Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Ástkæra, ylhýra málið,
og allri rödd fegra,
blíð, sem að barni kvað móðir
á brjósti svanhvítu,
móðurmálið mitt góða,
hið mjúka og ríka,
orð áttu enn eins og forðum
mér yndið að veita.
(Jónas Hallgrímsson.)
Á DEGI íslenskrar tungu er við
hæfi að hugleiða gildi móðurmáls-
ins fyrir nám og þar
með tengsl málþroska
við námshæfileika. Á
síðustu árum hefur
athygli sérfræðinga
beinst æ meir að vægi
málþroska hvað varð-
ar nám. Margar rann-
sóknir hafa sýnt fram
á fylgni málþroska við
námsárangur. Í þessu
felst að gera má ráð
fyrir að börn sem eru
með góðan málþroska
nái góðum náms-
árangri, en þau sem
eru með slakan málþroska eigi eft-
ir að glíma við námsörðugleika.
(Nation, 2005; Snowling, 1999).
Málið er eitt öflugasta verkfæri
hugsunarinnar og undirstaða alls
náms. Til þess að börn nái góðum
námsárangri er því mikilvægt að
þau nái góðum tökum á móðurmáli
sínu. Fyrir leikmenn getur verið
erfitt að koma auga á börn með
slakan málþroska, einkum ef ekki
er um framburðarfrávik að ræða.
Þessir málerfiðleikar koma gjarnan
upp á yfirborðið þegar námsefni
þyngist og meira fer að reyna á
málskilning nemenda. Slakur mál-
þroski kemur því oft fram sem
slakur lesskilningur. Nemandi sem
á í erfiðleikum með að skilja hug-
tök í texta á oftast einnig í erf-
iðleikum með að nálgast upplýs-
ingar úr textanum, t.d. að ná fram
aðalatriðum, draga ályktanir og
lesa á milli línanna. Það virðist
sem þessum nemendum sé „bók-
málið“ fjarlægt og illskiljanlegt.
Lesskilningserfiðleikar geta komið
fram í öllu bóklegu námi og nægir
að benda á, að þegar á yngri stig-
um grunnskólans
byggist stærðfræði að
stórum hluta á því að
geta lesið og túlkað
texta.
Frá eins og hálfs
árs aldri geta flest
börn lært að meðaltali
eitt nýtt orð fyrir
hverjar tvær stundir
sem þau eru vakandi.
Til að þessi ótrúlegi
námshæfileiki barna
nýtist sem best þarf
barnið að búa í frjóu
málumhverfi. En hvað
geta foreldrar gert til að skapa
slíkt umhverfi og örva þannig sem
best málþroska barna sinna? Þess-
ari spurningu mætti svara í löngu
máli. Ég ætla hins vegar að benda
á einfalda og árangursríka leið sem
flestir foreldrar ættu að geta nýtt
sér. Hér á ég við það að lesa dag-
lega upphátt fyrir börn sín, þegar
frá unga aldri.
Þegar lesið er fyrir börn byggir
það upp orðaforða þeirra og mál-
fræðiþekkingu, auk þess sem til-
finning fyrir uppbyggingu texta og
mismunandi stílbrigðum eykst. Á
þennan hátt læra börnin smám
saman að skilja og umgangast
„bókmálið“, í fyrstu sem þiggj-
endur en síðar gerir það þeim
kleift að vinna úr því á skapandi
hátt.
Þeir foreldrar sem vilja veg
barna sinna sem bestan í námi og
starfi ættu því að gera það að
reglu að lesa daglega fyrir þau,
þegar frá unga aldri. Þar með gefa
þeir börnum sínum ómetanlegt
veganesti, auk þess sem slíkar
samverustundir hafa ótvírætt til-
finningalegt gildi fyrir foreldra og
börn.
Heimildir:
Nation, K. (2005). Childreńs Reading
Comprehension Difficulties. The Science
of Reading: A Handbook. Ritstýrt af
Snowling, M. og Hulme, C. Oxford: Black-
well.
Snowling, M.J. og Stackhouse, J. (1999).
Dyslexia, Speech and Language: A practi-
tioner’s Handbook. London: Whurr.
Er góður málþroski
lykillinn að námsárangri?
Bjartey Sigurðardóttir
skrifar um gildi móðurmálsins » Þegar lesið er fyrirbörn byggir það upp
orðaforða þeirra og mál-
fræðiþekkingu ...
Bjartey Sigurðardóttir
Höfundur er talmeinafræðingur
og sérkennari.
- kemur þér við
Erfðagreining gæti séð
um DNA-rannsóknir
fyrir lögregluna
Leikstjórar bítast
um Óþelló
Samkeppnishömlur
á símamarkaðnum
Jónas Hallgrímsson frá
ýmsum sjónarhornum
Sími með öllu nema
örbylgjuofni
16 síðna sérblað um
jólaundirbúninginn
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
spíla, -u, -ur KV hárspenna, hárnál.
Mig vantar
spílur í hárið
Í FRÉTTUM nýverið var greint
frá niðurlagningu starfs forstöðu-
manns hjá Umhverfisstofnun á
Akureyri og sú ákvörðun réttlætt
út frá stefnumótunar og hag-
rænum sjónarmiðum og beinlínis
látið að því liggja að
með þessari mikil-
vægu stefnumótandi
ákvörðun yrði fjár-
hagur og framtíð
UST tryggð um alla
framtíð.
Þessi ákvörðun
hlýtur að vekja upp
spurningar, um til-
gang þess og þá
hugsun að flytja
störf út á land. Það
er sjálfsagt hægt að
komast að því með
hagfræðilegum rök-
um og stjórnsýsluút-
tekt að allt sem staðsett er á
landsbyggðinni sé óhagkvæmt og
standi vexti stofnana fyrir þrifum.
En er það stjórnsýsluúttekt sem
er best fyrir land og þjóð – sem er
gild?
Við sem höfum valið að lifa
gæðalífi á landsbyggðinni, gerum
okkur æ betur ljóst hvaða varnar-
barátta þarf að eiga sér stað á
hverjum degi. Á Akureyri höfum
við notið mikillar fólksfjölgunar á
sl. 10 árum en hver og einn einasti
sem fer og hvert einasta starf sem
tapast skiptir okkur máli.
Í fjárlögum Alþingis 2008 er að
finna mýmörg dæmi
um ,,ósjálfráðan“ vöxt
ríkisstofnana í Reykja-
vík – vöxt sem engar
pólitískar spurningar
eru spurðar um – vöxt
sem enginn fylgist með
– vöxt sem enginn tel-
ur eins og hvert ein-
asta starf sem flutt er
frá höfuðborgarsvæð-
inu er talið. Það er tal-
ið til tekna í skýrslum
um byggðamál. Það er
talið sem merki um
göfugmennsku og víð-
sýni þeirra sem ráða.
Hitt er bara þegjandi samkomulag
– sem ræður.
Ég tel það skyldu ríkisvaldsins
að sjá til þess að þegar ákvörðun
um að flytja stofnun eða hluta
stofnunar á landsbyggðina – til
dæmis til bæjarfélags eins og Ak-
ureyrar, sem er nægilega stórt og
öflugt til að mynda dýnamískt,
örvandi og skapandi samfélag – að
hugur fylgi máli. Að stofnanir séu
það burðugar og hafi nægilega
tekjustofna til að standa undir
rekstri starfsstöðva sinna á lands-
byggðinni og að þeim sé gert
kleift að verða sjálfstæðar og
dafna á eigin forsendum en ekki
litið á þær sem ,,vandamálið“ og
,,eyðsludeildina“ fyrir norðan.
Það að vera fulltrúi landsbyggð-
arinnar í verkefnum á vegum ríkis
og bæjar er tímafrekt og krefjandi
– það þekki ég af eigin raun. En
sveitarstjórnarmenn og -konur
leggja þau störf á sig þar sem við
teljum óhjákvæmilegt að lands-
byggðin eigi sér málsvara í þeim
verkefnum. Sjálfsagt væri hægt að
reikna út í hugvitsamlegri úttekt
það óhagræði sem hlýst af því að
kalla landsbyggðarfulltrúa til
ráðalags en það má ekki verða
sjónarhorn sem verður ráðandi –
þá er illa farið fyrir íslenskri þjóð.
Forstjóri UST segir í frétta-
tilkynningu: ,,Með þessu er verið
að skapa nýjan grundvöll fyrir
umræðu um framtíð stofnunar-
innar og horfa fram á veginn með
opnum huga og jafnframt að svara
kröfum stjórnsýsluúttektar sem
gerð var á stofnuninni á síðasta
ári.“ Hér ræður þröngsýni og hag-
ræðingarkrafan ein og umræðan
um framtíð stofnunarinnar verður
einsleit.
Ég spyr; hvaða nútímalegu
vinnubrögð eru hér í gangi?
Hagrætt frá (sjónar) horni 108
Sigrún Björk Jakobsdóttir
skrifar í tilefni þess að starf
forstöðumanns hjá Umhverf-
isstofnun á Akureyri hefur ver-
ið lagt niður
» Við sem höfum valiðað lifa gæðalífi á
landsbyggðinni gerum
okkur æ betur ljóst
hvaða varnarbarátta
þarf að eiga sér stað á
hverjum degi.
Sigrún Björk
Jakobsdóttir
Höfundur er bæjarstjóri á Akureyri.
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni