þessum tíma. „Mikla hafn-
argarða átti að hlaða á Grandagarði,
milli Örfiriseyjar og lands, og þar að
auki tvo hafnargarða hvorn á móti
öðrum, annan, Örfiriseyjargarð, frá
Örfirisey og hinn, Ingólfsgarð, frá
svokölluðu Batteríi sem stóð þar
sem nú er Seðlabankinn. Milli þeirra
síðarnefndu átti hafnarkjafturinn að
vera, eitt hundrað metra breiður,“
segir Guðjón m.a. í Hafnarblaðinu.
Þegar framkvæmdirnar hófust í
mars 1913 voru m.a. flutt til landsins
stórvirk vinnutæki, s.s. gufuknúnar
gröfur, sem ekki höfðu sést áður á
íslenskri grund og eimlestir sem
drógu grjót á járnbrautarvögnum.
„Þarna kom eiginlega nútíminn til
Reykjavíkur og Íslands í formi stór-
virkra vinnutækja,“ segir Guðjón en
bætir við að framkvæmdin hafi þó
mætt mótstöðu. „Mönnum óaði nú
við þessu og margir töldu fram-
kvæmdina allt of dýra og of mikið í
ráðist. Höfnin reyndist hinsvegar al-
veg hreint hið mesta gróðafyrirtæki
þegar til kom. Það var miklu meiri
umferð um hana en reiknað hafði
verið með, jafnvel í bjartsýnisleg-
ustu áætlunum, þannig að hún var
mjög fljót að borga sig upp. Þetta er
dæmi um það hvernig mjög dýr fjár-
festing getur heppnast full-
komlega.“
Framkvæmdir í 90 ár
Þegar höfninni var skilað til bæj-
arstjórnar Reykjavíkur fyrir ná-
kvæmlega 90 árum var hún lítið
annað en óútfyllt umgjörð og mikið
verk óunnið. „Framkvæmdir hafa
síðan staðið yfir frá 1917 og nánast
fram á daginn í dag.“ Til dæmis
þurfti að bæta við viðleguköntum,
görðum, bryggjum og margs konar
aðstöðu, svo sem uppskipunartækj-
um. Þá voru engin vöruhús þannig
að vörurnar lágu meira og minna úti
þegar þeim var skipað upp. Árin
1925-1927 var Faxagarður byggður.
Hafnargerðin var Reykjavík gíf-
urlega mikilvæg, ekki síst fyrir at-
vinnulífið þar sem mikið atvinnu-
leysi ríkti á stríðsárunum fyrri. Hún
skapaði síðan mikla atvinnu og varð
eitt stærsta vinnusvæði landsins.
Geta má þess að á árunum milli
stríða voru þrír af hverjum fjórum
togurum gerðir út frá Reykjavík-
urhöfn og eftir 1960 varð hún
stærsta fiskiskipahöfn landsins.
Um og eftir 1970 tók uppskip-
unartækni örum breytingum og eft-
ir að gámar urðu allsráðandi var
ljóst ekkert pláss var fyrir þá í
gömlu höfninni. Nóg landrými var
hins vegar við Sundahöfn en fyrsti
áfangi hennar var boðinn út í árs-
byrjun 1965. Fyrsta skipið lestaði í
Sundahöfn í júní 1968 en fyrsta
áfanga hennar lauk formlega mán-
uði síðar. Síðan hefur hún verið í
stöðugri þróun.
Þróun skipulags við Reykjavík-
urhöfn, þ.e. gömlu höfnina, hefur
tekið miklum breytingum á fáum ár-
um og mun á næstu árum taka sí-
fellt meira mið af íbúðarbyggð,
menningarstarfsemi, verslun og
þjónustu „á meðan hin harða hafn-
arstarfsemi mun smám saman drag-
ast saman. Reykjavíkurborg er nú á
þeim tímamótum að marka Gömlu
höfninni þá ásýnd og líf sem mun
verða einkennandi fyrir hana á
næstu áratugum,“ segir Gísli Gísla-
son, hafnarstjóri Faxaflóahafna, um
framtíð hafnarinnar.
Nútíminn kom
til Reykjavíkur
Morgunblaðið/RAX
Ný ásýnd Tónlistar- og ráðstefnuhúsið sem senn rís mun setja svip á hafnarsvæðið og er til marks um nýja tíma.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
54 ára Töluverðar breytingar hafa átt sér stað við höfnina á síðustu 36 árum.
Guðjón
Friðriksson
Í HNOTSKURN
»Danska verkfræðifyr-irtækið Monberg afhenti
Reykjavíkurhöfn 16. nóv-
ember 1917.
» Í tilefni af 90 ára afmælinuverður margt gert til að
minnast þess áfanga. Í hádeg-
inu í dag verður t.a.m. opnað
þjónustuhús á Skarfabakka
fyrir farþega skemmti-
ferðaskipa. Þangað eru allir
velkomnir.
»Einnig verður gefið útveglegt Hafnarblað þar
sem farið er yfir sögu hafn-
arinnar.
Á þessum degi árið 1917 var Reykjavíkurhöfn afhent eftir þriggja ára smíði
AKUREYRI
JÓN Gíslason fyrrver-
andi húsasmíðameist-
ari hefur fært Iðnaðar-
safninu á Akureyri að
gjöf 30 útskurðar-
myndir eftir sjálfan sig.
Jón er á tíræðisaldri,
fæddur 1915, og er enn
að skera út listaverk.
Glæsilega gripi af ýmsu
tagi eins og sjá má í
safninu.
Jón lagði stund á
húsasmíðar á Akureyri
allan sinn starfsferil.
Listáhuginn blundaði ávallt í Jóni og hann sótti
námskeið fyrir margt löngu hjá Hauki Stefánssyni
listmálara og Jónasi S. Jakobssyni sem m.a. gerði
styttuna af Helga magra og Þórunni hyrnu.
Jón hefur sinnt listsköpun áratugum saman,
mótað verk í leir og gifs auk þess að teikna, en það
var ekki fyrr en undir áttrætt sem hann tók til við
að skera út í íslenskt birki hinar fjölbreytilegustu
myndir. Myndefnið er margvíslegt, eins og Har-
aldur Ingi Haraldsson, safnstjóri Iðnaðarsafnsins,
nefndi í gær, þegar hann tók formlega við gjöfinni.
„Tréskurðarmyndirnar eiga það sameiginlegt að
vera gerðar af miklum hagleik og ríkri tjáningar-
þörf,“ sagði Haraldur Ingi. „Iðnaðarsafninu á Ak-
ureyri er mikill fengur af þessum verkum úr hendi
manns sem starfsævi sína hafði atvinnu af húsa-
smíðaiðnaði. Sú tenging við listina gerir verkin
sérstaklega verðmæt fyrir þetta safn, sem einbeit-
ir sér að því að safna iðnmunum. Þessir gripir gefa
okkur nýja vídd, nýja sýn.“
Haraldur Ingi lýsti yfir mikilli ánægju með
gjöfina. „Þetta eru hagleiksgripir og einstaklega
tjáningarríkir, Jón tekur fyrir hin aðskiljanleg-
ustu efni; það er ólgandi tónlist í gripunum, móð-
urást, trúmál, sorgin, gleðin og vinnan…“
Jón Gíslason sagði í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins að þrátt fyrir að heyrnin væri
farin að bila gæti hann enn vel unnið í höndunum,
og það leyndi sér ekki á gripunum. Og Jón hefur
gaman af því að skera út þó hann segðist gera
minna af því en áður. „Það er ekkert betra til þess
að eyða tímanum,“ sagði hann.
Hagleiksmaður á tíræðisaldri
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Glæsilegt Jón Gíslason með útskorinn kontrabassaleikara og Haraldur Ingi safnstjóri heldur á manni
að vinna við hefilbekk. Verkin eru gerð af miklum hagleik og ríkri tjáningarþörf, segir Haraldur.
Jón Gíslason gefur Iðnaðar-
safninu 30 listaverk sem
hann skar út í birki
SÖNGTÓNLEIKAR verða í Glerár-
kirkju í kvöld þar sem ýmsir „Konn-
arar“ koma fram, en svo eru kallaðir
afkomendur Jóhanns Konráðssonar
söngvara og Fanneyjar Oddgeirs-
dóttur. Jóhann – Jói Konn, eins og
hann var alltaf kallaður – lést fyrir
25 árum en í dag eru nákvæmlega 90
ár frá því hann fæddist.
Jói Konn var ástsæll söngvari og
afkomendurnir halda arfleifðinni við;
margir þeirra syngja sér og öðrum
til ánægju og í kvöld koma söngv-
ararnir í hópnum allir fram, nema
Kristján óperusöngvari sem býr á
Ítalíu.
Jóhann Konráðsson starfaði lengi
sem sjúkraliði og söng jafnan fyrir
skjólstæðinga sína og Fanney kona
hans vann einnig hjá Fjórðungs-
sjúkrahúsinu. Jóhann var hjartveik-
ur og þess vegna var ákveðið að gefa
Sjúkrahúsinu, í nafni þeirra hjóna,
hluta ágóða tónleikanna til tækja-
kaupa.
Kvenfélagið Baldursbrá verður
með kaffisölu í kvöld og gefur ágóð-
ann til Sjúkrahússins.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og
aðgangseyrir er kr. 2.500. Gísli Sig-
urgeirsson sýnir þátt um Jóa Konn
eftir tónleikana í kvöld.
Vert er að geta þess að Konnar-
arnir verða aftur með tónleika á
morgun, laugardag, í Blönduóss-
kirkju. Hluti af ágóða þeirra tónleika
verður gefinn til sjúkrahússins þar.
„Konnarar“
með tónleika í
Glerárkirkju
fruggaður L myglaður
Óttalega ertu
fruggaður!