Morgunblaðið - 16.11.2007, Qupperneq 50
50 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
Brúðkaupsbilun kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára
Brúðkaupsbilun kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS
Borðtennisbull kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
Ástarsorg kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Ljón fyrir lömb kl. 8 - 10:15 B.i. 12 ára
Myrkrið rís kl. 3:45 B.i. 7 ára
Ævintýraeyja Ibba m/ísl. tali kl. 3:45 - 6
Brúðkaupsbilun kl. 8 - 10 B.i. 10 ára
Rogue Leigumorðingi kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Borðtennisbull kl. 6 B.i. 7 ára
Ævintýraeyja IBBA kl. 6 m/ísl. tali
Sími 564 0000Sími 462 3500
Líf rósarinnar kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára
Ljón fyrir lömb kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
Svona er England kl. 6 - 8 - 10
Ofursvalir kl. 5:30 - 8 B.i. 12 ára
Heppni Chuck kl. 10:30 B.i. 14 ára
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Sími 551 9000
Ve
rð a
ðeins
600 kr
.
Með íslensku tali
Gríðarstór
gamanmynd
með litlum
kúlum!
Stórkostleg ævintýra-
mynd í anda Eragon.
eeee
- H.J. Mbl.
eeee
- T.S.K., 24 Stundir
BÚÐU ÞIG UNDIR STRÍÐ
Sannkölluð
stórmynd með
mögnuðum
leikurum.
HANN BEIÐ ALLT SITT LÍF
EFTIR ÞEIRRI RÉTTU... VERST AÐ
HANN BEIÐ EKKI VIKU LENGUR
FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ LEIKSTJÓRUM
"THERE´S SOMETHING ABOUT MARY"
- Kauptu bíómiðann á netinu -
BORÐTENNISBULL
Stórskemmtileg rómantísk gamanmynd
um ungan mann sem er sannfærður
um að hann muni aldrei verða
ástfanginn aftur!
MEÐ JASON BIGGS ÚR AMERICAN
PIE MYNDUNUM OG ISLA FISHER
ÚR WEDDING CRASHERS
FRUMSÝNING
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
HÖRKU HASARMYND
MEÐ TVEIMUR HEITUSTU
TÖFFURUNUM Í DAG
Vönduð frönsk stórmynd, sem er að fara sigurför
um heiminn, um litskrúðuga ævi Edith Piaf.
DAGUR ÍSLENSKRAR TUNGU
LJÓN
FYRIR LÖMB
ÁSTARSORG
SVONA ER
ENGLAND
HEPPNI
CHUCK
LÍF RÓSARINNAR: SAGA EDITH PIAF
lúðulaki K ræfill, kauði í klæða-
burði, skussi, letingi.
Algjör lúðulaki!
ÞAÐ VAR íslenskt veður í loftinu í
New York föstudaginn 9. Nóv-
ember, suðaustan súld með rign-
ingu á köflum. Í lok dags voru göt-
ur, torg og neðanjarðarlestir
troðfullar af fólki á leið úr vinnu, í
vinnu, út að borða, heim, að heiman
eða út að skemmta sér. Ég var
hinsvegar á leiðinni á múm tón-
leika, og sama var að segja um
u.þ.b. 1.500 aðra New Yorkbúa.
Saðsetning tónleikana var á efri
vesturhluta Manhatta í einni af
virðulegri kaþólsku kirkjum borg-
arinnar, kenndri við Pál Postula. Á
undan múm spilaði kanadíska
hljómsveitin Thorngat og sellóleik-
arinn Jihyun Kim. Kanadamenn-
irnir þrír áttu við talsverða hljóð-
blöndunarerfiðleika að stríða vegna
bergmálsins í kirkjunni og þrátt
fyrir fallega sellótóna Jihyun Kim
drukknaði hljómurinn í endurkasti
frá innviðum kirkjunnar.
Múm á greinilega mjög tryggan
aðdáendahóp í New York því sal-
urinn var fullur eftirvæntingar
þegar hljómsveitin steig á svið eftir
stutt hlé. Múm byrjaði tónleika
sína á „Slow Bicycle“ af Yesterday
Was Dramatic – Today is OK við
góðar undirtektir þeirra tónleika-
gesta sem voru viðstaddir. Hljóm-
burður í þessari gullfallegu kirkju
er dálítið sérstakur eins og áður
sagði og múm sneið sér stakk eftir
vexti og hélt sig á lágu nótunum til
að leyfa bergmálinu í salnum að
njóta sín í stað þess að yfirgnæfa
og kæfa tónlistina. Þetta tókst
mjög vel og kvöldstundin með múm
var hin ánægjulegasta í alla staði.
Hljómsveitin spilaði mestmegnis
efni af nýútkominni plötu sinni Go
Go Smear the Poison Ivy en krydd-
aði með eldri lögum eins og við var
að búast.
Það er gaman að sjá múm í þess-
ari nýjustu mynd. Mannabreyt-
ingar í hljómsveitinni hafa auðvitað
haft veruleg áhrif á tónlistina og
Örvar hefur tekið að sér „Front-
Man“ hlutverk, hann er eins og
límdur við hljóðnemann þessa dag-
ana og er það talsverð breyting frá
því sem var upphafsárum múm. Í
þessari útgáfu hljómsveitarinnar er
nægur raddstyrkur, og mun meiri
söngur en nokkru sinni áður, Örv-
ar, Ólöf, Mr. Silla og Hildur syngja
öll og skapa mjög skemmtilegar
melódíufléttur og allur samleikur
þeirra er hreint út sagt frábær.
Það var sérstaklega ánægjulegt
að sjá fylgjendur hljómsveitarinnar
standa upp á ganginum milli
kirkjubekkjanna í þessari virðu-
legu kaþólsku kirkju og dilla sér í
takt við undirförla og ísmeygilega
tóna múm eftir að áhorfendur
höfðu klappað hljómsveitina upp.
Múm sveik ekki aðdáendur sína og
og tók 3 aukalög og endaði pró-
grammið á hinu frábæra „I’m 9
Today“. Eftir tónleikana tíndust
gestir út í íslenskt haustveður sem
er nýbúið að taka völdin í New
York, hráslagaleg rigning og rok úr
öllum áttum, sem gerði regnhlíf-
anotkun ómögulega, setti loka-
punktinn á þennan viðburð.
Wordless Music stendur fyrir fjöldan-
um öllum af athyglisverðum uppá-
komum í New York og er hægt að fylgj-
ast með þeim á wordlessmusic.org.
Ánægjuleg kvöldstund
TÓNLIST
The Worldless Music Series,
tónleikar nr. 13.
Einnig komu fram Thorngat og Jihyun
Kim. Tónleikarnir fóru fram í Sankti Páls
kirkju á Columbus-breiðstræti og 60.
stræti, New York. 9. nóvember, 2007, kl.
20.
múm Í kapellunni Tónpredikun múm fór vel í tónleikagesti.Snorri Sturluson