Morgunblaðið - 17.12.2007, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Jólagjöf fyrir þá
sem „eiga allt“
Gefðu hlýju og samveru um jólin!
Allir kunna að meta það að hafa tækifæri á að komast í gott
frí í sólina eða annað. Gjafabréf Heimsferða er jólagjöf, sem
er í senn hagnýt, skemmtileg og sveigjanleg og felur í sér
hlýju og samveru með sínum nánustu. Lágmarksupphæðin
er 3.000 kr. en annars ræður þú upphæðinni.
Nánar á www.heimsferdir.is og í síma 595 1000.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
0
87
7
MEÐ þessu átaki erum við að reyna
að leiðrétta þann misskilning að það
sé „í lagi“ að aka bíl svo lengi sem
áfengismagn í blóði sé undir refsi-
mörkum, þ.e. 0,5 prómill. Stað-
reyndin er hins vegar sú að sam-
kvæmt umferðarlögum er
einfaldlega bannað að aka eftir
neyslu áfengis, sama hversu lítið
magnið er,“ segir Einar Magnús
Magnússon upplýsingafulltrúi Um-
ferðarstofu sem stendur nú að fram-
haldsátaki gegn ölvunarakstri í sam-
vinnu við vínbúðir. Einar bendir á að
undanfarin 5 ár hafi 22 einstaklingar
látist af völdum ölvunaraksturs og
til viðbótar hafa 47 slasast alvarlega.
Yfirskrift átaksins er „Bara einn
er einum of mikið“ og segir Einar að
jafnvel þótt fólk fái sér einn drykk
og sé stöðvað af lögreglu með undir
0,5 prómill í blóði, hafi það sínar af-
leiðingar. „Ökumaður þarf þá að
hætta akstri og lögreglan tekur lykl-
ana af honum. Ökumaðurinn fær þá
ekki fyrr en í fyrsta lagi daginn eftir
þegar áfengið er farið úr líkama
hans. Þetta er ekki eiginleg refsing
heldur er verið að koma í veg fyrir
að menn valdi sér og öðrum skaða.“
Í tengslum við átakið hefur gla-
samottum verið dreift á vínveit-
ingastaði með forvarnarboðskap og
sömuleiðis hefur verið komið fyrir
sérstökum gangstéttarborða í ná-
grenni veitingahúsa í þeim tilgangi
að fólk undir áhrifum geti spreytt
sig við að ganga í beinni línu eftir
honum og metið hæfni sína. „En
jafnvel þótt fólk geti leyst þessa
„þraut“, þá á það að taka strætó eða
leigubíl – hafi það neytt áfengis.“
Einar segir ennfremur að enginn
ætti að hika við að segja til öku-
manns sem sest undir stýri undir
áhrifum. „Það er ekki verið að
„klaga“ neinn með slíkum af-
skiptum, heldur bjarga.“
Akstur eftir
„bara einn“
drykk geng-
ur ekki
Morgunblaðið/Frikki
Á línunni? Vegfarendur á Laugavegi geta metið hæfni sína með því að reyna að ganga beint eftir línunni.
Sérstakt átak gegn ölvunarakstri heldur áfram
ÚTREIKNINGAR sem sýna fram á að Baugur
Group hafi tapað um 12 milljörðum króna á
fjárfestingum sínum í skráðum fyrirtækjum í
Bretlandi eru rangir að sögn Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar, stjórnarformaður fyrirtækisins.
Segir hann raunverulegt tap á þessum fjárfest-
ingum nema um það bil 3,5 milljörðum króna.
Kemur þetta fram í grein danska blaðsins
Berlingske Tidende um íslensku athafnamenn-
ina Jón Ásgeir og Björgólf Thor Björgólfsson.
Nú þegar fjárfestingarsjóðir og -bankar eiga
í vandræðum með fjármögnun eru breskir fjöl-
miðlar uppfullir af fréttum af þeim áformum
Jóns Ásgeirs að halda áfram fjárfestingum þar
í landi. Nú síðast greindi Baugur Group, fyr-
irtæki Jóns Ásgeirs, frá áformum sínum um að
auka hlut sinn í verslanakeðjunni Moss Bros en
Baugur á fyrir um 50 fyrirtæki í smásölugeir-
anum, ýmist að öllu leyti eða að hluta.
Jón Ásgeir segir breyttar aðstæður á mörk-
uðum bjóða upp á ný tækifæri fyrir Baug. Seg-
ir hann að fyrirtækið hafi ekki lent í vandræð-
um vegna ástandsins á lánamörkuðum.
Þá er í grein Berlingske fjallað um FL Gro-
up, sem blaðið segir hafa rambað á barmi
gjaldþrots þar til Baugur kom því til bjargar.
Skuldir fyrirtækisins hafi numið um 195 millj-
örðum íslenskra króna en markaðsvirði þess
hafi á stuttum tíma fallið úr 270 milljörðum í
135 milljarða króna. Með því að færa inn í fé-
lagið nokkur fasteignafélög, sem áður voru í
eigu Baugs, hafi Jón Ásgeir komið í veg fyrir
að illa færi fyrir FL Group.
Í greininni segir að ólíkt Jóni Ásgeiri, sem
haldi áfram fjárfestingum, hafi Björgólfur Thor
selt röð fjárfestinga sinna, einkum í símafyr-
irtækjum í Austur-Evrópu. Ástæðuna segir
Björgólfur þá að hann sjái ekki fram á að geta
náð markmiðum sínum á þeim markaði þar sem
aðrir aðilar yfirbjóði hann í samkeppni um ný
fyrirtæki. Segir hann samkeppnisaðilana greiða
hærra verð fyrir símafyrirtæki en hann sætti
sig við og muni þeir lenda í vandræðum þegar
fram líði stundir varðandi arðsemi af fjárfest-
ingunum. Björgólfur Thor muni því einbeita sér
að lyfjaiðnaðinum en fjárfestingarfyrirtæki
hans, Novator, á nú samheitalyfjafyrirtækið
Actavis að fullu. Segir í greininni að hann hafi
ákveðið að kaupa allt hlutafé í fyrirtækinu og
skrá það af markaði vegna þess að upplýs-
ingaskylda skráðs fyrirtækis veitti samkeppn-
isaðilum of miklar upplýsingar um rekstur
þess.
Hefur tapað 3,5 milljörðum
Í grein danska dagblaðsins Berlingske Tidende er fjallað um tap Baugs Group á
fjárfestingum félagsins í hlutabréfum skráðra fyrirtækja í Bretlandi
Í HNOTSKURN
» Baugur Group er stór aðili í rekstri smá-söluverslana í Danmörku og Bretlandi
auk Íslands.
» Novator átti til skamms tíma miklar eign-ir í evrópskum símafyrirtækjum, en hefur
síðan dregið mjög úr slíkum fjárfestingum.
» Stærsta eign Novators er því íslenskasamheitalyfjafyrirtækið Actavis, sem er
með starfsemi í fjölda landa.
JÁTNING liggur ekki fyrir vegna
meintrar íkveikju í Fiskiðjunni í
Vestmannaeyjum aðfaranótt föstu-
dags. Karlmaður á þrítugsaldri sit-
ur í gæsluvarðhaldi vegna málsins
og rennur varðhaldstíminn út í dag,
mánudag. Lögreglan í Eyjum fékk
gæsluvarðhaldskröfu sína sam-
þykkta í Héraðsdómi Suðurlands á
laugardag og fór fram á varðhald
til þriðjudags, en héraðsdómur
taldi nægilegt að maðurinn sæti í
tveggja daga gæslu. Að sögn lög-
reglunnar mun hinn grunaði ekki
hafa komið við sögu lögreglu áður.
Maðurinn hefur sagst hafa verið í
húsinu skömmu áður en eldur varð
þar laus en hefur neitað sök um
íkveikju. Rannsókn hefur leitt í ljós
að hann yfirgaf húsið um svipað
leyti og tilkynnt var um brunann.
Rannsókn málsins er fram haldið
af fullum krafti og fær lögreglan í
Eyjum aðstoð frá rannsóknarlög-
reglumanni frá Selfossi.
Neitar sök
um íkveikju
RANNSÓKN lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu á tildrögum þess
að karlmaður hlaut slagæðablæð-
ingu úr fæti á laugardag síðastlið-
inn stendur enn yfir og er leitað
skýringa á því hvernig hann fékk
áverkann. Leitast er við að upp-
lýsa hvort um mögulega árás með
vopni hafi verið að ræða. Mað-
urinn hefur verið útskrifaður af
sjúkrahúsi.
Lögreglan fékk upphaflega til-
kynningar um blóðslóð eftir mann-
inn í miðborginni og var Vitastíg
lokað vegna rannsóknarinnar.
Enginn hefur verið handtekinn
vegna málsins. Mikil áhersla var
lögð á að hafa uppi á hinum særða
og í ljós kom að hann hafði hlaup-
ið heim til sín. Var maðurinn flutt-
ur á sjúkrahús og málið tekið til
nánari rannsóknar
Áverkinn til
rannsóknar
LÖGREGLUMENN í umdæmi lög-
reglustjórans á Seyðisfirði gerðu
húsleit í íbúð á Fljótsdalshéraði
laust upp úr hádegi síðastliðinn
laugardag. Við húsleitina fundust
rúmlega 10 grömm af hassi og við-
urkenndi íbúi íbúðarinnar vörslu
fíkniefnanna og telst málið þar með
upplýst af hálfu lögreglunnar.
Við húsleitina fengu lög-
reglumenn aðstoð sérþjálfaðs fíkni-
efnaleitarhunds lögreglunnar á
Eskifirði.
Fundu fíkni-
efni í íbúð
Reykjanesbær | Gert er ráð fyrir
100 milljóna króna rekstrarafgangi í
fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar
sem lögð hefur verið fyrir bæjar-
stjórn og samþykkt til síðari um-
ræðu sem verður næstkomandi
þriðjudag. Þá er gert ráð fyrir 133
milljóna króna afgangi af rekstri
samstæðunnar í heild.
Með fjölgun íbúa hafa orðið tals-
verð umskipti í rekstri Reykjanes-
bæjar frá árinu 2003, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá
Reykjanesbæ. Veltufé frá rekstri
sem var neikvætt árin 2003 og 2004,
hefur verið jákvætt síðastliðin tvö ár
og áætlanir gera ráð fyrir að það
styrkist enn frekar.
Útsvarsprósenta fyrir árið 2008
verður 12,7%, óbreytt frá árinu 2007
sem er undir landsmeðaltali.
Uppbyggingu nýrra hverfa í
Reykjanesbæ verður haldið áfram.
Hugað verður að uppbyggingu
íþróttastarfsemi og má þar nefna
knattspyrnuvallarsvæði Njarðvík-
inga og æfingasvæði Keflavíkur
vestan Reykjaneshallar. Hafin verð-
ur bygging á félagsaðstöðu Keflavík-
ur, búningsklefum og bættri um-
gjörð aðalsvæðis Keflavíkur. Hafin
verður bygging á fimleikahúsi vest-
an Reykjaneshallar.
Reist verður nýtt stjórnsýsluhús á
Fitjum fyrir Reykjanesbæ, þar
verða einnig höfuðstöðvar Hitaveitu
Suðurnesja.
Í mars 2008 verður tekin í notkun
ný félags- og þjónustumiðstöð fyrir
eldri borgara að Nesvöllum auk ör-
yggisíbúða fyrir eldri borgara. Í fjár-
hagsáætluninni er gert ráð fyrir að
komið verði á fót sérstakri dagvist
fyrir Alzheimer- og minnissjúka.
Breytingar á stjórnskipulagi
Hvatagreiðslur á íbúavefnum Mitt
Reykjanes hefjast í janúar en
greiddar verða 7.000 kr. til barna og
ungmenna vegna menningar-,
íþrótta- eða tómstundaiðkunar.
Gert er ráð fyrir að stofnað verði
ný svið í stjórnsýslu Reykjanesbæj-
ar, menningarsvið og upplýsinga-
svið. Hið síðarnefnda mun hafa með
höndum kynningarmál og upplýs-
inga- og tæknimál, auk símsvörun-
um og móttöku á bæjarskrifstofum
og umsjón verkefna sem koma að
fleiri en einum málaflokki.
Byggja nýtt stjórn-
sýsluhús á Fitjum
Umskipti í rekstri Reykjanesbæjar frá árinu 2003